Þjóðviljinn - 06.04.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.04.1973, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. apríl. 1973 sjónvarp nœstu viku Sunnudagur 17.00 Endurtekið efni.Grlmur og Grilló.Viðtalsþáttur, tek- inn í Grimsey, við Grim Guttormsson, kafara frá Færeyjum, sem lengi hefur verið búsettur hér á landi, og viða kafað i sjó við Is- landsstrendur. Umsjónar- maður ólafur Ragnarsson. Áður á dagskrá 29. septem- ber 1972. 17.20 Kvöldstund I sjónvarps- sal. Skemmtiþáttur með blönduðu efni. Áður á dag- skrá 24. febrúar 1973. 18.00 Stundin okkar.Baldur og Konni koma i heimsókn. Siðan verður sungið og sagðar sögur, og að þvi búnu sýna telpur úr Mela- skóla leikfimi. Loks verður svo spurningakeppni skól- anna haldið áfram. Umsjónarmenn Sigriður Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefáns- son. 18.50 Enska knattspyrnan, Bjarni Felixson flytur for- mála og sýnd verður mynd frá leik Aston Villa og Ox- ford United. 19.50 Hlé. 20.00 Fréttir, 20.20 Veður og auglýsingar, 20.25 Wimsey lávarður.Saka- málaflokkur frá BBC. 4. þáttur. Þýðandi óskar Ingi- marsson. Parker leynilög- reglumaður spyrst fyrir um feril Cathcarts i Paris. Fyr- ir hreina tilviljun rekst hann á skartgripaverzlun, sem selur sams konar verndar- gripi og þann, sem fannst á morðstaðnum. Skartgripa- salinn staðfestir að lafði Maria hafi verzlað þar fyrr á árinu, eða að minnsta kosti kona, sem hefði getað verið hún. Wimsey lávarður fer með dóttur lögreglufor- ingjans á samkomu hjá Anglo-Sovétklúbbnum'. og hjá henni fréttir hann að lafði Maria hafi fyrrum ver- ið virkur þátttakandi i sam- tökum þessum og i miklu vinfengi við áhrifamann þar. Þessi sami áhrifamað- ur kemur brátt á vettvang, en þegar hann sér lávarð- inn, ieggur hann á flótta og beitir jafnvel skammbyss- unni til að komast undan. En nú er lávarðinum ljóst að þar fer sami maðurinn og var á ferð við hús bróður hans morðnóttina. 21.15 A ferö með „teinatrillu”. Stutt, kanadisk kvikmynd með gamanleikaranum góðkunna, Buster Keaton, sem hér bregður sér i ferða- lag þvert yfir Kanada i handknúnum járnbrautar- vagni. 21.40 Barnasaugu, Brezk fræðslumynd um lif og kennslu blindra barna i brezkum heimavistarskóla, sem eingöngu er ætlaður blindum eða mjög sjón- döprum, börnum. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.30 Að kvöldi dagsJSr. Ólafur Skúlason flytur hugvekju. 22.40 Dagskrárlok. Mánudagur 20.00 Fréttir, 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Ubbi kóngur. Adeiluleik- rit i formi gamanleiks eftir franska rithöfundinn Alfred Jarry, sem uppi var frá 1873-1907. Þessi upptaka var gerð i Marionetteatern i Stokkhólmi, og eru per- sónurnar jöfnum höndum sýndar sem lifandi fólk, brúður, pappirsfigurur eða teikningar, en raddirnar, sem þeim eru lagðar i munn, eru þegnar frá nokkrum frægustu leikurum Svia. Þýðandi Jón O. Ed- wald. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 21.40 Jazz-tónleikar. Norska útvarpshljómsveitin leikur verk eftir Seiber, Dank- worth og östereng. Sverre Bruland stjórnar. (Nord- vision — Norska sjónvarp- ið) 21.55 BerlInJ4ý, hollenzk kvik- mynd úr flokki um þróun nokkurra stórborga frá striðslokum. Hér er fjallað um Vestur-Berlin og upp- byggingu hennar. Rætt við borgarbúa og kannað ástand i atvinnu- og hús- næðismálum. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. 