Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 12
12. SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 9. janúar 1973 50asta sýning á Sjálfstæðu fólki Það telst jafnan viðburður hjá Þjóðleikhúsinu þegar leikrit eru sýnd þar 50 sinnum, en rétt er að taka fram að 660 leikhúsgestir geta verið á hverri sýningu i leik- húsinu. Sjálfstætt fólk, leikrit Halldórs Laxness.er eitt af þeim leikritum sem nær þetta háum sýningarfjölda, en það verður sýnt i 50. sinn n.k. fimmtudag þann 11. januar. Aðsókn að leiknum hefur verið mjög góð og að jafnaði hefur leikurinn verið sýndur fyrir fullu húsi. Sjálfstætt fólk er fimmta leikritið, sem Þjóðleikhúsið hefur sýnt eftir Halldór Laxness, en hin voru: íslandsklukkan, sem hlotið hefur mestu aðsókn af öllum leikritum hjá Þjóðleikhúsinu, Silfurtungliö, Strompleikurinn og Prjónastofan Sólin. Róbert Arnfinnsson leikur sem kunnugt er aðalhlutverkið i Sjálf- stæðu fólki, Bjart i Sumarhúsum, en leikstjóri er Baldvin Hall- dórsson. Myndin er af Bjarti og ástu Sóllilju. Nornir spá um heimsmálin NAPOLl — Arið 1973 mun færa löndunum fyrir botni Miðjarðar- hafsins varanlegan frið og lausn mun finnast á deilunni i Norður- frlandi, en Vietnam-striðið heldur áfram, spá nornir og galdramenn ítaliu. Alls komu 30 félagar italska nornasambandsins saman til ár- legs fundar á annan i jólum i helli rétt fyrir utan þorpið Avelliniono skammt frá Napoli, þar sem venja er að spá fyrir komandi ári. I lok ársfundarins las formaður nornasambandsins, Antonio Batt- ista, upp niðurstöður fundarins með norn með kráku á öxlunum standandi sitt til hvorrar handar. Lýsti Batista hátiðlega yfir, að friður i Miðausturlöndum væri nú nær en nokkru sinni fyrr, en ástandið i Vietnam yrði áfram ruglingslegt vegna misskilnings aðila. Þá spáir nornasambandið að ástandið i N-trlandi versni i vor og sumar, en i september ná- ist samkomulag eftir frumkvæði páfastólsins. Einum af helztu þjóðarleiðtog- um heimsins verður steypt af stóli i stuttri byltingu, spá norn- irnar, en vildu ekki segja, hver hann ætti að vera. Bandaríkjamenn samir við sig WASHINGTON — Það er ekki að ástæðulausu, aðsérstakar varúð- arráöstafanir eru nú gerðar til að tryggja Nixon forseta gegn árás- um bæði frá mönnum og dýrum, þegar hann ekur i opnum bil 20. janúar nk. frá Hvita húsinu til þinghússins til að sverja embætt- iseið sinn sem forseti. Hafa mas. trén meðfram göt- unum sem hann ekur um veriö sprautuð með plastupplausn til að hindra að vængjaðir ibúar borgarinnar láti sinar „sprengj- ur” falla i höfuð forsetans. Plast- upplausnin gerir fuglunum ókleift að sitja i trjánum. Loksins annað barn Soffíu GENF 6/1 — ttölsku kvik- myndadisinni Soffiu Loren fæddist i dag sonur á sjúkrahúsi i Genf og liður bæði móður og barni vel, að þvi er fram kemur i heimsfréttunum. Soffia Loren er gift kvikmynda- stjóranum Carlo Ponti og hefur að sögn mikið lagtá sig til að geta alið barn. Það fyrsta eignaðist hún fyrir fjórum árum, einnig son. Báðir voru teknir með keisaraskurði. IJTLI GLUGGINN Jörn Birkeholm: HJÁLP Það er fíll undir rúminu mínu ,,Vitiði hvað?" hrópaði hún. ,,Það er komið gat á loftið beint yfir eld- húsborðinu og það standa tveir fíls- fætur niður i gegnum gatið. Allar skálarnar með italska salatinu eru fullar af rykif — Þið verðið að hjálpa mérað ýta fílsfótunum aftur upp til Grepps, áður en fíllinn dettur allur ofan í salatið!" Greppbæingarnir fjórir hröðuðu sér upp tröppurnar að dyrunum hjá Greppi, sem þeir opnuðu. Á miðju stofugólfinu stóð raunar Verðlaunagetraunin í gær var dregið í verðlaunaget- raun ,,Jólagluggans". Þessir hlutu bókarverðlaun: Benedikt Heiðar, Lundarbrekku 8, Kópavogi, Bjarni Jónsson, Skeiðarvogi 1, Reykjavík, og Jónas Stefánsson, Hverfisgötu 57, Hafnarfirði. Hafa þeim nú verið sendar bækurnar. Lausnin var: Ekki éta (borða) allir yfir sig á jólum. Margar réttar lausnir bárust, en mörg ykkar gleymdu að skrifa nöfn og heimilisföng. Það skuluð þið muna næst. fíll og leit á þau litlum skelfdum augum. En það þurfti ekki að draga fæturna á honum upp um gatið á gólfinu. Það hafði hann sjálfur gert. Mynd af eplatré 0/ b> drd Þcssa mynd teiknaði hann Ari Gisli fyrir okkur. Eins og þið sjáið dauðlangar stelpuna i eplin. V'ið þökkuin Ara, sem er 5 ára, kær- lega fyrir myndina. Sex kátir kettlingar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.