Þjóðviljinn - 04.01.1973, Síða 12

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Síða 12
12. StÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 4. janúar l!!7:i ORKUSTOFNUN óskar að ráða til sin karl eða konu til starfa á rannsóknarstofu. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15. janúar n.k., merktar O.S. 17501. rmi orkustofnun ORKUSTOFNUN óskar að ráða til sin skrifstofustúlku. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15. janúar n.k., merktar O.S. 17502. rm ORKUSTOFNUN SPRUNGUVIÐGERÐIR - ÞAKRENNUR - Lekur húsið? — Lekur rennan? Við sjáum um viðhaldið. Reynið viðskiptin. Vilhjálmur Húnfjörð. Simi 50-3-11. Laus staða einkaritara Við tollstjóraembættið i Reykjavik er laus staða einkaritara. Góð vélritunarkunnátta áskilin. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist skrifstofu tollstjóra, Tollhúsinu, Tryggvagötu 19, fyrir 13. janúar 1973. Tollstjórinn i Reykjavik, 3. jan. 1973. Auglýsing frá iðnaðarráðuneytinu Rikisstjórnin hefur ákveðið að nota heimild i 3. mgr. 2. gr. laga nr. 97 frá 20. desember 1972, um að við skil gjaldeyris til banka fyrir útfluttar iðnaðarvörur framleiddar fyrir 1. janúar 1973 skuli hann greiddur útflytjanda á gamla genginu, og færður á sérstakan reikning i nafni rikissjóðs i Seðlabankanum. Gengis- hagnaði þessum skal ráðstafað af rikis- stjórninni i þágu iðnaðarins. Útflytjendur iðnaðarvara skulu eigi siðar en 15. þ.m. senda gjaldeyriseftirliti Seðlabankans skýrslu yfir birgðir framleiðsluvara um siðastliðin áramót. Umsóknir um undan- þágur frá þessari ákvörðun sendist iðnaðarráðuneytinu fyrir 15. janúar 1973. Auglýsingasíminn er 17500 DJOÐVIUINN LITLI GLUGGINN unum til aö aðgæta hvaö á gengi. Því það var ekki á hverjum degi sem undarlegur maður hljóp eftir götunni og hrópaði að það væri fíll undir rúminu sínu. Og hvorki meira né minna en fíll. Bassi salatbruggari, sem ætið var Jörn Birkeholm: HJÁLP Það er fíll undir rúminu mínu Langur rani bugðaðist út um opið á sekknum, hann rétt náði að sjá fílshöfuð gægjast fram, áður en hann hljóp ádyr skelfingu lostinn, niður allar tröppurnar og út á götu á þvílíkri ferð að það leit heút út fyrir að hárið færi af honum. ,, Hjálp! — Það er fill undir rúminu mínu! Hjálp! — Það er fíll undir rúminu mínu!" hrópaði hann. En menn risu undrandi upp úr garðstól- snemma á fótum, rak höfuðið út á milli káltoppanna og starði gapandi á herra Grepp, og Diðrik bakara- meistari gægðist ringlaður út um bakaríisdyrnar. ,,Hvað er nú að, Greppur?" hróp- aði hann. En herra Greppur heyrði ekki neitt. Hann hélt bara áfram að hrópa: „Hjálp! — Það er fill undir rúminu minu! Hjálp! — Það er fíll undir rúminu minu!" Norsku flokkamir ein- huga í Víetnam-málinu Eins og getift var i blaðinu i gær. Iiafa allir norskir stjórn- málaflokkar, S að tölu, sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um Vietnam-málið. Yfirlýsing þessi fer hér á eftir i orðréttri islen/.kri þýðingu: „Fulltrúar stjórnmála- flokkanna i Noregi héldu fund 2. janúar til að ræða striðsástandið i Vietnam i ljósi þess að Banda- rikin hófu aftur loftárásir á Norður-Vietnam 18. desember. Samkvæmt opinberum ummæl- um, einnig af hálfu Banda- rikjanna, var þegar i október i verulegum atriðum eining um drög að friðarsamningi. Ekki sizt þess vegna skelfdist allur heim- urinn við fréttirnar af hinum miklu sprengjuárásum sem að miklu leyti lentu á friðsömum ibúum. Fólki hefur létt við til- kynningar um, að þessum sér- stöku sprengiaðgerðum skuli nú hætt. Stjórnmálaflokkarnir eru ein- huga um að fylkja sér bak við þá kröfu, að stöðvun sprenginganna sé algjör og endanleg. A eftir henni verður að fylgja, að hætt sé öllum hernaðaraðgerðum i Vietnam, samningaumleitanir komist skjótlega i heila höfn og undirritaður verði friðar- samningur fyrir þetta land sem áratugum saman hefur orðið fyrir ógnum og eyðileggingu styrjaldar. Þær friöarumleitanir sem boðaðar hafa veriö 8. janúar hljóta að hafa þetta að markmiði. Enn fremur var eining um það, að flokkarnir hefðu aftur samband sin i milli um ástandið i Vietnam, ef þróun mála tekur þá stefnu sem gerir það nauðsynlegt. Þessi ráðstefna flokksleið- toganna leggur enn fremur áherzlu á þá skyldu lands okkar að leggja fram sinn skerf til að draga úr hörmungum og styðja enduruppbyggingu Vietnams. Flokkarnir eru reiðubúnir til að styðja aðgerðir af hálfu rikis- stjórnarinnar i þessu skyni". Það var formaður Verka- mannaflokksins, Trygve Bratteli, sem hal'ði frumkvæði að yfir- lýsingunni og er þetta i fyrsta skipti i Noregi, sem allir flokkar standa að sameiginlegu áliti um pólitiskt deiluefni. Auk Brattelis rituðu undir yfirlýsinguna: Helge Seip fyrir Nýja vinstri flokkinn, Lars T. Platou fyrir Hægri flokkinn, Káre Kristiansen fyrir Kristilega alþýðuflokkinn, Reidar T. Larsen fyrir Kommúnista- flokkinn, John Austrheim fyrir Miðflokkinn, Finn Gustavsen fyrir Sósialiska alþýðuflokkinn og Helge Rognlien fyrir Vinstri flokkinn. (Samkvæmt NTB) Afbrotamenn náðaðir MOSKVU/LONDON 29/12 Sovétstjórnin tilkynnti i dag að allmargir afbrotamenn yrðu náðaðir i tilefni afmælis Sovét- rikjanna. Náöunin er sögð gilda fyrir þá sem ekki hafa meira en 5 ára fangelsisdóm. i Tass-frétt segir að náðunin nái ekki til þeirra sem dæmdir eru fyrir „hættuleg afbrot” gcgn rfki eða einstaklingum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.