Þjóðviljinn - 09.05.1973, Page 7

Þjóðviljinn - 09.05.1973, Page 7
Mi&vikudagur 9. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Norrœni Iðnþróunarsjóðurinn: Hefur lánað 641 mi Lánuðu 73,3% af Hinn 26. aprii s.l. var haldinn i Reykjavik fundur stjórnar Iön- þróunarsjóös, en i henni eiga sæti fulitrúar Noröurlandanna fimm. Fyrir fundinum lágu m.a. til- iögur frá framkvæmdastjórn sjóösins um iánveitingar til iön- fyrirtækja aö upphæö 73,5 miljón- ir króna, og voru þær sam- þykktar. Einnig samþykkti stjórnin heimild til framkvæmda- stjórnarinnar til ráöstöfunar á 60 miljónum króna til viöbótar fyrri heimildum, og heimild til veitingar styrkja og sérstakra lánveitinga, aö upphæö 5 miljónir króna. Þá samþykkti stjórnin aö veita Iönlánasjóöi lán aö upphæö 50 milj. kr. Þá voru á fundinum sam- þykktir ársreikningar sjóösins fyrir árið 1972, og gengið frá árs- skýrslu um starfssemi sjóðsins. 1 ársskýrslunni kemur meðal annars fram, að á árinu 1972 voru til afgreiðslu 69 lánsumsóknir, að upphæð 547,4 miljónir króna. Samþykkt voru lán til 34 fyrir- tækja á árinu, að upphæð 200 miljónir króna,og 2 lán til opin- berra sjóða, að upphæð 50,8 milj. króna. Þá var 20 lánsumsóknum, að upphæð 158,8 milj. króna, annaðhvort synjað.visað til annarra sjóða eða þær dregnar til baka. Aætluð fjárfesting þeirra 34 fyrirtækja, sem veitt voru lán til árið 1972, var 362,1 milj. króna. Hlutdeild Iðnþróunarsjóðs i fjármögnun þessara fram- kvæmda nam 200 miljónum króna, eða 55,2% áætlaðrar fjár- festingar, og hlutdeild annarra lánastofnana og eiginfjár 44,8%. Samtals námu upphaflegar láns- umsóknir til Iðnþróunarsjóðs vegna þessara framkvæmda 273 miljónum króna, og voru lánin þvi 73,3% af umbeðnu lánsfé. Frá þvi að Iðnþróunarsjóður tók til starfa á árinu 1970 hafa til ársloka 1972 verið veitt lán, samtals að upphæð 641,1 miljón króna. Þegar litið er á lánveitingar til einstakra greina, hefur mest verið lánað til vefjar- og fata- iðnaðar, eða samtals 145,9 miljónir króna, til málmiðnaðar og skipasmiða 108,7 miljónir króna. Lán til opinberra sjóða hafa á þessu timabili numið 174,8 miljónum króna. Af hálfu Iðnaðarráðuneytisins og Iðn- þróunarsjóðs var unnið að fram- kvæmd tillagna, er fylgdu i kjöl- far úttekta á nokkrum iðngrein- um á árinu 1971. Var unnið að framkvæmd þessara mála i sam- 1 j ón kr. umbeðnu lánsfé starfi við samtök launþega og vinnuveitenda. Var þar fyrst og fremst um að ræða aðgerðir á sviði hagræðingar- og tækniað- stoðar, er miðuðu að bættri skipu- lagningu framleiðslu, fjár- festinga og aukinni framleiðni. Nokkur iðnfyrirtæki höfðu þegar, að eigin frumkvæði, sýnt at- hyglisverðan árangur i umbótum á rekstri, með endurskipu- lagningu og hagræðingaraðgerð- um. Þá var á árinu hafizt handa um gerð samstarfssamninga milli fyrirtækja um hagræðingar- þjónustu og fleira. Þannig störfuðu um 15 fyrirtæki i prjóna- og fataiðnaði saman að fram- leiðslu og afgreiðslu á pöntun á 40 þús. prjónakápum fyrir banda- riskan markað, og réðu til sin hagræðingarráðunaut, til að skipuleggja samstarfið. Auk þess gerðu um 10 prjónaverksmiðjur með sér samstarfssamning um almenna hagræðingarþjónustu. voru myndaðir tveir samstarfs- hópar, samtals 8 fyrirtækja i hús- gagna- og innréttingaiðnaði, og unnið að myndun fjögurra starfs- hópa til viðbótar innan þessara greina, með samtals 23 fyrirtækj- um. Unnið var einnig að myndun samstarfshópa 7 fyrirtækja i sæl- gætisiðnaði, og jafnframt unnið að þvi að koma á samstarfs- hópum i málmiðnaði. Um nokkurra vikna