Þjóðviljinn - 07.01.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 07.01.1973, Blaðsíða 16
WÚÐVIUINN Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar I simsvara Læknafélags Reykjavfkur, simi 18888. Sunnudagur 7. janúar 1973 Lyfjaþjónusta apótekanna vikuna 6.-11. janúar er i Holtsapóteki og Laugarnes- apóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur og helgidaga- vakl a heilsuvernarstööinni. Sími 21230. Bjartsýni ríkir hjá fólki i verstöövúm fyrir kom- andi vertið. Sér það fram á góða og mikla atvinnu og hefur raunar bætt mik- ið fyrir sér á liðnu ári í byggingu góðra húsa svo aö eitthvað sé nefnt. Hef- ur verið mikil og góð vinna í þessum plássum. Þjóðviljinn hafði sam- band við menn i verstöðv- um kringum Breiðafjörð núna í vikulokin og innti þá eftir undirbúningi ver- tiðar. Hvarvetna blómstr- ar atvinnulíf i þessum plássum. ... ............ Rrá ólafsvik. Blómstrandi atvinnulíf í verstöðvum við Breiðafjörð Ólafsvik Olafsvik, 5/1 — Fram- kvæmdahugur hefur verió hér bæði hjá einstaklingum og fyrir- tækjum i plássinu og er nú unnið af fullum krafti að vertiðar- undirbúningi, sagði Snæbjörn Arnason hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvikuf. Húsabyggingar hafa blómstr- að eftir góða vertið i fyrra. Er fólk bjartsýnt á komandi vertið og uggir ekki um atvinnu á næstu mánuðum. Hraðfrystihúsin voru samein- uð og hefur sá rekstur gefizt vel. Hefur nú verið byggður nýr frystiklefi i eldra frystihúsinu, og nýr vinnslusalur, og er þann- ig bættur aðbúnaður við vinnslu fisksins á komandi vertið. I fyrra höfðum við ónóg geymslu- rými fyrir hinn frysta fisk. Hef- ur sú aðstaða verið bætt nokkuð. Endurnýjun héfur farið hér fram á bátaflotanum. Nú er stærsti báturinn Sæhrimir 250 tonn að stærð. Var sá bátur keyptur frá Keflavik núna fyrir þessa vertið. Þá hafa fleiri skipt um og fengið sér stærri báta. Nær 30 bátar verða á vertið hér i vetur og þar af 18 stórir bátar. Þá eru um 10 til 12 tonna bátar enn á vertið. Róðrar eru ekki hafnir ennþá hér i Ólafsvik. Linubáta vantar einkum beitingamenn. Verða 6 til 8 bátar á linu i vetur og skipta siðan yfir á net er snarpasta vertiðin gengur yfir i marz og april. Þá gafst vel i fyrra að byrja þegar á netum um miðjan janúar og freista nokkrir bátar þess á þessari vertið. Ónög aðstaða er að taka á móti aðkomufólki. Vinna hér um 200 aðkomumenn á vertið- um. i eldra frystihúsinu eru 18 herbergi uppi á lofti. Var stofn- að félag i fyrrasumar, sem á að standa fyrir verbúðarbyggingu og hefur henni verið valinn staður. Byggingarframkvæmd- ir eru hins vegar ekki hafnar af þvi að lánsfé hefur vantað i þessar framkvæmdir. Patreksfjörður Fatreksfirði 5/1—Fimm linu- bátar hófu róðra i fyrradag. Fékk Þrymur BA 8,6 tonn og var aflahæstur i þessum róðri, sagði Rögnvaldur Haraldsson, sjó- maður á Þrym. Bátar eru i öðrum róðri i dag og er vertið þannig byrjuð hér af fullum krafti. Fullmannað er á alla þessa báta og eru það svo til allt Patreksfirðingar. Hins veg- ar litur illa út i landi að fá fólk til fiskvinnslu. Er aðallega aldrað fólk við þá vinnu og færra en skyldi. Aðeins 1 bátur ætlar að skipta yfir á net siðar á vertiðinni. Er bað Vestri. Hinir verða á linu aiia vertiðina. Bæði 'fæst betra hráefni með þessu móti og þá .v.v.v.v. koma hér steinbitsgöngur er liða tekur á vertið og er ekki hægt að veiða þann bláa nema á linu. Þrir stórir bátar voru keyptir hingað til Patreksfjarðar i fyrra. Verða þeir allir i linu- róðrum i vetur. Góðar atvinnuhorfur eru hér i vetur og er fólk almennt bjart sýnt. Góð afkoma var á siðasta ári og var óvenju mikið byggt yfir fólk. Tólf einbýlishús hafa verið i smiðum og sex ibúðir i verkamannabústað. Þá er ver ið að byggja félagsheimili. Helga Guðmundsdóttir BA fer á loðnu. Viö sjáum nú aldrei þennan bát hér. Hann var á sild- veiðum i Norðursjónum i sumar og haust. Þá veiddi hann i net núna milli hátiðanna og siglir með aflann til Þýzkalands. Gafst þetta vel i fyrra og ætlar að verða að vonum i ár. Finn- bogi er með Helgu núna. Fer hún siðan á loðnu, sagði Rögn- valdur að lokum. Grundarfjörður Grundarfirði, 5/1— Vertið fer hægt af stað hér i Grundarfirði vegna breytinga á hraðfrysti- húsinu. Liggur ekki ljóst fyrir, hvenær hraðfrystihúsið getur tekið á móti fiski á vertiðinni, sagði Sigurvin Bergsson. Byggt var ofan á hraðfrystihúsið fyrir nokkrum árum og átti þá að koma upp vinnslusal þar i hús- inu. Stöðvuðust þessar fram kvæmdir vegna fjárskorts. 