Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. janúar 1979 Við Islendingar höfum á undan- förnum árum selt meginhluta okkar saltfisks i óverkuðu blautu ástandi, til Miðjaröarhafslanda. Það veltur að sjálfsögðu á miklu, hvert vatnsinnihald sliks fisks er, eða má vera, þegar hann er seldur. Nýlega kom að máli við mig einn af visindamönnum Rann- sóknarstofnunar fiskiðnaðarins, Geir Arnesen, efnaverkfræð- ingur, og vakti máls á þeirri hug- mynd, að æskilegt gæti verið, að miða sölu á óverkuðum saltfiski viö ákveöið vatnsmagn i fisk- inum, eins og algengast er i verk- uðum saltfiski, ef sölusamtökin gætu fengið þvi framgengt. Ég tel hér vera um athyglisverða, snjalla hygmynd að ræða, sem at- huga þarf mjög gaumgæfilega, hvort hægt væri að koma i fram- kvæmd við gerð sölusamninga. Við okkar mat á óverkuðum salt- fiski, sem er i senn sjón- og þreifi- mat, þá hefur þess jafnan verið krafizt, aðfiskurinn væri full salt- kemur ekki ósjaldan fyrir, þegar óverkaður saltfiskur er fluttur til markaðslanda, i milliþilfars- lausum skipum, eins og algengt hefur verið, að neðri hluti farms- ins úr lestinni er kominn með undirvigt, þegar komið er á ákvörðunarstað. þó yfirvigt hafi verið á fiskinum við útskipun. Ef nú slikur farmur hefði verið seldur með ákveðnu hámarks vatnsinnihaldi við útskipun, en vatnsinnihaldið lækkað stórlega á leiðinni sökum mikillar pressu, þá á ekki að vera hægt að krefja seljandann um skaðabætur, sé vatnsinnihald fisksins komið langt niður fyrir leyfilegt hámark. Þannig er það sjáanlegt að það væri hagur fyrir framleið- andann ef hægt væri að binda i sölusamningum hve hátt vatns- innihald mætti vera i óverkuðum saltfiski við sölu. Þegar slik hug- mynd sem þessi kemur fram hjá þeim visindamönnum okkar sem vinna að rannsóknum i þágu okkar fiskframleiðslu á vegum svo þeirra sem stjórna saltfisk- sölunni og útflutningnum að athuga hvort hægt er að fram- kvæma hugmyndina. Frá tækni- legu sjónarmiði tel ég það vera hægt, en um þá hlið þessa máls, sem að sölunni snýr, vil ég ekkert lullyrða, ég er ekki nógu kunn- ugur þeim málum. Verður langhalinn einn al okkar nytjafiskum á næst- unni? Þeim djúphafsfiski, sem við tslendingar köllum langhala, hefur litill gaumur verið gefinn af okkur, svo og öðrum fiskveiði- þjóðum Vestur-Evrópu, allt til þessa dags. Menn vissu að þessi fisktegund var til i Atlanzhafi, en um stærö stofnsins var litið vitað enda töldu flestir að um lélegan nytjafisk væri að ræða. En svo allt i einu nú á þessu hausti frétt- ist, að Rússar hafa veitt þessa fisktegund til matar, allt frá árinu 1967, og að Austur-Þjóð- fiskimál ^eftir Jóhann J. E. Kúld^ Mestan afla af þessum fiski hafa rússnesku togararnir fengið á miðunum austur af Nýfundna- landi. Þessar aflafréttir gefa okkur til kynna, að ennþá séu hafdjúpin litt könnuð, og að ennþá séu mögu- leikar á að finna þar nytjafisk sem litið eða ekkert hefur verið veiddur til þessa. Þetta eru gleðifréttir fyrir okkur tslendinga, sem verðum að treysta á hafið og gjafir þess okkur til handa. Verður langhali einn af okkar nytjafiskum? Alvarlegar stúdenta- óeirðir áfram í Kairo KAIRO 4/1 Fjórum Palestínu- skæruliðum, sem hertóku israelska sendiráðið i Bangkok skömmu fyrir nýár, verður stefnt^ fyrir skæruliðadómstól vegna þess að þeir framkvæmdu ekki það sem fyrir þá var lagt. Samkvæmt heimildum Reuters-fréttastofunnar höfðu skæruliðarnir ákveðin fyrirmæli um að sprengja sendiráðið i loft upp og drepa sex gísla sem þeir tóku þar, nema tsraelsstjórn léti lausa 36 palestinuskæruliða sem sitja i fangelsi i tsrael. Skæruliðarnir fjórir hafa undanfarið verið yfirheyrðir af yfirvöldum i Egyptalandi, en eru nú komnir til Damaskus i Sýr- landi. Þjóðfrelsis baráttan aður og hefði fengið þá pressu við umsöltun, sem orsakaði að komin væri góð festa i fiskholdið. Hinu er þó ekki að leyna, að talsverður munur getur verið á vatnsinnihaldi óverkaðs saltfisks, t.d. á efri og neðri hluta fisk- stafla, sérstaklega