Þjóðviljinn - 09.01.1973, Síða 15
Þriðjudagur 9. janúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15.
Morgunblað
Framhald af bls 1.
Undanhaldssamningurinn frá
1961 var að visu brot á þessari
meginreglu, þar sem hann gerði
ráð fyrir málskoti til alþjóðadóm-
stólsins til lausnar deilumálum
við Breta og Vestur-Þjóðverja.
En þessi samningur var nauð-
ungarsamningur og hefur verið
lýstur úr gildi fallinn, samanber
einróma samþykkt alþingis frá
15.2 1972.
Dómstóllinn i Haag er ekki bær
um að fjalla um islenzkt innan-
rikismál, og allra sizt þegar ekki
er heldur við nein viðurkennd al-
þjóðalög að styðjast varðandi
deilumálið.
Bráðabirgðaúrskurður dóm-
stólsins frá 17. ágúst s.l. um að
Bretar eigi hér rétt til að veiða
sem nemur 170.000 tonnum á ári,
eða yfir90% af meðalveiði þeirra
siðustu 10 ár er þvi markleysa
ein.
fslendingar hafa lagt fyrir
þennan dómstól skriflega öll
okkar rök i landhelgismálinu.
Þau hafa ekki verið virt af dóm-
stólnum.
Krafa Morgunblaðsins um aö
við eigum nú, að fenginni reynslu,
að selja fjöregg okkar af hendi til
þessa crlcnda dómstóls er hnefa-
liögg framan i alla þá, sem með
góðum árangri hafa byggt upp
þjóöarsamstööu fólks úr öllum
flokkum i landhelgismálinu.
Kitstjóri Morgunblaðsins
gengur gegn skoðunum yfirgnæf-
andi meirihluta stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokksins, þégar liann
heimtar fullt úrskurðarvald i
landhelgisdeilunni l'lutt frá
Reykjavik til llaag.
Óþolandi
Framhald af b'.s. 1.
búskapar i sveitina. Þá þarf að
færa jarðeignir rikisins á eina
hönd, þ.e. til jarðeignadeildar.
Það er ekki ástæða til þess að
kirkjumálaráðuneytið hafi alla |
umsjón með prestsetrum og :
kirkjujörðum. Þetta er með öllu :
úrelt fyrirkoinulag... Þeir prest- i
ar, sem framvegis vilja stunda
landbúnað, ættu að geta fengið
rikisjarðir til ábúðar með vildis-
kjörum ef reglur væru settar um
slikt, þótt jarðeignadeild
landbúnaðarráðuneytisins hafi
umsjón með þeim jörðum eins og
öðrum jarðeignum rikisins.
öfugþróun sem
þarf aö stööva
1 sambandi við jarðeignamálin |
má ekki gleyma þvi, að fólkið |
sem i þéttbýli býr þarf að fá tæki- ]
færi til að njóta náttúrufegurðar i
sveitanna i nútið og framtið. Það |
þarf að gerast með þvi að koma !
upp fólkvöngum og skipuleggja
viss svæði fyrir sumarbústaða-
lönd. t þvi efni þarf að hafa hag
byggðarlagsins fyrst og fremst i
huga, þ.e. að brytja ekki niður
vildisbújarðir skipulagslaust
undir sumarbústaði án þess að
tekið sé tillit til áhrifa þess á
framtið viðkomandi sveitar. Sú
þróun, sem mjög hefur færzt i
vöxt siðustu árin, að efnamenn
eða félagssamtök i þéttbýlinu
komi með fulla vasa fjár og kaupi
landspildur eða heilar úrvals-
bújarðir á margföldu verði miðað
við eðlilegt verð á landinu til
landbúnaðar er óþolandi fyrir
landbúnaðinn. Þessa öfugþróun
veröur að stöðva, og það verður
ekki gert nema með aðstoð lög-
gjafar. Þótt þorri bænda sé gædd-
ur þeim félagsþroska og þeim
manndómi, að láta ekki ginnast
af gylliboðum hinna nýriku ein-
staklinga og stétta, sem bjóða
gagnslitla siminnkandi seðla og
ræktun skógarkjarrs fyrir óðul
þeirra, þá finnast alltaf nokkrir,
þvi miður, sem falla i freistni og
láta landið af hendi, vitandi vits,
að það verður aldrei notað aftur
til eðlilegs búskapar til blessunar
fyrir aldna og óborna. Vei þeim.
Hár og stighækkandi verðauka-
skattur á sölu lóða og landa gæti
hamlað nokkuð á móti þessari
óheillaþróun. öðru máli gegnir
þótt sjálfseignabændur leigi lóðir
undir sumarbústaði. Það þarf
ekki að rýra framtiðartekjur
bænda á viðkomandi jörð”.
Halldór drap á margt fleira,
sem verður gerð skil siðar.
