Þjóðviljinn - 09.01.1973, Side 11
Þriðjudagur 9. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
3. deild í handknatdeik — fyrri umferð
Fyrri umferð 3.-deildar-
keppninnar í handknattleik
var leikin um siðustu helgi
og svo fóru leikar, að
Völsungar frá Húsavík
unnu alla sína leiki með
miklum yfirburðum, og
þótt hér hafi aðeins verið
um fyrri umferð að ræða,
má telja útilokað að
nokkuð geti komið í veg
fyrir sigur þeirra í
keppninni. Þar með myndu
þeir leika í 2. deild næsta
vetur, og þeir sýndu það í
þessum leikjum að þeir
eiga fullt erindi þangað nú
þegar. Maðurinn á bak við
þessa ágætu frammistöðu
Völsunga er hinn kunni
handknattleiksmaður
Arnar Guðlaugsson, er lék
með Fram um árabil en er
nú fluttur til Húsavíkur.
Auk hans eru nokkrir bráð-
Líkur á
lands-
leik í
badmin-
ton við
Norð-
menn
Allar likur eru á að íslend-
ingar leiki sinn fyrsta lands-
leik i badminton i næsta mán-
ubi og þá gegn Norðmönnum
og myndi leikurinn fara fram
hér á landi. Verið er að ganga
frá þessum málum um þessar
mundir. öruggt má telja að
hingað komi Norðmenn til
keppni, en að þvi er Garðar
Alfonsson hjá TBR sagði i
gær, er ekki alveg vist að þeir
verði það margir að hægt
verði að leika landsleik, en til
þess þyrftu þeir helzt að vera
4. Þá yrði keppt i einliðaleik og
tvíliðaleik.
Næsta mót i badminton
verður i lok þessa mánaðar en
það verður mót i einliðaleik
sem TBR gengst fyrir. Mótið
sem Norðmennirnir keppa á
yrði i byrjun febrúar og lands-
leikurinn þá um leið ef af
verður. Sagði Garðar að
Norðmenn væru nokkuð
áþekkir okkar beztu mönnum
að styrkleika, þannig að um
skemmtilega og jafna keppni
verður að ræða ef af lands-
keppninni verður.
efnilegir leikmenn í liðinu,
sem ættu ekki að þurfa að
örvænta um framtiðina.
Liðin sem taka þátt i 3.-deildar-
keppninni auk Völsunga eru Þór
frá Vestmannaeyjum, 1B1 og
Afturelding. Keppnin hófst s.l.
föstudagskvöld og léku fyrst
saman Völsungur og ÍBÍ.
Völsungur sigraði með yfirburð-
um 26:12. Strax á eftir léku svo
Afturelding og Þór og sigraði
Afturelding 23:18.
A laugardaginn léku svo
Völsungar við Þór og sigruðu með
dæmafáum yfirburðum eða 32:6.
Næst léku svo Afturelding og ÍBI
og þann leik vann Afturelding
26:15.
A sunnudaginn léku Þór og
IBt fyrri leikinn. Sá leikur var
mjög jafn allan timann og þegar á
leið og úthald manna fór að
minnka varð um hálfgera leik-
leysu að ræða. En svo fóru leikar
að Þór sigraði 14:13.
Þá var komið að leik Völsungs
og Aftureldingar, liðanna tveggja
sem ekki höfðu tapað leik. Það
kom i ljós strax i upphafi að hér
áttust við ójöfn lið. Yfirburðir
Völsunganna voru algerir, bæði i
vörn og sókn. Forskot þeirra jókst
jafnt og þétt, var munurinn
orðinn 14:5 i leikhléi,en leiknum
lauk með yfirburðasigri þeirra
33:14.
Eins og áður segir er Arnar
Guðlaugsson maðurinn á bak við
velgengni Völsunga en ungur og
stórefnilegur handknattleiks-
maður Sigurður Sigurðsson vakti
verðskuldaða athygli sem lang-
skytta. Einnig stóð Guðmundur
Jónsson markvörður þeirra sig
mjög vel. Vissulega er ástæða til
að ætla að lið Völsunga standi sig
vel i framtiðinni, og það verður
Frh. á bls. 15
Arnar Guðlaugsson fyrrum
leikmaöur Fram var
maðurinn á bak viö velgengni
Völsunga i 3.-deildar-
keppninni.
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Einn hinna ungu Vöisunga skorar af linu, og eins og myndin sýnir kann hann greinilega sitthvað fyrir sér.
Karl Ben. tekinn
við landsliðinu
Páll Jónsson og Jón Erlendsson eru
með með honum í landsliðsnefnd
Hin erfiða fæðing er af-
staðin, fæðzt hefur landsliðs-
nefnd og skipaður hefur verið
landsliðsþjálfari i handknatt-
leik . Einar Matthísen for-
maður HSt tilkynnti um
helgina að Karl Benediktsson
hefði verið ráðinn landsliðs-
þjálfari fram yfir heims-
meistarakeppnina 1974.
Þá var og tilkynnt, að lands-
liðsnefnd hefði verið skipuð
fram að næsta þingi HSt og
skipa hana Karl Benediktsson,
Páll Jónsson og Jón Erlends-
son, sem var skipaður for-
maður hennar.
Það hefur tekið óeðlilega
langan tima hjá HSt að ganga
frá þessum málum. Ástæðan
var sú, að Karl setti tvö
skilyrði, sem HSt varð að
gangst inná, ætti hann að taka
við landsliðsþjálfun. önnur
var sú, að Páll Jónsson yrði
með honum i landsliðsnefnd
við 3. mann, sem þýðir auö-
vitað að þeir Páll og Karl, en
þeir eru saman með Fram-
liðið 1 1. deild, munu algerlega
ráöa vali landsliðsins hverju
sinni. Þriðji maðurinn i nefnd-
inni verður alveg áhrifalaus(.
Hitt skilyrðið er æfingapro-
gram, sem Karl hefur samið
og nær fram yfir HM 1974,
nákvæmlega, en i grófum
dráttum fram tii 1976, þegar
næstu Ólympiuleikar verða
haldnir.
Gera má ráð fyrir mjög
miklum breytingum á lands-
liðinu frá þvi sem veriö hefur
siðasta árið. Bæði Karl og Páll
hafa gagnrýnt val landsliðsins
eins og það var og því liklegt
að enginn þeirra sem verið
hafa i landsliðinu sé öruggur
um að komast i lið þeirra
Karls og Páls.
Fyrsta verkefnið sem þeir
fá er val liðsins fyrir tvo leiki
við lið frá Grúsíu i Sovétrikj-
unum sem væntanlegt er
hingaö i byrjun næsta mán-
aðar. Siöan kemur utanför
landsliðslins i lok febrúar en
siðan tveir landsleikir við
Norðmenn hér heima i marz.
Siðan er það auðvitað undan-
keppni HM næsta haust og ef
vel gengur þar, þá aðalkeppn-
in sem fram fer i byrjun næsta
árs.
Einu velta menn fyrir sér
eftir að Karl hefur tekið við
þjálfun landsliösins, en það er
hvernig hann ætlar að anna
öllu þvi sem hann hefur tekið
að sér i vetur. Hann þjálfar 1.
deildarlið Fram og Hauka og
nú bætist landsliöið við. Það
hljóta að vera 25 stundir i
sólarhringnum hjá Karli tak-
ist honum að anna öllu þessu.
—S.dór.