Þjóðviljinn - 03.04.1973, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN briöjudagur 3. apríl 197:i.
Kveðjuorð
Olafur Júlíusson
byggineafrœðingur
F. 19.3. 1924 - D. 26.3. 1973
begar ég uppburðarlitill
strákur að austan hafði tyllt mér i
sæti og beið þess með ofurlitið
kviðablandinni eftirvæntingu að
hæfist hin fyrsta kennslustund
min i Menntaskólanum á Akur-
eyri, beindist athyglin fyrst að
hávöxnum toginleitum og litiö eitt
krangalegum unglingspilti, sem
tvisteig uppi við kennaraborðið
og beið þar, unz kennarinn var
kominn til sætis og þeir höfðu
skipzt á fáeinum orðum i hljóði.
Innan skamms komst ég á snoðir
um, að þetta var höfuð bekkjarins
og heillavinur, Óli inspektor
kallaður innan skólaveggja, en
Óli Júl utan þeirra.
Ekki var langt á vetur liðið,
þegar þar var komið kunnings-
skap okkar, að okkur fannst
hvergi nærri nóg að sitja i sömu
stofu nokkrar stundir á dag við
misjafnlega virta þagnarskyldu,
heldur urðum að framlengja dag-
legar samvistir um marga tima,
ja einatt fram á nótt, enda voru
þá önnur efni á dagskrá, sem
enginn þurfti að geispa yfir.
Ólafur Júliusson varð snemma
vinmargur. Menn löðuðust að
honum ósjálfrátt, þvi að hann var
að eðlisfari ljúfur i lund, hlýr og
þóttalaus i viðmót, jafngeðja,
gamansamur og fram úr
skarandi hjálpfús. Mætti ég muna
honum margan greiða á langri
samleið og þann afdrifarikastan,
þegar ég vegna illra atvika varð
að ganga upp i skriflegri stærð-
fræði á stúdentsprófi, án þess að
hafa nokkurn tima séð sumar
kennslubækurnar i þessari
grundvallargrein stærðfræði-
deildar. Daginn áður gerði Óli sér
óbeðinn ferð niður i Jerúsalem,
þó að hann hefði náttúrlega meira
en nógu að sinna. Magnús Torfi
hefur likiega flúið sviðið, þegar
honum varð ljóst, að hér ætti
að fara að fremja þann svarta-
galdur, sem gengið gæti
af filhraustum máladeild-
armanni dauöum. Óli settist hjá
mér við borð og byrjaði af
einstakri þolinmæði að innvigja
mig i óumræöilega skelfileg dæmi
með ótal svigum inni i nokkru
færri hornklofum vernduðum
fáeinum slaufusvigum og aftan
og ofan viö þessi tákn litlar tölur,
sumar jafnvel i minus, muni ég
rétt. Herdis min blessuö færði
okkur kaffi til að örva heila-
frumurnar. begar ég var alveg að
bugast, rak Óli upp hressandi
hlátur, sem fleytti mér áfram enn
um nokkra stund. Þannig héldum
viö áfram eilifðartima að mér
fannst, um annað var ekki að
ræða, sagði Óli, þvi að eitthvað
þessu likt yrði áreiðanlega fyrir
okkur lagt morguninn eftir og
teldist eitt hið léttasta. Ójá, eitt
hið léttasta. Hann átti kollgátuna,
og fyrir bragðið fékk ég þó ekki
minus 23 á þessu örlagarika rúna-
þingi. Þegar það vitnaðist, urðu
báðir kátir, klingdu glösum með
ærslum, og sannaðist hér sem
löngum, að sigur nemandans fær
kennaranum dýpstrar gleði, þó að
hinu gagnstæða heyrist einatt
haldið fram.
Þótt Óli væri á æskuárum alls
ekki hraustlegur og liklega ekki
mjög sterkbyggður fremur en
margir aðrir, sem taka hratt út
vöxt og verða hávaxnir ungir, var
hann samt vasklegur i allri fram-
göngu. Þegar farnar voru skiöa-
ferðir i Útgarð, var hann öðrum
þolnari að þramma brekkur,
leikinn að svifa og sveigja með
tvær fjalir undir fótum, svo að
ekki leyndi sér, að hann var úti-
vistum vanur og naut þeirra. Ég
sé hann líka fyrir mér á mána-
björtu kvöldi brunandi á skautum
um skyggðan is á Akureyrarpolli
og man, að mér þótti mikið til
kunnáttu hans koma. Siðar á ævi
hafði hann aö minnsta kosti um
skeið yndi af að ganga með ám og
huga að laxi.
