Þjóðviljinn - 19.06.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 19.06.1973, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 19. júni 1973. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA15 Nútima tónlistarhátíðin og þing ISCM hefst í dag Hvað kom Framhald af bls. 11. að gæta. Ekki bætti úr skák að óreyndur markvöröur var á bak við það sem kallaðist vörn i þessum leik, og þrátt fyrir marga góða hluti hans má kenna honum um 4-5 mörk. Nokkrar ástæður liggja til þessa 1) Ahugaleysi leikmanna sem var óskiljanlegt, þar eð baráttan hefur ávallt verið skæðasta vopn liðsins. 2) Blautur grasvöllurinn reyndist liðinu ákaflega erfiður, enda enginn grasvöllur i Kópavogi sem hægt er að leika á. 3) Nýr markvörður sem ekki stóð sig sem skyldi. Skuldinni verður þó ekki skellt á hann eingöngu. Leti og viljaleysi Blikanna bitnaði á honum einum.og hlutverk hans var þvi ekki öfundsvert. Það verður að kallast gott af honum að nenna að hanga i markinu allan leikinn og gjalda þannig fyrir tillitsleysi meðspilara sinna. 4) Þekking varnarmanhanna á hlutverki sinu i leiknum var ekki fyrir hendi, og þurftu þeir þvi að finna sér ýmislegt til dundurs meðan á leiknum stóð. A köflum fannst mannj, að aðeins þyrfti að skjóta á mark Breiðabliks, þá væri boltinn i netinu, enda verður bvi vart neitað að 'Skagamenn höfðu heppnina með sér i leiknum. Með sömu heppni Blikanna hefði leikurinn endað 10-7. Þetta var leikur hinna opnu varna, og mörkin hefðu þvi getaö orðið enn fleiri. Sundmót Framhald af bls. 11. 100 metra bringusund kvenna: 1. Guðrún Pálsdóttir Æ, 1.24.4 mín. 2. Helga Gunnarsdóttir Æ. 1.27,2 min. 3. Hildur Kristjánsdóttir Æ. 1.30,7 min. 100 metra bringusund karla: 1. Guðmundur ólafsson SH 1.15,6 min. 2. Elias Guðmundsson KR 1.17.4 min. 3. Flosi Sigurðarson Æ 1.17,9 min. 50 metra skriðsund telpna, f. 1959 og siðar: 1. Þórunn Alfreðsd. Æ. 33,0 sek. 2. ólöf Guðmundsd. Á. 38,7 sek. 3. Regina ólafsd. KR 42,6 sek. 50 metra skriösund sveina, f. 1959 og siðar: 1. Hermann Alfreðss. Æ. 30,0 sek. 2. Brynjólfur Björnss. Á. 31,0 sek. 3. ívar Friðriksson Æ, 33,0 sek. Úr ræðu Framhald af 4. siðu. réttindaþjóðum gengur illa að aðlaga sig nýjum timum og breyttri veröld. Við Islendingar göngum þvi um þessar mundir i gegnum eld- raun. Það veltur á miklu, að við stöndum saman sem einn maður og látum ekki kúgunar- andann hrósa sigri. Við höfum viljað sýna sanngirni. Við erum reiðubúnir til bráða- birgðasamkomulags um til- tekinn umþóttunartima, auð- vitað að fullnægðum ákveðnum skilyrðum. Og það er og verður ófrávikjanlegt skilyrði fyrir viðræöum, að hið volduga bandalagsriki láti af hernaöarlegri ihlutun á islenzku yfirráðasvæði og kalli herskip sin heim af tslands- miðum. Engum er það skömm að gera sættir með sæmd. Hér skal engu um það spáð, hver framvindan verður á næstunni. En hér sem endra- nær eru það leikslokin, sem mestu máli skipta. Erlendir menn, sumir hverjir, kalla þetta þorska- strið i hálfgerðum hæðnis- og litilsvirðingartón. En fyrir okkur er þetta sjálfstæðisstrið — landvarnarbarátta. Og á þessari hátiðarstundu senda allir tslendingar kæra kveðju til okkar landvarnar- manna — skipshafna varð- skipanna — og þakka þeim frábær störf. Bæjarpóstur Framhald af bls. 2. mjóstræti hans að hraðbrautum og gangstéttirnar að bilastæðum. I þessu máli mænir vonin ekki til þinghússins við grænan Austur- völl,sem skáldiðyrkirum, heldur til borgarstjórnar-salarins viö Skúlatún. BJÖRN S. Stefánsson, Vesturvallagötu 5 Sýning opnuð Framhald af bls. 1 sem væru stærri, voldugri og fjöl- mennari og væri það kannski ein af ástæðunum til að Tékkar kysu að hafa samskipti við sem flesta og ekki sizt smærri þjóðir eins og okkur tslendinga. Tékkóslóvaska sýningin mun standa til 1. júli. Sýningin er ekki mjög stór, en þykir mjög hug- vitsamlega sett upp og sannar, að möguleikar eru á öðru en bása- kerfinu, sem hingað til hefur tiðkazt á sýningum i Laugardals- höllinni. Við