Þjóðviljinn - 08.07.1973, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.07.1973, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. júll 1973. MOÐVIUINN MALGAGN SÓSiALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS (Jtgefandi: tjlgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Eitstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastj^ri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Slmi 17500 (5 llnur). Askriftarverð kr.J00.00 A mánuði. Lausasöluverð kr. 18.00. Pventun: Blaðaprent h.f. FRÁ EINDÆMI TIL REGLU Þegar málgögn stjórnarandstæðinga ræða um verðbólguna á íslandi láta þau jafnan eins og þau viti ekki af þeim hækk- unum, sem orðið hafa á innflutningsverði fjölmargra vörutegunda, vegna verðlags- þróunar erlendis. Hér skulu þvi rakin nokkur dæmi, sem gætu þó verið miklu fleiri, um hækkað inn- flutningsverð á siðustu einum til tveimur árum. Timbur hefur hækkað frá ársbyrjun 1972 til júni 1973 úr 47,40 dollurum rúmmetrinn i 112,38 dollara eða um 137% og heldur enn áfram að hækka. Steypustyrktarjárn hefur hækkað á sama tima úr 100 dollurum tonnið i 195 dollara, eða um 95% og sama hækkun hef- ur átt sér stað á plötujárni. Benzin hefur hækkað um 52%. Fóður- bætir hefur hækkað um 49%. Hveiti hefur hækkað um 51%. Sykur hefur hækkað um 52%. Allt eru þetta hækkanir sem átt hafa sér stað á tæplega einu og hálfu ári frá janúar 1972 til júni 1973. Til samanburðar getur verið fróðlegt að hafa i huga, að meðan erlenda verðið á innfluttum vörum hækk- aði eins og þessar tölur benda til, þá hækk- aði smásöluverð hér innanlands til jafnað- ar frá 1. ágúst 1971 — mai 1973 um tæp 44% sé miðað við þær um 80 vörutegundir sem Morgunblaðið rakti fyrir stuttu, hvað hækkað hefðu i verzlununum hér. Sem kunnugt er var verðbólguþróun á Islandi löngum langtum örari en i nálæg- um löndum og sé litið á viðreisnartima- bilið þá hækkaði verðlag á árunum 1960—1971 samkvæmt alþjóðlegum skýrsl- um sem hér segir sé grunntalan 1960 talin 100: ísland úr 100 i 328 Danmörk úr 100 i 188 Noregur úr 100 i 166 Sviþjóð úr 100 i 159 Finnland úr 100 i 174 Bretland úr 100 i 163 Vestur-Þýzkaland úr 100 i 138 Frakkland úr 100 i 157 Bandarikin úr 100 i 137 Meðan verðlag hækkaði á 11 viðreisnar- árum um 37—88% i nágrannalöndum eins og þessar tölur sýna, hækkaði verðlag hér á íslandi um hvorki meira né minna en 228%. Slik var sérstaða okkar. Nú á siðustu 2 árum hefur verðlag hins vegar hækkað miklu meira i flestum ná- grannalöndum en áður voru dæmi til á sið- ustu áratugum. Engin þjóð i okkar heims- hluta er jafn háð utanrikisviðskiptum og við íslendingar, svo að slikt hlýtur óhjákvæmilega að segja til sin hér. Samt hefur það gerzt, að nú er islana ekki lengur langt fyrir ofan nágrannalönd sin, hvað verðbólguvöxt snertir Nýjustu samanburðartölur, sem liggja fyrir eru frá siðustu áramótum. Sé litið á timabilið frá þvi kosningaverðstöðvunin var sett á af viðreisnarflokkunum 1. október 1970 og til siðustu áramóta, eða i 2 ár og 3 mánuði, þá er hækkun á verðlagsvisitölu vöru og þjónustu i 10 löndum sem hér segir: ísland 18,5% Bretland 18,7% Holland 18% Sviþjóð 15,2% Frakkland 14,3% Finnland 17,7% V.