Ólafi Júliussyni var margt til
lista lagt. t menntaskóla var hann
fremsti myndasmiður bekkjarins
og kannski sá eini, sem góðvinur
okkar, Jónas Snæbjörnsson frá
Hergilsey, gat af vænzt að léti
réttmætar vonir hans um æðri
árangur erfiðis sins rætast með
verðugum hætti. Tónlistin átti rik
itök i honum. Hann lék af fingrum
fram lystilegustu lög á slaghörpu
eöa gitar, og það var eins og
gleöin gneistaði út frá manninum
öllum og kveikti i nærstöddum,
svo að jafnskjótt og Óli var
setztur við hljóðfæri, dunaði allt
af söng og gáska. Áttum við
félagar marga ógleymanlega
stund uppi á kvisti og siðar i litla
herberginu hægra megin við inn-
göngu niðri heima hjá Óla i
Oddeyrargötu 24, þvi að vinir
hans voru vinir heimilisins alls og
alltaf velkomnir eins og heima-
menn væru.
Og svo einn góðan veðurdag var
allt i einu komin kornung og gull-
falleg stúlka i spilið. Það var svo
sem auðvitað. Fastavinkonur eru
ekki alltaf eins velkomnar og þær
halda i hóp glaumgjarnra æsku-
félaga, sem eru enn svo ungir, að
hugsunin um að festa ráð sitt er
þeim fjarlægari en sjöstjarnan.
Hér fór þó allt á bezta veg: Óli
hafði að visu án þess að spyrja
okkur leyfis bætt nýjum félaga i
hópinn, en valið af þeirri kost-
gæfni, að á þrjátiu árum sem
siðan eru liðin hafa þau Óli og
Góa alltaf vakað saman i huga
okkar og við nefnt þau i sömu
andrá bæði. Það breytist tæplega
þá stund sem við eigum eftir, þótt
örlögin framfylgi sinum áskilda
rétti til að afmæla okkur ævi-
brautir mislangar og undarlega
mislagðar, að manni finnst stund-
um.
A menntaskólaárunum lét ég
mér helzt til hugar koma, að
Ólafur legði á listamannsbraut að
loknu stúdentsprófi. 1 þá átt bentu
hæfileikar hans, og honum var
sitthvað rikulega gefið, sem við
þykjumst rekast oftar á hjá lista-
mönnum en öðrum og köllum
listamannsskap. Sú varð þó ekki
raunin á. Getur margt hafa valdið
ogkannski ekki hvað sizt, að fyrir
þremur áratugum var jafnvel enn
óbjörgulegra en nú að nema land i
einyrkjasveit islenzkra lista:
jafngilti nánast að segja sig til
sveitar fyrir lifstið, og ungum
fullhuga er að vonum flest annað
geðfelldara. Hann innritaðist i
Háskóla Islands haustið 1944 og
stundaði þar nám i læknisfræði i
tvö ár, en varö þá frá að hverfa
vegna fjárskorts, hvarf út i at-
vinnulifið til að afla sér tekna til
nýrrar atlögu, var kennari við
Gagnfræöaskólann á Siglufirði
veturinn 1947-’48.
Haustið 1948 tók hann þá stefnu,
sem úrslitum réö um ævistarf
hans: hann fór til Sviþjóðar, hóf
nám i byggingafræði við Stock-
holms Tekniska Institut og lauk
þvi með sæmd á lágmarkstima.
Hér lágu nú leiðir okkar saman
á ný eftir nokkurra ára dorg á
ýmsum miðum. Sem vænta
mátti, var Óli ekki fyrr kominn tii
Stokkhólms en hann var orðinn
helzti forkólfur allrar félags-
legrar athafnasemi i nýlendunni,
formaður stúdentafélagsins og
hrókur mánaðarlegs fagnaðar
þess. Góa vann að ljósmynda-
gerð, fyrst hjá tveimur ungum
einkaljósmyndurum, Hans
Malmberg og Sven Gilsáter, sem
löngu eru frægir orðnir viða um
lönd, en siðar réðst hún til starfa
hjá stórblaðinu Dagens Nyheter,
var valin úr hópi þrjátiu um-
sækjenda og vann þar við annan
mann hin vandasömustu störí
fyrir heimspressuna. Þótt kaupið
væri ef til vill ekki tiltakanlega
hátt, nægði þaö til að allt
bjargaðist i efnahagslegum sök-
um. Reyndi ekki litið á Góu á
Stokkhólmsárunum fremur en
stundum endranær, þvi að heimili
þeirra Óla varð vinsæll mótstaður
margra islenzku stúdentanna i
borginni. Hlaut ég oft að undrast.
hvernig Óli gat fengið tima og
næði til að rækja námið af þeirri
alúð, sem hann gerði, og eins
stillingu þeirra hjóna að reka ekki
aðsteðjandi gestastóöið af hönd-
um sér. En það var þá helzt hætta
á þvi. Nei, hér var öllum vel tekið.
