Þjóðviljinn - 08.07.1973, Qupperneq 1
UOÐVIUINN
Sunnudagur 8. júll 1973. — 38. árg. —154. tbl.
\
I
KRO
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Það verður
skortur
húsnæðis-
1
Eyjum
öll frystihúsin í gang á vetrarvertíð
Gunnar Sigurmundsson, prentsmiðjustjóri í
Vestmannaeyjum tókst nýlega á hendur, að annast
rekstur Félagsheimilisins i Eyjum. Gunnar er
varamaður i stjórn Viðlagasjóðs og hefur fyIgzt vel
með störfum þar. Hann tekur einnig mikinn þátt í
störfum bæjarstjórnar Vestmannaeyja, sem var
varabæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins. Fáir munu
því kunnugri um ástand og horfurí málefnumVest-
mannaeyinga en Gunnar Sigurmundsson, og gripum
við því tækifærið til að leggja fyrir hann örfáar
spurningar síðla á föstudag, rétt áður en Gunnar
flaug aftur til Eyja.
Starfsemin í Félags-
heimilinu
— Hvað er fyrirhugað i sam-
bandi við rekstur Félagsheimilis-
ins i Eyjum, Gunnar?
— Hugmyndin er, aö i
Félagsheimilinu fái fólk nokkra
aðstöðu til að eyða fristundum
sinum, sem reyndar eru ek'ki
margar. Þarna eru ýmis leiktæki,
aðstaða fyrir borðtennis, töfl og
spil. Einnig er miðað við, að
menn geti sezt niður til Iesturs i
Félagsheimilinu, en nú er verið
að setja upp bókasafnið á ný en að
þessu sinni i barnaskólanum, þvi
aðfyrrihúsakynni þess fóru undir
hraun. 1 Félagsheimilinu er lika
ætlunin að láta ýmis blöð liggja
frammi, svo að gestir geti litið i
þau.
Við ætlum okkur að halda uppi i
Félagsheimilinu almennu.m
kvikmyndasýningum. Hingað til
höfum við aðeins haft 16 milli-
metra vél, en um næstu
mánaðarmót ættum við að geta
hafið sýningar með 35 millimetra
vél. Kvikmyndir verðum við allt-
af að sýna 2 kvöld i röð, hverja
mynd, svo að allir eigi kost á að
koma, þvi að mikið er um að
menn vinni annað hvert kvöld.
Með haustinu gerum við svo ráð
fyrir, að ýmis félög komist i gang
Þessi fallega mynd, sem hann
Leó ljósmyndari á tsafiröi tók f
vikunni, er hér á forsfðu til að
minna á frásögn af
aflabrögðum og fleiru
varðandi smábátaútgerð
víösvegar um iandið,
á bis. 4 og 5 i dag.
með sina sérstöku starfsemi i
Félagsheimilinu, jafnóöum og
fólkið flytur aftur heim.
Við ætlum okkur að fá ieikhópa
og skemmtikrafta til að
heimsækja Eyjar i sumar, og
slikar heimsóknir eru reyndar
þegar byrjaðar, þvi að á
fimmtudagskvöldið var efnt til
íkemmtunar, þar sem þau
Baldvin Halldórsson, leikari,
Edda Þórarinsdóttir, leikkona og
Finnur T. Stefánsson, gitarleikari
skemmtunar, þar sem þau
en Sigurður Rúnar Jónsson,
tónlistarmaður, sem um skeið
hefur verið i Eyjum,hafði mestan
veg og vanda af þessari
skemmtun. Þetta þótti takast
mjög vel, og skal þess getið að
listafólkið vildi alls enga greiðslu
taka fyrir. Við gerum okkur vonir
um að geta haldið þessari
starfsemi áfram.
Félagsheimilið hefur verið opiö
á kvöldin að undanförnu frá
klukkan 8—12, en ætlun er að hafa
lika opið kl. 5—7. Margir lita inn
hjá okkur.
Mötuneyti og
matsala
— En hvernig er með mat i
Vestmannaeyjum núna, er þetta
alltaf bara eitt mötuneyti?
— Allir, sem starfa hjá bænum
eða Viðlagasjóði eru i fæði i
mötuneytinu, sem siðustu mánuöi
hefur verið til húsa i
Gagnfræðaskólanum, og er borö-
að i leikfimisalnum. Svo rekur
Pálmi Lórenz matsölu niður á
Strandvegi og er þar hægt að fá
keyptar allar máltiðir, og þar
borða nú flestir feröamenn.
Pálmi rekur lika sjoppu, þar sem
seldir eru smáréttir og er hún viö
Heiðaveg. Um aðrar matsölur
eða mötuneyti er ekki að ræöa.
