Þjóðviljinn - 09.05.1973, Side 4

Þjóðviljinn - 09.05.1973, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN MiOvikudagur 9. mal 1973 „En vafalaust er fjöldi fólks í Bretlandi, com ök qL'LtI ánooat möA oA LITIÐ UM ÖXL- OG FRAM 12 voru árin, er sú stjórn fór með völd, er kenndi sig við VIÐREISN. Og sjálfsagt hefur hún verið öll af vilja gerð að risa undir þvi nafni. En þótt góð væri sambúð Sjálfstæðismanna og Krata, og aðstæður um flest betri en nokkru sinni áður, fór samt svo, að „viðreisnin” fór á hvolf, og varðaðhreinni vanreisn. Samt strituðust þeir við að telja þjóöinni trú um, að allt væri harla gott, og stórhættulegt væri að fá vinstri flokkunum völd á ný, þvi að þar væri hver höndin upp á móti annari, eins og dæmin sýndu. t 12 ár lifðu þessir póli- tisku blekkingameistarar á stjórnarslitum vinstri flokkanna. — Slik voru vonbrigði þjóðarinnar yfir vinstri sundrungu. Vel mættu núverandi stjórnar- flokkar muna þetta og ihuga, þvi að vel kunna þeir til verks i rógsiðjunni, Morgunblaðsmenn og Gylfi Þ. En svolitið hefur þeim samt orðið á i messunni. Blekkingar þeirra og rógur hefur stundum stangazt svo greinilega á við staðreyndir, að jafnvel blindir hafa öðlazt sýn og farið að rifja upp og skoða betur orð og gerðir „viðreisnar” og þvi betur sem skoðað var og borið saman við staðreyndir — og gerðir nú- verandi vinstri stjórnar, hefur „viðreisnin” smækkað og lækkað, og þeim fækkað, er henni fylgdu. Kominn timi til Enda er kominn timi til að þjóðin geri sér sem gleggsta grein fyrir þeirri þakkarskuld, sem hún stendur i við vinstri stjórnirnar, báðar. Það var og er fyrri vinstri stjórninni að þakka, þótt hún sæti stuttan tima, að landhelgin var færðúr 4 milum i 12, þótt Morgun- blaðið hamaðist gegn þvi. Og meðan vinstri stjórnin sat, hvikaði hún i engu fyrir hótunum og ruddalegum ofbeldisaðgerðum Breta, er ávallt virðast fúsir að heyja ný Búastrið. En þegar Sjálfstæðismenn og Kratar tóku við málinu, létu þeir Breta svinbeygja sig. 1961-samningurinn hefði ALDREI verið gerður, ef vinstri stjórnin hefði setið áfram, þrátt íyrir óheilindi Krata. — En með samningnum var Bretum og Þjóðverjum veittur slikur réttur til ihlutunar um sjálfstæði og lifs- hagsmuni Islendinga, að furðu gegnir, að nokkur rikisstjórn skyldi lúta svo lágt. En það er ekki fyrsta skipti, að flokkur „allra stétta” er kennir sig við sjálfstæði, bregzt sjálf- stæðinu og öllum stéttum. Það er áreiðanlegt, að við værum enn með 4ra milna landhelgi, hefði „viðreisnarstjórnin” verið við völd, er landhelgin var færð út. Margir muna, hve digurt þeir töluðu, „viðreisnarhérrarnir”, er þeir tóku við af vinstri stjórninni, er fært hafði út landhelgina. En reisnin varð raunalega lág i samningunum við Breta og Þjóð- verja. AFSAL réttinda. UPPGJöF. Og siðan hreyfðu þeir málinu ekki frekar á 12 — tólf ára valdaíerli. Það þurfti nýja vinstri stjórn til að stiga nýtt skref i landhelgismálinu. HÖFUÐ ~ lifsbjargarmáli þjóðarinnar. En hefðu vinstri flokkarnir ekki þekkt vitjunar- tima sinn og hafið vel undirbúna samvinnu, væri landhelgin enn 12 milur. Og bregðist þeir þvi trausti, er þjóðin veitti þeim i siðustu kosningum, — trausti og kröfu um samvinnu, mun nýr uppgjafarsamningur verða gerður. „Viðreisnin hamast og hefur allt á hornum sér, telur allt rangt, er stjórnin gerir, en bendir á engin önnur úrræði. Hefði hún þó verið vel að þvi komin að leggja eitthvað til lausnar þess vanda, sem vinstri stjórnin tók við, en „viðreisnin” reynt að fela. En það er engu stórmannlegra en samningarnir um landhelgina, sem Bretar, Þjóðverjar og Haagdómstóllinn hafa hengt hatt sinn á. A honum byggja þeir veiðiþjófnað og ofbeldisaðgerðir sinar i landhelginni. Hann er þvi orðinn þjóðinni dýr, samningurinn sá, auk 12 ára við- reisnar-mistaka. En við — þú-Og