Þjóðviljinn - 19.06.1973, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur lí). júni 1973.
g Holland er vætusamt og því
framleióa Hollendingar mjög
| fínt bordsalgsem þolir betur
S raka og rennur því alltaf jafn
(ö leikandi létt!
f NEZO borósalt er ódýrast
í kaupfélaginu ■;*
HBS vy
Aðalfundur
Barnavinafélagsins
Sumargjafar
verður haldinn að Lækjargötu 14b
fimmtudaginn 21. júni kl. 18.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
VERKAMENN
Viljum ráða 2 menn til sementsafgreiðslu
og annarra starfa.
Sementsverksmiðja rikisins
Simi 83400.
Fró Gagnfræða-
skólanum á Selfossi
Innritun nemenda i fjórða og fimmta
bekk fer fram i skólanum miðvikudaginn
20. júni og 21. júni frá kl. 10-12 og 13-16
báða dagana. Simi 99-1256.
Inntökuskilyrði i fimmta bekk eru þau að umsækjandi
hafi hlotið 6,0 eða hærri meðaleinkunn á gagnfræðaprófi i
islenzku I, islenzku II, dönsku, ensku, stærðfræði, eða 6,0
eða hærra á landsprófi, miðskóla.
Efþátttaka leyfir verður kennt á fjórum kjörsviðum, það
er á hjúkrunar-, tækni-, uppeldis- og viðskiptakjörsviði.
Skólastjóri.
Viðskipti Sovétríkja
og Bandaríkja
í grein sem dr. J. Sjérsjnéf hef-
ur birt i Prövdu segir á þessa
leið:
Menn spyrja sig nú að þvi
hverjar séu framtiðarhorfur
efnahagslegra samskipta Banda-
rikjanna og Sovétrikjanna. Svör-
in eru mjög mismunandi. Sumir
bandariskir hagfræðingar telja
að þegar á næstu árum muni við-
skipti landanna 10—15 faldast og
nema 5000 miljónum dollara ár-
lega. En til eru sérfræðingar sem
álita aö við aðstæður sósialisks
hagkerfis skipti utanrikisverzlun
litlu máli, að sovézkar áætlanir
miði við að landið sé sem mest
sjálfu sér nógt og þvi séu mögu-
leikar á viðskiptum takmarkaðir.
Sovézkir hagfræðingar hafa og
mjög hugann við mat á viðskipt-
um milli landanna og á þvi, i
hvaða formi þau gætu skynsam-
legust orðið.
t»egar i október 1919 sagði
Lenin aö „við erum eindregið
hlynntir efnahagslegu samkomu-
lagi við Bandarikin, við öll lönd,
en Bandarikin sérstaklega ”.
Þessari stefnu var áfram fylgt á
þriðja áratugnum, meðan enn var
ekki stjórnmálasamband við
Bandarikin, og á þeim fjórða þeg-
ar utanrikisverzlunokkar tókst að
þróast sérlega hratt, og á árum
sameiginlegrar baráttu gegn
Hitler. En eftir strið rauf banda-
riska stjórnin i reynd viðskipta-
tengsli landanna. Sú stefna að
efla viðskipti landanna er þvi ekki
ný fyrirokkur, en skoðanir okkar
á mikiivægi og þróunarmöguleik-
um þeirra hljóta að breytast við
nútimaaðstæður.
Við höfum þá i huga eftirfar-
andi:
1 fyrsta lagi að ræða við þær
þjóðir sem hafa öflugast fram-
leiðslukerfi og þar með þá stóru
heimamarkaði og margþættan
útflutning sem eru forsendur
fyrir viðtæku efnahagslegu sam-
starfi. t öðru lagi er það báðum
löndum i hag að nýta sér alþjóð-
lega verkaskiptingu i samskipt-
um sinum, og mun þetta hafa það
i för með sér að þungamiðja bar-
áttu milli tveggja þjóðfélagskerfa
færist yfir á efnahagslega sam-
keppni. t þriðja lagi er nauðsyn-
legt að taka með i reikninginn
möguleika og hagsmuni aðila að
þvi er varðar notkun á ýmsum
formum langtimasamkomulags
um efnahagsmálin. Aö lokum er
það mjög þýðingarmikið að bæði
löndin eru i forystu i visindum og
tækni. Aukið samstarf á sviðum
eins og lausn orkuvandamála,
geimrannsóknir, umhverfisvernd
ofl. þýðir ekki aðeins að mikið fé
sparast — þýðing þess nær ekki
aðeins til landanna tveggja. bessi
samvinna verður i reynd eini
möguleikinn til að leysa ýmis
flókin vandamál sem mæta
mannkyninu á siðasta fjórðungi
20. aldar.
Þróun til eðlilegrar sambúðar
hefur þegar borið þann árangur
að viðskipti landanna hafa þre-
faldazt á sl. 12 mánuðuin og farið
yfir 500 milj. dollara i april var
undirritaður samningur við
Oceidental Petroleum sem er i
sjálfu sér mikil aukning viðskipta
— hann gerir ráð fyrir viðskiptum
fyrir 8 miljarði doilara á næstu
20 árum. Samningur þessi er
fyrsta skrefið til stórfeildra við-
skipta milli landanna.