Litiö er um eldun i heimahúsum,
en einstaka menn reyna þó að
nota kósangas. Þetta mun ekki
breytast mikið fyrr en viö fáum
raftnagnið aftur, sem væntanlega
verður i ágúst.Ég tel mjög erfitt
fyrir fjölskyldur að setjast að i
Eyjum fyrr en rafmagnið er
komið i lag, en samt munu nú
þegar 10 til 20 fjölskyldur
vera komnar. Og mér er kunnugt
um að það er mikill hugur i fjölda
Vestmannaeyinga að komast
heim sem allra fyrst.
— Hvað um verzlanir?
— Kaupfélagið er eina verzlun-
in, sem er opin og svo hefur það
verið lengst af siðan gosið byrjaði
og svo er nú sjoppan hjá Pálma
Lórenz.
Unnið allan sólarhringinn
— Hvaöer að frétta af hreinsun
bæjarins?
— Hvað um væntanlegar bóta-
greiðslur frá Viðlagasjóði, og
livað um húsnæðismálin yfirleitt?
— Formaður Viðlagasjóðs mun
hafa lýst þvi yfir, að bóta-
greiðslur til þeirra, sem hafa
tapað húsum sinum ættu að geta
hafizt upp úr 1. september n.k.
Búizt er við að alveg næstu daga
sendi Viðlagasjóður mcnn til að
meta skemmdir á húsunum, en
reglur um hvernig bótagreiðslum
verði hagað eru enn ekki
fullmótaðar. l>að hefur tekið
langan tima.
l>ess er óskað af Viðlagasjóði,
að menn, sem eiga uppistandandi
hús i Eyjum, en ætla sér ekki að
flytja þangað á næstunni láti vita,
ef þeir vilja leigja húsin. Ég er
viss um, að það verður mikill
húsnæðisskortur i Vestmannaeyj-
um. Það eru fleiri, sem vilja
l'lytja heim en eiga ibúðarhæf
hús. Viðlagasjóður tekur við
óskum um að fá húsnæði á leigu
og reynir að greiða úr.
„Ég tel þessar kröfur al-
mennings eiga fullan rétt"
— Hvað telur þú, að eigi að
gera við þau hús Viðlagasjóðs,
sem enn hafa ekki verið reist?
— Mörgum hefur fundizt, að
seint gengi með þessi hús erlendis
frá, og valda þar reyndar ýmsar
orsakir. En nú er sýnilegt á öllu,
að margt fólk, sem fær úthlutað
húsum verður flutt heim aftur áb-
ur en húsin verða tiibúin til ibúð-
ar. Það eru þvi ákaflega háværar
raddir um að horl'ið verði aö þvi
ráði að reisa mörg húsanna i
Framhald á bls. 15.
Gunnar. Sigurmundsson.
— Mjög erfitt er að segja, hvað
búið er að hreinsa mikinn hluta,
þetta virðist mun meira magn en
menn héldu upphaíféga 'hetúr
pressast og sigið saman. Aðeins
er búið að hreinsa lóðir viö 2
vestustu göturnar, en hins vegar
eru flestar götur orðnar akfærar i
þeim hluta bæjarins, sem ekki
eyddist algerlega. Unniö er við
hreinsun alian sólarhringinn á
þriskiptum vöktum og munu
vinna við þetta nær 100 manns. t
hreinsunina þurfum við að setja
allt þaö afl, sem hægt er, en það
er Viðlagasjóður sem ber
kostnaðinn.
Þyrla Landhelgisgæzl-
unnar í sjúkraflugi
Sjúklingnum liður eftir atvikum vel
Siðustliðinn föstudag fór þyria
Landhelgisgæzlunnar i sjúkraflug
vestur I Djúpadal á Barðaströnd,
og náði í aldraðan mann, sem
fengið hafði hjartatilfclli. Maður-
inn liggur nú á gjörgæzludeild
Landakotsspitala og I gær var lið-
an hans cflir atvikum bærileg.
Fyrir nokkru var þyrlan send
til að ná i sjúkan mann á togaran-
um Vestmannacy og gckk sá
leiðangur vel.
Klukkan hálf fimm á föstudag
var hringt I Landhelgisgæzluna
og beðið um að ná i sjúkan mann
vestur i Djúpadal. Maðurinn, sem
er 75 ára vistmaður á Hrafnistu,
hafði fengið alvarlegt hjartatil-
felli.
Þyrlan fór á loft i Reykjavik
hálftima siðar.eða kl. 5. Nokkrum
tima hafði verið eytt til að fá
lækni með I förina, en enginn var
til taks. Svo virðist.sem i skipu-
lagi læknisþjónustu sé ekki gert
ráð fyrir þvi, aö læknir fari með i
sjúkraflutninga, og er það baga-
legt, þvi að oft getur orðið taf-
samt að hafa upp á lækni, sem
ekki er á vakt. 1 þessu tilfelli kom
það þó ekki að sök. Starfsmenn
Landhelgisgæzlunnar höfðu með
sér súrefnistæki og allt tókst með
ágætum vel.
