Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 09.01.1973, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 9. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 SAMIÐ í VIETNAM: Bandaríkin og Genfarráðstefnan Eins og kunnugt er var haldin alþjóðleg ráðstefna i Genf árið 1954, en hlutverk hennar var það að binda endi á Indókinastyrjöld Frakka i eitt skipti fyrir öll. Bandarikin voru þátttakendur i ráðstefnunni. Þá var aðstaða þeirra i málefnum Indókina ólik þvi sem nú er, en afstaða til allra mála næsta svipuð. Þegar i upphafi landvinningastyrjaldar Frakka árið 1945, naut Parisar- stjórn stuðnings Bandarikjanna. Franskt herlið var t.d. flutt til Indókina á bandariskum skipum, en auk þess nutu Frakkar góðs af hergögnum sem bandariski herinn skildi eftir i Frakklandi og Suðaustur-Asiu við uppgjöf Þjóð- verja og Japana. Eftir þvi sem styrjöld Frakka og Viet Minh dróst á langinn og hinir siðarnefndu tóku frum- kvæðið æ meir i sinar hendur, breyttist afstaða stjórnarinnar i Washington. Hún taldi að Frakk- ar gætu vart unnið sigur nema breytt væri um hernaðaraðferðir og studdi þvi heilshugar hina svo- nefndu Bao Dai lausn. Þessi lausn var einfaldlega fólgin i þvi að Frakkar komu upp leppstjórn i Saigon, ákváðu að hún væri eina löglega stjórn Vietnams, en franski herinn ætti i höggi við illa kommúnista sem vildu steypa hinni einu löglegu rikisstjórn og afnema frelsi og lýðræði. Lepp- stjórnin var sett á laggirnar i marz 1949 en þjóðhöfðingi varð Bao Dai, fyrrverandi keisari, sem áður hafði snúizt á sveif með Ho Chi Minh árið 1945. Engum var það betur ljóst en Frökkum og Bandarikjastjórn, að hér var um einberar blekkingar að ræða. Hin nýja „stjórn” i Saigon réði ekki nokkrum sköpuðum hlut, enda hafði hún ekkert innlent pólitiskt afl að styðjast við. Hinn eini bak- hjarl hennar varð her málaliða sem Frakkar tóku að byggja upp fyrir bandariskt fé. Skripasam- koma þessi er fyrirrennari og fyrirmynd núverandi stjórnar i Saigon. Þessar aðgerðir gögnuðu Frökkum litt. Allar bolla- leggingar þeirra og málavafstur um sjálfstæða stjórn i Saigon voru skotnar i tætlur við Dien Bien Phu árið 1954. Eftir það varð aðeins um tvennt að velja: stór- aukna aðstoð frá Bandarikjunum eða samninga við Ho Chi Minh. Franska herráðið áleit vig- stöðuna vonlausa og i samræmi við þessa skoðun hófst bæði undirbúningur að samningum og itarlegar umræður um banda- riska hernaðarihlutun. Banda- rikjastjórn var á hinn bóginn al- gerlega óviðbúin þessari þróun mála. Hún hafði reiknað með þvi að Frakkar gætu haft i fullu tré við Viet Minh, og jafnvel unnið sigur, fengju þeir fjárhagsaðstoð oghergögn. Frá 1950-1954 greiddu Bandarikin um 80% af her- kostnaði Frakka i Indókina. Þegar ráðstefnan um Indókina hófst i Genf árið 1954, stóðu jafn- framt viðræður Frakka og Bandarikjanna um ihlutun bandariska hersins. Þar var fyrst og fremst á dagskrá áætlun um viðtækar loftárásir bandariska flughersins á stöðvar Viet Minh við Dien Bien Phu, en siðan skyldu árásirnar breiðast út um allt landið. Ýmsir annmarkar voru þó á þessari ráðagerð. Bæði franska og bandariska herliðið töldu loftárásir ófullnægjandi og gæti þvi ekkert bjargað Frökkum nema bein ihlutun bandariska landhersins. Dulles utanrikisráðherra mun hafa verið talsmaður slikrar ihlutunar, en þar átti hann við ramman reip að draga. Kóreu- styrjöldinni var nýlokið á litt ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Fyrri hluti glæsilegan hátt fyrir