Þjóðviljinn - 09.05.1973, Síða 3

Þjóðviljinn - 09.05.1973, Síða 3
Mibvikudagur 9. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Aðaldeilan í Noregi líka um lenginguna — segir norski uppeldisfrœðingurinn dr. Dokka, sem flytur fyrirlestra um norska grunnskólann og kennaramenntunina Dr. Hans-Jörgen Dokka Einn af fremstu fræði- mönnum Noregs í skóla- málum, dr. Hans-Jörgen Dokka, dósent í uppeldis- fræði við Oslóarháskóla, er kominn hingað til lands og mun flytja fyrirlestra í Norræna húsinu um norska „Þetta leikrit er skrifað sér- staklega fyrir Leikfélag Akur- eyrar og Jökull gerði þaö á tveim mánuðum i vetur og að minum dómi er árangurinn frábær. Ég tel þetta hiklaust vera eitt af hans betri leik- ritum”. Þetta voru orð Magnúsar Jónssonar leikhús- Þessi mynd er tekin á æfingu á Klukkustrengjum, leikriti Jökuls Jakobssonar, og það eru þau Þórhalla Þorsteinsdóttir og Marinó Þorsteinsson sem eru hér i hlutverkum Jórunnar og Haraldar. KLUKKUSTRENGIR, nýtt leikrit eftir Jökul Jakobsson Frumsýnt á Akureyri „Frábœrt verk ” segir leikstjórinn Magnús Jónsson stjóra á Akureyriog jafnframt leikstjóra nýs leikritseftir Jökul Jakobsson, KLUKKU- STRENGIR, sem frumsýnt verður á Akureyri nk. laugar- dag 12. mai. — Er hérum nútimaverk að ræða Magnús? — Já, leikritið gerist á okkar timum. Það gerist i litlum bæ þangaö sem kemur orgelstiilari til að stilla orgel kirkjunnar á staðnum. Hann kynnist þar heimafólki og brátt taka að gerast dular- fullir atburðir. Við skulum iáta þetta nægja um sögu- þráðinn þvi sjón er sögu rikari. — Kannski sakamálaleik- rit? — Nei, það er ekki saka- málaleikrit, heldur má segja að í þessu sé bæði drama og ádeila en fyrst og fremst er þetta kómedia. — Er þetta ekki fyrsta leik- rit Jökuls sem er frumflutt utan Reykjavikur? — Jú, ég veit ekki annað. — Og þetta er fyrsta verkið eftir hann sem þú leikstýrir Magnús, er ekki svo? — Jú, það er rétt, og ég hef haft mikia ánægju af að vinna að þessu verki. Jökuil hefur verið með okkur hér við æfingar. Hann lét okkur hafa fyrsta þátt um leið og hann var búinn að skrifa hann og þá fórum við strax að lesa saman, en auðvitað var ekki hægt að fara að æfa af krafti fyrr en leikritið var fullgert. En um ieið og hver þáttur var tilbúinn fórum við að lesa hann yfir og það munu nú vera um það bil 2 mánuöir siðan við byrjuðum að æfa. JökuII var svo með okkur á æfingunum til að byrja með, en hann dvald- ist hér nyrðra meðan hann skrifaði verkið. — Hvenær lýkur svo leik- árinu hjá ykkur Magnús? — Það er nú ekki ákveðið. Þetta leikrit er að visu það siöasta sem við sýnum á þessu leikári, en ákvörðun hefur ekki verið tekin um hvenær siðasta leiksýningin verður. Ætli við leikum ekki hér meðan fólk sækir sýningar. Þess má svo að lokum geta, að Jón Þórisson gerði leik- mynd og leikendur eru sjö: Þórhalla Þorsteinsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Saga Jónsdóttir, Gestur Einar Jónasson, ólafur Axelsson, Guðlaug Bjarnadóttir og Hallmar Sigurðsson. grunnskólann og kennara- menntun i Noregi. Kennslugrein dr. Dokka er norsk skólasaga og doktorsrit- gerð hans f jallaði um sögu barna- fræðslunnar i Noregi. Nýjasta bók hans, Vár nye skole, fjallar um skólasögu Noregs frá styrjaldarlokum. Hann er hingað kominn i boði Norræna hússins, en að frumkvæði kennarasam- takanna hér, sem fjalla munu um kennaramenntunina á uppeldis- málaþingi sinu i byrjun júni, en nefnd á vegum menntamálaráðu- neytisins vinnur nú að endur- skoðun laga um kennarmenntun. Meðan bæði kennaramenntun og grunnskólinn hér eru þannig i brennidepli er vissulega fróðlegt að kynnast viðhorfum og reynslu annarra þjóða og þá ekki sizt Norðmanna, þar sem þjóðfélags- bygging og menning er um margt lik okkar. Er þess skemmst að minnast er norski félags- fræðingurinn próf. Nils Christie kom og gagnrýndi skólann sem geymslustað . fyrir börnin, en landi hans dr. Hans-Jörgen Dokka hefur hins vegar starfað að uppbyggingu nýja grunn- skólans norska. Hann