Þjóðviljinn - 06.04.1973, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 06.04.1973, Qupperneq 13
Föstudagur 6. aprfl 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 neitt á meðan og hleypa engum inn. Rödd hans lét hvorki i ljós áhyggjur né von. Hann var al- vanur harmleikjum annarra. Andy hafði búizt við ákafri samúð og hluttekningu. Hann fékk ekki annað en ópersónulegt kerfi, sem þokaðist hægt á stað. Hann leit á klukkuna og velti fyrir sér hve langan tima það tæki að fá hjólin til að snúast og hann hugsaði lika um það, hve langur timi væri þegar liðinn. Kannski klukkustund eða meira. Nægur timi til að fara með son hans út úr borginni, jafnvel úr landi. Mexikönsku landamærin voru aðeins nokkrum kilómetrum sunnar. Hvaða möguleika höfðu þeir að vinna upp þetta mikla for- skot. Lissa gekk um stofuna og leit inn i skápa og bakvið húsgögn, rétt eins og hún héldi að barnið hefði verið falið einhvers staðar og þvi alls ekki rænt. — Ég get ekki trúað þessu. Það er ómögu- legt. Svona lagað getur ekki gerzt. Og þannig var þeim öllum innanbrjósts, hugsaði Andy . Vælur ýlfruðu. Hópur af einkennisklæddum lögregluþjón- um ruddist inn i herbergjasam- stæðuna, eins og hún væri óvina- svæði, og á eftir komu rannsóknarlögreglumenn og tæknimenn. Fyrir þeim fór full- Skákþraut No. 19. Þessi staða kom upp i skák þeirra Lee og Ribero i Siegen. Svartur leikur og vinnur. Lausn á dæmi no. 18. 1. . . . Hxf3 2. DxH Bxg4 3. Dfl Dd4 4. Kh2 BxH 5. DxB Df2 og hvitur gafst upp. trúinn sem Andy hafði talað við i simann. Hann hét Bonner, var rauðbirkinn maður með tungl- andlit og stöðugan tortryggnis- svip. 11 Hann snuðraði um i her- bergjunum eins og geðillur hundur, krotaði hjá sér og sagði fátt, en undirmenn hans rannsökuðu og skrifuðu hjá sér hinar áþreifanlegu sannanir fyrir glæpnum. Þeir komu og fóru, menn með hörkuleg andlit, sem skeyttu litið um Paxton-klikuna, og reyndar lika likið af Doree Ruick, sem lá ósnert og beið komu læknisins. Þetta var eins og færiband. Hver starfsmaður hafði sitt eigið verkefni og sinnti þvi án tillits til rannsóknarinnar sem heild. Stöðugur ys var á ganginum fyrir framan. Blaðamenn og ljós- myndarar höfðu elt lögregluna á hótelið. 1 hvert sinn sem dyrnar voru opnaðar, ruddust þeir að eins og flóöalda og spurningar þeirra voru háværar eins og brimhljóð. Þeir fengu ekki að fara inn i ibúðina og tvivegis fór Bonner fram til að þagga niður i þeim. Andy fylgdist kviðafullur með úr stofuhorninu, þar sem honum og fólki hans hafði verið komið fyrir. Nú var málið komið i hendur hins opinbera og hann reyndi eftir megni að halda lifi i þeim vonarneista, að einhvern veginn gerðist kraftaverk og sonur hans kæmi til baka. Honum leizt ekki meira en svo á Bonner. Maðurinn virtist kunna til verka, en það var eins og hann væri dálitið úti að aka, þegar svona al- varlegur glæpur var annars vegar. Þegar Bonner kom inn eftir siðara samtal sitt við frétta- mennina, sagði hann við Andy: — Þeir gera mann vitlausan, þessir náungar. Þeir vilja fá yfirlýsingu frá yður, herra Paxton. — Eg hef ekkert við þá að tala. — Eruð þér ekki þessi söngvari úr sjónvarpinu? Dóttir min er með yður á heilanum. 