skeið starfaði hér, með stuðningi Iðn- þróunarsjóðs, ráðgjafi á sviði umbúðamála. Heimsótti hann um 34 iðnfyrirtæki, og veitti leið- beiningar. Var þar bæði um að ræða fyrirtæki, sem framleiða umbúðir, og fyrirtæki, sem nota umbúðir til pökkunar á fram- leiðslu sinni. Hafinn var undir- búningur að athugun á rekstrar- stöðu og framtiðarhorfum prent- iðnaðarins, og er athugun þeirri nýlokið. Heildarfjárhæð, sem varið var á árinu 1972, til að styrkja ofan- greinda hagræðingarstarfsemi og leiðbeiningaþjónustu nam 3,6 miljónum króna. Tekjur Iðnþróunarsjóðs á árinu 1971 námu 54,9 milj. króna Út- gjöld námu 8,3 miljónum króna, og eru þar með talin framlög vegna hagræðingaraðgerða o.fl. að upphæð 3,6 milj. króna. Tekju- afgangur nam 46,6 miljónum króna og eigið fé i árslok 1972 67,3 miljónum króna. Innborguð stofnframlög i árslok 1972 námu 1.062,8 miljónum króna. Skulda- Framhald á bls. 15. Norrænir mjólkur tæknimenn halda hér ráðstefnu Dagana 25. til 27. júli n.k. verður haldin hér I Reykjavík ráöstefna norrænna mjólkur- tækniféiaga. Ráöstefnur sllkar sem þessi eru haidnar þriöja hvert ár og hafa þær veriö haldnar á hinum Noröurlöndun- um til skiptis. Siöasta ráöstefna var haldin i Sviþjóö sumariö 1970. Slik ráöstefna hefur aldrei áöur verið haldin hérlendis. Mjólkurtæknifélag tslands sér um allan undirbúning að ráð- stefnunni og hefur kosið til þess sérstaka undirbúningsnefnd, en formaður hennar er Sveinn Tryggvason framkvæmdastjóri og ritari Sævar Magnússon mjólkurverkfræðingur. Erlendir þátttakendur verða um 470. Auk þess sækja ráöstefnu þessa milli 40 og 50 tslendingar. A ráðstefnunni flytur Thorkil Kristensen prófessor erindi um þýðingu og stöðu mjólkur- iðnaðarins á Norðurlöndum i framtiðar matvælaframleiðslu Evrópu. Megin umræðuefni ráð- stefnunnar verður menntunar- þörf mjólkuriðnaðarins. Hefur fundarefniö verið til umræðu I fjórum nefndum sérfræðinga siöustu tvö árin og skila þessar nefndir álitum sinum á ráð- stefnunni. Reiknað er með þvi að skýrslur ráðstefnunnar verði stefnumarkandi fyrir framtiöar- skipulag þessara mála. Hinir erlendu þátttakendur koma allir með leiguflugvélum frá Flugfélagi Islands. Eftir ráö- stefnuna fara flestir hinna erlendu fulltrúa i ferðalög um landið, bæði um Suðurland og eins norðuri Mývatnssveit. Kosta þeir sjálfir þessar ferðir sinar, svo og annað, sem dvölinni viðkemur. Undirbúningsnefndin hefur i starfi sinu notið mikillar aðstoðar Ferðaskrifstofu rikisins. Hverfafundir Alþýðubandalagsins í Reykjavík Fundirnir hefjast kl. 8.30. Næstu fundir verða sem hér segir: Dagskrá fundanna er störf og skipulag Atþýðubandalagsins i Reykjavik og Þjóðviljinn. Fulltrúar frá Alþýðubanda- laginu i Reykjavik og Þjóð- viljanum konia á alla fundina. Hverfafundirnir verða haldnir i risinu að Grettisgötu 3 og sá háttur hafður á, að fundur verður i tveimur kjörhverfum I senn. Sjómannaskólinn — Austurbæjarskóli. Hverfafundur miövikudaginn 9. mai. kl. 8.30 Rreiðholt — Breiöageröisskólinn. Hverfafundur 14. mai. kl. 8.30 Melaskólinn — Miöbæjarskólinn. Hverfafundur 15. mai. kl. 8.30 Félagar, mætið vel og takið með ykkur stuðningsmenn; átaka er þörf. — Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík. frá kr. J I I j i ■ i T i I i ' 1 M ■ I I I 1 I Wká jr ■ nyiungar SKODfl 1973 fi ’-T 1 i ■ ii ,U4 TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. AUÐBREKKU 44-66 SlMI 42600 KÖPAV0GI SÖLUll^BOD A AKUREYRI: SKODAVERKSTÆÐIÐ KALDBAKSG. 11 B SlMI 12520 A

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.