var for- maður nefndar, sem undirbjó námsskrána fyrir 9 ára skyldu- námið, og hefur þvi haft náin kynni af þeim vanda aö gera hug- myndir löggjafa að raunveru- leika i daglegu starfi skólanna. A blaðamannafundi með dr. Dokka í Norræna húsinu i gær Framhald á bls. 15. Tónleikar Karlakórs Keflavíkur Nútíma- stemmur Wagner °g pop Karlakór Keflavikur er að Ijúka 19. starfsári sinu með tónleikum i Keflavik sem haldnir eru nú á fimmtudag og föstudag — 10. og 11. mal. A efnisskrá eru meðal annars þrjár nútima stemmur eftir söngstjórann, Jón Asgeirsson, og eru þær frum- fluttar sem og tvö lög eftir Bjarna Gislason. Ennfremur verður flutt kór aðalsmanna úr Tannhauser eftir Wagner, þrir negrasálmar og popplag sem flutt er með aðstoð þriggja keflviskra poppara. A tuttugasta starfsári kórsins er fyrirhugað að gefa út vandaða hljómplötu, fara i hljómleikaferð til Norður- landa og festa kaup á húsnæði sem duga mætti kórnum til æfinga og félagsstarfs. Söngstjóri er, sem fyrr segir, Jón Asgeirsson, en undirleik annast Agnes Löve. Ferðamála- ráðstefna á Egilsstöðum Akveðið hefur verið að Ferða- málastefnan 1973 verði haldin á Egilsstöðum dagana 25. og 26. mai nk. SKEMMTUN TIL SJÓÐSSTOFNUNAR Félag islenzkra leikara, starfs- mannafélag Sin fóniuh 1 jóm- sveitarinnar og fl. aðilar hafa ákveðið að efna til skemmtunar, og nota það sem inn kann að koma til stofnunar sjóðs til styrktar þeim íslendingum sem óbættir falla og skilja eftir sig fjölskyldur. Hugmyndin um þessa sjóðs- stofnun varð til i þeim mikla slysafaraldri sem yfir gekk i vetur, þegar mannskaðar urðu hvað mestir á sjó og landi. Sjóður þessi mun falinn Slys- avarnarfélaginu til varðveizlu þar til samin hefur verið fyrir hann reglugerð. Skemmtunin verður haldin á föstudaginn kemur, lokadag vetrarvertiðar i Háskólabiói, en stjórn hússins mun ekki taka gjald fýrir húsið fremur én þeir sem fram koma á skemmtuninni. Ætlun stofnenda er að efla sjóðinn árlega með skemmtunum likum þeirri sem haldin verður nú á föstudaginn. Sjóðurinn á að vera opinn allt árið til fjármögnunar, svo og til áheita. Dagskrá skemmtunarinnar i Háskólabiói verður mjög fjöl- breytt, en hún hefst klukkan 11.15. Meðan fólk er að koma sér fyrir i sætunum leikur Skólahljómsveit Kópavogs. Kynnir verður Gunnar Eyjðlfsson, Baldvin Halldórsson les ljóð, Sinfóniuhljómsveitin leikur undir stjórn Ruth L. Magnússon, Lárus Ingólfsson fer með gamanvisur, Fjórtán fóst- bræður syngja, Guðmundur Pálsson, Jón Sigurbjörnsson og Sigurður Skúlason flytja gaman- þátt, Einsöngvarakórinn syngur við undirleik Sinfóniuhljóm- sveitarinnar islenzk þjóðlög i út- setningu Jóns Ásgeirssonar, Baldvin Halldórsson, Sigurður Framhald á bls. 15. Vorkappreiðar Fáks verða á sunnudaginn Sunnudaginn 13. mai mun hcs ta m a n n a f él a gið Fákur gangast fyrir vorkappreiðum á sama hátt og tiðkazt hefur undan- farin tvö ár. Keppt verður i 250 m foiahlaupi og 250 m skeiði 350 m og 800 m stökki. Þá mun vera þar ný'mæli að keppt verður i 1500 m stökki og 1500 m kerruakstri, en þetta eru keppnisgreinar sem njóta mjög vaxandi vinsælda. Um það bil 50 hestar eru skráðir til keppni og eru i þeim hópi flestir kunnustu hlauparar landsins. M.a. i 800 metrum Blakkur Hólmsteins Arasonar sem á Islandsmet i þeirri grein. Jafnframt keppir þar Stormur Harðar Albertssonar Reykjavik. 1 350 metra stökki keppir m.a. Hrimir Matthildar Harðardóttur og Skörungur Gunnars M. Árnasonar. Þjálfi Sveins K. Sveinssonar og Brunn Sigurðar Sigurþórssonar frá Þórunúpi. 1 skeiði keppa annars Randver Jóninu Hliðar, Oöinn Þorgeirs i Gufunesi og Fengur Hjörleifs Pálssonar. í 1500 metra stökki keppa Gráni Gisla Þor- steinssonar i Vindási og Lýsingur Baldurs Oddssonar Reykjavik. Sú nýjung verður á vorkappreiðum Fáks á sunnudaginn að keppt veröur I 1500 m kerruakstri. A myndinni hér fyrir ofan má sjá tvo væntanlega keppendur á æfingu fyrir skömmu ásamt stjórnendum sinum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.