Bandarikja- menn. Þegar Eisenhower varð forseti hafði hann heitið þvi að ljúka striðsrekstri Banda- rikjanna i Kóreu, og eins og aðrir bandariskir hershöfðingjar var hann algerlega andvigur þvi að landher Bandarikjanna flæktist á ný i strið á meginlandi Asiu. Dulles vissi að þingið yrði andvigt ihlutun svo og almenningur, enda ekki búið að æsa þessa aðila upp i sömu striðshysteriu og siðar varð. Niðurstaða umræðna um ihlutun varð nokkurs konar sam- komulag. Ákveðið var að hefja loftárásir á Vietnam og skyldi þar vera um að ræða samræmdar að- gerðir Bandarikjanna og Breta. Stjórnin i Washington treysti sér ekki til hernaðaraðgerða ein á báti, en með bandalagi við Breta og jafnvel Astraliu bjóst hún við að geta sveigt þingið, herráðið og bandariskan almenning undir vilja sinn. Einnig lá það ljóst fyrir að einhliða aðgerðir Bandarikja- hers myndu mæta gagnrýni erlendis, enda almenningur viða um lönd tekinn að sjá i gegnum holtaþokuvæl Frakka um baráttu þeirra fyrir lýðræði. Það hafði nefnilega komið á daginn að allt tal Parisarstjórnarinnar um samningsvilja var lygi frá rótum. Stjórnin hafði þvert á móti hvorki anzað né skýrt frá bréfum sem henni höfðu borizt frá Ho Chi Minh þegar 1947, en þar lýsti hann Viet Minh fúsa til samninga. Efni þessara bréfa var orðið kunnugt og þar með tvöfeldni og lygar Frakka. Vonir Bandarikjastjórnar um aðstoð Breta brugðust. Þeir neituðu allri samvinnu og kröfðust þess að gengið yrði til friðarsamninga. Allar áætlanir um samræmdar aðgerðir og ihlutun Bandarikjanna strönduðu á andstöðu Breta. Genfarráð- stefnunni lauk sem kunnugt er með vopnahléi og samningum um framtið Indókina, þar sem Vietnam skiptist til bráðabirgða i tvö riki. Þessi málalok voru Eftir Kristján G. Sigvaldason Bandarikjastjórn alls ekki að skapi, enda hugðist hún ekki una niðurstöðum ráðstefnunnar. Eng- um var betur ljóst en Bandarikja- stjórn sjálfri, að leppstjórn Frakka i Saigon var dauðadæmd án stuðnings erlendis frá. Innan- lands átti hún fáa fylgjendur. Leyniþjónusta Bandarikjanna var þegar tekin til starfa i Vietnam og það var samkvæmt fyrirmælum hennar að Bao Dai skipaði Ngo Dinh Diem forsætis- ráðherra i Saigon 7. júli 1954. Þar með höfðu Bandarikin fundið sér verðugan lepp i Suður-Vietnam og hófu að framfylgja þeirri stefnu sem Richard Nixon, þá- verandi varaforseti, orðaði svo i The New York Times 20. april 1954. ,,Ef nauðsynlegt reynist, verða Bandarikin að koma i stað Frakka til þess að hindra sigur kommúnismans i Suðaustur- Asiu". Þess skal einnig getið að Nixon hafði verið harður tals- maður hernaðarihlutunar þegar aðstaða Frakka var vonlaus, og þeir báðu um bandariska hjálp. 1 fyrsta lagi var haldið áfram stefnu hinna samræmdu aðgerða sem áður er getið. Meðan friðar- umleitanir stóðu yfir i Genf, voru Bandarikin önnum kafin við að setja saman hernaðarbandalag til þess að vera reiðubúin að mæta hliðstæðum atburðum og átt höfðu sér stað i Vietnam og Kina. Þetta bandaiag — SEATO — var sett á laggirnar með Manilasamningnum 8. september 1954. Þáfttakendur voru Bandarikin, Bretland, Frakk- land, Filippseyjar, Thailand, Pakistan, Astralia og Nýja Sjá- land. SEATO var i raun og veru svar Bandarikjanna, hinna gömlu nýlenduvelda og leppa þeirra við niðurstöðum Genfarráðstefnunn- ar. Bandalagið átti ekki aðeins að standa gegn árásum utanað- komandi aðila, þvi var öllu frem- ur ætlað að koma i veg fyrir það, að innlendum byltingarhreyfing- um i hinum gömlu nýlendum yxi