Eftirlitsskip
Framhald af bls. 1
þýzka verksmiðjutogaranum
Berlin BX 673.
Rétt fyrir hádegi á sunnudag
skar varðskipið Ægir annan
togvir brezka skuttogarans
Boston Blenheim FD 137 þar sem
hann var að veiðum um 20 sjómil-
ur austur af Hvalbak. Togaranum
höfðu verið gefnar itrekaðar við-
varanir. Sinnti hann þeim engu,
sagði Hafsteinn Hafsteinsson.
Var þá annar togviranna skorinn.
Brezka eftirlitsskipið Ranger
Brises, sem er á þessum slóðum,
hefur gefið togarunum ábend-
ingarum að vinna saman tveir og
tveir, annar gæti hins. Hafi þetta
reynzt vel, þegar varðskip er i
nánd. Þetta muni minnka veiði-
tima hvers togara, en veita þeim
meira öryggi, segir brezka. eftir-
litsskipið. A þennan hátt hefur
brezka eftirlitsskipið tekið að sér
að leiðbeina við landhelgisbrot.
Um kl. 15.30 á sunnudag skar
varöskipið Öðinn á báða togvira
brezka togarans Westella H 194,
þar sem hann var að veiðum á
Vopnafjarðargrunni. Eins og að
venju við slika atburði, höfðu
itrekaðar viðvaranir ekki borið
árangur. Var þá skorið á togvira
togarans. sagði Hafsteinn Haf-
steinsson.
Varðskipin hafa haldið áfram
að stugga við brezkum og vestur-
þýzkum togurum út af Austfjörð-
um, sagði Hafsteinn Hafsteinsson
siðdegis i gær.
Hefur togurum nokkuð fjölgað
á þessum slóðum. Brezka eftir-
litsskipið Othelló aðstoðaði brezk-
an landhelgisbrjót i nótt, þegar
varðskipið nálgaðist togarann.
Aðstoð Othello kom fram i þvi, að
það hindraði aðgerðir varðskips-
ins. Hið sama átti sér stað hjá
vesturþýzka eftirlitsskipinu
Meerkatze i dag, sagði Hafsteinn,
þegar það varði vestur-þýzkan
togara vegna aðgerða varðskips.
Samkvæmt þessu hafa eftirlits-
skipin nú tekið virkari þátt i land-
helgisbrotum erlendu togaranna
en áður.
1 dag reyndi brezki togarinn
Lancella H 290 að sigla á varðskip
úti fyrir Austfjörðum. Varðskipið
setti á fulla ferð og rétt slapp frá
ásiglingu.
Um þessa helgi hafa varðskip
Landhelgisgæzlunnar skorið tog-
vira þriggja útlendra togara að
ólöglegum veiðum innan 50 milna
markanna.
Sumir hafa spurt hvort þessar
aðgerðir séu i sambandi við dóm-
töku landhelgismálsins fyrir
Alþjóðadómstólnum i Haag. Ber •
að lita á þetta sem ögranir til
frekari áréttingar, eins og þegar
herveldi beita flugher, landher að
flota i pólitiskum aðgerðum ?
Þetta taldi Hafsteinn Haf-
steinsson blaðafulltrúi Land-
helgisgæzlunnar fráleitt. Togarar
voru fáir innan 50 milna mark-
anna milli jóla og.nýárs. Sama er
að segja um fyrstu daga ársins,
vegna veðurs.
111 veður voru á miðunum 4. og
5. janúar, og fjölgaði ekki brezk-
um eða þýzkum togurum á mið-
unum fyrr en nú um helgina. g.m.
Asatrúin
Framhald af bls. 1.
réttindi til að framkvæma verk
sem hafa áhrif á réttarstöðu
þeirra persóna sem verkin koma
fram við. Það kann að vera eðli
legt að spurt sé að þvi, hvort
vigsluheimild til dæmis og henni
fylgjandi skil á skýrslum til hins
opinbera hvili sem aukastörf á
áhugamanni, eða hvort hér er að
einhverju leyti um „atvinnu-
mennsku” að ræða.
— Getur leikið vafi á lögfræði-
legum heimildum til að ráðuneyt-
ið löggildi slikan söfnuð?
— Þessi spurning hefur vafizt
fyrir fræðimönnum, bæði islenzk-
um og dönskum, en okkar stjórn-
arskrárákvæði um trúmál er frá
1874 og þá tekið beint eftir dönsku
stjórnarskránni frá þvi um miðja
öldina. Siðan hafa orðið miklar
breytingar, bæði á hugmyndum
manna og framkvæmd stjórn-
valda. Ákvæðið var i upphafi tvi-
mælalaust mjög frjálslynt, en
ætla má að það sé nú takmark-
andi, einkum ef trúfélag játar
ekki guðstrú. En i slikum málum
rikir nokkur túlkunaróvissa. Það
má lita svo á, aö það hjálpi Dön-
um til að laga sig að nýjum að-
stæðum, að þeir hafa aldrei sett
nein lög eftir sinum stjórnar-
skrárákvæðum um þessi efni, en
við höfum okkar lög um utanþjóð-
kirkjusöfnuði frá 1881. Norðmenn
hafa nýleg og frjálslynd stjórnar-
skrárákvæði um trúmál og settu
eftirþeim ýtarleg lög um trúfélög
fyrir 2—3 árum. Þar er skýrt
markað raunverulegt trúfrelsi.
