Þjóðviljinn - 06.04.1973, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.04.1973, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJODVILJINN; F5studagur 6- aPrn- 1973 IVAR ESKELAND heldur fyrirlestur i fundarsal Norræna hússins sunnudaginn 8. april kl. 20.30 og ræðir um möguleika á samnorrænum bókamarkaði og stofnun þýðingarmið- stöðvar. Aðgangur öllum heimill. Verið velkomin. NORRÆNA HÚSIÐ Vinnuveitendasamband íslands heldur aðalfund sinn 12. og 13. april n.k. eins og áður hefur verið tilkynnt félags- mönnum. Hefst fundurinn kl. 13.30 fimmtudaginn 12. april i fundarsal Vinnu- veitendasambandsins, Garðastræti 41. Dagskrá: 1. Veniuleg aðalfundarstörf skv. lögum sambandsins. 2. önnur mál. Vinnuveitendasamband íslands. AÐALFUNDUR Lögmannafélags íslands verður haldinn að Hótel Esju laugar- daginn 7. april 1973 og hefst kl. 13.30. Dagskrá samkvæmt 19. gr. samþykkta félagsins. Árshátið félagsins verður vonandi haldin á sama stað um kvöldið og hefst með borðhaldi kl. 19. Stjórnin. Réttindi A siðasta fundi byggingar- nefndar Reykjavíkur voru samþykkt réttindi til Kristins Oskarssonar til að mega standa fyrir byggingum i lög- sagnardæmi Reykjavfkur sem húsasmiður. Þá var samþykkt leyfisveiting til Benjamins Magnússonar og Asmundar Harðarsonar arkitekta til að mega gera uppdrætti að húsum til bygginganefndar. Verzlunarhallir Byggingarnefnd hefur sam- þykkt að veita Armannsfelli hf. leyfi til að byggja verzlunar- og iðnaðarhús úr steinteypu að Funahöfða 19. Fyrirhuguð stærð er 322 ferm, 3010 rúmm. Þá hefur Gunnar Sigurðsson sótt um leyfi til byggingar verzlunar- og skrifstofuhússað Armúla 26, stærð 460 ferm., 3787 rúmm. Og samvinnu- bankinn hefur sótt um að fá að stækka bankahúsið að Banka- stræti 7 um 228 ferm, 3025 rúmmetra. Dreifi- og tengistöðvar Rafmagnsveitan hefur fengið leyfi til að reisa dreifi- stöð að Furugerði 5 og Hita- veitan til að reisa tengistöð norðan Stekkjabakka, á móti dælistöð Hitaveitunnar. Keyptir nýir bílar Borgarráð hefur heimilað kaup á 15 nýjum bilum fyrir Vélamiðstöðina frá Heklu hf. og sölu á jafnmörgum notuðum bilum i staðinn, svo og á varahlutum er þeim fylgja. Var Innkaupastofnun- inni falið að annast bæði kaup og sölu. Ráðnir Borgarráð hefur samþykkt ráðningu Ara Ólafssonar og Heiðars Hallgrimssonar i störf deildarverkfræðinga gatnamálastjóra. Teiknikostnaður Samkvæmt tillögu fræðslu- ráðs hefur borgarráð sam- þykkt að borgarsjóður greiði á þessu ári allt að 250 þús. kr. i teiknikostnað , barnamúsik- skólans til jafns við framlag rikissjóðs á fjáriögum 1973. Skólalóðin verði girt Skólastjóri og yfirkennari Austubæjarskólans hafa skrifað borgaryfirvöldum varðandi girðingu um lóð skólans og fleiri atriði, en sem kunnugt er, er lóðin stór og litt skipulögð og skortir aðstöðu td. til boltaleikja. Þar sem lóðin liggur að mikilli umferðargötu, Barðnsstig, skapar girðingarleysið börnunum talsverða hættu. Fræðsluráð hefur f jallað um bréfið og samþykkt að láta athuga möguleika á gerð skólagirðingar og leikvalla á lóð skólans. Betri nýting Skólastjóri Laugarnes- skólans hefur skrifað fræðslu- ráði og beðið um athugun á húsnæði skólans með betri nýtingu þess i þágu skólans fyrir augum. Það er gamla heimavistar- húsnæðið i Laugarnesskóla, sem þarna er um að ræða, en það hefur að undanförnu verið notað i þágu blindraskólans, en nýtzt illa. Vilja starfsmenn skólans fá þetta húsnæði innréttað með þarfir skólans