Þjóðviljinn - 04.01.1973, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. janúar 1!)7J 12,3% aukn ing áþotuflugi i yfirliti yfir flugumferð- ina á islenzka úthafs-flug- stjórnarsvæðinu sem flug- málastjórn hefur sent frá sér, kemur í Ijós, að far- þegaþotuflug hefur aukizt á sl. ári um 12,3% en á sama tíma hefur flug far- þega-skrúfuflugvéla minnkað um 19.1%. Alls fóru 24.327 þotur um svæðið á árinu, en aðeins 2596 skrúfuflugvélar í farþega- flutningum. Á Keflavikurflugvelli millilentu 3538 þotur en 212 skrúfuvélar, sem er 65% færri lendingar en ár- ið áður. Hins vegar er aukning á þotulendingum sem nemur 12,3%. Á Reykjavikurflugvelli lentu farþegaflugvélar i innanlands- flugi 11.646 sinnum sem er 18,3 % aukning frá árinu á undan. Hins- vegar fækkaði lendingum smá- flugvéla um 8,9% og eins farþega- véla i millilandaflugi um 14,9%. Lendingar á flugvellinum á Akureyri urðu 2543 á árinu, 1948 i Vestmannaeyjum, 1166 á Egils- stöðum, 1045 á Isafirði, 764 á Hornafirði og 259 á Sauðárkróki. Fyrsta hlýja árið eftir sjö köld En úrkoma meiri og sólskinsstundir fœrri Árið 1972 var mun hlýrra en í meðallagi (miðað við 30 ára timabilið 1931-60), en úrkoma var yfir meðallagi og sólskinsstundir færri, bæði norðanlands og sunnan. Að þvi er Markús Einarsson veðurfræðingur sagði Þjóðvilj- anum var það merkilegast um veðurfar ársins 1972, að það var fyrsta hlýja árið eftir sjö undan- farin köld ár, en siðasla hlýja ár á undan þessu var 1964. Eru þessar niðurstöður byggðar á mælingum frá Reykjavik og Akureyri til bráðabirgða. Meðalhiti ársins 1972 var i Reykjavik 5,2 gráður, sem er 0,2 gr. yfir meðallag, og á Akureyri 4,6 gr. eða 0,7 gr. yfir meðallag og þar nyrðra var þetta hlýjasta árið siðan 1953. Það sem veldur er fyrst og fremst veturinn og vorið, sem hvorttveggja var hlýtt, en sumarið var hins vegar kalt alls- staðar á landinu, t.d. var ágúst- mánuður i Reykjavik sá kaldasti i hálfa öld. Úrkoma á árinu var yfir meðal- lagi, mældist 1028 mm i Reykja- vík, en meðalúrkoma er talin 805 mm, og á Akureyri var úrkoman rúmlega 640 mm, en þar er meðalúrkoma talin 474 mm. Varð árið 1972 þriðja mesta úrkomuár á Akureyri siðan úrkomumælingar hófust 1927, hún varð heldur meiri árin 1935 og 1953. Er þar einkum um að kenna mikilli úrkomu tvo mánuði ársins, i júni og i nóvember. Á Suður- og á Vesturlandi var sumarið mjög óþurrkasamt, en úrkoma þó ekki mjög mikil, sagði Markús. 1 Reykjavik var úrkom- an yfir sumarmánuðina, júni, júli og ágúst.i meðallagi, en óþurrk- arnir stöfuðu af hve oft rigndi. Af 122 dögum yfir allt sumarið, júni - september, varð vart úrkomu 86 daga. Heldur var sólarminna 1972 en almennt gerist. Mældist sólskin á öllu árinu 1197 klst. i Reykjavik, sem er 52 stundum minna en i meðallagi, og á Akureyri mældist sólskin 934 klst., 28 stundum minna en meðallagið. — vh F oreldrafræðsla Heilsuverndarstöð Reykjavikur gengst fyrir fræðslunámskeiðum fyrir verðandi foreldra nú i vetur. Á hverju námskeiði verða 6 fræðslufundir og verða þeir á miðvikudagskvöldum. Námskeiðinu fylgja einnig slökunar- æfingar fyrir konurnar, i 3 skipti alls. Næsta námskeið byrjar miðvikudaginn 10. janúar. Mæðradeild stöðvarinnar veitir nánari upplýsingar og sér um innritun alla virka daga kl. 16-17, nema laugardaga, i sima 22406. Námskeið þessi eru ókeypis og ætluð Reykvikingum og ibúum Seltjarnarness. HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR. \M ISLEIVZKRA HLJllLISí/\lill/\\i\\ :JU sw lillNi úlvegar yður hljóðfœraleikara og hIjómsveitir við hverskonar lakifirri hringið i ^0^55 milli kl. 14-i/ Dökku reitirnir á