Ýmis bandarisk fyrirtæki taka
nú þegar þátt i ýmsum helztu
mannvirkjum fimm ára áætl-
unarinnar. Swindell-Dressler og
nokkur önnur fyrirtæki veita
tæknilega aðstoð við byggingu
bilaverksmiðjunnar við Kama.
Occidental Petroleum mun taka
þátt i að reisa mikla áburðar-
verksmiðju.
Auk þessa eru að skapast horf-
ur á samvinnu á sviði léttaiðnað-
ar. Reynsla siðari ára sýnir, að
með bættum lifskjörum i Sovét- |
rikjunum eykst mjög hluti
neyzluvöru i innflutningi.
Bandarisk reynsla i fjöldafram-
leiðslu slikrar vöru og svo i skipu-
lagningu þjónustu er að sjálf-
sögðu áhugaverð. Þegar hefur !
verið gerður samningur við Tool |
and Dye um kaup á heilli verk-
smiðju sem býr til ýmisleg heim-
ilistæki.
Bandarikjamenn hafa vaxandi
áhuga á •amstarfi um orkumál.
Sala bandarisks útbúnaðar gæti
og hjálpað til að þróa oliu- og gas-
iðnað okkar. Og sala jarðgass til
Bandarikjannamundi greiða fyrir
alla bandariska þátttöku i þess-
um viðskiptum.
Gleymum ekki breytingum á
efnahagssamstarfi, sem koma
t.d. fram i þvi, að i marz var sam-
ið um vörukaupalán til sovézkra
Jónsmcssumót sjóstangaveiði-
manna verður haldið i Reykjavík
22. júni n.k. Róið veröur kl. 22 að
kvöldi og komið að kl. 7 að morgni
laugardagsins 23. júni. Um
kvöldið verður svo verðlauna-
afhending, en verðlaun eru fjöl-
mörg og veitt fyrir mestan afla
einstaklings, stærstu fiska og
siðast en ekki sizt til aflahæstu
fjögurra manna sveitar.
Það er Morgunblaðið, sem
gefur flest verðlaunin, er keppt
verður um, en þau eru mjög
glæsileg, styttur og bikarar af
mörgum gerðum.
í fyrra voru milli 70 og 80
keppendur i Jónsmessumótinu,
sem þá var haldið i Grindavik,og
búizt er við góðri þátttöku núna,
m.a. verða keppendur frá
Akureyri, Keflavík og Vest-
mannaeyjum. Þátttökutilkynning-
ar verða að hafa borizt fyrir 13.
júni.
Agúst-mótið á Akureyri.
Hið árlega sjóstangaveiðimót
Akureyringa verður sennilega 25.
verzlunarfyrirtækja til langs
tima — nemur það 225 miljónum
dollara. Þetta er að visu ekki há
upphæð, en mjór er mikils visir.
Þetta samstarf mun gera
Sovétrikjunum kleift að auka
hraðann isósialískri uppbyggingu
og verða við vaxandi kröfum
heima fyrir. Og að þvi er
Bandarikin varðar mun það sjá
þeim fyrir ábatasömum pöntun-
um, hjálpa til að leysa ýmis brýn
vandamál bandarisks efnahags-
lifs og veita mörgum þúsundum
verkamanna vinnu. apn.
ágúst i sumar og er talið vist að
þátttaka verði fjölmenn i þvi
móti. Róið verður frá Dalvik að
vanda, og fiskað á norðanverðum
Eyjafirði, út af Arskógsströnd-
inni, i kringum Hrisey og út með
Ólafsfjarðarmúla.
EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ
á tslandi 1974?
Miklar likur eru fyrir þvi, að
Evrópumeistarmót sjóstanga-
veiðimanna verði á Islandi næsta
ár. Sótt hefur verið um að halda
mótið hér, en frekari ákvörðun
verður tekin um það á þingi
Evrópusambands sjóstangaveiði-
manna i Plymouth i september,
en þar fer fram meistarmótið i
ár.
Evrópumeistaramótið fór fram
á tslandi 1968, og komu þá 76
keppendur erlendis frá, en alls
voru keppendur um 160.
Forseti Sjóstangaveiðifélags
Reykjavikur er nú Birgir J.
Jóhannsson, tannlæknir.
Orðsending
til viðskiptavina Sjóvátrygg-
ingarfélags íslands h.f.
Við höfum i dag sent út tilkynningu um
iðgjald af ábyrgðar- og kaskotryggingum
bifreiða. Við viljum vekja athygli yðar á
þvi, að gjaldfrestur er 14 dagar frá póst-
lagningu tilkynningarinnar.
Vinsamlega greiðið þvi iðgjöldin hið allra
fyrsta.
SjóvátrgqqiÍttÉflaq Islands
Húsmæðraskólinn
Laugum S-Þing.
starfar i tveimur námstimabilum næsta
skólaár.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, simi
um Breiðumýri.
Jónsmessu-
mót sjóstanga
veiðimanna