Þjóðviljinn - 04.01.1973, Síða 13

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Síða 13
Kimmtudagur 4. janúar 197» þjóÐVILJINN — SÍÐA 13 r67 Alistair Mair: Það var sumar í — Gefið henni tvær, sagði Peter. — Ég býst við að hún róist við það. — Já, sagði Carstairs. — Já áreiðanlega. Hann þagði við, leit undan, reyndi að taka sig á. — Heyrið mig, sagði hann. — Ég varð að tala við yður. — Já? — Ég gat ekki látið daginn enda án þess að biðjast fyrirgefn- ingar á hegðun minni i morgun. Og þvi sem ég sagði. Það var ófyrirgefanlegt. Mér þykir það mjög leitt. — — Allt i lagi, sagði Peter ró- lega. — Mér var alvara þegar ég sagði yður aö gleyma þvi. — Já, en ég hefði aldrei átt að láta þetta út úr mér. Ég var bara i svo miklu uppnámi. Ég gat ekki sætt mig við þetta. Ég gat ekki trúað að það væri satt. — Það er ekki auðvelt að sætta sig við slikt. — Nei, en það er samt engin af- sökun fyrir framferði minu. Og ég hafði engan rétt til að véfengja orð yðar. Og mér þykir þetta afarleitt. Meira get ég ekki sagt. — Getið þér þó horfzt i augu við þetta núna? spurði Peter. — Já, sagði Carstairs. — Og ég vil ekki að þér gerið yður rangar hugmyndir um mig. Ég skal vera samvinnuþýður. Ég skal gera allt sem i minu valdi stendur. Og það skiptir ekki máli hvað það kostar. En spurningin er hvað get ég gert? Mér finnst ég vera svo ráð- þrota. — Peningar hafa enga þýðingu i þessu tilviki, sagði Peter. — Þeir breyta engu. En þér getið gert ýmislegt. — Jæja? En ég er arkitekt. Ég hef aldrei komið nálægt veiku fólki — — Þér getið hresst hana and- lega, sagði Peter. — Það er mjög mikilvægt. Og þér getið það betur en nokkur annar. — En hvernig fer ég að þvi? — Með þvi að vera eðlilegur. Þérverðiðað vera eðlilegur Þér verðið að leyna þvi sem þér vitið og dylja geðshræringar yðar. Þér verðið að sýna henni að þér elskið hana eins mikið og áður. Þér verðið að vera henni til skemmt- unar, svo að hún hlakki til heim- komu yðar. Þér verðið að vera kátur — — Kátur! Þetta hljómaði eins og neyðaróp. — Guð minn góður, hvernig get ég verið kátur? — Þér verðið að reyna, sagði Peter. — Jacky er glaðlynd að eðlisfari. Og hún smitast af kæti annarra. Og þér verðið að reyna. Carstairs leit niður fyrir sig. — Það verður ekki auðvelt. — Nei, sagði Peter. — Það verður ekki auðvelt fyrir neitt okkar. Og það verður æ erfiðara eftir þvi sem fram liða stundir. — Já, sagði Carstairs dapur i bragði. — Ég veit það, Og mig langaði til að biðja yður — - Já? Hann beið meðan ungi mað- urinn reyndi að herða sig upp. — Já, það er einmitt það... seinna meir... ef hún kvelst ... getið þér þá ekki reynt að létta henni kvalirnar? — Auðvitað geri ég það, sagði Peter hljóðlega. — Það verður aðalverkefni mitt. — Ég vil ekki að hún kveljist. — Ekki ég heldur. — Og það var eitt enn.. . ég veit ekki hvernig ég á að orða það —. — Hvað var það? — Jú — Carstairs dró andann djúpt — nú veit hún ekki neitt, er það? — Nei, sagði Peter. — Húnveit það ekki. — Það sem ég átti við er. . . hvenær gizkar hún á það? Peter þagði við. Hann hafði lagt þessa spurningu fyrir sjálfan sig hvað eftir annað, leitað i augna- ráði hennar að skugganum sem myndi tákna vitneskjuna um ör- lög hennar. Enn hafði hann ekki séð hann. En einn góðan veður- dag yrði hann kominn. En við nið- urbrotinn eiginmanninn var að- eins eitt að segja. — Ef til vill gerir hún sér það aldrei ljóst, sagði hann bliölega. — Þannig er það stundum. Ef til Brúðkaup 16. des. voru gefin saman i hjónaband i Hallgrimskirkju af séra Jakobi Jónssyni ungfrú Kristin Guðjónsdóttir og Jóhann Óskarsson. Heimili þeirra er að