Þjóðviljinn - 09.05.1973, Qupperneq 16
DJÚÐVIUINN
Almennsr upplýfeingar ura
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Kvöld- nætur- og helgarvarzla
apótekanna i Reykjavik 4.—10.
mai verður I Borgarapóteki og
Reykjavikurapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
■ans er opin allan sólarhring-
fnn. ■
'K.völd-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverpijarstöðinni.
Simi 21230.
Miðvikudagur 9. mai 1973
Líbanon:
MIKIL ÁTÖK í GÆR
Innrás talin hugsanleg
BEIRUT8/5 — í gærkvöld blossuðu bardagar upp
að nýju i Líbanon og lýsti stjórnin yfir neyðar-
ástandi i öllu landinu. Ekki eru aðilar á eitt sáttir
um hve margir hafi fallið i átökunum en fulltrúar
Palestinuaraba fullyrða að fleiri hundruð hafi
fallið. Yfirvöld i Libanon segja þá fullyrðingu ýkta.
Harðir bardagar geisuðu i allan
dag i og utan við höfuðborg
landsins milli stjórnarherdeilda
og sveita Palestinuaraba. Tvær
herþotur gerðu miklar árásir á
stöövar þjóöfrelsissveita Palest
inuaraba við flóttamannabúöir
viða i Beirút. Flugu þær amk. 15
sinnum yfir búðirnar, köstuðu
sprengjum og eldflaugum og
skutuúrfallbyssumá þær. PalesO-
inumenn svöruðu fyrir sig með
þvi að skjóta eldflaugum og kasta
sprengjum að stjórnarhernum.
Sýrlandsstjórn lokaði i dag
landamærunum milli landanna
og fordæmdi aöförina að
Palestinumönnum. Stjórnin
ákærði yfirvöld i Libanon fyrir aö
hafa i hyggju að útrýma sveitum
Palestinuaraba I landinu og á
sama tima skoruðu palestinskar
útvarpsstöövar i Sýrlandi á
sveitir Palestinuaraba að leggja
til atlögu gegn bækistöðvum
Libanonhers.
Svíar íhuga útfœrslu STOKKHÓLMI 8/5 — Svenska Dagbladet skýrir frá þvi i dag aö sænska stjórnin hafi uppi ráðagerðir um að færa landhelgina i Eystrasalti út i tólf milur en hún er nú sjö. Sagt er að höfuðástæðan fyrir þessari útfærslu sé mikil aukning fiskveiða Sovét- manna við strendur Sviþjóðar. Við vesturströnd Sviþjóðar hefur landhelgin þegar verið færð út i tólf milur og viðræður standa yfir milli Svia og annarra Eystrasaltslanda um útfærslu landhelginnar við austurströndina að sögn blaðsins. Þá hefur nefnd sem finnska stjórnin skipaði lýst sig samþykka útfærslu finnsku landhelginnar i tólf milur.
Amin breytir til
NAIROBI 8/5 — Idi Amin forseti
Uganda lýsti þvi yfir i gær, að
hann muni innan tið-
ar gera róttækar breytingar á
stjórn sinni. Er það i annað skipti
á 3 mánuðum sem hann fram-
kvæmir slikar breytingar. 6 af
átján ráðherrum stjórnar hans
hafa þegar sagt af sér og er búizt
við þvi, aö af þeim tólf, sem eftir
sitja, fái nokkrir i viðbót að fjúka.
Fréttamenn i Damaskus telja
að lesa megi úr yfirlýsingu Sýr-
landsstjórnar hótun um innrás
frá Sýrlandi verði bardögum milli
Libanonhers og Palestinuaraba
ekki taíarlaust hætt. Segir i yfir-
lýsingunni að Sýrlendingar hafi
fyllsta rétt til að berjast gegn
samsæri þvi sem lagt sé á ráðin
um erlendis gegn Libanon og and-
spyrnuhreyfingu Palestinu-
manna. Skorar stjórnin á
iibanönsku þjóðina og andspyrnu-
hreyfinguna að standa saman
gegn ráðabruggi yfirvalda i
Libanon. Þá hét fulltrúi
Palestinuaraba i Damaskus á öll
Arabalönd að sýna festu gegn til-
raunum Libanonstjórnar til að
brjóta hersveitir Palestinuaraba i
landinu á bak aftur.