1 svip Bonners var samblánd af hrifningu yfir þvi að vera i návist frægra manna og gremju yfir þvi að þurfa að leysa úr vandamálum þeirra. — Ég sé aldrei sjónvarp sjálfur. Má ekki vera að þvi. Andy gat ekki imyndað sér hvað smekkur Bonners kom þessu máli við. Hann gaut augun- um til Lissu. Hún starði bænar- augum á Bonner, varir hennar voru aðskildar og það var eins og hún vænti þess að hann töfraði týnda barnið fram úr ermi sér. Bake var enn eins og lamaður af sinni eigin sorg og virtist ekki heyra neitt.Hub einum virtist likt innanbrjósts og Andy. Svipur hans var beisklegur. Hann hafði hlotið reynslu sina i starfi hjá lögreglunni á stærri og nýtizku- legri lögreglustöð. — Lögreglufulltrúi, hafið þér fundið nokkuð — sönnunargögn eða eitthvað sem gæti orðið til visbendingar? spurði Andy. — Mig langar til að þér segið aftur frá öllu saman, sagði Bonner án þess að svara spurningunni. Andy endurtók sögu sina og reyndi að sleppa engu sem kynni að hafa einhverja þýðingu. Bonner hlustaði með hörkusvip. — Hvað varð um þennan miða, sem þér eruð alltaf að tala um. — Einn af mönnum yðar tók hann. Þessi hattlausi þarna. Bonner hrópaði til mannsins að hann ætti að koma með ræningja- bréfið. Þegar hann var búinn að lesa það, sagði hann: — Það vantar neðan á það. — Það er mér að kenna, sagði Andy. — Ég reif neðstu linuna af. — Látum okkur sjá. Bonner rétti fram stóran hramminn. — Ég held það sé réttara að ég haldi henni sjálfur. Það var lykil- orð, sem ræningjarnir ætla að nota þegar þeir setja sig i sam- band við mig — svo að ég viti að þeir eru hinir réttu. — Það er i lagi. Ég skal ekki segja það neinum. Andy fór að hugsa um, náið samstarf Bonners við frétta- mennina og var ekki sannfærður. — Mér þykir það leitt, en ég get ekki átt neitt á hættu. Lif sonar mins gæti verið undir þvi komið. — Heyrið mig nú. . . Bonner þagnaði, þegar hann mundi eftir þvi að þetta var ekki néinn venjulegur borgari. Andy Páxton var frægur maður og frægir menn þekktu oft áhrifamikla pólitikusa, menn i æðstu stöðum. Hann gerði rödd sina sannfærandi. — Þér farið ekki að liggja á sönnunargögnum, herra Paxton? Ég hef rétt til að sjá þetta. — Ekki án dómsúrskurðar, greip Hub fram i. — Og hvaða náungi er þetta? Ég heyrði ekki nafnið. — öryggisvörður minn. Hubbard Wiley. — öryggisvörður, það er aldrei titill á lifverði. —- Sú var tiðin að ég hafði annan titil, sagði Hub bliðlega. — Rannsóknarfulltrúi hjá lögreglunni i Los Angeles. Bonner leit á hann eins og biskup sem horfir á trúvilltan prest. — Fyrrverandi lögga, sagði hann bitur i bragði. — Þeir gerast ekki öllu verri. — Herra Paxton er lika fyrr- verandi lögreglumaður. Bonner fann ekkert svar við þessu. Loks muldraði hann: — Þetta mál ætti þá að verða auð- leyst með öllum þessum hæfileik- um. Hann sneri sér að Lissu. — Þér eruð kannski samstarfs- fúsari. Ég býst við að þér hafið að minnsta kosti áhuga á að fá barnið yðar aftur? — Ójá, sagði hún, — ég vil endi- lega hjálpa. Læknir var að gera að sárum hennar. — Segið mér allt sem þér hafiö séð og gert — frá upphafi. Lissa hlýddi. Vegna reynslu sinnar sem leikkona sagði hún söguna vel. Alltof vel, hugsaði Andy, meðan hann horfði á hana, hún lifði þetta eiginlega allt upp aftur. Hann lagði róandi hönd á mjöðm hennar. Hún tók ekki eftir þvi. örsmáar svitaperlur voru um allt andlit hennar. —■ Agætt, sagði Bonner þegar hún hafði lokið frásögn sinni. — Segið mér meira frá bréfinu. Það lá i vöggunni, segið þér. Þér hafið auðvitað lesið það. Andy vissi hver næsta spurning yrði. Hann sagði aðvarandi: Lissa... — Ef þér gripið fram í, þá yfir- heyri ég konu yðar i einrúmi, sagði Bonner við hann. Hann leit Föstudagur 6. apríl. 