og þau kunnu á þvi undralag, Óli
og Góa, að breyta óviðbúin
skyndifundum virkra daga i
hátiðarstundir, sem manni var
afskaplega tjúft að teygja úr
langt fram yfir allt, sem góðum
gestasiðum heyrir. Þannig stál
um við lifi þeirra i smápörtum ai
hjartanlegu samvizkuleysi og
byrjuðum að hlakka til næstu inn
rásar, um leið og við kvöddum
Ólafur útskrifaðist sem
byggingafræðingur vorið 1950 og
vann eftir það i Sviþjóð um skeið
til að afla sér starfsreynslu i grein
sinni, fyrst hjá sænsku fyrirtæki,
siðan hjá Stokkhólmsborg. Vorið
1951 sneri hann heim til starfa,
vann hjá Laxárvirkjun um hrið,
en réðst árið 1954 til Gisla
Halldórssonar, arkitekts. Árið
1961 stofnuðu þeir Gisli ásamt
Jósef Reynis sameignarfélagið
Teiknistofuna sf. og þar vann
Ólafur allt til hinztu stundar.
Eftir að við komum heim og
settumst að i Reykjavik fyrir
réttum 20 árum, tókust að sjálf-
sögðu tengsl með fjölskyldum
okkar á ný, enda urðum við
nágrannar um nokkurra ára
skeið og samgangur þá hægur
milli heimilanna. Árið 1955 urðu
þau hjónin þeirrar gæfu
aðnjótandi að eignast litla stúlku,
Bergþóru Sif, yndislega fagurt
skýrleiksbarn, sem óx og dafnaði
við djúpa heimilishamingju. En
skyndilega skyggði yfir. Aðeins
sex ára að aldri veiktist Sif litla
af sjúkdómi, sem mannlegur
máttur fékk ekki sigrað. Missir
einkabarns, sem lengi hefur verið
beðið i þögulli þrá, er meiri
mannraun en hægt sé að gera sér
i hugarlund. En þau báru sorgina
saman eins og hetjur, Óli og Góa,
og aldrei var tign þeirra sem þá.
Svo fer þeim, sem i mikla lifs-
reynslu rata og eiga innri burði til
að bera hana
Ólafur Júliusson var ekki
fæddur með silfurskeið i munnin-
um. Þau Góa létu sér vel lynda að
búa við sligaðan bekk, skældan
stól og borð úr kassafjölum á
frumbýlingsárunum, sem urðu
býsna mörg vegna þess hve
fundum þeirra bar snemma
saman. Siðar höfðu þau rúm fjár-
ráð og kunnu það vel að meta. Þá
veittu þau sér ýmislegt sem
hugurinn girntist, en heiðurs-
fátæktin áður ieyfði ekki. Þau
voru i rauninni alltaf að setja
saman bú, og gaman var að
fylgjast með af hvilikri hug-
kvæmni og natni þau gerðu það.
Bæði voru snillingar i höndunum,
Góa ekki siður en hann, og gerðu
sjálf eftir eigin höfði margt, sem
við klaufar verðum að sækja til
annarra eða láta ógert. Aldrei
kom maður svo til þeirra, að ekki
hefðu bætzt við einhverjir fallegir
hlutir, sem þau höfðu búið til eða
fundið á ferðum sinum innan
lands og utan. Smám saman voru
þau búin að eignast auk muna til
heimilisprýði svo álitlegt safn af
gömlum islenzkum gripum og
erlendum grimum, að ég hygg
óviða sé annað eins i einkaeigu
hér á landi.
Ólafur Gunnar Júliusson, eins
og hann hét fullu nafni, var
fæddur á Akureyri hinn 19. marz
1924, sonur hjónanna Júliusar
Jóhannessonar og Bergþóru
Bergvinsdóttur. Þau eignuðust
þrjá syni, og var ólafur þeirra
yngstur. Albræður hans báðir eru
búsettir á Akureyri. Auk þess ólu
þau Bergþóra og Július upp
fósturdóttur, sem nú er látin.
Móður sina missti Ólafur, þegar
hann var um 18 ára aldur. Faðir
hans giftist aftur og eignaðist i
seinna hjónabandi fjögur börn,
sem öll eru á lifi. ólafur fórst með
flugvél Björns Pálssonar inni á
hálendi tslands mánudaginn 26.
marz s.l. Eftirlifandi kona hans
er Sigurbjörg Kristfinnsdóttir,
ljósmyndara á Siglufirði,
Guðjónssonar. Heimili þeirra er
að Reynimel 37.