ég. Hvar i flokki sem við stöndum megum við gjarna muna og virða að það er vinstri stjórn að þakka, að við höfum ekki enn 4ra milna landhelgi og erlendan togara- flota skafandi botn islenzkra fiskimiða steinsnar frá landi. — Hver væru lifskjör þin og min, þjóðarinnar, ef vinstri flokkarnir, er færðu landhelgina i 12 og 50 milur hefðu ekki myndað rikis- stjórn? Útgerðarmaður, kaupmaður, bóndi, launamaður, hvar i stétt sem þú stendur, — hver væru kjör þin, ef vinstri menn hefðu aldrei komizt til valda i landinu? Hver? Hugsum málið i einlægni. Strjúk- um pólitisku glýjuna af augum, og gerum okkur grein fyrir þeirri einföldu staðreynd, að hefði landhelgin ekki á sinum tima verið færð i 12 milur, væri dauður sjór kringum landið. En það dregur enginn fisk úr dauðum sjó. Hver væri hlutur sjómannsins? Hlutur okkar allra? — Viðreisn- arflokkarnir vanræktu landhelg- ina. En þeir færðu þjóðinni land- 1 helgissamninginn, svivirði- legasta undirlægjusamning sem nokkur islenzk rikisstjórn hefur undirritað. Hann var verk „við- reisnarstjórnarinnar” sem brast manndóm til að standa gegn hót- unum Breta. Af honum og fleiri verkum hennar súpum við seyðið nú. En til að leiða athygli þina og mina frá óhappaverkum sinum, fara nú forystumenn „viðreisnar- innar” hamförum gegn rikis- stjórninni. Ég hlustaði áðan i út- varpinu á álit Jóhanns og Gylfa á gengishækkuninni. Og það var svo sannarlega ósvikin Jó- hanns Gylfa gagnrýni hlaðin skætingi i stað raka. Hefði stjórn- in ekkert gert eða eitthvað annað, hefði afstaða JóhannsGylfa verið nákvæmlega hin sama. En reyn- um að afsaka það og skilja. Þeir héldu um stjórnartaumana i 12 ár, vildu sjálfsagt gera vel, en mistókst, og eru haldnir ómældri gremju. Höfum samúð með þeim, en fáum þeim ekki aftur i hendur aðstöðu og vald til að semja um lif og framtið þjóðarinnar. En um það dreymir þá. Og að þvi vinna þeir með þvi að reyna að gera allt, sem stjórnin gerir tortryggi- legt. Og tilraunir þeirra til að ala á barnalegum metnaði og óein- ingu milli ráðherranna, hafa stundum verið bæði áberandi og broslegar. Og þegar klofningur- inn varð i flokki Frjálslyndra og vinstri, uxu þeim vonir um „sprengingu.” Þeir vöruðu sig ekki á þvi, að þótt óeining væri um viss mál, voru báðir armar flokksins einlægir i stjórnarsam- vinnunni. Ný von óx, er Hannibal sagði af sér ráðherraembættinu. Voru svo einfaldir að halda, að hann væri að fórna glæsilegum sigri sinum og sóma. Vita þeir ekki enn, að Hannibal er einlægur vinstri sinni og allt of hreinskipt- inn til að vega aftanað félögum sinum, en metur heilsu sina meira en embættið, sem hann hverfur frá, eftir vel unnin störf. Og hann á áreiðanlega eftir að vera stjórninni og vinstri sam- vinnu stvrk stoð áfram, bæði á þingi og utan. Þingínenn fengu ekki skjölin 1961. í mjög fróðlegri greinargerð til landhelgisnefndar rekur Finn- bogi Rútur umræður Alþingis um málið. 1961. Þar upplýsir hann að þing- menn hafi EKKI FENGIÐ að sjá skjöl varðandi málið. En það lýsir mætavel málsmeðferð viðreisn- arstjórnarinnar. Og mikið skelf- ing hefur Bretinn gert sig smáan. Óuppsegjanlegs málskots til al- þjóðadómstólsins krafðist hann fyrir að beita ekki kúgun og of- beldi, hvorki viðskiptalegri né hernaðarlegri. — „Stórmann- lega” gert af stjórþjóð, eins og vænta mátti. Einn ALLRA þjóða heims hafði hann beitt ofbeldi og kúgun i land- helgismálum, skrifað enn eina svarta siðu i sögu sina. Og siðan, sem viðreisnarstjórnin skráði i sina sögu, er heldur ekki hvit. — En Alþýðubandalag og Framsókn stóðu á rétti þjóðarinnar og neit- uðu að lúta þessum svivirðilega kúgunarsamningi Bretans. Og svo munu þeir enn gera. — En þrátt fyrir allar staðreyndir, sem dómstólnum i Haag voru að sjálf- sögðu kunnar, var þvi haldið fram þar, að samningurinn hefði ekki verið