Þjóðviljinn - 08.07.1973, Blaðsíða 16
UÚÐVIUINN
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Nætur- kvöld- og helgidaga-
varzla lyfjabúöanna vikuna 6.
til 12. jú;i er i Hjltsapóteki og
Austurbæjarapóteki.
Slysavaröstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhringinn.
Kvöld- næ tur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Drottning arh j ónin
f arin heim
Margrét Danadrottning og
maður hennar kvöddu tsland
og Islendinga seint i gær-
kvöld . Þau höföu þá farið viöa
um landið og borgina.og i gær
heimsótti Henrik prins Vest-
mannaeyjar meðan Drottn-
ingin skoðaði Landspitalann
og Árnagarð.
A hádegi snæddu hjónin sið-
an i Myndlistarhúsinu á
Miklatúni i boði borgarstjóra.
Að lokinni móttöku danskra
þegna i Frimúrarahúsinu kl.
16.00 bauð Drottningin til
veizlu i snekkju sinni, Danne-
brog, og hófst hún kl. 20.00.
Dannebrog leysti landfestar
klukkan rúmlega 11.00 i gær-
kvöld og lauk þar með opin-
berri heimsókn Danadrottn-
ingar til tslands.
Ánægjuleg
ferð Dana-
drottningar
norður
Bæjarstjórn bauð siðan til
kvöldverðar á Hótel KEA og lauk
honum um 11.45 og var þá haldið
til flugvallarins og flogið til
Reykjavikur.
Krá hænuin llveradölum. Drottningin horfði þar á Yztahver ybba sig eftir aö dælt hafði verið i hann
grænsápu i iniklu magni.
Veðurguðirnir gerðu sitt bezta
til að gestir vorir fengju þokka-
lcgt veður a.m.k. cinn dag hér á
tslandi, og á ferð Margrctar
drottningar um Noröurlandið i
fyrradag létu þcir sig hafa það að
senda hcnni geislandi bros um
lciö og hún steig út undir beran
himinn.
A flugvellinum i Aðaldal var
tekið á móti drottningu og ekið
beint til Mývatns með viðkomu á
bænum Hveravöllum., þar sem
Yztihver gaus fyrir hennar hátign
og Henrik prins.
A leiðinni þaðan til Mývatns
kom haglél og rigning,en meðan
snætt var i Hótel Reynihlið skein
sólin sem mest hún mátti og
áfram meðan gengið var um
Dimmuborgir.
Það var lagt af stað til Akur-
eyrar með viðkomuhjáGoöafossi,
þar sem prinsinn kvikmyndaði
allt og alla að venju.
A Akureyri var móttökuathöfn i
Lystigarðinum klukkan 17.30 og
fór hún skemmtilega fram. Margt
fólk var þar samankomið, Lúðra-
sveit Akureyrar lék og blandaður
kór Geysis og Gigju, ásamt
kirkjukór Lögmannasóknar, söng
við undirleik hennar.
Að lokinni ræðu bæjarstjórans
flutti Margrét stutt ávarp og
sagði hún það vera sér mikla
gleði að koma til Islands þar eð
hún hefði svo mikið heyrt
talað um það, ekki sizt hjá for-
eldrum sinum sem alltaf hefðu
verið mjög hrifin af landinu.
Margrét var lirifin af Dinnnuborgum og þá sérstaklega hinum fjöl-
skriíðuga gróöri þar.
Goöafoss var skoðaður á leiðinni til Akureyrar og þrátt fyrir undangengna rigningu, stytti algjörlega
upp um leið og drottningin birtist. Þannig var það alla ferðina i gegn.
Frá móttökunni á flugvellinum i Aðaldal. Litlu stiilkurnar færðu
drottningunni blóm.og aö þeirri athöfn lokinni var haldiö til Mývatns
með viðkomu viö Yztahver og er mynd þaöan ofar á siöunni.
Myndir og texti Gunnar Steinn