22.35 Dagskrárlok. Þriðjudagur 20.00 Fréttir, 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Ashton-f jölskyldan 48. þáttur. Þýðandi Heba Júliusdóttir. Efni 47. þáttar: John Porter hefur fengið ákafan áhuga á stjórnmál- um og vinnur nú öllum stundum á kosningaskrif- stofu Verkamannaflokks- ins. Þar vinnur Marjorie kennslukona lika, og brátt tekur að gæta nokkurrar af- brýðisemi hjá Margréti. Davið er óánægður með starf sitt, en er þó ákveðinn að þrauka, unz annað betra býðst. Edwin er leiður á iif- inu og getur ekki fyrirgefið Tony Briggs, að hann skyldi styðja föður sinn og sam- þykkja sölu prentsmiðjunn- ar. 21.25 Á að halda þjóðhátið á Þingvöllum? Umræðuþátt- ur i sjónvarpssal, þar sem talsmenn og andstæðingar fjöldasamkomu á Þingvöll- um næsta sumar bera sam- an bækur sinar. Umræðum stýrir Guðjón Einarsson. 22.05 Ilann Gagarin okkar. Sovézk mynd, gerð i tilefni alþjóðageimferðadagsins 12. april, en þann dag árið 1961 fór Júri Gagarin fyrst- ur manna út i geiminn. Þýð- ing myndarinnar er gerð á vegum sovézka sendiráðs- ins. 22.35 Dagskrárlok. Miðvikudagur 18.00 Jakuxinn. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. Þulur Andrés Indriöason. 18.10 Dagur i iifi Steinunnar. Dönsk kvikmynd, tekin i fyrra hér á iandi. I mynd- inni er fyigzt með daglegum störfum og leikjum ung- lingsstúlku i Vik i Mýrdal. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 18.35 Hvernig verður maður til. Annar þáttur brezka myndaflokksins með lif- fræðslu og kynfræðslu fyrir börn. Þýðandi Jón O. Ed- wald. Þulur og umsjónar- maður JónÞ. Hallgrimsson, læknir. 18.50 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Þotufólk. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.55 Vaðlahaf. Hoilenzk fræðslumynd um grynn- ingasvæði i Norðursjónum, þar sem bæði eru miklar hrygningar- og uppeldis- stöðvar ýmissa fiska og án- ingastaður farfugla á leið milli heimshluta. Þýðandi og þulur GIsli Sigurkarls- son. 21.35 Atta banaskot. Finnskt leikrit, byggt á sannsögu- legum atburðum. Siðari hluti. Leikstjóri er Mikko Niskanen, sem einnig fer með annað aðalhlutverk leiksins. Þýðandi Kristin Mantyla. I fyrri hluta leik- ritsins, sem sýndur var sið- asta miðvikudag, greindi frá daglaunamanninum Pasi og drykkjuskap hans. Pasi bruggar brennivin úti i skógi, ásamt vini sinum. 1 fyrstu er þetta mest til gam- ans gert, en brátt verður Pasi háður drykkjunni og getur ekki við sig ráðið. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 22.45 Dagskrárlok. Föstudagur 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og augiýsingar. 20.30 Karlar i krapinui»ýðandi Kristmann Eiðsson. 21.20 Sjónaukinn.Umræðu- og fréttaskýringaþáttur um innlend og erlend málefni. 22.05 Kátir söngvasveinar. Bandariskur skemmtiþátt- ur. Kenny Rogers og „Frumútgáfan” leika og syngja. Gestur þáttarins er B.B.King. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 22.30 Dagskrárlok. Laugardagur 17.00 Þýzka I sjónvarpi, Kennslumyndaflokkurinn Guten Tag. 20. og 21. þáttur. 17.30 Minningar úr myllu, Mynd um gamla vatnsmyllu skammt frá Stavangri. Þýð- andi Jóhanna Jóhansdóttir. (Nordvision — Norska sjón- varpið) 18.00 Þingvikan. Þáttur um störf Aiþingis. Umsjónar- menn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 18.30 íþróttir.Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. Hlé. 20.00 Fréttir. 20.20 Veður og auglýsingar. 