Þjóðviljinn - 26.06.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.06.1973, Blaðsíða 16
DlOOVIUINN Þriðjudagur 26. júni 1973. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar í simsvara Lækna- félags’ Reykjavikur, simi 18888. Nætur- kvöld- og helgarvarzla lyfjabuðanna i Reykjavik vikuna 22. júni — 28. júni verður i Lauga- vegsapóteki og Holtsapóteki. Slysavaröstofa Borgarspital- ans er opin allan sólarhringinn. Kvöld- næ tur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstööinni. Simi 21230. Dean í Vatnsgati Nixon var • x • • vi onoinn — en gerði sér ekki grein fyrir afleiðingunum Þannig hugsar teiknarinn sér aö Nixon hafi viljað notfæra sér heim- sókn Brézjnéfs. En nú er hann farinn heim og Vatnsgat fariö aö leka af auknum krafti. . . I dag hófust yfirheyrsl- urnar i Vatnsgati á ný eftir viku frestun vegna heim- sóknar Brézjnéfs til Banda- rikjanna. Sá sem fyrstur kom fyrir nefndina sem rannsakar málið var John Dean, fyrrum lögfræðileg- ur ráðgjafi Nixons. Hann átti að koma fyrir nefndina á þriðjudaginn var, en þar sem hann er talinn luma á mikilvægum upplýsingum Framhald á bls. 15. Hvalveiðar bannaðar? LONDON 25/6 — í dag kemur Alþjóða hval- veiðinefndin saman til fundar i London til að á- kveða hvort leyfa eigi hvalveiðar áfram og setja veiðikvóta verði veiðarnar leyfðar. Búizt er við að fram komi tillaga um algjört bann við hvalveiðum. Slik tillaga var felld á fundi nefndarinnar i fyrra og að öllum likind- Aö þessu sinni er komiö aö lokasprettinum i skyndisöfnun Þjóðviljans, aftur á móti mun áskriftasöfnunin standa leng- ur yfir. Stefnt er aö þvi aö ljúka f jársöfnuninni fyrir mánaöamót. Félagar f Al- þýöubandalaginu og sérstak- lega hverfastjórnir i Reykja- vík eru hvattir til aö hefja nú lokasprettinn, þvi mikið er i húfi — þaö veröur aö tryggja fjárhagsafkomu blaösins, svo ekki komi til rekstursstöðvun- ar. Hafiö samband viö skrif- stofu söfnunarinnar aö Grett- isgötu 3, i síma 18081 og 19835. um biða hennar sömu örlög nú. Visindamenn sem starfa á vegum nefndarinnar segja hvalastofninn vera að rétta úr kútnum og að honum sé ekki eins hætt við útrýmingu og fyrir nokkrum árum. Fjöldi náttúruvernd- arsamtaka hefur dregið fullyrðingu visinda- mannanna i efa og segir ástandið mun verra en þeir vilja vera láta. Hópur visindamanna og náttúruverndarmanna setti i dag hálfrar siðu auglýsingu i Times þar sem skorað er á nefnd- ina að banna hvalveiðar i tiu ár. 14 lönd eiga aðild að Alþjóða hvalveiðinefnd- inni. Þau eru Argentina, Ástralia, Bandarikin, Bretland, Danmörk, Frakkland, ísland, Jap- an, Kanada, Mexikó, Noregur, Panama, So- vétrikin og Suður-Afr- ika. Sólveig Stefáns- dóttir, flugfreyja. Áhöfn Loftleiða Aöalmundur Magnússon, flug- vélstjóri. þotunnar Olaf Olsen, flug- Arni Sigurbergs- stjóri. son, aöstoðarflug- maður. lris Dungal, flug- Sigriöur Guö- Anna K. Einars- freyja. mundsdóttir, flug- son, flugfreyja. freyja. Jytta Hjaltested, yfirflugfreyja. Aöalbjörg Sigurö- ardóttir flugfreyja. Heppni að ekki varð stórslys Þegar Loftleiðaþotu hlekktist á i New York — Óhappið getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Loftleiðir Leiguþotu Loftleiða hlekktist á í lendingu á Kennedyflugvelli í New York s.l. laugardag með þeim afleiðingum að um 30 manns meiddust eitt- hvað, flestir mjög lítið. Eftir skoðun í slysadeild f lugvallarins voru 8 manns flutt á sjúkrahús, þar af 2 flugfreyjur is- lenzkar, þær Jytta Hjaltested og Sólveig Stefánsdóttir. En allir nema einn fá að fara af sjúkrahúsinu í dag eða á morgun. Einn maður verður að dveljast þar eitthvað fram eftir vik- unni. Þarna