kortinu sýna belgiskt land i Baarle. ' yy gf' Frá hollenzkum smábæ Skrítinn tvíburabœr á Niðurlöndum Svefnherbergið er í Belgíu en stofan er í Hollandi Baarle Hertog er einsog hver annar belgískur smábær. Nema hvað hann er næstum þvi fimm kíló- metra fyrir norðan holl- enzk-belgísku landa- mærin. Hér er um að ræða 30 smábletti undir belgiskri lögsögu, sem allir eru umkringdir hlutum hellenzka smá- bæjarins Baarle-Nassau. Sumir eru þessir bæjar- hlutar aðeins lóð undir eitt hús, aðrir eru nógu stórir til að umlykja nokkur hollenzk hús. Landamæri I i gg j a i gegnum svefnherbergi og yfir borðstofuborð. Það getur verið að bar- inn i horninu sé í Hol- landi en klósettið í Belg- iu. Gesti veitist að sjálfsögðu erfitt á slikum staö að gera sér grein fyrir hvar hann er eigin- lega niður kominn. Það verður honum helzt til aðstoðar, að húsin eru prýdd með fánalit- um viðkomandi rikis. Þetta einkennilega sambýli byrjaöi á tólftu ölcLþegar her- toginn af Brabant i Brussel og greifinn af Nassau deildu um eignarhald og skattaálagn- ingu i og umhverfis Baarle. Deilunni virðist hafa lokið án blóðsúthellinga. Lóðum og lendum var skipt á milli her- toga og greifa. Fyrrnefndur bætti Hertog við nafn sinna eigna, en hinn lét Nassau nægja. Tvær bæjarstjórnir voru skipaðar og þær eru enn að störfum — eftir átta hundr- uð ár. Þessi tilhögun var staðfest i Vestfalenfriðnum 1648 og af- tur árið 1743 þegar dregin voru þau landamæri sem nú gilda milli Hollands og Belgiu. Baarle-Nassau og Baarle- Hertog eru tviburaþorp, en þau eru samt ekki eins. Hollenzk lög gilda i Baarle- Nassau og belgisk i Baarle- Hertog. Hvort þorp á sér eigin bæjarstjórn, pósthús, skóla, skattheimtu og slökkvilið. Við skulum bara vona að slökkviliðin biði ekki eftir úr- skurði á þvi hvort það sé belgizkur eða hollenzkur reykháfur sem kviknað er i áður en þau taka til starfa. Af 7.200 ibúum eru um 2000 Belgar, nokkrir hafa tvöfalt rikisfang og enn aðrir alls ekkert. Belgiskir frankar og holl- enzk gyllini eru allsstaðar i gengi. Það eru engin tungu- málavandræði, þvi hollenzka og flæmska eru eiginlega sama málið — að minnsta kosti er sama mállýzka þess i gildi i báðum hlutum tvibura- þorpsins. Aftur á móti er lik- legt að skólabörn i belgiska hlutanum séu nokkuð sterk i frönsku en i hollenzka hlutan- um er enska fyrsta erlenda málið. 1 heimsstyrjöldinni fyrri tók þýzki herinn mestalla Belgiu, en Baarle-Hertog var verndað af innilokun sinni i hinu hlut- lausa Hollandi. Þarna var miðstöð belgiskrar og and- spyrnuhreyfingar og þar starfaði útvarpsstöð. Hollenzkir barir loka um miðnætti en belgiskir eru opn- ir til kl. 2 á nóttu. Hinsvegar er greiðari aðgangur að sterkari drykkjum á hollenzk- um börum. Belgar lita hornauga til klámritabúðarinnar i hol- lenzka hlutanum. En hollenzk- um sjoppueigenda þykir það bölvað að þurfa að selja tó- bakið ögn dýrar en belgiskur keppinautur hans. Tollgæzlu- menn eru fáir, enda þyrftu þeir að vera anzi fjölmennir ef allt ætti að fara að öllum lög- um. Lifið i Baarle hefur sina kosti og galla. Borgari sem á heima i Hollandi og vinnur i Belgiu getur lent i þvi að vera krafinn um skatta i báðum löndum — eða kannski sleppur hann við skatta með öllu. Hér er nóg að gera fyrir stúdenta i alþjóðarétti. Við höfum okkar vandamál, segir Loots, bæjarstjóri i Baarle-Hertog, en lifið hér hefur sina kosti. Tilraunir hafa verið gerðar til að leysa vandamál okkar i fortiðinni, en satt að segja kærum við okkur ekkert um það. Við höf- um lært að lifa með þeim og viljum enga breytingu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.