Þjóðviljinn - 17.06.1973, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. júni 1973.
TÉKKNESKA SÝNINGIN í LAUGARDAL
Ar í tékkóslóvakíu
OPNAR I DAG KL. 15
Tékkar hafa mikla reynslu í sýningarhaldi, og hafa
sýningarsvæði þeirra á heimssýningum bæði í Montreal
í Kanada 1967 og einnig í Osaka í Japan, hlotið mikið
lof fyrir frumlega skipulagningu.
Sýningin í Laugardalshöllinni stenzt varla
samanburð við þátttöku Tékkóslóvakiu á heimssýningun-
um,
en hún sýnir ykkur að þarna er á ferðinni fólk, sem
hefur mikla reynslu i sýningarhaldi.
GESTAHAPPDRÆTTI
Hverjum aðgöngumiða fylgir happdrættismiði í
gestahappdrætti sýningarinnar.
í sýningarlok verður dreginn út vinningurinn:
Ferðalag fyrirtvo til Tékkóslóvakiu i viku, með
öllu tilheyrandi.
Verð aðgöngumiða:
Fullorðnir 100. kr.
Börn 35. kr.
Þessi sýning er að uppbyggingu frábrugðin öllum
sýningum sem haldnar hafa verið hérá landi.
Þessi sýning er hvort tvegg ja í senn vörusýning og
almenn kynning á þjóðum Tékkóslóvakiu, lifi þeirra og
starf i.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 1. júli og er opin
daglega kl. 15—22.
LÚÐRASVEIT
í tilefni af sýningunni, er komin til landsins 70 manna
lúðrasveit forsetahallarinnar í Tékkóslóvakiu. Hljóm-
sveitin mun leika á Austurvelli í dag.
Mánudaginn 18. júní heldur lúðrasveitin hljómleika í Há-
skólabíói kl. 20.30 og mun allur aðgangseyrir renna til
Vestmannaeyjasöfnunarinnar, en miðinn kostar kr
200.00.
Miðar seldir í Háskólabíói.
Stjórn sýningarinnar, „Ar i Tékkóslóvakiu” og sendiráð
Tékkóslóvakíu á íslandi, senda landsmönnum öllum
beztu árnaðaróskir á þjóðhátiðardegi Islendinga 17. júni
TÉKKÓSLÓVAKÍA í HNOTSKURN