hefur sannarlega litlu munaö aö stórslys yröi. Vélin var aö koma frá Stokkhólmi, ósló og Reykjavik meö 130 farþega og 9 manna áhöfn. Allt var eölilegt hjá flugvél- inni þar til hún var alveg aö lenda á brautinni og var um þaö bil 12 fet frá braut. Þá allt i einu skall hún af miklum krafti niöur á brautina, ytri hreyfill vinstra megin rakst niöur og kviknaöi i honum og féll hann siöan af. Rann vélin stuttan spöl eftir brautinni en stöðvaöist siöan. Farþegum var bjargað út um neyöarútganginn og var fólkið þegar flutt á slysadeild flugvallarins. Og eins og áður segir sluppu flestir ómeiddir og allir án stórmeiðsla. Siguröur Magnússon blaða- fulltrúi Loftleiöa sagöi i viö- taliö viö Þjóöviljann i gær, að taka myndi nokkrar vikur að gera viö vélina, og enda þótt hún væri tryggö uröu Loftleiö- ir fyrir miklu tjóni vegna þessa óhapps. Tjónið i heild nemur auðvitaö miljónatug- um isl. kr. Þá sagöi Sigurður aö Loft- leiöir yröu fyrir miklu tjóni vegna minnkandi aðsóknar farþega yfir hafiö eftir þetta óhapp. Það væri alltaf þannig hjá flugfélögum sem yröu fyr- ir óhappi véla sinna aö far- þegafjöldinn minnkaöi fyrst eftir óhappiö. Ekki liggur fyrir örugg vitn- eskja um hvaö olli þessu slysi. Sumir halda þvi fram, að loft- hemill hafi virkað of snemma, en aörir að svokallað spoiler, sem er tæki til aö koma i veg fyrir aö vélin hoppi viö lend- ingu, hafi bilaö. En rannsókn á slysinu er þegar hafin og veröa niðurstöður hennar ef- laust kunngeröar innan tiöar. Samkvæmt skeyti, sem barst i gærkveldi frá New York og samtölum viö starfs- menn Loftleiöa þar, mun Jytta Hjaltested fara úr sjúkrahús- inu i dag eöa á morgun, en Sól- veig Stefánsdóttir mun enn þurfa aö vera þar i nokkra daga. Meöal farþeganna sex, sem meiddust, var islenzk kona, frú Þórhildur Gisladótt- ir, eiginkona séra Þorleifs Kristmundssonar á Kolfreyju- stað, en þau hjón voru bæði i flugvélinni. Gert er ráö fyrir að frú Þórhildur fari fljótlega úr sjúkrahúsinu, og var gizkað á, að hún yröi þar enn i 2—3 daga. Flestir farþeganna meiddust i baki. S.dór Fangaskipti hefjast SAIGON 25/6 — Undirnefnd sameiginlegrar hernaöarnefndar um Vietnam komst að samkomu- iagi i dag um nýja áætlun um fangaskipti milli Þjóðfrelsisfylk- ingarinnar og Saigonstjórnarinn- ar. Samkvæmt henni eiga fanga- skiptin sem legiö hafa niðri um tveggja mánaða skeiö að hefjast aftur næstkomandi föstudag og ljúka þann 7. júli n.k. Þjóöfrelsisfylkingin hefur skuldbundiö sig til að sleppa 617 föngum og Saigonstjórnin 533. Saigonstjórnin mun afhenda fangana i bænum Quang Tri. Brézjnéf kveður Nixon WASHINGTON 25/6 — 1 dag lauk átta daga heimsókn Brézj- néfs til Bandarfkjanna og flaug hann áleiðis til Parísar þar sem hann mun eiga tveggja daga viö- ræður við Pompidou. Þeir Brézjnéf og Nixon gáfu út sameiginlega yfirlýsingu i lok viðræöna sinna. Segir þar að fundur þeirra nú marki timamót i þróun friðsamlegra samskipta landanna. Einnig er látin i ljós von um að miklir möguleikar séu á að gert verði varanlegt sam- komulag um takmörkun kjarn- orkuvopna og niðurskurð á birgð- um þeim sem til eru. 1 yfirlýsingunni sem er 17 blað- siður er 30. október gefinn sem á- kveðin dagsetning á upphafi við- ræðna um gagnkvæman niður- skurð herafla i Evrópu. Þeir félagar búast við að i kjöl- far öryggisráðstefnu Evrópu sem hefst i Helsinki 3. júli muni koma fundur þjóðarleiötoga aðildar- landanna. Aherzla er lögð á að friður i Evrópu sé mál málanna og þess vegna skuli löndin tvö beita sér af alefli fyrir þvi að ör- yggisráðstefnan beri skjótan og góðan árangur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.