Þjóðviljinn - 06.04.1973, Síða 16
DIÚDVIUINN
Almennar upplýsingar u»
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Föstudagur 6. april. 1973
Kvöld- nætur- og helgarþjón-
usta lyfjabúöanna i Reykjavik
vikuna 30. marz til 5. april i
L a u g vegsapótek . o g
Holtsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverrujarstöðinni.
Simi 21230.
Lögregla
ræðst á verk'
fallsmenn
Barcelona 5/4. — Þúsundir
verkamanna i Barcelona
Spáni geröu verkfall i hálfa
aðra klukkustund I gær til þess
að mótmæla hrottaskap lög-
reglunnar, sem skaut einn
verkamann tii bana s.l.
þriðjudag.
Þann dag geröu verkamenn
verkfall til þess að leggja
áherzlu á kröfur sinar um
hærri laun og styttri vinnu-
tima. Lögreglan hóf skothrið á
verkamennina og felldi einn
þeirra,_____________
Verkfalls-
alda í
Finnlandi
Helsinki 5/4. — Verkfallsalda
gekk yfir Finnland i dag. Mörg
skæruverkföll voru háð, og
fleiri eru boðuð á föstudag.
Um 100 þúsund bygginga-
verkamenn lögðu niður vinnu i
8 stundir, og lömuðust við það
allar byggingaframkvæmdir i
landinu. Byggingamenn vildu
knýja fram hraðari samn-
ingaviðræður um kaup og
kjör. Um 26 þús. málmiðn-
aðarmenn og hafnarverka-
menn i Kotka tóku þátt i verk-
föllunum.
Skæruliðar þjarma að stjórnarhernum i Kambodiu!
Öllum leiðum til
Phnom Pehn lokað
Phnom Pehn 5/4. —
Skæruliðar í Kambódíu
hafa nú höfuðborgina
Phnom Pehn í algjöru um
sátri. Stjórnarhersveitun-
um hefur ekki tekizt að
rjúfa umsátrið þrátt fyrir
öflugan stuðning banda-
ríska flughersins, sem gerir
látlausar árásir á stöðvar
skæruliða.
Birgðir vopna eru á þrotum i
höfuðborginni. 1 kvöld var skipa-
lest á leið upp Mekong-fljótið og
ætlaði hún að freista þess að
komast til Phnom Pehn i skjóli
bandariskra flugvéla.
Þaö eru skæruliðar hliðhollir
Shianuk, fyrrum þjóðhöfðingja
landsins, sem svo mjög þjarma
að stjórnarhernum. Bandarikja-
menn hafa undanfarið stóraukið
loftárásir sinar á stöðvar skæru-
liða. og beita m.a. risasprengju-
þotum af B-52 gerð.
Mikill hluti Mekong-fljótsins er
undir yfirráðum skæruliða. og
stjórnarherinn hefur ekki getað
notað flutningaleiðina siðustu 9
dagana.
Stjórnin i Phnom Pehn hefur
lýst yfir neyðarástandi i öllu
landinu. 1 Washington er tilkynnt borgarinnar i þvi skyni að lengja
að Bandarikjastjórn hafi i hyggju lifdaga stjórnar Lon Nols hers-
að koma á loftbrú svokallaðri til höfðingja
Meö kampavin i nesti. Þetta er einn siðasti bandariski hermaðurinn
sem yfirgaf Saigon og veifar hann kampavinsflösku, sem hann hafði
með sér i nesti. En eftir að Bandarikjamenn urðu að hætta hernaöarað-
geröum i Vietnam samkvæmt friðarsamningunum, hafa þeir stóraukið
hernaöarihlutun sina i Kambódiu.
Frumvarpið um fangelsismál:
„Slíka byggingu vildu menn
ekki sjá rísa hér”
— sagði Svava Jakobsdóttir um álit sérfróðra aðila á stóru
rikisfangelsi. Talsverðar breytingar gerðar á fangelsisfrumvarpinu
Stjórnarfrumvarpiö um fang-
elsi og vinnuhæli var til 2. og 3.
umræðu i neöri deild I gær. Gerði
Svava Jakobsdóttir grein fyrir
þeim breytingum sem nú er lagt Þingnefndin sem fjallaði um
tilaðverðiá frumvarpinu. Er þar málið kallaði á sinn fund nokkra
i ýmsum greinum um þýöingar- aðila til ráðslags um frumvarpið.
miklar lagfæringar aö ræða. Þessum aðilum var öllum mestur
TREYSTIR AÐ NIXON
STANDI VIÐ LOFORÐIÐ
Stokkhólmi 5/4 —•
Fullyrðingar Kínverja aö
Sovétrikin ógni Kína eru
uppspuni frá rótum, sagði
Kosygin á blaðamanna-
fundi, sem hann hélt i
Stokkhlmi í dag, við lok
heimsóknar til Svíþjóðar.
Kosygin sagði ennfremur að
hann treysti þvi að Nixon stæði
við friðarsáttmálann um
Vietnam. Kosygin ræddi við
blaðamenn i 20 minútur um
alþjóðamálefni, m.a. ástandið við
botn Miðjarðarhafs. Hann sagði
að deilur Israels og Arabarikj-
anna væru einhver alvarlegasta
ógnunin við heimsfriðinn og lagði
áherzlu á að árásarstefna ísraels
væri óþolandi.
