Þjóðviljinn - 09.01.1973, Qupperneq 3
Þriðjudagur 9. janúar 1973 PJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Atvinnulaus-
um fjölgar
um nær 200
1 desember fjölgaöi atvinnu-
lausum úr 519 i 699 á öllu landinu.
Þar af eru 305 atvinnulausir i
kaupstöðum á móti 264 frá fyrra
mánuði.
Tilfinnanlegast atvinnuleysi er
á Vopnafirði. Þar eru skráðir eitt
hundrað atvinnulausir á móti 75
atvinnulausum frá fyrra mánuði.
Þareru nú aðeins til opnir vélbát-
ar, litlir að stærð. Hamla vetrar-
veður sjósókn svo litilla báta.
Næsta vor er væntanlegur skut-
togari i plássið.
Þá hefur atvinnulausum fjölgað
úr 21 i 24 i Stykkishólmi, 24 i 38 á
Dalvik, 15 i 27 i Grundarfirði, 1 i
16 á Skagaströnd, 8 i 13 i Árskógs-
hreppi, 5 i 24 á Raufarhöfn, 0 i 10 á
Þórshöfn. Hins vegar hefur at-
vinnulausum fækkað úr 16 i 14 á
Hofsósi.
Mörgum sýnist atvinnuleysi
furðulegt i Grundarfirði. Eru
þetta eingöngu konur er hafa unn-
ið við skel eða i frystihúsinu. Bæði
er, að frystihúsið hefur verið i
endurbyggingu og hörpudisks-
veiðar voru bannaðar við Breiða-
fjörð. Karlmenn hafa haft þarna
fulla atvinnu.
Þá hefur atvinnulausum f jölgað
úr 20 i 23 á Fáskrúðsfirði, 25 i 34 á
Eyrarbakka, en fækkað hefur úr
29 i 27 i Hveragerði.
1 kauptúnum með 1000 ibúa
hefur atvinnulausum fjölgað úr 21
i 24 i Borgarnesi. Dalvik er áður
talin.
í Reykjavik hefur atvinnulaus-
um fækkað úr 56 i 38. Fylgir engin
skilgreining i hvaða atvinnugrein
27 af þessum atvinnuleysingjum
eru.
t öðrum kaupstöðum hefur at-
vinnulausum fjölgað úr 46 i 48 á
Sauðárkróki, 12 i 43 i Siglufirði, 54
• i 58 i Ólafsfirði, 5 i 30 i Húsavik, 0 i
9 i Seyðisfirði, 0 i 32 i Neskaup-
stað. Hins vegar hefur atvinnu-
lausum fækkað úr 43 i 10 i Vest-
mannaeyjum og 42 i 22 i Hafnar-
firði. 1 Eyjum voru það einkum
konur úr frystihúsum, sem voru
skráðar atvinnulausar i nóvem-
ber. Sigldu þá báter með ufsa á
Þýzkaiandsmarkað.
Alþýöubanda-
lagiö Reykjavík
Kjartan Ólafsson.
Baráttan
gegn
herstöðvunum
Fyrsti fundurinn i fyrirhugaðri
18 funda seriu Alþýðubandalags-
ins i Reykjavik verður haldinn á
fimmtudagskvöld að Grettisgötu
3, og hefst klukkan 20:20.
Fundarefnið er: Baráttan gegn
herstöðvum á tslandi fyrr og nú.
Málshefjandi verður Kjartan
Ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans.
Fundurinn er öllum opinn.
Traðarkotssund hverfur
Gatan Traðarkotssund milli
Hverfisgötu og l.augavegs i
Reykjavik hefur verið orfin af
aðiluin scni eru að byggja
stórhýsi á vegum Otto Miehel-
sens við l.augaveg 9. Ilefur
uniferðarnefnd Itcykjavikur
eða aðrir þar til bærir aðilar
hjá borgary firvöldum leyft
það að götunni sé lokað uin
slundarsakir, eða hefur það
e.t.v. verið ákveðið að gatan
verði alveg afnumin?
Gatnamálastjóri Ingi O.
Magnússon svaraði þvi til, að
samkvæmt skipulagi borgar-
innar ætti að leggja Traðar-
kotssund undir lóðir við
Laugaveg. Stórhýsi það sem
lesandi nelnir mun nýta helm-
ing götunnar, en siðar mun
svo risa annað hús vestan við
það og húsið Laugavegur 5
hverfa. Enn hefur þó ekki ver-
ið ákveðið hvers kyns hús það
muni verða né hver hljóti þá
lóð. —ÞII
Víða nokkrar vega-
skemmdir vegna
flóða í ám og lækjum
Allviða urðu nokkrar minni- valla og Hvitárvallaskálans alveg vik. Þar var fólksbilum ekki l'ært,
Allviða urðu nokkrar miniii-
liáttar vegaskemmdir á landinu
um siðustu helgi vcgna vatna-
vaxta i ám og lækjuni. Kinna
mestar urðu skeiiimdirnar á veg-
inum lijá llvitá i Borgarfirði og
við sikisbruna vestan Ferjukots.
Kins urðu vegaskemmdir i Kyja-
firði.
Á föstudagskvöld tóku menn
eftir þvi, að vöxtur var að færast i
Hvitá i Borgarfirði, og á laugar-
dag var ílóðið orðið það mikið, að
flæddi yfir veginn milli Hvitár-
valla og Hvitárvallaskálans alveg
við brúna. Eins flæddi yfir veginr
rétt vestan við sikisbrúna, sem er
steinsnar vestan viö Hvitárbrú. Á
báðum þessum stöðum urðu all-
nokkrar skemmdir á veginum, en
nú er búið að lagfæra þær. Um
tima var smábilum ekki fært
þarna yfir og urðu menn þvi að
fara Bogarfjarðarbraut, leiðina
um Bæjarsveit.