-Þýzkaland 13,9% Danmörk 13,5% Bandarikin 7,7% Heimild að þessum tölum er „Main Economic Indicators”, rit sem gefið er út af OECD, Efnahags- og Framfarastofnun Evrópu. Auðvitað hafa orðið miklar verð- hækkanir her það sem af er þessu ári, en samanburðartölur við önnur lönd liggja ekki fyrir um siðustu mánuði. Þó er vitað að i flestum löndum i nágrenni okkar hafa hækkanir einnig orðið mjög miklar. Það, sem sú könnun er hér liggur til grundvallar leiðir ótvirætt i ljós er, að það er fyrst nú á allra siðustu timum sem verðbólguvöxtur á Islandi er álika og i fjölmörgum viðskiptalöndum okkar, með- an sérstaða okkar var alger allt viðreisn- artimabilið, og verðbólga þá margfalt meiri hér en annars staðar. Nú gerum við þá kröfu til stjórnarand- stæðinga, að áður en þeir veitast næst að núverandi rikisstjórn fyrir ábyrgð á verð- bólgunni á íslandi, — þá geri þeir þjóðinni grein fyrir þvi, hvað veldur að ísland er loks nú ekki lengur eitt á báti i Vest- ur-Evrópu með margfaldan verðbólgu- vöxt á við aðra, eins og áður var. Meðan áróðursstjórar Gylfa og Geirs koma ekki með gilda skýringu á þessum umskiptum, hljóta landsmenn að telja að stjórnarskiptin eigi mestan þátt i breyt- ingunni. Tillögur um sérkennslumið- stöð þroskalamaðra barna Nauðsyn að aðstoða einnig nemendur sem eiga við erfiðleika að stríða í almennum skólum Viðræðunefnd Reykja- víkurborgar, hei I brigðis- ráðuneytisins og mennta- málaráðuneytisins um kennslustofnanir fyrir börn, sem ekki eiga sam- leið með öðrum í námi, hefur skilað álitsgerðum með tillögum um framtíð- arskipulag þessara mála, þar sem gert er ráð fyrir miðstöð sérkennslu fyrir landið allt. Hefur Reykja- víkurborg ætlað lóð fyrir miðstöðina á Öskjuhlíð. Fræðsluráð Reykjavíkur hefur lýst stuðningi við tillögurnar i megindráttum, en jafnframt mælzt til að nefndin eða önnur slik samstarfsnefnd I hennar stað geri tillögur um fyrirkomulag vanvitaskólans, svo og með hlið- stæðum hætti tillögur um aðstoð við þá nemendur i hinum al- menna skyldunámsskóla, er ekki eiga að fullu samleið með öðrum nemendum. Leggur fræðsluráð til við borg- arráð, að leitað verði eftir slíku samstarfi við rikið með það fyrir augum, að ákvarðanir liggi fyrii þegar undirbúningur að skipulagi næsta skólaárs hefst og eigi siðar en 10. ágúst n.k. Mjög aðkallandi er að komið verði til aðstoðar nemendum i al- mennum skólum, sem eiga þar við erfiðleika að striða og hafa skólastjórarog yfirkennarar látið i ljós það álit, að þar sé um að ræða allt að 15% nemendanna. Kemur þar að sjálfsögðu til að einhverju leyti, að sérkennslu- stofnanir hafa ekki verið fyrir hendi, þannig að við tilkomu þeirra mætti vænta, að þessi tala lækkaði eitthvað. En eins og for- maður fræðsluráðs, Kristján J. Gunnarsson, benti á er hann kynnti álitsgerð viðræðunefndar- innar og ályktun félagsmálaráðs um hana i borgarstjórn s.l. fimmtudag, er bæði talið eðlilegt að hafa sem allra flesta i almenn- um skólum og á meðan sér- kennslustofnanir eru ekki komn- ar verða almennu skólarnir að taka við þorra þessara nemenda og þvi er lagt til, að einnig verði teknar til athugunar þarfir hins almenna skóla i þessu efni. betta þarf að gera áður en und- irbúningur að skipulagi næsta skólaárs hefst, álitur fræðsluráð og vill, að samstarfsnefndin eöa önnur i hennar stað taki einnig til athugunar og geri tillögur um fyrirkomulag og starfskrafta til kennslu og aðstoðar við nemend- ur vanvitaskólans þ.e. Höfða- skólav sem gert er ráð fyrir að borgin reki a.m.k. fyrst um sinn. Tvíþætt 1 samstarfsnefnd ráðuneytanna og borgarinnar störfuðu þau Adda Bára Sigfúsdóttir af hálfu heilbrigðismálaráðuneytisins, Jónas B. Jónsson af hálfu Reykjavikurborgar og Þorsteinn Sigurðsson af hálfu menntamála- ráðuneytisins og kemur fram i á- litsgerðinni, að starfið var tvi- þætt, annarsvegar að huga að framtiðarskipulagi sérkennslu- málanna og hinsvegar að hafa frumkvæði að bráðabirgðaráð- stöfunum, sem gerðar hafa verið með f jölfatlaðrakennslu, og kanna möguleika á að nýbygging Höfðaskóla félli