opnunina og á meðan gestir gengu i höllina lék ein þekktasta lúðrasveit Tékkóslóvakiu utan dyra, Lúðrasveit Hradcany- kastala. Sveitin lék einnig við Bernhöftstorfuna milli barna- og fullorðinsskemmtana á Lækjar- torgi 17. júni og hélt tónleika i Háskólabiói i gærkvöld til ágóða fyrir Vestmannaeyinga. —vh Heimdallur Framhald af bls. 1. Geirs, Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Þaö markvert gerðist á þessum fundi, að Þorvaldur Garðar réðst harkalega á Geir fyrir ummæli hans i útvarpi og sjónvarpi vegna Evertonmálsins, sem hann kvað Geir hafa gefið án samráðs við nokkurn mann. Ummæli Geirs kvað Þorvaldur mundu kosta Sjálfstæðisflokkinn atkvæðatap i sjávarplássum. Samheldnin og samstaðan, sem skýrt var frá að væri orðin eftir landsfund flokksins i vor, þykir mörgum kynleg orðin. —úþ Heiðraður Jóhann J.E. Kúld Það er ekki oft, sem menn fá sérstök verölaun frá öðrum lönd- um fyrir skrif sfn hér i Þjóð- viljanum. Þetta gerðist samt nú á dögun- um, þegar Jóhann Kúld fékk sér- staka viðurkenningu senda frá Noregi fyrir grein hér i blaðinu, scm birtist fyrir nokkrum mánuðum. Jóhann skrifaði siðast liðið haust i þætti sinum Fiskimál grein um nýjustu uppfinningu Raufossverksmiðjanna i Noregi, — saltfiskþurrkunarvél, sem verksmiðjurnar hafa gert úr garði. Forráðamenn norsku verk- smiðjanna munu hafa fengið grein Jóhanns i hendur, og verið svo ánægðir með þessa kynningu á uppfinningu sinni, aö þeir töldu ástæðu til að veita Jóhanni sér- staka viðurkenningu, sem honum hefur nú borizt i hendur. Umboðsaöili norsku verk- smiðjanna hér á landi er Innflutningsdeild sjávarafurða SIS. Gylfi Sigurjónsson frá Inn- flutningsdeildinni afhenti Jóhanni heiöursgjöfina, sem eru erma- hnappar úr gulli með fangamarki verksmiðjanna og norsku rikis- kórónunni. Gylfi tók fram, að mjög fátitt væri, að verk- smiðjurnar veittu mönnum sér- staka viðurkenningu og alls ekki nema veruleg ástæða þætti til. Alþjóöatónlistarhátiðin, sem haldin er i tengslum við þing Alþjóðasamtaka um nútima tón- list, sem hefst hér i Reykjavik I dag, var opnuð i gærkvöld með móttöku og flutningi islenzkrar tónlistar i Myndlistarhúsinu á Miklatúni. Alls eru komnir hingaö um 100 manns frá útlöndum i sambandi viö tónlistarhátiðina og þingiö, svo sem tónskáld, flytjendur, gagnrýnendur og fulltrúar erlendra útvarpsstöðva. Tónleikarnir við opnunina i Myndlistarhúsinu i gærkvöld voru aðallega miðaöir við að gefa erlendu þátttakendunum kost á að kynnast sýnishornum af islenzkri nútimatónlist og voru flutt verk eftir Jónas Tómasson, Hafliða Hallgrimsson og Jón Leifs. Kvartett skipaður Jóni H. Sigurbjörnssyni, Gunnari Egil- son, Þóri Þórissyni og Stefáni Stephensen flutti kvartett eftir Jónas Tómasson, Halldór Haraldsson pianóleikari lék Fimm þætti fyrir pianó eftir Haf- liða og Skólakór Hamrahliðar- skólans söng Requiem Jóns Leifs undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. Fundarhöld þings ISCM hefjast i dag og fara fram að Hótel Loft- leiðum.og höfðu 16 aðildarfélög sent fulltrúa til þingsins i gær, en etv. er von á fleirum. Fyrstu opinberu tónleikarnir á tónlistarhátiðinni eru kl. 5 sd. i dag i Norræna húsinu og flytur þá Norski blásarakvintettinn verk eftir norsku tónskáldin Arne Nordheim, Finn Mortensen, Antonio Bibalo og Sigurd Berge, Finnann Erkki Salmenhaara og Sviann Karl-Erik Welin. tslenzkir tónlistarmenn sjá um kvöldtónleika dagsins einnig i Myndlistarhúsinu, og flytja verk tónskálda frá ýmsum löndum. Grikkjans Vasilis Tenidis, Tékkans Mareks Kopelent, Yaakov Gilboa frá tsrael, Bart Schurink frá Hollandi, Homer Lambrecht frá Bandarikjunum, Maurice Benhamou frá Frakk- landi, Chung Gil Kim frá Kóreu, Hidenori Tokunaga frá Japan og Olov A. Thommesen frá Noregi. Elektrónisk tónlist og önnur nútimatónlist á segulböndum eftir tónskáld viðsvegar að úr heiminum verður flutt i Mynd- listarhúsinu á morgun kl. 5-7 sd., miðvikudag, föstudag og laugar- dag kl. 2-4 