— Hvað um endurskoðun á
okkar löggjöf um þessi efni?
— Ég vil ekki neita þvi að
endurskoðun kunni að verða
undirbúin. En svarið til ásatrúar-
manna getur auðvitaö ekki beðið
eftir nýjum lögum. Umsókn fé-
lags þeirra hefur farið til um-
sagnar biskups, og hefur okkur
borizt all-ýtarleg umsögn frá hon-
um, sem auðvitað bindur okkur
ekki. Við höfum fengið það athug-
að i þjóðskránni, hve margir
menn hafi óskað eftir þvi að fá sig
skráða með þessum hætti utan
þjóðkirkju, og rétt fyrir áramótin
reyndust þeir vera um 20.
— Hafið þið aldrei lent i álika
vanda áður i dómsmálaráðuneyt-
inu?
— Það væri helzt að nefna lög-
gildinguna á Bahái-söfnuðinum,
en hún var leyfö. Þar held ég að
Maöurinn minn og faðir minn
Finnbogi Rúturþorvaldsson
prófessor
andaðist i Korgarspitalanum laugardaginn 6. janúar 1973.
Sigriður Eiríksdóttir
Vigdfs Finnbogadóttir
Minningarathöfn um son okkar, bróður, dótturson og
sonarson
HARALD PÉTURSSON
Sólheimum 34,
er lézt af slysförum i Hirtshals i Danmörku 2. desember siðast liðinn, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
10. januar kl. 13.30
llalldóra Ilermannsdóttir, Vigdis Pétursdóttir,
Pétur Ilaraldsson, Sigriður Þorleifsdóttir,
Sigriður Pétursdóttir, Margrét Þormóðsdóttir,
Margcir Pétursson, Haraldur Pétursson.
Guð blessi ykkur öll fyrir sýnda samúð viö andlát og
jarðarför
J 3NS GUÐJÓNSSONAR
Kópavogsbraut 63
Guðrún Bjarnadóttir
Bjarni K. Jónsson
Björgvin, Þórdis og börnin.
við höfum farið svona i það tæp-
asta gagnvart laga- og stjórnar-
skrárákvæðum, en biskup lagði
það nú til þá, að þeir fengju lög-
gildingu, enda væri þar um al-
þjóðlega trúarhreyfingu að ræða.
En ég vil taka það fram. að ég er
ekki með orðum minum að kasta
rýrð á óskir eða heimild eins né
neins til frjálsrar trúmálastarf-
semi i þessu landi, sagði ráðu-
neytisstjórinn að lokum.
íþróttir
Framhald af bls. 11.
ekki auðunnið fyrir þau lið sem nú
cru i 2. deild, þegar það verður
þangað komið.
Hinsvegar var mjög áberandi
með öll þessi lið sem þátt tóku i 3.
deildarkeppninni hve liðs-
mennirnir eru óvanir stórum
leikvöllum. Oll búa þau við nær
algert aðstöðuleysi og má sem
dæmi nefna, aö Völsungar verða
að gera sér að góðu að æfa i sal
sem er 10x20 m, sem sagt
helmingi minni en löglegur salur,
og aðstæður leikmanna Þórs frá i
Vestmannaeyjum er. enn verri.
Enda var það svo, að strax i
byrjun siðari hálfleiks var út-
haldið búið hjá flestum leikmönn-
um; annað væri lika vart
hugsandi, þegar þess er gætt að
þetta eru einu leikirnir sem þessi
lið fá. Allt hitt eru æfingar i allt of
litlum iþróttahúsum, ef hægt er
að kalla þessar „stofur” iþrótta-
lulltrúa rikisins iþróttahús.
En hvað um það, við þetta
verða iþróttamenn úti á lands-
býggðinni að búa. Siðari hluti 3,-
deildar.keppninnar fer fram
siðast i febrúar, meðan hlé verður
á 1. deildarkeppninni vegna utan-
farar landsliðsins. —S.dór.
Nixon
Framhald af 5. siðu.
bandariskri kony. hefur marg-
sannað hollustu sina og m.a. einu
sinni boðiðstóra nágrannanum að
senda nicaraguaska sjálfboðaliða
til Vietnam.