nauðungarsamningur. — Það er áreiðanlega þyngsti dómur, sem viðreisnarstjórnin hefur hlotið, þvi að hafi samning- urinn ekki verið þvingunarsamn- ingur, þá var hann landráða- samningur. En það hefur enginn hér borið viðreisnarstj. á brýn. En vist er, að engin þjóð getur verið bundin af samningi sem fenginn er fram með kúgun. Enda segir i Vinarsamþykktinni frá 1969, um „Nauðung gagnvart riki i formi valdbeitingar eða hótunar um valdbeitingu: Milli- rikjasamningur er ógildur, ef stuðlað hefur verið að gerð hans með valdbeitingu eða hótun um valdbeitingu i andstöðu við meg- inreglur þjóðaréttar samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna,” segir i greinargerð F.R.V. — þar af leiðir, að hverju sinni, sem Bretar eða virðulegir dómarar i Haag hampa þessum samningi sem rökum fyrir rétti Breta til að veiða i islenzkri landhelgi, eru þeir að brjóta og óvirða Vinar- samþykktina og „meginreglur þjóðaréttar, skv. sáttmála Sam- einuðu þjóðanna.” Bretar mega svo velja sjálfum sér það nafn, er þeim hæfir fyrir athæfi sitt alit i þessu máli. En þegar þessir háu herrar veifa samningnum til réttlæting- ar valdniðslu sinni, eru þeir einn- ig að syngja ofbeldinu lof og dýrð. Lýðræðishugsjón þeirra og rétt- lætiskennd er sannarlega ekki margra fiska virði. Oft vitna Bretar Oft vitna Bretar i alþjóðaiög. En er ekki alveg ljóst, að tillits- lausar ofbeldisþjóðir EINAR geta látið sér detta I hug að setja lög, er opna þeim auðlindir ann- arra þjóða. Enda eru slik lög ekki til. Framferði Breta i landhelgis- málinu minnir öllu fremur á sið- ferði nazismans eða lög frum- skógarins og undirheimalýðs stórborganna, en er óralangt frá lögum raunsiðaðra þjóða. „Þegar býður þjóðarsómi, þá á Bretland eina sál,” sagði Einar Ben. Skyldi þá þjóð- inni finnast það sómi, er tugum togara er sigað inn i islenzka landhelgi til að moka upp ókyn- þroska fiski? Er það þjóðarsómi, er þau og þjófarnir þverbrjóta al- þjóða siglingareglur? Er það þjóðarsómi að reyna að sigla nið- ur varðskip að skyldustörfum? Og er það þjóðarsómi, er ekkert af þessu dugir til að beygja isl. rikisstjórnina, að hóta að senda herskip hennar hátignar Breta- drottningar, til frekari ofbeldis- aðgerða? Það verður vist ekki sagt, að Bretarnir séu smáir i sér eða gentlemennskan rislág eða ótigin. Virðist deginum ljósara Virðist deginum ljósara, að sið- gæðis- og réttarkennd Breta og Þjóðverja sé af öðrum og lélegri, toga spunnin en annarra ná- grannaþjóða okkar. önnur álykt- un verður vart dregin af næsta furðulegu og ábyrgðarlausu framferði þeirra. — En hvernig myndu þessar sömu þjóðir svara, ef Islendingar ætluðu að nýta auðlindir þeirra? Það þarf ekki að spyrja. Landhelgin var færð út til nauð- synlegrar verndar gegn ofveiði, og til verndar lifsafkomu þjóðar- innar allrar. Þetta vita ofbeldis- seggirnir. — Að sjálfsögðu munar Breta og Þjóðverja ekkert um að bæta nokkrum hundruðum sjó- manna veiðitapið. — En i stað þess að þakka Islendingum allan þann óhemju auð, sem þeir hafa sótt i islenzkan sjó, fyrr og siðar, telja þeir sjálfsagt, að Islending- ar haldi sjómönnum þeirra og út- gerð uppi, og senda þá til rán- skapar og þjófnaðar inn i land- helgina. En þangað leituðu þeir iðulega einnig, meðan landhelgin var ekki nema 3 milur, og létu sig litlu skipta, þótt þeir toguðu yfir veiðarfæri smábátanna. Fannst liklega og finnst sómi að nýta auðlindir þeirra, er hafa ekki bol- magn til að hrinda yfirganginum. Nú leita Bretar Nú leita Bretar samninga við Færeyinga. Og það virðist vera af sérstakri náð, að Færeyingum er ætlaður eilitið meiri réttur á sin- um éigin miðum, en Bretanum. Og hingað munu þeir væntanlegir til samninga. Þeir vita ofurvel, að það er bara timaspursmál, þar til Framhald á bls. 15. ■

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.