Þjóðviljinn - 26.06.1973, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 26.06.1973, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 26. júni 1973. Ö[]aH2>ÖGÖD:'(2) fiJjiXH&ÉGÖl? Stórskotalið Skagamanna en n á ferð- inni Og nú voru þaöAkureyr- ingar sem máttu þola stórtap,6:2 fyrir ÍA Hin stórkostlega fram- lína Skagamanna haföi greinilega engu gleymt frá 10:1 leiknum við UBK um síðustu helgi er Skagamenn sóttu Akureyringa heim á sunnudaginn og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 6:2. Matthías Hallgrímsson var sem fyrr maðurinn á bak við þennan stórsigur (A. Við hann réðu Akureyring- ar lítið sem ekkert og má segja, að hann hafi lagt grunninn að öllum mörkum ÍA auk þess að skora 2 þeirra sjálfur. Eftir þetta tap er staða Akureyringa orðin heldur slæm í deild- inni, aðeins 1 stig eftir 5 leiki og fallskrekkur er greinilega farinn að setja svip sinn á leik liðsins. Annars voru Akureyringar mjögóheppniraðskora ekki fleiri mörk i fyrri hálfleik, en þeir gerðu. Þeir áttu mun meira i leiknum þá, enda léku þeir undan allsterkri sunnangolu. En ekkert vildi heppnast hjá þeim og smám saman brotnaði liðið niður, þótt um þverbak keyrði þegar dæmd var vitaspyrna á liðið, vita- spyrna, sem átti sér enga stoð. En hyggjum að gangi leiksins. Eins og áður segir, sóttu Akureyringar mun meira i fyrri hálfleik. Strax á 8. minútu bar þessi sóknarþungi árangur. Steindór sendi góðan bolta inn i vitateiginn þar sem Þormóður Einarsson var fyrir og hann skaut föstu skoti að marki. Davið tA- markvörður varði, en hélt ekki boltanum og hann hafnaði i net- inu, 1:0. En nú fór óheppnin að elta liðið. Hvað eftir annað voru Akureyr- ingar i ágætum færum, en ekkert Matthias Ilallgrimsson leikur á tvo Akureyringa og skorar. (Ljósm Gunnar Steinn). heppnaðist. Stórskotaliö ÍA lét lit- ið á sér kræla á þessum tima. En svo var það á 35. minútu að Aðalsteinn Sigurgeirsson átti i höggi við unglingalandsliðs- manninn Karl Þórðarson og Karl féll innan vitateigs og Magnús V. Pétursson dæmdi þegar vita- spyrnu. Nær allir voru á einu máli um að þessi vitaspyrna hefði ekki átt sér neina stoð. Úr henni jafn- aði Matthias Hallgrimsson fyrir IA, 1:1 og þar með var ÍA-fram- linan komin i gang. Þó áttu heimamenn ágætt marktækifæri á 44. mínútu og Davið missti skot Eyjólfs Agústs- sonar i stöng og út aftur. Eins vildu menn halda þvi fram, að dómarinn hafi sleppt vitaspyrnu á IA á 40. minútu þegar varnar- maður 1A stöðvaði boltann með hendi innan vitateigs. Þegar svo Skagamenn höfðu vindinn með sér i siðari hálfleik var ekki að sökum að spyrja og framlina þeirra fór nú að sýna Framhald á bls. 15. Víkingur var öruggur sigurvegari Völsungar frá Húsavlk náðu ekki að ógna sigri Víkinga um helgina og þurftu að þola tapið 0—3 sem er nokkuð stór biti að kyngja. Það var Eirikur sem skoraði 2 mörk Vikinganna og Jón Ólafsson skoraði hið þriðja. Mörg mörk eru ævinlega skor- uð i leikjum Völsunganna, og i 5 leikjum þeirra hafa samtals verið gerð 24 mörk. Af þeim hafa Völs- ungar gert 11, andstæðingarnir 13.11 mörk þeirra hafa fært þeim 5 stig, eöa að meöaltali 1 úr hverj- um leik, sem verður að teljast nokkuð góður árangur Húsvik- inea. Vikingar hafa tapað einum leik f Islandsmótinu, og er það einum leik meira en flestir bjuggust við. Lið þeirra er mjög gott, en hefur verið i einhverjum öldudal upp á siðkastið. Þeir töpuðu fyrir Hauk- um um daginn, en virðast nú jafn- vel vera að ná sér upp, og i leikn- um gegn Húsvikingum áttu þeir skemmtilega spretti sem færðu þeim 3 mörk. Fátt um góö afrek Fyrir utan hið glæsilega ís- landsmet Erlendar Valdimars- sonar í kringlukasti var fátt um góð afrek i þeim aukagreinum sem keppt var í meðfram aðal- greinunum tveim á Mt um helg- ina. Einna hæst bar árangur Hreins Halldórssonar i.kúluvarpi, 17,39 m. sem þó er ekkert sérstakt. Bjarni Stefánsson sigraði bæði i 100 og 200 m hlaupi á slökum tima enda æfingalaus. Timi hans i 100 m var 11,3 sek., en Vilmundur Vilhjálmsson varð annar á 11,4 sek. í 200 m hlaupi hljóp Bjarni á 22,4 sek, en Vilmundur á 22,7 sek. t kúluvarpi kvenna sigraði hin 14 ára gamla stúlka Guðrún Ingólfsdóttir frá Hornafiröi, kast- aði 10, 88 m. Og landsliðssveit kvenna i 4x100 m hlaupi sigraði úrval úr Armanni og ÍR á 50,8 sek., en IR/Armannssveitin hljóp á 52,2 sek. Valbjörn Þorláksson sigraði i stangarstökki, stökk 4,00 m. Guðmundur Jóhannesson byrjaði á 4,15 m en fór ekki yfir þá hæð. ílæsilegt Islands met hjá Erlendi Um helgina var keppt I tveimur aðalgreinum Meistaramóts lslands i frjáls-- iþróttum og um leið var keppt i nokkrum aukagreinum, þar á meðal kringlukasti. Og þá gerðist þaö, að Erlendur Valdimarsson setti glæsilegt tslandsmet og bætti eldra mctið um heila 70 sm. Erlendur kastaði 61,50 m en eldra metið - sem hanri átti sjálfur var 60, 80 m. Og ekki nóg með það, heldur var kastseria Erlendar mjög glæsileg, öll köstin gild, og öll fast að 60 m. Þá er og vert að segja frá þvl, að til gamans var eitt æfingakast hans mælt áður en keppnin hófst og mældist það 62,50 m en svo þegar I keppnina var komið, var eins og Erlendur stifnaði upp og metkastinu náði hann i fyrstu tilraun keppninnar. Greinilegt er að hann hefur aldrei verið betri en nú, og fróðir menn segja, að still hans hafi batnað svo að vænta megi stórtíðinda frá honum I sumar. KR-sveitin sigraði í 4x800 m. hlaupi Sveit KR sigraði með nokkrum yfirburðum i 4x800 m. hlaupi, sem var önnur greinin af tveimur i Meistaramóti tslands sem keppt var i um helgina. Sveitin hljóp 8:20,2 mln., en hana skipa Vil- mundur Vilhjálmsson, Haukur Sveinsson, Emil Björnsson og Ilalldór Guðbjörnsson. önnur varö sveit UMSK á 8:30,2 min og 3. sveit ÍR á 8:39,0 min.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.