Forsætisráöherra Libanon,
Amin Alhafez, sagöi af sér i
morgun eftir langan rikisráðs-
fund þar sem ma. var ákveðið aö
lýsa yfir neyöarástandi i landinu.
Klukkan 18.15 var dagskrá
Beirútútvarpsins rofin með til-
kynningu Suleiman Franjieh for-
seta Libanon þess efnis að hann
hefði fyrirskipað stöðvun loft-
árása ef skotbardögum yrði hætt
fyrir klukkan 19.
Hert var i dag á útgöngubanni
þvi sem gilt hefur i Beirút og
fimm öðrum borgum i Libanon og
hafði herinn strangt eftirlit með
þvi að það væri haldið. Þá hafa
allir fundir sem ,,ógnaö geta
öryggi landsins” eins og það er
orðað verið bannaðir svo og öll
dreifing dreifirita og flugmiða.
Kvikmyndahús, leikhús, nætur-
klúbbar og samkomustaðir eru
allir lokaðir og þeir sem voga sér
að opna geta átt á hættu að verða
dregnir fyrir herdómstól.
Frjálsar fóst-
ureyðingar
Osló 8/5. — Miðstjórn norska SF
flokksins hefur mótmælt tillögum
félagsmálaráðuneytisins til
breytinga á fóstureyðingalög-
gjöfinni. Segir miðstjórnin að til-
lögurnar hafi i för með sér að
erfiðara verði fyrir konur að fá
leyfi til fóstureyðinga.
Segir i yfirlýsingu miðstjórnar
að stefna flokksins sé sú að konan
sjálf eigi að hafa fullan ákvörð-
unarrétt um það hvort hún vilji
láta eyða fóstri eða ekki og að
stórbæta beri sálfræðiiega,
læknisfræöilega og félagslega
fræðslu þunguðum konum til
handa. En að konan eigi sjálf að
ákveða hvort hún vilji þiggja
slikra fræðslu.
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Ólafur R. Einarsson, menntaskólakennari, flytur
næsta erindi á umræðufundi Aiþýðubandalagsins i
Reykjavik. Erindi ólafs er hið næstsiðasta af 17
sem flutt verða. Ólafur nefnir viðfangsefni sitt:
„Þáttaskil i sögu Isl. verkalýðshreyfingar”. Um-
ræöufundurinn hefst kl. 20.30 á fimmtudagskvöld og
verður að Grettisgötu 3 eins og fyrri fundir.
Viðtalstimi og borgarmálaráðsfundur
Viðtalstimi borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins fellur niður i dag, og
einnig fundur borgarmálaráðs Alþýðubandalagsins sem vera átti i
kvöld.
Hér eru tvær myndir frá átökunum sem átt hafa sér stað i Libanon aö undanförnu. Sú til vinstri sýnir
skriödreka og hcrmenn úr Libanonheren á þeirri til hægri sjást brennandi flóttamannabúðir Palestinu-
araba.
Watergate:
Dean veitt
þinghelgi
WASHINGTON 8/5 —
Bandarísk þingnefnd
ákvað í dag að veita John
Dean, fyrrverandi ráðgjafa
Nixons, takmarkaða þing-
helgi ef það reyndist nauð-
synlegt til að hann skýri
nefndinni frá tengslum
Nixons við Watergate-
njósnirnar.
Takmörkuð þinghelgi felur .þó
ekki i sér að ekki sé hægt aö lög-
sækja Dean, heldur aö ekki má
nota það gegn honum fyrir rétti
sem hann kann aö skýra nefnd-
inni frá. Þinghelgin veröur að
hljóta samþykki réttarins, sem
hefur málið til meðferðar, en
dómsmálaráðherrann hefur 30
daga frest til að hamla gegn
gildistöku hennar.
Að sögn blaða hefur Dean sagt
rannsakendum málsins að Nixon
hafi óskað honum persónulega til
hamingju með aö honum hafi tek-
izt að dylja vitnéskju forsetans
um málið þegar það var til með-
ferðar i fyrrahaust.
