Þjóðviljinn - 07.01.1973, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN SunnudaKur 7. janúar l!»7:i
Kjarlan
Kinar
lían iirs
Þorbjorn
Svavar
Magnús
Svava
Þröstur
UMRÆÐUFUNDIR
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Fundarefni
og
málshefjendur
Baráttan gegn herstöðvum
á islandi fyrr og nú
— Kjartan Olafsson, ritstjóri
Er stéttaskipting á islandi?
Hjalti Kristgeirsson hagfræðingur
m
Skólinn, þjóðfélagið og staða
námsmannahreyfingarinnar
Einar Baldursson og
Hannes Stephensen,
menntaskólanemar.
íslenzk iðnvæðing, islenzkur
sósialismi
Magnús Kjartansson, ráðherra.
Stjórnmálahlutverk fjölmiðla
Þorbjörn Broddason, lektor.
AAálgagn eða ,,bara” fréttablað,
umræður um Þjóðviljann
Svavar Gestsson, ritstjóri.
Konan og samfélagið
Svava Jakobsdóttir alþingismaður
Verkalýðshreyfingin og
vinstri stefna í efnahagsmálum
Þröstur Olafsson, hagfræðingur.
Leiðin fil sósíalísks þjóðfélags
Ragnar Arnalds, formaður
Alþýðubandalagsins
L
Refsipólitík
Hildigunnur olafsdóttir,
afbrotafræðingur.
Þáttaskil í sögu íslenzkrar
verkaiýðshreyfingar
Olafur Einarsson,
menntaskólakennari.
L
Island og viðskipta-
og efnahagsbandalögin í Evrópu
Lúðvik Jósepsson, ráðherra
Hernaðarbandalög, stórveldastefna
Loftur Guttormsson sagnfræðíngur
Borgarskipulag, bilaskipulag
Sigurjón Pétursson, borgarráðs-
maður
Neyzluþjóðfélag og verðmætamat
Margrét Guðnadóttir, háskóla-
kennari
Hið títtnefnda atvinnuiyöræói
Gunnar Guttormsson ráðunautur.
Að gera sérgrein fyrir Sovétríkjun-
um
Árni Bergmann, blaðamaður
Myndskoðun og myndgerð
i stéttaþjóðfélagi
Ingiberg Magnússon kennari
Kaf'nar
I .úftvik
l.oftur
Sinurjón
Margrét
Gunnar
f
Arni
IugiDerg
UMRÆÐU-
FUNDIR
á vegum Alþýðubandalagsins
í Reykjavík
Alþýðubandalagið i Reykjavik efnir til 18 um-
ræðufunda á næstu vikum og mánuðum. Fundirnir
verða haldnir i salnum á Grettisgötu 3 og verða á
hverjufimmtudagskvöldi. Fyrsti umræðufundurinn
i þessum flokki verður næstkomandi fimmtudags-
kvöld þann 11. janúar og er fundarefnið „Baráttan
gegn herstöðvum á íslandi fyrr og nú” — og mun *
Kjartan Ólafsson ritstjóri opna umræðurnar.
Næsti fundur verður svo viku siðar þann 18. jan. á
sama stað og verður efni hans — ,,Er stéttaskipting
á Islandi?” — málshefjandi Hjalti Kristgeirsson,
hagfræðingur.
Við leituðum frétta hjá Þór
Vigfússyni, formanni Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik,og
spurðum.
— Er þetta nýjung i starfi
Alþýðubandalagsins i Reykjavik?
Og Þór sagði: Umræðufundir af
svipuðu tagi voru haldnir af
æskulýðsnefnd Alþýðubandalags-
ins fyrir 2 árum og tókust vel, en
markið er þó sett öllu hærra núna,
þvi að gert er ráð fyrir fundum i
hverri viku, alltaf á fimmtudags-
kvöldum. Verða þetta 18umræðu-
fundir i allt og standa þangað til
um miðjan maf i vor.
Ekki er gert ráð fyrir að um
fyrirlestra sé að ræða, en menn
hafa verið fengnir til að opna um-
ræður um ýmis vandamál, sem
fólki eru ofarlega i huga. Við ger-
um okkur vonir um að i framhaldi
af ýmsum þessara umræðu-
kvölda geti komið til frekari um-
fjöllunar i starfshópum.