Lokið er fyrri umræðu
um fjárhagsáætlun Kefla-
víkurbæjar, en seinni
umræða um hana hefur
ekki enn farið fram. Niður-
stöðutöiur áætlunarinnar
eru 148 miljónir 660 þúsund,
og er þá ekki gert ráð fyrir
10% aukaútsvari á
gjaldendur vegna viðlaga-
sjóðs.
Niðurstöður fjárhagsáætlunar
frá i fyrra, þá með 10% aukaút-
svari og 11,5 miljón króna láni,
voru 145 milj. 180 þúsund.
1 ár eru útsvör áætluð 85
miljónir, en voru áætluð, með
Þótt Ólafur Júliusson hefði um
tvitugsaldur hugsað sér annað
lifsstarf en hann siðar valdi, veit
ég ekki betur en hann yndi hlut-
skipti sinu vel. Annars þekkti ég
ekki innan frá þann heim, sem
hann vann i virka daga: vettvang
stofnana og stórathafnamanna,
sem mikinn hlut ætla sér i verald-
legu umstangi þjóðlifsins og
byggja úr stáli og steini. Eðli
starfsins haslaði honum völl, og
hann veikst aldrei undan vandan-
um. Hann var vikingur til verka
og vann siðustu 20 árin óhóflega
mikið, að mér fannst.þvi hann var
ekki heill i baki og oft sárlega
þjáður. En hann hló að þvi, enda
tjóaði ekki að tauta. Teiknistofan
hafði stór og mörg verkefni að
annast um landið þvert og endi-
langt. Þegar Ólafur sat ekki við
teikniborðið, var hann i sifelldum
ferðalögum við undirbúning
verka eða eftirlit með fram-
kvæmdum. Úr einni slikri ferð
var hann að koma, þegar landið
kallaði hann til sin fyrirvara-
laust. Ég get. mér til, að örlögum
sinum hafi hann mætt með
gamanyrði á vör: nú ætti aldeilis
að reyna i þeim karlmanns-
lundina, og hlegið við til að hressa
upp á samferðamennina. Að
minnsta kosti hefði það verið svo
likt honum, að mér finnst ég
heyra bjartan hlátur hans i
öræfakyrrðinni.
Dauðinn er óumdeildasti veru-
leiki lifsins og stærsta blekking.
Það er fullkomin fjarstæða að
hugsa sér þennan lifsglaða gæða-
dreng látinn. Við erum að sönnu
höggdofa og döpur á óvæntri
kveðjustund, en vitum þó, að
orðum hins heiðna skálds um
ódauðleika orðstirsins góða
verður aldrei hnekkt.
Kæra Góa min. Hvað gæti ég
sagt þér til harmléttis, sem
þögnin segði ekki betur? Mér er
ekki gefin trú á æðri máttarvöld.
En mannssálir hef ég séð koma
skirari úr eldraunum, sem
margan hefðu bugað. Eg trúi þvi,
að þær hafi átt og eigi ætlunarverk
að vinna meðal mannanna á
jörðinni. Ég dáist að, hve táp-
mikil manneskja þú ert og stór i
raun. Ég þakka ykkur Óla langa
vináttu og tryggð og votta þér
dýpstu samúð.
Einar Bragi
10% aukaálagi, siðasta ár 78
miljónir. Aðstöðugjöld eru áætluð
10,2 milj., en voru 7,5 milj., fast-
eignaskattur 17 milj., var 15 i
fyrra, jöfnunarsjóðsframlag 19
miljónir 340 þúsund, var 18,2
milj., gatnagerðargjöld eru
áætluð 6 miljónir en voru áætluð 5
miljónir.
Helztu útgjaldaliðir
áætlunarinnar eru: Til tækja-
kaupa og verklegra framkvæmda
42 miljónir 371 þúsund krónur og á
trúlega eftir að lækka um 5-10
miljónir vegna hækkaöra launa
og annars tilkostnaðar.
Til menntamála er áætlað að
fari 24,545 miljónir og lif-
trygginga og lýðhjálpar 14
miljónir 650 þúsund. —úþ.
V örubilst jórafélagið
Þróttur
tilkynnir
Framhaldsaðalfundur félagsins verður
haldinn að Borgartúni 33 fimmtudaginn 5.
april n.k. kl. 20.30 stundvislega.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin
I
MATJURTAGARÐAR
Leigjendum matjurtagarða I Hafnarfiröi tilkynnist hér
með að þeim ber að greiða leiguna fyrirfram fyrir 1. mai
n.k. Ella má búast við að garölöndin veröi leigö öörum.
Vinsamlegast athugið aö framvisa númeri á garölandi
yöar við greiöslu.
Bæjarverkfræðingur
FJÁRHAGSÁÆTLUN
KEFLAVÍKURBÆJAR
TIL 2. UMRÆÐU