er staflarnir eru hafðir háir og þannig látnir standa lengi. Ekki sizt af þessum sökum tel ég það vera hagkvæmt, að umstafla óverkuðum saltfiski sluttu áður en hann er metinn til útflutnings, auk þess sem fiskur er hlýtur slika meðferð fellur að jafnaði betur i mati. Mér vitanlega hefur aldrei veriö fastákveðið hér á Islandi, hvort hámarks vatnsinnihald skuli vera i fullsöltuðum óverk- uðum saltfiski. En hins vegar hafa Norðmenn slegið þessu föstu hjá sér og segja aö vatnsinnihald sliks fisks eigi að vera 57% af þyngd fisksins. Það getur að sjálfsögðu verið mikið hags- munalegt atriði fyrir framleið- andann hversu mikið vatnsinnni- hlad fiskins má vera við sölu. Það Langhali. Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins, þá sýnir það, að slikir menn eru lifandi i starfi, sibrjót- andi heilann um úrræði sem geta komið framleiðendum að gagni. Mér þykir þessi hugmynd vel þess verð, að henni sé komið á framfæri hér i þættinum. Það er í Afríkti DAR-ES-SALAM 5/1 Frelsis- nefndin sem starfar innan vé- banda Einingarstofnunar Afriku- rikja heldur fund n.k. mánudag i Accra. i Ghana til þess að auka eininguna meðal þjóðfrelsis- hreyfinganna i hinum ýmsu lönd- um Afriku, sem enn njóta ekki sjálfstæðis og frelsis. Fyrir skömmu var haldin vel heppnuð ráðstefna i Kinshasa i Kongó til þess að sameina þær tvær frelsishreyfingar, sem haldið hafa uppi baráttu gegn ný- lenduveldi Portúgala i Angóla. 17 Afrikuriki eiga fulltrúa i frelsis- nefndinnni. ÚTBOÐ Á MÚRVERKI Tilboð óskast i einangrun, vegghleðslur og múrhúðun úti og inni i húsi Sjálfsbjargar við Hátún nr. 12 Reykjavik. Hússtærð alls um 12700 rúmmetrar. Útboðsgagna má vitja á Teiknistofuna s/f Ármúla 6, gegn 3000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað mánu- daginn 22. jan. n.k. kl. 11 f.h. HÚSSTJÓRNIN. FELAG mum HUOMLISTAIIMAWA JÉjj* útvegar ybur hljóðfœraleikara og Idjómsveitir við hverskonar tœkifœri Íinsamlfiíjast hringið í Z0f!55 inilli kl. 14-17 verjar séu lika tarmr aö veiöa langhala i stórum stil. En jafn- framt þessum veiðifréttum, þá er sagt, að þessi fisktegund sé gæða- fiskur til matar, á bragðið ekki ólikur þorski, og fiskgæðin sizt minni. Heimkynni langhalans eru sögð vera á hafinu nálægt Islandi, trlandi, Grænlandi, Baffinslandi, Labrador, Nýfundnalandi, Nýja Skotlandi og allt suður með austurströnd Bandarikjanna, suður að Karabiska hafinu. Þetta er djúphafsfiskur og eru heim- kynni hans frá 300 metra dýpi og allt niður á 2.300 metra. Talið er að veidd hafi verið 80.000 tonn af langhala á árinu 1971, aðallega á miðunum undan Nýfundnalandi. Rússneskir haf- fræðingar hafa á siðustu árum leitað mikið að hrygninga- stöðvum langhalans en ekki fundið ennþá. Þeir telja þó vist að hrygningastöðvarnar séu ein- hvers staðar i Norður-Atlanzhafi á mjög miklu dýpi. Talið er að langhalinn geti orðið 1,10 m á lengd, hann er sagður einna stærstur hér i nánd við Island, en heldur minni undan strönd Ameriku. Talið er að auðug lang- halamið seu i landsgrunnshallinu suður af Grindavik. Komið hafa fram tilgátur rúss- neskra fiskifræðinga um, að lik- legt sé að hrygningastöðvar lang- halans séu einhvers staðar i nánd við tsland, þó ekki hafi verið hægt að færa sönnur á það til þessa. Sagt er, að strax á árinu 1967, þegar Rússar hófu þessar veiðar, að þá hafi einn fyrsti togari þeirra fyllt sig af langhala á 27 dögum, og að ekki sé óalgengt, að rúss- neskir togarar fái, á sólarhring, allt upp i 70 tonn af þessum fiski. Skrifstofustúlka óskast til starfa allan daginn á skrifstofu Rannsóknarráðs rikisins. Góð málakunnátta æskileg, æfing I vél- ritun á ensku eftir handriti og segulbandi. Frekari upplýsingar i sima 21320. Þjálfarar! íþróttabandalag Vestmannaeyja óskar að ráða þjálfara fyrir I.- deildarlið IBV. Upplýsingar i símum 1402 og 2042 Vest- mannaeyjum. Umsóknir sendist i pósthólf 188 i Vest- mannaeyjum fyrir 20. janúar. ÍBV.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.