Þjóðviljinn - 04.01.1973, Side 15
Finimtudagur 4. janúar 1973 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA lS
Kúba
Framhald af bls. 7.
verði einangraðir frá öðru fólki og
lizt þeim bezt á tillögu sem fram
hefur komið, um að byggð verði
þorp skólanna. En húsnæðis-
vandamál kennara er ekki orðið
alvarlegt ennþá. og allir eru sam-
mála um að aðalatriðið sé að
byggja sem flesta skóla, hitt
kemur svo seinna.
Þegar nemendur útskrifast úr
sveitaskóla eiga þeir ýmissa
kosta völ: þeir geta orðið kenn-
arar á þann hátt sem áður var
lýst, eða farið i þriggja ára undir-
búningsnám fyrir háskóla, og
einnig eiga þeir kost á margs-
konar iðn- og tækninámi.
Undanfarin tvö sumur hefur
foreldrum og systkinum nemenda
verið gefinn kostur á að njóta
orlofs i skólanum. Þetta frumlega
uppátæki er liður i baráttunni
fyrir bættum tengslum milli
heimila og skóla og hefur gefizt
mjög vel, að sögn skólastjóra.
Hver fjölskylda dvelur i skólan-
um eina viku. Á morgnana taka
þeir sem vettlingi geta valdið þátt
i landbúnaðarvinnunni, en eftir
hádegi og á kvöldin hvilast menn
eða skemmta sér með ýmsu móti.
Foreldrar nemenda hafa sýnt
mikinn áhuga á velferð skólans ,
og margar mæður koma daglega
að hjálpa til i eldhúsinu eða
annarsstaðar þar sem aðstoðar er
þörf hverju sinni. Feður þeir sem
ráða yfir einhverskonar farar-
tækjum koma á laugardögum og
hjálpa til við að koma krökkunum
heim til sin. Einn faðir er mikill
hagleiksmaður og hefur málað
nokkrar veggmyndir i skólanum.
Svona mætti lengi telja. Það þarf
engan að undra þótt kúbanskt
sveitafólk sé ánægt með nýju
skólana sina, svo mjög sem þeir
eru frábrugðnir þvi sem áður
þekktist.
„Heilbrigð sál i heilbrigðum
likama” er gamalt og gott kjör-
orð sem kúbönsk skólayfirvöld
hafa gert að sinu. Reglulegar
læknisskoðanir eru fastur liður i
skólalifinu og er öll læknisþjón-
usta að sjálfsögðu ókeypis.
Hjúkrunarkona starfar við skól-
ann og læknir er alltaf við
höndina ef á þarf að halda. Þeir
sem fá kvef eða kveisu er lagðir
inn á þartilgerða sjúkrastofu svo
að þeir smiti ekki félaga sina.
Iþróttaiðkanir, starf undir beru
lofti og hollt mataræði setja svip
sinn á þessa hraustu og fjörlegu
krakka.
Sveitaskólarnir eru ekki einu
skólarnir á Kúbu þar sem nám og
starf hefur verið samtvinnaö.
Ýmsir tækniskólar i borgunum
hafa tekið upp þetta fyrirkomulag
og starfa þá i tengslum við verk-
smiðjur. I venjulegum bóknáms-
skólum fara nemendur útá land
ákveðinn tima á ári hverju og
stunda landbúnaðarvinnu. Sama
gildir um háskólana. Þessi stefna
i kúbönskum skólamálum er
engin tilviljun, hún hefur mótazt i
samræmi við þarfir þjóöarinnar.
Sveitaskólarnir á Kúbu hafa
vakið athygli skólamanna frá
öðrum vanþróuðum rikjum, sem
hugsanleg lausn á stóru vanda-
máli.
Havana, 1. desember 1972.
Ingibjörg Haraldsdóttir.
Jóhann
Framhald af 4. siðu.
að við hugsum i stað þess að
hjálpa okkur til að hugsa. . .
Við vitum þetta allt, en við höf-
um kosið að látast ekki vita það til
þess að okkur geti liðið vel. En
okkur liður ekki vel. Þrátt fyrir
allan okkar sýndarauð erum við
fyrtin og hrædd og sikvartandi.
Mörg okkar þora ekki lengur að
horfa hvort framan i annað. Innst
inni held ég að við séum full af
fyrirlitningu á okkur sjálfum”.