inn i heildar- ramma hugsanlegrar sér- kennslustöðvar fyrir landið allt, enda giltu þá sömu reglur um greiðslu stofnkostnaðar og rekst- ur hans og um aðrar einingar miðstöðvarinnar. F jölfatlaöraskólinn Nefndin tók til starfa i desemb- er 1971 og ræddi i janúar 1972 við Sævar Halldórsson barnalækni um fjölfötluð börn og uppeldisleg- an aðbúnað þeirra, en Sævar var formaður nefndar á vegum heil- brigöisráðuneytisins, sem hafði kannað málið og gert tillögur um skólaheimili fyrir fjölfatlaða. Heimild menntamálaráðherra fékkst til að hefja kennslu f jölfatl- aðra haustið 1972 ef tækist að út- vega hæfa starfskrafta og viðun- andi húsnæði. Tók skóli fyrir fjölfatlaða til starfa i húsnæði gamla Heyrn- leysingjaskólans við Stakkahlið i október 1972 undir forstöðu Bryn- disar Viglundsdóttur sérkennara, sem um árabil starfaði við Perk- ins School for the Blind i Water- town, Bandarikjunum. Höfðaskólinn. Undirbúningur ‘nýbyggingar fyrir Höfðaskólann var mjög á döfinni i byrjun árs 1972 og fjalla- aði þá samstarfsnefndin um stað- arval, stærð og fyrirkomulag með tilliti til þess, að sú stofnun félii inn i ramma hugsanlegrar sér- kennslumiðstöðvar. Borgaryfirvöld gáfu kost á byggingasvæði milli Fossvogs- kirkjugarðs, Bústaðavegar og Kringlumýrarbrautar og voru arkitektarnir Ormar Þór Guð- mundsson og örnólfur Hall fengnir til, að skipuleggja svæðið og teikna Höfðaskólann. Tillögur um framtíðarskipulag Varðandi framtiðarfyrirkomu- lag og uppbyggingu sérkennslu- stofnana fyrir þroskahömluð börn — önnur en fávita og atferlistrufl- uð börn — er það tillaga nefndar- innar að komið verði upp miðstöð sérkennslu fyrir landið allt, sem annars vegar hafi með höndum greinandi störf, ráðgjöf og eftirlit með uppeldi og skólum þroska- lamaðra barna og annist hins vegar meðferð, kennslu og upp- eldi þeirra einstaklinga, sem ekki eiga samleið með öðrum i námi. Er gert ráð fyrir að miðstöðin skiptist i Greiningar- og ráögjaf- arstöð, Sérskóla og þjálfunar- deildir og Sameiginlega þjónustu- stöð. Innan greiningar- og ráðgjafar- stöðvar er gert ráð fyrir Spjald- skrárdeild, greiningardeild, at- hugunardeild (heimavist fyrir 6 börn), leikfangasafni (Lekotek), heyrnarstöð, heilbrigðisþjónustu sérskólanna og kennslugagna- miðstöð (material laboratorium). Af sérskólum og þjálfunar- stöðvum er i alitsgerðinni gert ráð fyrir vanvitaskóla fyrir 200 nemendur á skyldunámsaldri og yrðu þá jafnframt 3—4 smærri vanvitaskólar i öðrum landshlut- um, þar sem henta þætti. Einnig fjölfatlaðraskóla með 25 nemend- ur, blindraskóla með 5 nemend- um, málhamlaðraskóla með 20 nemendum, heyrnleysingjaskóla með 50 nemendum, starfsnáms- skóla fyrir 60 nemendur á aldrin- um 16—20 ára, talkennslustöð, þ.e. göngudeild fyrir börn og full- orðna með heimavistaraðstöðu og iþrótta- og þjálfunarstöð, sameig- inlegri fyrir sérskólana með fim- leikasal, rytmik- og musikterapi- stofu, sundlaugum og þjálfunar- stofu. Sameiginleg þjónusta er hugs- uð vera bókasafn, samkomu-og fyrirlestrasalir, tómstundasalir og fundaherbergi, eldhús, borð- stofur og kantina, þvottahús, leik- skóli og dagheimili fyrir börn starfsliðs og nokkur þroskahöml- uð börn er þangað gætu sótt og heimavistir, annarsvegar fjöl- fatlaöra og blindra, 15 nem., hins- vegar annarra nemenda, 30 pláss. Öskjuhlíð Gert er ráð fyrir að sérkennslu- miöstöðin risi á sama svæði og Höfðaskóli og hafa sömu arki- tektar skipulagt svæðið. Þá er gert ráð fyrir i álitsgeröinni, að nýi Heyrnleysingjaskólinn og heimavistir hans falli inn i sér- kennslumiðstöðina. vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.