Nú sendi stóri nágranninn sér-
fræðinga sina, um 350 hermenn,
sem sléttuðu götu höfuðborgar-
innar með skriðdrekum, og sex
sprengjumeistara, sem undir-
bjuggu að borgin yrði fullkom-
lega jöfnuð við jörðu. Þeir lögðu
dinamit og sprengjuleiðslur, en
eftirláta þó Nicaraguönum sjálf-
um að þrýsta á hnappinn, — þvi
friðsamir Bandarikjamenn eyði-
leggja jú ekki borgir.
Á hálftima fresti lentu hjálpar-
flugvélar i Las Mercedes. Og þó
að sprengjuflugmennirnir fyrir
austan fengju að halda jól i 36
tima unni Nixon fljúgandi Sam-
verjunum sinum engrar hvildar,
— þeir áttu að hjálpa og útbreiða
samtim is hina fögru mynd
,,góðu” Bandarikjanna.
Það var ódýr kærleiksvottur:
Hjálpin i viðlögum, sem svo
mikla athygli vakti, ein miljón
dollara til Managua, kostaöi
Bandarikin nákvæmlega jafn-
mikið og 45 minútna strið i Viet-
nam.
(Endursagt úr „Spiegel” —vh)
Palrne
Fréttaskýrendur i Washington
telja að sambúð Bandarikjanna
og Sviþjóðar verði áfram mjög
stirð meðan ekki er samið um frið
i Vietnam. Bæöi þeir og ýmsir
leiðtogar Demókrata á banda-
riska þinginu vekja athygli á þvi,
að viðbrögð stjórnar Nixons við
gagnrýni Palmes á loftárásunum
i Vietnam sýni vel, hve illa stjórn-
in þoli gagnrýni. Þeim finnst og
merkilegt, að miklu meira ber á
fjandskap af opinberri hálfu i
garð Sviþjóðar en Ástraliu, en þar
hefur m.a. verið lýst afgreiðslu-
banni á bandariskar vörur vegna
Vietnamsstriðsins.
Ekki er talið liklegt að hafnar-
verkamenn i Astraliu aflýsi af-
greiðslubanninu, þrátt fyrir hót-
anir um mótaðgerðir i Bandarikj-
unum. t gær hélt einn af ráðherr-
um hinnar nýju stjórnar Verka-
mannaflokksins, Tom Uren, ræðu
á Vietnamfundi og hvatti þjóðina
tíl að fordæma „hroka Nixons og
hræsni”.
FÉLAGSLÍF
Kvenfélag Ræjarleiöa.
Fundur verður að Hallveigar-
stöðum miðvikudag 10. jan. kl.
8,30. Hulda Stefánsdóttir kem-
ur á fundinn.
Stjórnin.
Happdrœtti
Sjá Ifs bja rga r
24. des. 1972
Númer Flokkur
356 42 -100
587 42 -100
700 2- 41
994 42- 100
1704 42- -100
1783 2- 41
1800 2- 41
2709 42- 100
2867 42- 100
2973 42- 100
3050 42- 100
4240 2- 41
4500 42- 100
4911 2- 41
6082 42- 100
6279 42- 100
6713 42- 100
7712 42- 100
7895 42- 100
8005 42- 100
9142 2- 41
9976 2- 41
10640 2- 41
11159 42- 100
11273 42- 100
11636 42- 100
12129 42- 100
12826 2- 41
13207 2- 41
13592 42- 100
13893 2- 41
14336 42- 100
14741 42- 100
15347 42- 100
Núiner Flokkur
16647 42-1(1(1
17089 42-100
17137 2-41
17227 Bíllinn
17288 2-41
17802 42-100
17831 2-41
18336 2-41
18941 42-100
18999 42-100
19215 42-10(1
19229 42-100
19602 2-41
20409 2-41
21873 2-41
21922 42-100
21932 2-41
23151 2-41
23258 42-100
23749 2-41
24115 2-41
26116 2-41
26179 42-100
26656 2-41
27107 2-41
28036 42-100
28775 42-100
29080 2-41
30236 42-100
30290 42-100
30370 42-100
30609 42-100
30727 42-100
Númcr Flokkur
31077 2-41
32016 2-41
32179 42-100
32584 2-41
32624 2-41
32750 42-100
32789 2-41
33751 42-100
34289 2-41
34417 42-100
34440 2-41
34491 42-100
34719 2-41
34909 42-100
35525 42-100
35893 2-41
36098 42-100
36485 42-100
36913 2-41
37445 42-100
37772 42-100
38123 2-41
38689 42-100
39971 2-41
41111 42-100
41191 2-41
41219 42-100
42287 42-100
43058 42-100
43751 2-41
44069 42-100
44894 42-100
44937 42-100
Sjá vinningaskrá á bakhlið happdrættismiðans.
Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra
Laugavegi 120Reykjavik