sd.,og annað kvöld verða tónleikar Lyric Arts Trio i Myndlistarhúsinu kl. 8 sd. Flytur trióið verk eftir tónskáld frá Kanada, Argentinu Sviþjóð, Belgiu og Japan og eftir einn tslending, Atla Heimi Sveinsson, Um listHelga Bergmanns Helgi Bergmann hefur haft málverkasýningu nú fyrir nokkru. I sambandi við þessa sýningu þykir mér það undarlegt, að enginn skuli hafa skrifað um þessar myndir. Svo marga list- fræðinga eigum við þó. Það er minnsta kosti að sjá svo þegar peningar eru i boði. Að minum dómi var þetta gull- falleg sýning. Þar þurfti maður ekki að spyrja hvernig myndin ætti að snúa eða hvernig hún ætti að vera. Þetta voru meiripartur- inn náttúrumyndir. Þar var ekki kastað höndunum til neins. Þær voru unnar af mestu prýði. Ég er undrandi að úthlutunar- nefnd listamannalauna skuli aldrei hafa munað eftir Helga á veturna þegar úthlutað er. Helgi er fátækur og heilsuveill og ætti eins skilið að fá styrk eins og sumir sem hljóta styrk. Helgi Bergmann er einn okkar beztu natúrallistamanna siðan Kjarval fór frá. Menn vilja ekki láta hann njóta sannmælis af þvi að hann er sannur og fátækur. Það er skylt fagurfræðingunum að skýra al- menningi list Helga og gefa fólki skilning á i hverju er mest list. Það er oft erfitt að skapa nýjan heim fyrir sofandi fólk. j.a. Bizzarreries fyrir flautu, pianó, sópran og segulbönd, sérstaklega samið fyrir trióið. Auk tónleikanna i kvöld verður islenzkt framlag til hátiðarinnar á fimmtudagskvöld, tónleikar Sinfóniuhljómsveitar tslands i Háskólabiói með einleikaranum Werner Taube cellóleikara frá Bandalag háskólamanna (BHM) var stofnað árið 1958, og hefur öflun samningsréttar frá upphafi verið helzta baráttumál þess, en sem kunnugt er hefur Bandalag starfsmanna rikis og bæja farið með fyrirsvar allra rikisstarfsmanna hvað varðar samningsgerö. BSRB hefur þvi einnig farið með samningsgerð fyrir háskólamenn i opinberri þjónustu, þótt þeir væru ekki v,ngur aðilar að þvi. t april s.l voru samþykkt ný lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og segir þar, að heildarsamtök starfsmanna rikisins, sem fjármálaráðherra hefur veitt viðurkenningu, fari með fyrirsvar rikisstarfsmanna um gerð aðalkjarasamninga. Hinn 25. mái s.l. afhenti fjár- málaráðherra formanni BHM formlega viðurkenningu sem samningsaðila skv. fyrrnefndum lögum. Bandalag háskólamanna mun þvi annast gerð aðalkjara- samnings fyrir háskólamenn i opinberri þjónustu i næstu samn- ingum. Félagsmenn BHM eru nú um 2000,þar af eru 7—800 rikisstarfs- menn. t stjórn bandalagsins eru: Markús A. Einarsson, veðurfræð- ingur, formaður, Heimir Þor- Þýzkalandi. Nánar verður sagt frá dagskrá tónlistarhátiöarinnar jafnóðum næstu daga, en rétt er að geta þess, að aðgöngumiðar eru sendir i tslenzkri tónverka- miðstöð, Laufásvegi 40,og við inn- ganginn hvert sinn, nema að elektrónisku tónleikunum; þar er aðgangur ókeypis. —vh leifsson, menntaskólakennari, varaformaður, Hrafn Bragason, lögfræðingur, gjaldkeri, Hilmar Ölafsson, arkitekt, ritari, Bjarki Magnússon, læknir, meðstjórn- andi. 1 varastjórn eru: Sr. Grimur Grimsson, Eva Júliusdóttir sál fræðingur, Stefán Hermannsson, verkfræðingur. Framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna er Guðriður Þorsteinsdóttir, lögfræðingur. (Frá Kandalagi háskólanianna ) Shll>AUl(.(R« KlhlSINS M/S BALDUR fer til Stykkishólms, Flateyrar og Brjáns- lækjar n.k. fimmtu- dag. Vörumóttaka á miðvikudag og til hádegis á fimmtudag. Rikisskip WOTEL LOFR™ óskar að ráða starfsfólk í gestamóttöku 1. ágúst og 1. september. Upplýsingar gefur móttökustjóri miðvikudag og fimmtudag n.k. kl. 14-16 (ekki i sima). ISCM TONLEIKAR Þriðjudaginn 19. júni kl. 17 Norski blásarakvintettinn. Fimmtudaginn 21. júni kl. 17 Harpans Kraft frá Sviþjóð. Laugardaginn 23. júni kl. 22 Jazz-kvöld Aðgöngumiðasala við innganginn NORRÆNA HÚSIÐ Bandalag háskdamanna mun annast gerð kjarasamninga

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.