Að þessum lestri loknum á ég
enn eftir ein mótmæli. Ég hefi
þegar mótmælt þeim atburðum,
sem ýmsir hafa — með orðalagi
sem ég ekki kýs að nota — kallað
þjóðarmorð Bandarikjanna á
Norður-Vietnömum. En ég vil
einnig — og af sömu hvötum —
mótmæla þvi andlega og siðferði-
lega þjóðarsjálfsmorði, sem ótt-
ast má að vofi yfir bandarisku
þjóðinni ef leiðtogar hennar halda
áfram á þeirri braut, sem þeir
hafa i blindni valiö sér.
Að lokum þetta:
Ég hefi hér sem einstaklingur
gerzt svo djarfur að ætla öðrum
einstaklingum hatur og grimmd
og þykjast vita hvað ofbjóði rétt-
lætiskennd og siðferðishugsjón-
um alls mannkyns. Þessi dirfska
næði of skammt, ef hún entist
ekki til að spyrja hvað ég sem
einstaklingur hafi — i þeirri dag-
legu velliðan og öryggi, sem við
tslendingar njótum um aðrar
þjóðir fram — lagt af mörkum til
að draga úr hatri og grimmd, til
að efla réttlætiskennd og sið-
ferðishugsjónir. Ég hefi ekki á
reiðum höndum svar við þeirri
spurningu. En ef ég leiði hana hjá
mér, eru öll min mótmæli hégóm-
inn einn.
Kambodju
Framhald af bls. 1
hafa gert árásir á um 20 stöðvar
stjórnarhersins þar.
Stjórnin i Phnom Penh heldur
þvi fram, að sókn þessi sé m.a.
gerð til aö tryggja skæruherjum
yfirráð yfir hrisgrjónauppsker-
unni. Uppskera ársins i fyrra er
helmingi minni en áður, og stafar
þetta af þvi, að forræði herfor-
ingjastjórnar yfir landi
Kambodju hefur minnkað að
sama skapi.
Hernaðarótök
Framhald af bls. 16.
strandað á fulltrúadeildinni — og
m.a. á Carl Albert, sem nú hefur
snúizt hugur.
Nixon hefur rætt við ýmsa þing-
foringja, m.a. Mansfield, tals-
mann Demókrata i öldungadeild,
um stöðu mála, og segir Mans-
field, að forsetinn „geri sér grein
fyrir afstöðu þingmanna”.
Pentagon játar
t- dag játaði talsmaður banda-
riska varnarmálaráðúneytisins
með semingi þó, að það væri rétt
haft eftir sænska sendiráðinu i
Hanoi að hið stóra sjúkrahús
Bach Mai i Hanoi hefði orðið fyrir
hnjaski i loftárásunum á dögun-
um. Aður hafði þessi sami tals-
maður sagt, að hér væri um
áróður einberan að ræða. Reyndi
hann þó að skjóta sér á bak við
það, að sjúkrahúsið kynni að hafa
orðið fyrir loftvarnareldflaugum
eða hrapandi flugvélum.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jaröarför
KRISTJÖNU ÞÓRÐARDÓTTUR
Hafnarfirði
Ilulda Siguröardóttir
og aörir aöstandendur.
S-Afríka
Framhald af 5. siðu.
munu gera grein fyrir starfsemi
samtakanna, sem miðar að þvi að
útrýma kynþáttamisrétti og ný-
lendustefnu, og ennfremur munu
samtökin gera grein fyrir sam-
vinnu ýmissa rikisstjórna og
hagsmunaaðila við Suður Afriku,
Suður Rhodesiu og nýlendur
Portúgala. Allir sem taka þátt i
ráðstefnunni hafa verið beðnir að
leggja fram stuttar greinargerðir
með ákveðnum tillögum um að-
gerðir á þvi sviði sem ráðstefnan
fjallar um.
Á ráðstefnunni verður starfað i
tveimur nefndum, sem fjalla
munu um eftirgreind þrjú atriði:
1. Reynt verður að meta hve
miöað hefur á leið að uppræta ný-
lendustefnu og kynþáttamisrétti.
2. Aðgerðir i framtiðinni á veg-
um Sameinuðu þjóðanna,
Einingarsamtaka Afrikurikja,
rikisstjórna, ýmissa samtaka og
þjóðfrelsishreyfinga til stuðnings
fórnarlömbum nýlendustefnu og
kynþáttamisréttis.