Hjallabraut 17, Rvik. Nýja myndastofan, Skóla- vörðustig 12, Rvik. 25. nóv. voru gefin saman i hjónaband i Bústaðakirkju af séra Ólafi Skúlasyni ungfrú Lauf- ey Einarsdóttir og Hannes Ólafs- son. Heimili þeirra er að Vestur- bergi 122, Rvik. Nýja myndastofan, Skóla- vörðustig 12, Rvik. vill slokknar hún rólega út af án þess að vita neitt fyrir. — Ég vona að svo verði, sagði Carstairs. — Guð gefi að svo verði. — Já, sagði Peter Ashe. — Við skulum vona það. Hún var mjög kát um jólin. Hún hélt grein af mistilteini yfir höfð- inu þegar Peter kom, og hann laut niður og kyssti hana létt á varirn- ar. — Þú ert plága, sagði hann. — Læknar geta misst leyfið fyrir annað eins og þetta. — Ég hef verið að biða eftir þessu i margar vikur, sagði hún, —-og nú fékk ég loksins tækifærið. En biddu bara! — Hve lengi? — Til næstu jóla auðvitað.-Þú sleppur ekki svona billega. En á annan jóladag var hún ör- þreytt, dösuð eftir spennu jólanna þótt i lágmarki væri. Hún var alla vikuna að jafna sig. Það var ekki fyrr en á sunnudag, siðasta dag ársins, að hún var orðin eins og hún var viku fyrr. Þegar hann stóð upp til að fara þann dag, lyfti hann fingri til aðvörunar. — Gleymdu þessu nú ekki! Einn drykk til að fagna nýja árinu og það er allt og sumt. Ég vil ekki að þú sért enn aö sofa úr þér þeg- ar ég kem á morgun. Hún brosti. — Ég skal gegna, sagði hún. — En þú þarft ekki að koma á morg- un. Þú átt að eiga fri. — Ég kem, sagði Peter. — Þú ert orðinn vani hjá mér. Dagurinn yrði ekki eins og hann á að vera án þin. En sennilega kem ég ekki fyrr en siðdegis. — Aha! sagði hún. — Þú þarft kannski að sofa úr þér? — Eiginlega ekki, sagði Peter. — En ég ætla að bjóða fjölskyld- unni út i hádegisverð. Ég kem að þvi loknu. — Allt i lagi, sagði hún. — Ég hlakka til. Og skemmtu þér vel i kvöld. — Það verður rólegt hjá okkur, sagði Peter. — Við gerum aldrei mikið veður úr áramótunum. Og þetta ár geröu þau næstum enn minna en vanalega. Þau fögnuðu nýja árinu tvö ein, lyftu glösum hvort mót öðru þegar klukkan sló tólf og skáluðu fyrir árinu sem i vændum var. — Það ætti að verða hagstætt, sagði Elisabet. — Þetta er i fyrsta skipti sem mér hefur fundizt að allt væri að snúast okkur i hag. Rýmri fjárhagur, minna að gera, meiri timi til að vera saman. Það verður frábrugðið hinum árun- um. — Já, sagði Peter Ashe vansæll og fyrirleit sina eigin hræsni. En það var ógerningur að tala um nýja árið án þess að hræsna. Það var ekkert ár framundan fyrir Elisabetu og hann. Þau myndu aðeins eiga fáeina mánuði eftir saman. Siðan kæmu fréttirnar um hann og Anne og heimurinn sem þau höfðu búið sér i Pitford myndi hrynja i rúst. Hvernig gat hann þá staðið með henni and- spænis nýju ári, sem aldrei yrði þeirra ár skálað fyrir sameigin- legri framtið sem ekki var til? Sektarkenndin þrúgaði hann, hann setti frá sér glasið og breytti um umtalsefni. — Ég sakna Jims og Júliu, sagði hann. — Þau voru vön að koma um þetta leyti. — Þau sakna okkar sennilega lika, sagði Elisabet. — Þau virt- ust halda að það væri góð hug- mynd að dveljast i kofanum um áramótin, en ég veit svei mér ekki. Þau eru áreiðanlega ein- mana þarna úti i auðninni. — Það mætti segja mér, sagði Peter. — Annars hefði ég ekkert á móti vikudvöl þa'r, sagði Elisabet ihugandi. —- Gætum við ekki skroppið seinna i mánuðinum? Þú talaðir einu sinni um það. — Ekki þennan mánuð, sagði Peter. — Eða i febrúar? — Ég veit það ekki. Það er und- ir ýmsu komið. — Jæja? Hverju til dæmis? Ég á við, að nú ertu frjáls ferða þinna fyrst Bob er kominn. Þú þarft ekki annað en semja við hann. Hann þagði við. Hann