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Baldur Pálmason les fyrri hluta sögunnar „Millu” eftir Selmu Lagerlöf i þýðingu Einars Guðmundssonar. Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög á milli liða. Spjallaö við bændurkl. 10.05. Tónlistar- saga kl. 10.25: (endurt. þáttur A.H.S.) Fréttir kl. 11.00 Fimmti og siðasti dagur búnaðarviku: a. Verðlags- og framleiðslu- mál landbúnaðarins: Gunnar Guðbjartsson form. Stéttarsambands bænda flytur erindi. b. Umræðu- þáttur um framleiðslu- og verðlagsmálin. Þátt- takendur: Guðmundur Sigþórsson búnaðarhagfr., Gunnar Guðbjartsson bóndi og Guðmundur Þorsteins- son bóndi. Stjórnandi: Arni Jónasson fulltrúi. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. k 13.15 Með sinu lagi Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum. 14.15 Búnaðarþáttur (endur- tekinn) óli Valur Hansson ráðunautur talar um klipp- ingu trjáa og runna. 14.30 Siðdegissagan: „Lifs- orrustan” cftir óskar Aðal- steinGunnar Stefánsson les (9). 15.00 Miðdegistónleikar Maureen Forrester syngur „Ariadne auf Naxos”, kantötu eftir Haydn. John Newmark leikur á pianó. Blásarasveitin i Filadelfiu leikur Kvartett nr. 4 i B-dúr eftir Rossini. Kammer- hljómsveitin i Slóvakiu leikur Concerto Grosso op. 6 eftir Corelli: Bohdan Warchal stj. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Tilkynningar. 16.25 Popphornið 17.10 Þjóðlög frá ýmsum löndum 17.40 Tónlistartlmi barnanna Sigriður Pálmadóttir sér um timann. 18.00 Eyjapistill. Bænarorö. Tonleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskra kvöldsins. 19.00 Frcttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill 19.35 Þingsjá Ingólfur Kristjánsson sér um þáttinn, 20.00 Tónleikar Sinfóniu- hljómsveitar tslands i lláskólabiói kvöldið áður. Stjornandi: V la dimIr Asjkenazý Einleikari á pianó: Misha Dichter frá Bandarikjunum a. Pianó- konsert nr. 2 i B-dúr op. 83 eftir Johannes Brahms. b. Sinfónia nr. 5 i e-moll op. 64 eftir Pjotr Tsjaikovský. 21.45 Um siglingu á l.agarfljótsós. Gisli Kristjánsson ritstjóri talar við Þorstein Sigfússon bónda á Sandbrekku. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Lestur Passiusálma (40). 22.25 Útvarpssagan: „Ofvitinn” eftir Þorbcrg Þórðarson Þorsteinn Hannesson les (25). 22.55 Létt inúsik á siðkvöldi Flytjendur: Gracie Fields, Count Basie og hljómsveit hans, André Previn og Russ Freeman. 23.50 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. CFTF 20.00 Fréttir. 20.25 Vcður og auglýsingar. 20.30 Karlar i krapinu. Þýð- andi Kristmann Eiðsson. 21.20 Sjónaukinn. Umræðu-og fréttaskýringaþáttur um innlend og erlend málefni. 22.05 P.G. & E. Upptaka, sem gerð var i Stokkhólmi i fyrrasumar, þegar popp- hljómsveitin Pacific Gas & Electric kom þar við á tðn- leikaferð sinni um Evrópu. Hljómsveitina skipa fjórir menn, og einn þeirra er söngvarinn vinsæli Charlie Allen. Tveir sjónvarpsþætt- ir voru gerðir með hljóm- sveitinni i Stokkhólmi, og er þessi hinn fyrri. (Nordvis- ion). 22.35 IJagskrárlok. PIERPONT-úrin manns- úr af mörgum gerðum og verð- um. KORNELÍUS JÓNSSON úrsmiður Skólavörðustíg 8, sími 18588, Bankastræti 6, sími 18600. handa þeim, sem gera kröfur um endingu, nákvæmni og fallegt útlit. Kven- oq karl-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.