20.25 Vaka.Dagskrá um bók- menntir og listir á liðandi stund. Umsjónarmenn Björn Th. Björnsson, Sigurður Sverrir Pálsson, Stefán Baldursson, Vésteinn Ólason og Þorkell Sigur- björnsson. 21.05 Ziegfeid hinn mikli (The Great Ziegfel). Bandarisk Óskarsverðlaunamynd frá árinu 1936, byggð á ævi- atriðum eins sérkennileg- asta brautryðjanda i leik- húsmálum i Bandarikjun- um. Florenz Ziegfeld fædd- ist árið 1867 og vann ungur að ýmsum störfum i leik- húsum. A fyrstu árum þess- arar aldar vakti hann at- hygli með óvenjulega viða- miklum skrautsýningum, sem hann hélt áfram til dauðadags. Leikstjóri Rob- ert Z. Leonard. Aðalhlut- verk William Powell, Myrna Loy og Luise Rainer. Þýðandi Guðrún Jörunds- dóttir. 23.55 Dagskráriok. A þriðjudaginn er sovézk mynd sem nefnist HANN GAGARIN OKKAR. Myndin er gerð I tilefni alþjóðageimferðadagsins sem er 12. apríl. Þessi ljósmynd var tekin af Gagarin, er hann hafði eftirminnilega viðdvöl á Keflavikurflugvelii á ieið tii Kúbu. T Hér er fjölskyIdumynd af þotufólkinu vinsæla, sem verður á skerminum miðvikudaginn 11. april. Árni Björnsson Skemmdar- verk Örðugara, en ekki öruggara fyrir forseta ASÍ Handbendi Björns Jónssonar hafa lætt svivirðilegu orðabrengli inn i pistil minn í gær. Prófarka- lesari Þjóðviljans er með I sam- særinu. 1 fyrsta dálki, 53—62. linu, átti að standa: „Það hefði tam. verið örðugrafyrir forseta ASI að krefjast gengislækkunar i des- ember með úrslitakostum, ef miðstjórn Alþýðusambandsins hefði strax og álit valkosta- nefndar kom fram gert þá álykt- un gegn gengisfellingu, sem meirihluti hefði verið fyrir”. Þarna hafa hryðjuverka- mennirnir sett orðið öruggara i stað örðugra, sem gjörbreytir merkingunni. Hvergi er maður óhultur. Ég krefst hreinsunar. Árni Björnsson Prédikar sig í svefn LONDON — Enskur prestur, Peter Collins að nafni, hefur fundið mjög gott ráð við svefn- leysi, sem hann segir að aldrei bregðist. Fer hann með pré- dikanir sinar i rúminu. Presturinn segir i lesendabréfi til Times, að hann sé venjulega sofnaður svefni réttlátra löngu áður en hann hefur endurtekið fyrir sjálfum sér prédikun þá, sem hann flutti sóknarbörnum siðan næstliðinn sunnudag. Ástæðan til þess að klerkur gerðist svo hreinskilinn er sú, að hann vill gjarna vita, hvort stjórnmálamenn og fyrirlesarar nota sinar eigin ræður einnig á þennan hátt. Collins tekur þvi miður ekki af- stöðu til þess gamal vandamáls, hvað prestur eigi til bragðs að taka þegar sóknarbörn hans sofna undir messu. Sveitarstjórn* armál 5. tbl. komið út Sveitarstjórnarmál, nýútkomið tölublað, flytur m.a. grein eftir Magnús Kjartansson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, er hann nefnir: Hagvexti eru tak- mörk sett. Jóhann T. Bjarnason, framkvæmdastjóri Fjórðungs- sambands Vestfirðinga, skrifar um Inn-Djúpsáætlun. ólafur Erlingsson, verkfræðingur, um gatnagerð úr varanlegu efni á Vestfjörðum og Hjörleifur Gutt- ormsson, kennari, um fyrirhug- aða Safnastofnun Austurlands. Birtar eru fréttir frá sveitarfélög- um, frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Samtökum sveitar- félaga i Austurlandskjördæmi og kynntir þrir nýráðnir bæjar- og sveitarstj. Einnig eru fréttir frá stjórn Sambands isl. sveitar- félaga og formaðurinn, Páll Lin- dal, skrifar forustugreinina: Sveitarfélögin og þjóðhátiðin mikla.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.