Robert Cushman hershöfðingi
sem er næstæðsti yfirmaður
bandariska Natóflotans kom til
Washington i dag til að gera grein
fyrir hlutdeild CIA I innbroti þvi
sem gert var hjá sálfræöingi
Daniels Ellsbergs. Cushman var
yfirmaður leyniþjónustunnar
þegar Howard Hunt, sem dæmd-
ur hefur verið fyrir innbrotið I
Watergate-bygginguna.brauzt inn
til sálfræðingsins. Hunt hefur
fullyrt að CIA hafi látið sér i té
tæki til innbrotsins.
Pompidou
andvígur
toppfundi
PARÍS 8/5 — Pompidou
Frakklandsforseti hefur lýst
sig andvigan fundi þjóð-
höfðingja Vestur-Evrópu og
Bandarikjanna en þeir Brandt
og Nixon lýstu yfir áhuga sin-
um á slikum fundi i lok nýaf-
staðinna viðræðna þeirra i
Washington. Er búizt við þvi
að Pompidou geri Nixon ljósa
þessa afstöðu sina á fundi
þeirra i Reykjavik um næstu
mánaðamót.
Pompidou hefur ekki visað
hugmyndinni algerlega á bug
en lýst sig mjög neikvæðan i
hennar garð. Þá er hann
sagður andvigur þeirri endur-
skoður, á Atlanzhafs-
samningnum sem Kissinger
gerði að tillögu sinni fyrir
páska og einnig öllum stofn-
analegum tengslum milli
NATÓ og EBE.
Hafnargarður náttúrunnar
Veitir skj ól en skapar
mengunarvandamál
Hraungaröurinn mikli við
eystri bafnargarðinn I Vest-
mannaeyjum, sem i rauninni
hcfur stórbætt hafnarskilyrðin
þar, hefur nú með skjóli sinu
skapað nýtt vandamál i höfninni:
aukna mengun.
Allt holræsakerfi Vestmanna-
eyja, bæði leiðslur frá húsum og
fiskvinnslustöðvum, liggur til
hafnarinnar og rennur þar i sjó-
inn. Hingað til hefur höfnin
hreinsazt jafnóðum að einhverju
leyti vegna ókyrröar á sjónum,
sagði Páll Zóphaniasson bæjar-
verkfræðingur i viötali við Þjóð-
viljann, en eftir að hraunið mynd-
aði hinn stóra, náttúrulega skjól-
vegg við ytri hafnargarðinn virð-
ist ekkert hreyfast i höfninni.
Sagði Páll, að brýn nauðsyn
yrði aö hyggja að nýjum leiðslum
frá bænum og hefði reyndar lengi
staðið til vegna hollustuhátta við
fiskvinnslustöðvar að leiöa skolp-
ið og úrganginn eitthvert annað
og þá helzt yfir Eiöið og i sjóínn
þar.iSú áætlun þyrfti þó kannski
endurskoðunar viö, sagöi hann,
og væru rannsóknir i þessu sam-
bandi þegar hafnar.
Veriö er aö undirbúa dýpkun
innsta hluta hafnarinnar og farið
að undirbúa fullnaðarhreinsun
Vestmannaeyjakaupstaðar sam-
kvæmt samþykkt Viölagasjóðs
um helgina. Er reiknaö meö, að
hreinsun verði komin 'vel I gang
uppúr miðjum mánuði, sagöi
Páll, og verði lokið fyrir áramót.
Vinnan við að hreinsa gjall af göt-
unum heldur áfram og er ætlunin
Framhald á bls. 15.
Perú þjóðnýtir
sjávarútveginn
Rikisstjórn Perú lýsti þvi yfir i dag að hún
hefði ákveðið að þjóðnýta allan sjávarútveg
landsins. Hér er um stóran hlut að ræða þvi
ársafli Perúmanna undanfarin ár hefur verið
um 10 miljónir tonna.
Ástæðan fyrir þjóðnýtingunni var sögð sú að
mjög hefur dregið úr ansjósuafla Perúmanna
að undanförnu og einnig að miklir erfiðleikar
hefðu verið i sjávarútvegi og fyrirtækin rekin
ineð halla.
\