fiskur um hrygg. Samningssvæðið náði þvi til allra rikja Suðaustur-Asiu, einnig Suður-Vietnams, Laos og Kambódiu, sem áttu að vera hlut- laus samkvæmt Genfarsátt- málanum. Einnig var það hlekkur i bandalaga- og her- stöðvakeðju þeirri sem Banda- rikin voru að smiða utan um hin sósialisku riki, en það var i sam- ræmi við innilokunarstefnu — containment — Bandarikjanna, gagnvart þessum rikjum. SEATO átti að gefa stjórninni i Washing- lon lagalegan, siðferðilegan og pólitiskan grundvöll til ihlutunar i Suðaustur-Asiu, en þennan grundvöil skorti fyrir Genfarráð- stefnuna. 1 öðru lagi hófu Bandarikin að tryggja stöðu Diems innan Suður- Vietnams. Rikuleg efnahags- og hernaðaraðstoð var látin i té og lögð á ráðin um það hvernig hentugast væri að brjóta niður allan andspyrnuvott gegn stjórn hans. Það var gert með fjölda- aftökum, handtökum og ógnar- stjórn. Jafnhliða hófst mikil áróðusherferð um allan heim þar sem Diem var lýst sem útverði frelsis og lýðræðis, — þeir sem vilja kynnast Diem, lýðræðis- hetjunni með frelsismóðinn i brjóstinu ættu að lea Morgun- blaðið á árunum 1954-1963. 1 þriðja lagi mótaðist stefna Bandarikjanna gagnvart Norður- Vietnam þegar á árunum 1954-56. Stjórnin i Washington var frá upphafi andvig skiptingu landsins, en eftir að hún var orðin staðreynd voru Bandarikin stað- ráðin i þvi að koma i veg fyrir hugsanlega sameiningu. Bandarikjastjórn var algerlega andvig kosningum um sameiningu, enda taldi hún öruggt að yfirgnæfandi meirihluti ibúanna væri fylgjandi sameiningunni. Þegar 1954 hófust árásir á Norður-Vietnam sem miðuðu að þvi einu að skapa glundroða og gera stjórninni i Hanoi erfitt um vik. Sérþjálfaðir hermdarverkaflokkar voru sendir frá Saigon til norður- hlutans og áttu þeir að eyðileggja mannvirki og reyna að æsa ibúanna gegn stjórninni. Flokkar þessir voru undir beinni stjórn bandarisku leyniþjónustunnar CIA. Samkvæmt fyrirmælum áttu þeir að sprengja i loft upp og eyði- leggja eldneytisbirgðir, sam- göngutæki, opinberar byggingar og matvælageymslur. Einnig áttu þeir að þjálfa skæruliðahópa til þess að berjast gegn stjórninni i Hanoi. Þessar aðgerðir voru vitaniega brot á Genfarsátt- málanum og var ætið neitað sem hugarfóstri og áróðri vondra kommúnista. Þeim er á hinn góginn lýst i hinum kunnu PENTAGON-skjölum, en þar gerir yfirmaður framkvæmdanna E.G. Lansdale grein fyrir fram- gangi mála. Það ætti að vera nokkuð ljóst af þvi sem hér hefur verið rakið, aö Bandarikin flæktust ekki inn i Vietnam-striðið af misgáningi og gegn vilja sinum. Markmið þeirra nú eru næsta hin sömu og 1954, og siðustu loftárásir á Noröur-Vietnam aðeins rökrétt framhald árásanna sem lýst var hér að framan. Eflaust vildu Bandarikjamenn helzt sprengja Vietnam aftur á steinöld, eins og þeir hafa raunar hótað. Af banda- riskum lýðræðissjónarhóli væri Vietnam-málið endanlega leyst með fullkomnu þjóðarmoröi. Og þar er fordæmið fyrir hendi. Rækilegasta þjóðarmorð sem sagan greinir frá er útrýming Indiánanna, frumbyggja Banda- rikjanna. Kristján G. Sigvaldason "GÓÐA VEIZLU GERA SKAL" BRÚÐKAUP, fermingarveizlur, afmælishóf, átthagafélagssamkomur eða annar mannfagnaður standa fyrir dyrum hjá einhverjum dag hvern. Þá vaknar spurningin: hvar skal halda hófið? Ef aðstæður leyfa ekki að hafa veizluna heima fyrir, þá er næst að hringja í Hótel Loftleiðir. Þar eru salarkynni fyrir hvers konar samkvæmi. Allar upplýsingar í síma 22322.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.