Kl. hálf átta lenti þyrlan i
Reykjavik og var sjúklingurinn
fluttur á gjörgæzludeild Landa-
kotsspitalans. I gær var rannsókn
ekki lokið, en liðan hans var eftir
atvikum bærileg.
Landhelgisgæzlan er nokkuð oft
beðin um siika sjúkraflutninga.
Fyrir nokkru var náð I sjúkling 50
til 60 sjómílur á haf út, en sá at-
burður féll nokkuð i skugga
heimsóknarNixonsog Pompidous.
Skipverji á togaranum Vest-
mannaey hafði fengið slæma
igerð i fingur og þurfti að komast
undir læknishendur hið bráðasta.
óp
• •
Oryggismálaráðstefna Evrópu:
Fyrsta hluta lokið
Næst þingað í Genf 18. september
Helsingfors 7/7 — t dag lýkur
fyrsta hluta öryggis- og sam-
vinnuráöstefnu Evrópu i Hels-
ingfors. Akveðið var að næsti
hluti ráöstefnunnar, sem veröur
sennilega sá mikilvægasti, verði
haldinn i Genf 18. september.
Almcnn ánægja rikir meö fund-
inn, og eru fulltrúar bæði austur.
og vcsturveldanna ánægðir meö
árangur.
Seinna i dag ætla allir utanrik-
isráðhcrrarnir að gefa út sameig-
inlega yfirlýsingu, þar sem m.a.
verður skýrt frá samvinnu þeirra
og áætlun fyrir næsta hluta ráð-
stefnunnar.
Á ráöstefnunni hefur aðallega
verið fjallað um öryggismál,
samvinnu á viðskipta og fjár-
málasviðinu, samskipti manna á
milli og félagsmál. Einnig um
vinnuskipun á þessum hluta ráð-
stefnunnar.
Fulltrúar austantjaldsland-
anna höfðu mestan áhuga á ör-
yggismálum, en flestir fulltrúar
vesturveldanna lögðu mesta á-
herzlu á ferðafrelsi fólks og fé-
lagsmál.
1 gær kom utanrikisráðherra
Finnlands Athi Karjalainen, fram
með þá tillögu,að á næsta hluta
ráðstefnunnar yrði rætt um þann
möguleika að hafa viss svæði þar
sem ekki væru höfð nein kjarn-
orkuvopn. Stakk hann upp á aö
hafa Norðurlönd eitt slikra
svæða. Einnig vildi hann ræða
þann möguleika að hafa alveg
vopnlaus svæði sums staðar.
Sagði Karjalainen aö þessi tillaga
væri tiu ára gömul og hefði forseti
Finnlands, Kekkonen átt hug-
myndina.
Gert er ráð fyrir að þriðji og
fjórði hluti ráðstefnunnar verði
haldinn i Helsingfors. Rússar
hafa áhuga á að æðstu menn stór-
veldanna haldi með sér fund, og
bæði þeir og fulltrúar vesturveld-
anna segjast vilja gleyma öllu
sem hét kalt strið. Það þykir þó
trúlegt að slik þróun taki nokkur
ár. Það tekur lika tima að breyta
aliti almennings á slikum hlutum,
og fólki á vesturlöndum gæti
gengið erfiðlega að átta sig á
breytingunni, sem allt i einu er
orðin á óvinum þeirra I Rússlandi,
og sama er að segja um fólk i
Austantjaldslöndunum varðandi
t.d. Bandarikin.
A ráðstefnunni varð ekki sam-
komulag um tillögu Mintoffs, ut-
anrikisráöherra Möltu, sem vildi
leyfa Túnis og Alsir að hafa full-
trúa á ráðstefnunni. Veröur af-
greiðsla þess máls geymd þar til i
Genf, i september. tsraelsmenn
vildu fá sinn fulltrúa á þingið ef
Túnis, Alsir, eða nokkuð annað
arabariki fengi fulltrúa. Tiilaga
Mintoffs var ekki samþykkt m.a.
vegna þess,að mörg riki óttuðust
að þá kæmuönnur riki á eftir og
vildu fá aðgang að ráðstefnunni.
Astæöan til þess að Mintoff vildi
koma fulltrúum jþessara landa
að, var sú aö hans mati að ekki
væri nokkur möguleiki að koma á
varanlegum friði i Evrópu án
þess að Miðjarðarhafslöndin
væru þar með i ráðum.
Rogers, fulltrúi Bandarikj-
anna, sagði, að ekki væri unnt að
aðgreina öryggi Bandarikjanna
og Evrópu, þess vegna yrðu herir
Bandarikjanna kyrrir i Evrópu.
Ekki minntist hann þó á að þörf
væri fyrir heri Evrópurikja i
Bandarikjunum.
Rogers ætlar til Tékkóslóvakiu
að loknum fundi.