Þá urðu skemmdir á vegum i
Eyjafirði, þar sem Svarfaðar-
dalsá flæddi yfir veginn hjá Dal-
vik. Þar var íólksbilum ekki fært
en aðeins var flóöið farið að
sjatna i gær.
Eins urðu vegaskemmdir
frammi i Eyjafirði á Eyjafjarð-
arbraut vegna þess að lækir
flæddu ylir veginn, þegar ræsi
tóku ekki lengur við. Mestar urðu
skemmdirnar við Höskuldsstaði i
öngulsstaðarhreppi. Gert verður
við þessar skemmdir um leiö og
vatn sjatnar og verða þær fljót-
unnar, enda ekki alvarlegar.
—S.dór
Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri:
Afkoma bœnda
góð á liðnu ári
Halldór Pálsson búnaðar-
málastjóri flutti erindi um
landbúnaðinn árið 1972 i rikis-
útvarpinu i fyrradag. Hann
kom viða við og upplýsti að ár-
ið 1972 hefði verið eitthvert
hagstæðasta ár á þessari öld
fyrir landbúnaðinn.
Halldór sagði að árið 1971
hefði samkvæmt búreikning-
um verið bændum mun hag-
stæðara en árin 1967—-’70.
Meðalfjölskyldutekjur 116 bú-
reikningabænda, sem höfðu
nautgripa- og sauðfjárrækt að
aðalatvinnu, af vinnu við bú og
vöxtum af eigin fé, voru kr.
326 þús. árið 1971, en meðal-
tekjur þessara bænda af öðru
en landbúnaði voru rúm kr. 40
þúsund. Heildarfjölskyldu-
tekjur þessara bænda urðu þvi
um 367 þúsund krónur.
Afkoma bænda á árinu 1972
liggur enn ekki fyrir, en allt
bendir þó til þess, að tekjur
þeirra hækki verulega og af-
koma þeirra miðað viö við-
miðunarstéttirnar verði betri
en á árinu 1971. Það byggist á
betra árferði og á ákvæðinu
um styttingu vinnuvikunnar.
Samkomulag varð um að
bændur gætu ekki stytt vinnu-
dag sinn og fengu þeir þvi
hækkaö verð á framleiðslu
sinni sem varaði vinnutima-
styttingunni.
Alvarlegt
umferðar-
slys í gcer
Alvarlegt umferðarslys varð i
gær á Vesturlandsvegi við af-
leggjarann að Gufunesi. Smábil
var þar ekið um veginn, og lenti
þá bifreið sem var á leið til
Reykjavikur á honum með þeim
afleiðingum að litla bifreiðin
kastaðist út af veginum og öku-
maður hennar, sem er aldraður
maður, kastaðist út úr henni og
slasaðist alvarlega. Þó var ekki
talið að hann hefði slasazt lifs-
hættulega.
Nokkuð var um umferðarslys
um siðustu helgi i Reykjavik.
Maður varð fyrir bifreið á
Snorrabraut á móts við Austur-
bæjarbió og slasaðist alvarlega.
Þá rákust tvær bifreiðar saman
á gatnamótum Háaleitisbrautar
og Kringlumýrarbrautar i
Reykjavik, og slösuðust tvær kon-
ur i annarri bifreiðinni mikið.
—S.dór
Geysihátt
verð á ís-
uðum fiski
í Bretlandi
Geysihátt verð er á fiski i Bret-
landi þessa slundina, eða hærra
en nokkru sinni liefur þekkz.t áð-
ur. Verð á þorski er 100 krónur
fvrir kilóið, en ýsan fer yfir 180
krónur livert kiló.
Verð þetta er á isuðuni fiski.
Sumar-
blíða
á Héraði
Kgilsstöðum, (í/l — Hér er 10
stiga hiti og auð jörð og svellalög
horlin. Er hér fært um allt hérað
og niður á firöi. Snjór er þó enn i
fjöllum og ekið á hjarni niður á
Seyðisfjörð með vörur. Einnig
var farið til Borgarfjarðar. Alltaf
er öðru hverju verið að aka vör-
um til dótturlelaganna niður á
fjörðunum.
Fjölmenni var hér mikið á ára-
mótadansleik i Valaskjálf. Sótti
fólk bæði af Héraði og neðan af
fjörðum þennan dansleik, enda
skotfæri. Auð jörð var komin hér
fyrir jól. llins vegar kyngdi niður
snjó i nóvember og byrjun
descmber.
■Siðast var steypuvinna rétt
fyrúr jól við byggingarfram-
kvæmdir. Upp úr næstu helgi
byrja framkvæmdir aftur við
Lagarfossvirkjun. Hafa þær legið
niðri um jólin. S.A.
Listakonur
á ferð
á Akureyri
Tvær ungar listakonur, sem
nýverið héldu myndlistarsýn-
ingu i Reykjavik, voru á ferð
norðurá Akureyri um helgina,
sem undir venjulegum kring-
unistæðum hefði ekki þótt i
frásögur færandi.
En svo gerðist þaö, að þær
rákust á stóran Ijósan húsvegg
á Sjálfstæöishúsinu þar
nyrðra. Þessa freistingu stóð-
ust þær ekki og tóku til við að
skreyta vegginn. Ekki voru
norðanmenn á sama máli og
listakonurnar. Var lögregla
kölluð til og henni skipaö að
stöðva listsköpunina, og var
það gert.
Var von á listakonunum til
Reykjavikur i gærkveldi.