Mál ráðstefnunnar verða enska
og franska. Félag Sameinuðu
þjóðanna i Noregi sér um
framkvæmd og skipulagningu
ráðstefnunnar.
Landsvirkjun
Framhald af bls. 3.
— Við hér hjá Landsvirkjun
höfum ekki trú á þvi að það
geti gerzt.
— Er það rétt hjá þessum
sama manni að hönnun mastr-
anna hafi ekki verið borin
undir islenzka verkfræðinga
sem þekkja bezt til hvernig
svona möstur eiga að vera?
— Ja, við erum verk-
fræðingar hér hjá Landsvirkj-
un og fylgdumst vel með þessu
öllu saman. Við byggðum okk-
ar reynslu á Sogsvirkjunarlin-
unni og töldum rétt að hafa
Búrfellslinuna svipaða.
— Þið eruð sannfærðir um
það að sama orsök liggi ekki
til þess þegar fyrra mastrið
fór og nú þegar mastrið við
Hvitá fór?
— Við teljum það útilokað,
enda var ekkert svipað veður
þegar fyrra mastrið fór og nú
þegar mastrið viö Hvitá fór.
Við höldum að nú hafi linan
farið fyrst og við hnykkinn
sem þá myndaðist hafi mastr-
ið farið. Slikt gerðist ekki þeg-
ar fyrra mastrið fór.
—S. dór
Leiðrétting
við ræðu
Þórarins
Villa slæddist inn hjá okkur i
gær, er birt var ræöa Þórarins
iÞórarinssonar, formanns utan-
rikismálanefndar alþingis, á
Vietnamfundinum á gamlársdag.
Við birtum þvi aftur þá máls-
grein, sem ekki var rétt eftir höfð,
og átti að vera á þessa leiö:
„Þess vegna verður okkur sér-
staklega hugsað á þessum fundi
til þjóðfrelsishreyfingarinnar i
Suður-Vietnam, og það er ósk
okkar og krafa, aö henni veröi
veitt sú viðurkenning, sem hetju-
leg barátta hennar verðskuldar”.
1 Þjóðviljanum i gær hafði orðið
viðurkenning breytzt i viröing.
GLENS
Innritun í Námsflokka
Reykjavíkur
Fer fram i Laugalækjarskóla dagana 4. og
5. janúar kl. 5-9 siðdegis.
Nýjar kennslugreinar:
Kennsla i notkun reiknistokks, lestrar-
kennsla fyrir fólk með lesgalla, leikhús-
kynning, myndlistarkynning.
Kennsla til gagnfræðaprófs (isl.,enska,
danska, reikningur).
Kennsla til miðskólaprófs þ.e. 3. bekkjar
(isl., enska, danska, reikningur).
Að öðru leyti kennsla i sömu greinum og
fyrr:
íslenzka 1. og 2. fl. og isl. fyrir útlendinga.
Reikningur 1. og 2 fl. og mengi. Danska 1.
2. og 3. flokkur. Enska 1-6. fl. Þýzka 1-5 fl.
Franska 1-3 fl. ítalska 1.-2. fl. Spænska 1.-
4. fl. Rússneska. Jarðfræði. Nútimasaga.
Fundarsköp og ræðumennska. Verzlunar-
enska. Bókfærsla. Vélritun. Föndur.
Smelti. Kjólasaumur. Barnafatasaumur.
Sniðteikning (teiknað, sniðið og saumað
eftir sniðunum).
Nýir byrjendaflokkar i dönsku, ensku,
þýzku og spænsku.
Innritun i Breiðholtsskóla fer fram mánu-
daginn 8. jan kl. 8-9,30 og i Arbæjarskóla
þriðjudag 9. jan, kl. 8-9.30. A þessum
tveimur stöðum verður kennd enska 1.-3.
fl. og barnafatasaumur.
SKÓLASTJÓRI.
RYMINGARSALA
STÓRLÆKKAÐ
VERÐ
EINSTAKT TÆKIFÆRI
Vegna breytinga verða seldar
Terylene herrabuxur i stórum númerum.
Jersey dömusíðbuxur í öllum stœrðum.
Telpna- og unglinga hettukópur
RÝMINGARSALAN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 15