Þjóðviljinn - 03.04.1973, Page 3
Þriöjudagur 3. aprfl 1!>7:!. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3
Hér sjdst frá vinstri: Magnús Oddsson, Guörún Björnsdóttir, Jón Ragnarsson, Daniel Guömundsson. Magnús Kristinsson,
Tryggvi Þór Aðalsteinsson og Erlingur Viggósson.
Fulltrúar rafvirkjanema á ráöstefnunni.
Fulltrúar húsasmiöanema, Bjarni Jónsson og Gissur Kristinsson.
ltúnar Bachman formaöur
INSI.
Ráðstefna
INSÍ
haldin
um helgina
Um siðustu helgi var haldin
hér i Reykjavik ráðstefna á
vegum Iðnnemasambands Is-
lands. Fjaliaði hún um iðn-
fræðslu, kjaramál iðnnema og
félagsmál. 1 málaflokknum
um félagsmál iðnnema var
aðallega rætt um breytingar á
fyrirkomulagi INSI sem
standa til og frumdrög að leið-
beiningabæklingi fyrir iðn-
nema sem lögð voru fyrir ráð-
stefnuna.
Ráðstefnuna sátu fulltrúar
allra iðnnema félaga i
Reykjavik, Akranesi, Snæ-
fellsnesi, tsafirði, Akureyri,
Selfossi, Hveragerði, Suður-
nesjum og formaður félagsins
i Vestmannaeyjum en starf-
semi þess hefur að mestu leyti
legið niðri eftir að eldgosið
hófst og félagið verið óstarf-
hæft. Samtals voru þetta um
70manns og uröu umræður lif-
legar, einkum um kjaramálin
og félagsmál.
Við birtum hér nokkrar
myndir frá ráðstefnunni en
henni verða gerð nánari skil
hér i blaðinu siðar.
— ÞH
Vegna leiguíbúða
Sveitarfélög fái lán
fyrir 80% kostnaðar
Nú er gert ráð fyrir þvi að
hámarkslán frá Húsnæðis-
málastjórn hækki í 800 þús-
und kr. Þetta kemur fram í
stjórnarfrumvarpi um Hús-
næðismálastofnun rikisins
sem lagt var fram á Al-
þingi í gær.
önnur meginbreyting þessa
frumvarps er sú að breyta megi
upphæð hámarksláns árlega i
stað þess að breyta hámarkinu ái
tveggja ára fresti eins og nú er.
Þá er lagt til að veita megi lán
til byggingar leiguibúða á vegum
sveitarfélaga, sem nemi allt að
80% byggingarkostnaðar. Lán
þessi verði til 33ja ára, afborg-
analaus fyrstu 3 árin en endur-
greiðast siðan á 30 árum. I
greinargerð með frumvarpinu
kemur fram áð gert er ráð tyrir
að fjöldi lána til leiguibúðanna
verði 200 á ári að meðaltali eða
1000 ibúðir á fimm árum.
Ný gerð af kúlu~
ritvél frá IBM
Með inn-
byggðum
leiðréttinga-
útbúnaði
I dag hefst sala á nýrri gerö
IBM kúluritvéla, sem ber teg-
undarheitiö IBM 82C. Þessi vél
hefur innbyggöan leiöréttingaút-
búnaö sem gerir starf vélritunar-
stúlkunnar léttara og sparar auk
þess tima. Þegar fjarlægöur er
rangur stafur, er leiörettingaút-
búnaöurinn stilltur inn, og rangi
stafurinn fjarlægöur meö þvi aö
slá inn santa staf; villan hverfur
þá sporlaust.
Þessi nýjung var kynnt fyrir
fréttamönnum i gær af hálfu for-
stöðumanna Skrifstofuvéla hf.
Þeir höfðu einnig þær fréttir að
færa, að nú hefðu verið gerðar
tvær nýjar islenzkar leturgerðir,
greyptar á IBM kúluna, en hingað
til hefur aðeins verið til ein letur-
tegund. A nýju vélinni er hægt að
skrifa ýmist 10 eða 12 stafi per
tommu, þ.e. mismunandi þétt. Nú
eru til leturgerðirnar Advocate,
Courier og Scribe með islenzku
stafrófi.
Þeir sem stunda mikið eriendar
bréfaskriftir kaupa gjarnan kúlur
með t.d. ensku, frönsku eða
spönsku letri. Kúlurnar með nýju
llún heitir Elinborg Gestsdóttir
ogstarfar hjá Skrifstofuvélum hf.
Ilún mun kynna þær nýjungar
sem fjallaö er um i mcöfylgjandi
grein.
islenzku letrunum kosta 2.800
krónur, en stofnkostnaður við
gerð kúlnanna er geysihár. Þá
eru til kúlur meö ýmiskonar
stærðfræðitáknum.
Þessi nýja vél, sem kostar
88.500 krónur, verður til sýnis i
hliðarsal á Hótel Sögu, 2. hæð, á
skrifstofuvélasýningu fyrirtækis-
ins er hefst i dag og lýkur á
fimmtudag. Opið veröur þessa
þrjá daga fyrir almenning frá kl.
5 til 7 daglega.
Sigurður Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Skrifstofuvéla, tók
sérstaklega fram, að engin tengsl
væru á milli Skrifstofuvéla hf. og
IBM á tslandi, sem væri banda-
riskt fyrirtæki og sérhæfði sig á
sviði tölvuþjónustu. Hann kvaðst
hafa séð i flestum blöðum að IBM
á íslandi væri að byggja við
Laugaveginn neðanverðan, en
þetta væri rangt. Það eru Skrif-
stofuvélar hf. sem eru að byggja
þetta hús.
Eins og mörgum er kunnugt
hefur IBM haft einkaleyfi á ,,kúl-
unni” frá þvi 1961, þegar kúlurit-
vél kom fyrst á markaðinn. Nú er
þetta einkaleyfi úr sögunni og má
þvi búast við að fleiri ritvéla
fyrirtæki komi inn á þennan
markað. sj.
Sænskur
vísnasöngvari í
Norræna húsinu
Annað kvöld mun sænski visna-
söngvarinn Finn Zetterholm
koma fram i Norræna húsinu á
vegum hússins og Islenzk- sænska
félagsins. Finn Zetterholm er
kunnur i sinu heimalandi sem
ágætur listamaðurer gerir óspart
grin að velferðarþjóðfélaginu.
Hann semur gjarnan sin lög sjálf-
ur og texta við þau. Skemmtunin
hefst kl. 9.