— Við vorum samt meðal
þeirra sem studdu stofnun
israelsrikis, og við erum enn
þeirrar skoðunar að israel eigi að
standa sem riki og fá tryggingu
fyrir sjálfstæði sinu,
” i rriorgun undirrituðu þeir
Kosygin og Olof Palme forsætis-
ráðherra þrjá samninga um sam-
skipti rikjanna á árunum 1973 og
1974.
þyrnir I augum bygging 100
manna rikisfangelsis sem frum-
varpiögerði ráö fyrir. Slikt stór-
hýsi vildu menn ekki sjá risa hér,
sagði Svava I ræðu sinni, en telja
smærri og fámennari vinnuhæli
eða fangelsiseiningar bæði
mannúðlegri og heppilegri. 1
samræmi við þetta er nú flutt
breytingartillaga, þar sem
gerð er ráð fyrir að skipting rikis-
fangelsis I sjálfstæðar einingar
verði reglugerðaratriði.
Hjá tilkvöddum aðilum kom og
fram andstaða við deildaskipt-
ingu rlkisfangelsis, þó sérfróðir
aðilar væru ekki að öllu leyti
sammála. Taldi Hildigunnur
Ölafsdóttir að sú deildaskipting
sem gert er ráð fyrir I frumvarp-
inu hafi sætt rökstuddri gagnrýni
I nágrannalöndunum. Ennfremur
taldi Hildigunnur vafasamt að
flokka fanga eftir aldri. En aðrir
voru öndverðrar skoðunar? og
treysti nefndin sér þvi ekki til að
breyta til frá frumvarpinu.
Kvaðst Svava nefna þetta atriði
til þess að gagnrýna að ekki hefðu
verið kallaðir á vettvang sérfróð-
ir aðilar þegar frumvarpið var
samið I upphafi.
Framhald á bls. 15.
Island fiutti tiliögu um
landhelgismál í New York
Gils Guðmundsson,
forseti neðri deildar al-
þingis, kom heim í gær
frá undirbúningsfundi
fyrir hafsbotnsráðstefnu
sem haldinn var í New
York, en þar flutti Island
tillögu í gær þess efnis að
strandríki beri einhliða
réttur til útfærslu land-
helgi. Hans G. Andersen
mælti fyrir tillögu Is-
lands í gærmorgun.
Sagði Gils I viðtali við blað-
ið, að i tillögunni fælist, að
strandriki beri einhliða réttur
til að ákveða sina eigin land-
helgi innan eðlilegra marka,
en þó ekki viðari en 200 sjómil-
ur.
Tillaga sem felur þetta
sama i sér hefyr komið fram
áður og Islendingar búnir að
lýsa stuðningi við hana, en það
er tillaga Kenya, sem fram
kom I fyrra.
— Samt sem áður töldum
við rétt, sagði Gils, að ísland
kæmi fram með sina eigin til-
lögu, meðal annars með hlið-
sjón af þvi að viðbúið er að
kosnar verði undirnefndir og
starfsnefndir til þess að vinna
að þessum málum, og má telja
vist, að lönd, sem komið hafa
fram með tillögur, verði þar
aðilar að og geti haft einhver
áhrif á gang mála. —úþ
50 MÍLNA
FISKVEIÐI-
LÖGSAGA í
5- VlETNAM
Suður-vietnömsk yfirvöld i
Saigon fullgiltu hinn 16.
desember s.l. tilskipun um að
fiskveiðilögsaga landsins
skyldi stækkuö úr þremur i 50
sjómilur.
Samkvæmt þessum nýju
lögum er öllum erlendum
veiöiskipum óheimilt að veiða
innan 50 milna markanna
nema um það hafi veriö gerð-
ur samningur við þarlend
stjórnvöld. Lögin kveða svo á
að landhelgisbrjótar skuli
tafarlaust færðir til hafnar og
þeir látnir sæta refsingu.
Viðurlög eru fangelsi frá
einum mánuði upp i þrjú ár
ásamt sektum, sem nema frá
6— 40 miljón suður—
vietnamskra piasta. Sektin fer
eftir afia veiöiþjófsins. Allar
refsingar tvöfaldast við
endurtekin brot.
Sovézkir
gyðingar
til Israels
Tel Aviv 5/4. — tsraelsmenn
geta reiknað með að miljón
sovézkra gyðinga flytjist til
Israel á næstu 10 árum að sögn
Jigal Allonhi, aðstoðarfor-
sætisráðherra Israels.
t ræðu sagði hann að rúm-
lega 50.000 sovézkir Gyðingar
hefðu flutzt til landsins á
siðustu tveimur árum.
Finnar
semja við
Comecon
Helsinki 5/4. — Urho
Kekkonen Finnlandsforseti
gaf Jussi Linnamo utanrikis-
ráðherra i dag heimild til að
undirrita viðskiptasamning
þann sem Finnar hafa gert við
Comecon, efnahagsbandalag
Austur-Evrópurik janna.
Samningaviðræðum Finna
við Comecon lauk um miðjan
marz. Samningurinn gerir ráð
fyrir samvinnu aðila I efna-
hagsmálum, tækni og visind-
um.
Brésnef til
V-Þýzkalands
Bonn 5/4. — Brésnef form. sov-
ézka kommúnistaflokksins hefur
staðfest, að hann muni fara i
opinbera heimsókn til Vestur-
Þýzkalands á þessu ári. Willy
Brandt kanzlari tilkynnti þetta i
vestur-þýzka Sambandsþinginu i
dag.
Ekki er ákveðið hvenær
Brésnef fer i ferðalagið, en talið
er liklegt að það verði um miðjan
mai-mánúð.