1 sumar fékkst fé til þess að ljúka þessum framkvæmdum. Kom þá i ljós að gjörbylta þarf húsinu á báðum hæðum. Áður var fiskur verkaður á neðri hæöinni. Nú á að breyta henni i fiskmóttöku og færa flökunar- vélar upp i vinnslusalinn. Allt bendir til þess að bátar hreyfi sig ekki fyrr en á netum. Einn bátur er þó að byrja á linu. Er það Siglunesið og leggur þá aflann upp i saltfiskverkun Zófaniusar Sesilssonar. Fjórtán bátar róa annars héðan i vetur. Netavertið byrjar hér ekki fyrr en i febrúar. Ef hraðfrysti- húsið getur þá ekki tekið á móti fiski verður aflanum lagt upp i saltfiskverkun til að byrja með. Þessi stöðvun hraðfrystihúss- ins hefur valdið atvinnuleysi hjá kvenfólki siðan þær hættu i skel- inni i haust. Hins vegar hafa karlmenn haft næga vinnu vegna ýmissa framkvæmda hér. Vinnuflokkur vinnur við endurbyggingu hraðfrystihúss- ins. Hefur þurft að steypa hluta af húsinu upp. Þá þarf að flytja strengjasteypu hingað vestur i þakplöituna. Vinnuflokkur hefur unnið við að byggja viðbátarbyggingu við barnaskólann i haust. Þá hefur verið skipt um jarðveg i aðal- götu kauptúnsins. Ekki hefur gefið á hörpudisk og þykir sjómönnum allt annað að athafna sig út á miðum Breiðafjarða. Má ekkert vera að veðri á þessu nýja veiði- svæði. Nýlega fór bátur á veiðar á þessum nýju svæðum, þar sem leyft er að veiða hörpudisk. Fékk hann aðeins 500 kg. i róðri. Góð vinna var hjá kvenfólki i hörpudiski i sumar og haust. Var sennilega slegið landsmet i afköstum konu hér við verkun hörpudisks. Verkaði hún 10kg. á klst. og hélt þvi alla daga. Heit- ur honan Elsa Pétursdóttir. Einn daginn verkaði hún 76 kg. á átta timum. Fór þó i alla kaffi tima og matartima. Fékk hún röskar 4 þúsund kr. fyrir daginn. Margar konur hafa náð hér miklum flýti við verkun hörpu- disks. Þessi kona mun þó vera i sérflokki, sagði Sigurvin. Morðaldan kostaði 120 lífið á sl. ári Skorað á UDA og IRA til samvinnu BELFAST 6/1 — 18 ára gamall piltur var drepinn og þrjár manneskjur særð- ar i gærkvöld og nótt í Norður-írlandi. Pilturinn var skotinn niður af tveim öðrum táningum meðan hann var að setja loft i dekkin á bilnum sinum á benzinstöð i Bel- fast. Annars staðar i borginni særðist félagi i hersveit varnar- samtaka mótmælenda (UDA) af skoti, sem hleypt var af úr bil sem ók framhjá. WASHINGTON 5/1 Þingmenn demókrataflokksins i öldunga- deild USA-þings kusu i gær George McGovern i utanrikis- nefnd deildarinnar. 1 nefndinni eru 10 demókratar og 7 repú- blikanar, en aðeins var kosið i eitt sæti hjá hvorum. 1 Portadown suðvestan við Bel- fast köstuðu óþekktir tilræðis- menn handsprengjum inn i hús kaþólsks prests. Hann særðist ekki alvarlega, en ráðskona hans meira og var flutt á sjúkrahús. Þessi siðustu atburðir urðu að- eins nokkrum klukkutimum eftir að stjórn UDA, varnarsamtaka mótmælenda, hafði tilkynnt, að samtökin myndu gera allt sem i þeirra valdi stæði til að stöðva morðölduna, sem á liðnu ári hefur kostað 123 mannslif. tveir þriðju hlutar hinna drepnu hafa verið kaþólskir. Stuttu eftir tilkynningu UDA mæltust kaþólsk samtök til að IRA og UDA samræmdu varð- þjónustu sina i landinu til að stöðva morðin. Var skorað á full- trúa UDA að hitta leiðtoga IRA og hefja samvinnu. Nú eru jólin liðin, margir — a.m.k. I Vietnam — munu minnast þeirra jólagjafa sem Bandarikjaforseti sendi um jólin yfir striðshrjáða ibúa Vietnams.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.