— Eru fundirnir öllum opnir?
Þessir umræðufundir verða öll-
um opnir og i hópi þeirra, sem
tekizt hafa á hendur að hefja um-
ræður, er fólk bæði innan og utan
Alþýðubandalagsins.
Við vonum, að efni fundanna
skirskoti til ungs fólks, en vissu-
lega er það ætlun okkar að þessir
umræðufundir verði jafnframt
fyrir fólk á öllum aldri.
Og allir fara fundirnir fram i
salnum á Grettisgötu 3, þar sem
Alþýðubandalagið hefur skrif-
stofur sinar.
Fyrirskipaðar gas-
grímur yerkamanna
— í heilu héraði á Italíu
RÓM (>/l —Fyrirskipun uin að 50
þúsund verkamenn i iðnaðarhér-
aðinu Marghera fyrir utan Fen-
eyjar skuli búnir gasgrimum, til
verndar gcgn loftmengun, hefur
vakið mikinn ugg og reiði á italiu.
Vöktu tveir fulltrúar á italska
þinginu máls á þvi i gær, að fyrir-
skipunin sannaði, að mengunin
væri svo mikii, að lif verkamann-
anna væri i hættu. Vinstrisinnaða
Rómarblaðið „Passa Sera” sagði
i leiðara, að vandamálið yrði ekki
leyst með þvi að útdeila gasgrim-
um meðal verkamannanna og
krafðist, að orsakir þess, að hér-
aðið væri orðið að gasklefa eða
allt að þvi, yrðu fjarlægðar.
Það var formaður heilbrigðis-
eftirlitsins með vinnustöðum i
Feyneyjum, sem sendi fyrirskip-
unina á miðvikudag til allra fyrir-
tækja i Margherahéraðinu, þar
sem fjöldi verkamanna þar hefur
aö undanförnu veikzt af eitrun frá
iðnaðinum.
,,Passa Sera” gagnrýndi harð-
lega stjórnir margra fyrirtækja i
héraðinu, sem kvartað hafa yfir
að gasgrimurnar sem eftirlitið
hefur fyrirskipað að verkamenn-
irnir fái, væru of dýrar. Gasgrim-
an, sem heilbrigðiseftirlitið vill
láta nota, kostar 20.000 lirur (um
3400 isl. kr.), en stjórnir fyrir-
tækjanna vilja láta nota grimur,
sem kosta aðeins 6000 lirur (rúm-
lega 1000 krónur).
Tæpt fylgi
Korvalds
OSLO — Samkvæmt skoðana-
könnun, sem stofnun Fakta i Nor-
egi gerði fyrir norska ,,Dag-
bladet” rétt fyrir jól, studdu 37%
aðspurðra rikisstjórn Korvalds,
39% hefðu fremur kosið að stjórn
Brattelis hefði haldið áfram en
24% voru óákveðnir.
Fjórfaldaði
skaðabóta-
tilboðið
LONDON 6/1 — Brezka fyrirtæk-
ið Distillers Co., sem á siðasta
áratug seldi lyfið thalidomid i
Bretlandi, bauðst i gær til að
borga alls 20 miljónir punda (um
4600 miljónir isl. kr.) i skaðabæt-
ur til thalidomid barnanna 340 i
landinu.
Er þetta fjórföldun fyrra tilboðs
fyrirtækisins og tilkomið eftir að
það efur sætt harðri gagnrýni al-
mennings fyrir að vilja ekki
greiða vansköpuðu börnunum og
foreldrum þeirra réttlátar skaða-
bætur.
Bahr mót
mælti af
hálfuv-þýzku
stjórnarinnar
WASHINGTON 6/1 — Vestur-
þýzki ráðherrann án ráðuneytis,
Egon Bahr, ræddi i gær við ör-
yggisráðgjafa Nixons, Henry
Kissinger,og Kenneth Rush vara-
utanrikisráðherra, i Washington.
Ekki hefur verið skýrt frá viðræð-
unum, en fastlega er gert ráð fyr-
ir, að stjórn V-Þýzkalands hafi
mótmælt að Bandarikjamenn
skyldu hefja loftárásir á Norður-
Vietnam að nýju.