sjálfs i huga, bæði fyrir bóka- safn skólans og til kennslu. Kennsla hefst 17. sept. A siðasta fundi fræðsluráðs var samþykkt, að kennsla i gagnfræðaskólum borgar- innar hefjist á næsta hausti þann 17. sept. Frá aðalfundi Iðnaðarbankans Innlán bankans VÉLSTJÓRAR Þar sem stjórnarkosningu fer að ljúka eru þeir félagsmenn sem ekki hafa skilað atkvæðaseðlum beðnir að gera það hið fyrsta. Þeir sem ekki hafa fengið kjörgögn eru beðnir að gera skrifstofunni viðvart. Vélstjórafélag íslands. Laust starf Starf ems fangavarðar við Hegningar- húsið i Reykjavik er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist skrifstofu sakadóms Reykja- vikur að Borgartúni 7 fyrir 25. april næst- komandi. Y firsakadómari. jukust um 17% Aðalfundur Iðnaðar- banka Islands h.f. var haldinn s.l. laugardag að Hótel Loftleiðum. Heildar- innlán bankans námu um s.l. áramót 1.261.6 milj. kr. og höfðu aukizt á árinu 1972 um 183.1 milj. kr. eða 17%. Heildarútlán bankans námu í árslok 1.118.9 milj. kr. og höfðu aukizt á árinu um 140.6 milj. kr. eða 14.4%. Fundarstjóri á aðalfundinum var kjörin Ingólfur Finnbogason, húsasmiðameistari, en fundar- ritari Helgi Guðmundsson, lög- fræöingur, Fundurinn var mjög fjölsóttur, og meðal fundarmanna var Magnús Kjartansson, iðnaðarráðherra. Formaður bankaráðs, Sveinn B. Valfells, flutti skýrslu banka- ráðs um starfsemi bankans á s.’. ári. Ræddi hann fyrst aðdragand að stofnun Iðnaðarbankans en júni á þessu ári eru 20 ár liðin fr. þvi bankinn tók til starfa. Brag Hannesson, bankastjóri, skýrð þvi næst reikninga bankans Fram kom i ræðu hans, ai heildarinnlán bankans hefði aukizt á árinu um 183.1 milj. kr eða 17% og hefðu i árslok numii 1.261.6 milj. kr. Heildarútlán jukust á árinu um 140.6 milj. kr. eða 14.4% og námu i árslok sam- tals 1.118.9 milj. kr. Bundin inni- stæða Iðnaðarbankans i Seðla- bankanum nam um s.l. áramót 252.6 milj. kr. og hafði aukizt á árinu um 30.3 milj. kr. Reksturs- afkoma bankans var betri en áriö áður. Tekjuafgangur án afskrifta nam um 3.8 milj. kr. A aðalíundinum var staðfest ákvörðun bankaráðs frá siðasta ári um útgáfu jöfnunarhluta- bréfa, og er hlutafé bankans nú 30 milj. kr. Heildar eigið fé bankans nam um s.l. áramót rúmlega 55 milj. kr. A aðalfundinum var samþykkt að greiða 7% arð af hlutafénu. Pétur Sæmundsen, bankastjóri, gerði grein fyrir rekstri og hag Iðnlánasjóðs. Kom fram i ræðu hans, að á árinu 1972 voru veitt samtals 207 ný lán að upphæð 176.3 milj. kr. útistandandi lán i árslok voru samtals 1.405 að upphæð 673.4 milj. kr. Eigiö fé sjóðsins jókst á árinu um 94.4 milj. kr. og nam i árslok 459.4 milj. kr. Þá kom fram i ræðu Péturs, að árið 1972 hefði verið fjallað um 250 lánsumsóknir og hefðu heildarlánsbeiðnir þessara umsókna verið um 419 milj. kr. I bankaráð voru kjörnir: Sveinn B. Valfells, forstjóri, Vig- fús Sigurðsson, húsasmiða- meistari,og Haukur Eggertsson, framkvæmdastjóri. 1 varastjórn voru kjörnir: Bragi Ólafsson, verkfræðingur, Ingólfur Finn- bogason, húsasmiðameistari, og Kristinn Guðjónsson, forstjóri. Iðnaðarráðherra skipaði þá Benedikt Daviðsson, húsasmið.og Guðmund Agústsson, hagfræðing, aðalmenn i bankaráðið og sem varamenn þá Magnús H. Stephensen, málara, og dr. örn Erlendsson, hagfræðing. Endur- skoðendur voru kjörnir Haukur Björnsson framkvæmdastjóri og Otto Schopka, framkvæmda- stjóri. AUGLÝSINGASÍMINN ER 17500. ÞJÖÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.