Þjóðviljinn - 26.06.1973, Side 1
DWDVIUINN
KRO
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
SENDÍBILASTOÐIN Hf
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Þriðjudagur 26. júní 1973. —38. árg. — 143. tbl.
LOKS ER SKRIÐUR KOMINN Á
Hemá inssa mningur upp-
segjanlegur um áramót
NATO var
sent bréfið
i gœr
Ríkisstjórn íslands sendi
Atlanzhafsbandaiaginu í
gær formlega tilkynningu
um að óskað væri endur-
skoðunar á herstöðva-
samningnum frá 1951/
samkvæmt 7. grein hans.
I 7. grein hernáms-
samningsins frá 1951 segir:
/#Ef slík málaleitun um
endurskoðun leiðir ekki til
þess/ að ríkisstjórnirnar
verði ásáttar innan 6
mánaða frá því að mála-
leitunin var borin framr
getur hvor rikisstjórnin,
hvenær sem er eftir það,
sagt samningnum upp, og
skal hann þá falla úr gildi
12 mánuðum síðar."
Að 6 mánuðum liðnum
hér frá, þ.e. við lok þessa
árs getum við því sagt
samningnum upp einhliða,
og verður þá herinn að fara
á næstu 12 mánuðum þar á
eftir eða fyrir árslok 1974.
Stefna ríkisstjórnarinnar
í málinu er skýlaus, en það
er kjósenda í landinu að
tryggja, að meirihluti
alþingismanna standi
ótvílráður að baki ríkis-
stjórninni, þegar mest á
reynir í þessu stórmáli, sem
á annan áratug hefur sett
hvað mestan svip á
íslenzka sjálfstæðisbaráttu.
Hér fylgir orörétt fréttatil-
kynning utanrikisráöuneytisins:
„Islenzka rikisstjórnin fór þess
formlega á leit i dag viö ráö
Noröur-Atlanzhafsbandalagsins,
aö þaö hæfi endurskoöun á
varnarsamningnum milli tslands
og Bandarikjanna frá 5. mai 1951,
i samræmi viö ákvæöi 7. greinar
þess samnings.”
EBE
sýnir
klœrnar
Þœr eru bitlausar
Efnahagsbandalagiö hefur enn
sent frá sér tilkynningu um að
þaö neiti að staðfesta gerðan við-
skiptasamning við okkur íslend-
inga um tollfriöindi á sjávaraf-
uröum.
Upphaflega var staðfestingu
frestaö til 1. april, siðan til 1. júli
Framhald á bls. 15.
Vísvitandi falsanir eina skjól MORGUNBLAÐSINS
VINDHÖGG ÁRSINS
Endurprentun úr tímariti Fiskifélags Islands kölluð „ritstjórnargrein
??
Þjóðviljans
Þjóðviljinn mótmælir
landgrunnskenningunni.
í þessari ritstjórnar-
grein Þjóðviljans er
landgrunnsstefnunni i
fyrsta sinn andmælt á
innlendum vettvangi.
Slikar staðhæfingar
eru endurteknar hvað
eftir annað og i öllum
hugsanlegum afbrigðum
i Morgunblaðinu um síð-
ustu helgi, — í forystu-
grein, i staksteinum og á
fréttasiðum,með viðeig-
andi ljósmyndum.
Þegar Morgunblaðiö veit sig
fara með algerar lygar þá hefur
það jafnan hæst. Ráðamenn
blaösins hafa svo sannarlega ekki
gleymt boöorðinu sem Göbbels
áróðursstjóri Hitlers brýndi fyrir
aödáendum sinum hér á árunum,
aö lygina þurfi bara að endurtaka
nógu oft, — þá fari menn að trúa.
Þjóöviljinn hefur að sjálfsögðu
Tlmaritiö ÆGIR, sem Fiskifélag'
tslands gefur út og fiskimála-
stjóri er ábyrgöarmaður aö. Hér
birtist greinin, sem Morgunblaöiö
lýgur að hafi veriö ritstjórnar-
grein i Þjóðviljanum.
Már Elisson, fiskimálastjóri — i
andstööu viö grundvallarstefnu
islands i fiskveiöilögsögumálum
samkvæmt kenningu Morgun-
blaösins.
aldrei andmælt rétti okkar Is-
lendinga og annarra strandrikja
til auðæfa landsgrunnsins eða
fiskimiöanna yfir landgrunninu,
hvorki i ritstjórnargrein né ann-
ars staðar.
Og ráðamenn Morgunblaösins
vitá jafn vel og aðrir landsmenn,
aö fyrir þvi, að slikt gæti gerzt, er
enginn fræöilegur möguleiki.
En hvað er þá að segja um þá
grein, sem Morgunblaðiö vitnar
til. Einfaldlega þetta:
Greinin var tekin orðrétt úr
timaritinu ÆGI, sem Fiskiféiag
tslands gefur út, — 8. tölublaöi
1973 og er þar á blaðsiðu 163.
Ritstjóri og ábyrgöarmaður
timaritsins ÆGIS er Már Elis-
son, fiskimálastjóri, sem hingaö
til hefur veriö talinn góöur og
gegn Sjálfstæðismaður.
Ef taka ætti mark á Morgun-
blaöinu, er þaö þvi ekki Þjóövilj-
Framhald á bls. 15.
Landhelgisviðræður við Norðmenn í dag
í dag fara fram viöræöur viö
Norömenn um landhelgismál,
en Norðmenn hafa fariö fram
á veiöiheim iidir innan
isienzku fiskveiöilandhelg-
innar svipaöar þeim sem
Belgar sömdu um fyrir sig á
sinum tima.
Hans G. Andersen, Jón
Arnaids og Már Elisson munu
taka þátt i þessum viöræöum
viö Norömenn fyrir tsiands
hönd.
Viöræöurnar fara fram i
Reykjavik.