Þjóðviljinn - 17.06.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 17.06.1973, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. júni 1973. TÉKKNESKA SÝNINGIN í LAUGARDAL Ar í tékkóslóvakíu OPNAR I DAG KL. 15 Tékkar hafa mikla reynslu í sýningarhaldi, og hafa sýningarsvæði þeirra á heimssýningum bæði í Montreal í Kanada 1967 og einnig í Osaka í Japan, hlotið mikið lof fyrir frumlega skipulagningu. Sýningin í Laugardalshöllinni stenzt varla samanburð við þátttöku Tékkóslóvakiu á heimssýningun- um, en hún sýnir ykkur að þarna er á ferðinni fólk, sem hefur mikla reynslu i sýningarhaldi. GESTAHAPPDRÆTTI Hverjum aðgöngumiða fylgir happdrættismiði í gestahappdrætti sýningarinnar. í sýningarlok verður dreginn út vinningurinn: Ferðalag fyrirtvo til Tékkóslóvakiu i viku, með öllu tilheyrandi. Verð aðgöngumiða: Fullorðnir 100. kr. Börn 35. kr. Þessi sýning er að uppbyggingu frábrugðin öllum sýningum sem haldnar hafa verið hérá landi. Þessi sýning er hvort tvegg ja í senn vörusýning og almenn kynning á þjóðum Tékkóslóvakiu, lifi þeirra og starf i. Sýningunni lýkur sunnudaginn 1. júli og er opin daglega kl. 15—22. LÚÐRASVEIT í tilefni af sýningunni, er komin til landsins 70 manna lúðrasveit forsetahallarinnar í Tékkóslóvakiu. Hljóm- sveitin mun leika á Austurvelli í dag. Mánudaginn 18. júní heldur lúðrasveitin hljómleika í Há- skólabíói kl. 20.30 og mun allur aðgangseyrir renna til Vestmannaeyjasöfnunarinnar, en miðinn kostar kr 200.00. Miðar seldir í Háskólabíói. Stjórn sýningarinnar, „Ar i Tékkóslóvakiu” og sendiráð Tékkóslóvakíu á íslandi, senda landsmönnum öllum beztu árnaðaróskir á þjóðhátiðardegi Islendinga 17. júni TÉKKÓSLÓVAKÍA í HNOTSKURN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.