tók glasið sitt upp, hristi það til og drakk. — Það er komið undir Jacky Carstairs, sagði hann loks. — Ég get ekki farið að heiman meöan hún er á lifi. Hún starði á hann. — En hvers vegna i ósköpun- um? Bob er hér —. FIMMTUDAGUR 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ystugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Þórhallur Sigurðsson heldur áfram að lesa „Ferð- ina til tunglsins” eftir Fritz von Basserwitz (3).Tilkynn- ingar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. lleilnæmir lifs- hættir kl. 10.25: Björn L. Jónsson læknir talar um or- sakir offitu. Morgunpopp 10.45: Janis Joplin syngur. Fréttir kl. 11.00. Tónlist eftir t Moz.art: Peter Serkin, Alex- ander Schneider, Michael Tree og David Soyer leika Pianókvartett nr. 2 i Es-dús (K493). Pinchas Zukerman og Enska kammersveitin leika Fiðlukonsert nr. 4 i d- moll (K218), Barenboim stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 A frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Sumardagar i Suður- sveit. Einar Bragi flytur annan hluta frásögu sinnar. 15.00 Miðdegistónleikar: Ron Golan og Sinfóniuhljómsveit útvarpsins i Vin leika Kon- sert fyrir viólu og hljóm- sveit eftir Béla Bartók, Milan Horvat stj. Sinfóniu- hljómsveit Vinarútvarpsins leikur Sinfóniu nr. 5 i D-dúr op. 107 eftir Mendelssohn, Horvat stj. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 16.25 Popphornið 17.10 Barnatimi: Soffia Jakobsdóttir stjórnar a. Milli áramóta og þrettánda Alfasöngur, álfalög og fleira i þeim dúr. Lesari með Soffiu: Guðmundur Magnússon leikari. b. Útvarpssaga barnanna: „Uglan hcnnar Mariu” eftir Kinn llavrevold Sigrún Guðjónsdóttir isl. Olga Guðrún Arnadóttir les (2). 18.00 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kréttir. Tilkynningar. 19.20 Daglegt mál.Indriöi Gislason lektor sér um þátt- inn. 19.25 Glugginn. Umsjónar- menn: Guðrún Helgadóttir, Gylfi Gislason og Sigrún Björnsdóttir. 20.05 Gestir i útvarpssal: Per Öien og Guðrún Kristins- dóttir leika á flautu og pianó, verk eftir Michel Blavet, Sverre Bergh, Ar- thur Honegger Johan Kvan- dal o.fl. 20.35 Lcikrit: „Theódór Jónsson gengur laus”,farsi fyrir hljóðnema eftir Ilrafn Gunnlaugsson. Leikstjóri: Höfundur. Persónur og leik- endur: Theódór gimbill, út- hrópaður maður ... Erlingur Gislason, Benjamín Pálsson hinn góði eiginmaður... Steindór Hjörleifsson, Peta Jónsdóttir, hin lausláta eiginkona ... Brynja Bene- diktsdóttir, Jakobina Brjánsdóttir, móðir Petu ... Brynja Benediktsdóttir, Jósúa Kolbeinsson, bróðir Theódórs ... Klemens Jóns- son ... Bjartur bóndi i Borgarfirði ... Lárus IngólÞ *son, Högni Hansen, snjall leynilögreglum. ... Baldvin Halldórsson, Mörður ts- hólm, snjallari leynilög- reglum. ... Jón Júlíusson. Sögumaður ... Þórarinn E ldjárn. Aðrir leikarar: Hákon Waage, Pétur Einarsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Drifa Krist- jánsdóttir og Rúnar Gunn- arsson. 21.30 Krá túnleikum i Háteigs- kirkju 17. f.m. Söngflokkur, sem Martin Hunger stjórn- ar, flyturi a. „Sjá grein á aldameiði” eftir Hugo Distler. Þorsteinn Valdi- marsson þýddi textann. b. Sjö jólalög i raddsetningu Þorkels Sigurbjörnssonar. 21.50 l-angferðir.Þorsteinn ö. Stephensen les úr nýrri Ijóðabók Heiðreks Guð- mundssonar skálds. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir . Keykja- vikurpistill Páls Heiðars Jónssonar. 22.45 Manstu eftir þessu? Tónlistarþáttur i umsjá Guðmundar Jónssonar pianóleikara. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Auglýsingasíminn er 17500 f WÐVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.