Þjóðviljinn - 08.07.1973, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. júll 1973.
HANDFÆRAVEÍÐAR FYRIR VESTAN OG NORÐAN
ÓGÆFTIR OG AFLALEYSI
llnr rru tveir núvvrandi og fyrrverandi trillukarlar á lsafirfti. Til hægri
er Itagnar fyrrverandi og t.v. Ingi núverandi trillukarl. (Ljósm. Leó —
ísafirAi)
Jón llelgason,einn af þeim sem gerir út á handfæraveiðar frá tsafirði. Trillan hans heitir Bllðviður.
(Ljósm. Leó)
Hið kalda og risjótta vor og það sem af er sumri
hefur valdið þvi að smábátaútgerð hefur gengið illa
viðast hvar á landinu. Fyrir vestan kvarta menn
bæði undan ógæftum og aflaleysi þegar gefur,
einkum hefur smábátunum frá Snæfellsnesi gengið
illa i vor. Á Vestfjörðum hafa ógæftir hamlað veið-
um mjög, reitingsafli hefur verið þegar gefur.
Smábátaútgerð er sem kunnugt er stór þáttur i
atvinnulifi flestra kaupstaða fyrir vestan, norðan og
austan og væri ástandið sennilega alvarlegt i
atvinnumálum viða, ef hinir nýju togarar væru ekki
komnir til landsins. Eða eins og vigtarmaðurinn á
ísafirði sagði, ,,trillurnar ná þvi varla að fylla upp i
eyðurnar milli þess sem togararnir landa”, svo litill
hefur afli þeirra verið. En hlýðum nú á svör
nokkurra aðila sem við leituðum til út á
landsbyggðinni.
Ólafsvík:
„Ætli þetta séu ekki
síðustu kvikindin'>'>
Einn áf mörg hundruð trillubátum scm gerftir eru út á handfæraveiöar á
íslandi i dag. (Ljósm. Led — tsafirfti)
Isafjörður:
Haraldur Guftmundsson skip-
stjóri í ólafsvfk var ekki beint
léttur í máli þegar vift spurftum
hann um afla handfærabátanna i
vor og sumar.
Hann sagöi aö afli heföi verið
mjög lítill, þá sjaldan gefið hefði
á sjó, „þetta eru smá kóð” sagði
hann” og það kæmi manni
sannarlega ekki á óvart þótt þetta
værusiðustu kvikindin, sem verið
er að slita upp.”
Gæftir hafa verið stopular i allt
vor og sumar, en þó hefur það
stundum verið verra hvað gæftir
snertir, en sjaldan eins litill
fiskur og núna. Haraldur sagði að
6-8bátar væru gerðir út frá Ólafs-
vik á handfæri i sumar og hann
bætti þvi við, að aflinn hefði verið
þetta 300 til 500 kg á bát dag
hvern. Róðurinn tekur einn og
hálfan til tvo sólarhringa og ef
aflanum er deilt niður á daga-
fjöldann verður útkoman ekki
glæsilegri en þetta.
Haraldur sagði ennfremur að
afli nú væri niun lélegri en var i
fyrra og hann bætti þvi við.að afli
báta frá Snæfellsnesi væri yfir-
leitt mun lakari en árið áður.
Sömu sögu væri að segja um troll-
bátana, afli þeirra væri mun
minni en verið hefur undanfarin
ár.
— Og ástæðan,Haraldur?
— Við vitum það auðvitað allir
hverju þetta er að kenna, það má
segja það að þetta séu siðustu
kvikindin sem við erum að drepa,
útfærsla landhelginnar kemur
mörgum, mörgum árum of seint
og hvernig þetta hefði endað ef
þessi rikisstjórn hefði ekki tekið
við? Ég vil helzt ekki hugsa þá
hugsun til enda, sagði Haraldur.
Hann sagði að þrátt fyrir minni
afla hefði verið næg atvinna i
frystihúsunum. Það væru það
margir bátar gerðir út frá Ólafs-
vík að afli þeirra, þótt litill væri
nægði til að halda vinnu i frysti-
húsunum gangandi. Auk þess
væri mikil uppbygging á öllum
sviðum þar vestra, þannig að
atvinna i þorpinu væri næg i
sumar. S.dór
Mun verra
\ isalirfti liafa handfæraveiftar
gengift illa i vor og sumar, mest
vegna gæftaleysis. Þaft hefur ver-
iftmeft eindæmum slæmt liftarfar
á tsafirfti þaft sem af er suinri.
Um 20 bátar stunda nú
handfæraveiðar frá tsafirði.
en í fyrra
Aflinn hefur verið mjög misjafn
þegar gefið hefur, allt frá þetta
100 kg og upp i 2 tonn. Sjómenn
kvarta ekki svo mjög undan
aflaleysi þegar gefur, en það
hefur bara verið svo sjaldan sem
hægt hefur verið að vera við.
í mai voru gæftir heldur skárri
en i júni og þá komust : stærri
bátarnir uppi 6 tonna afla i ferð
en þess ber að geta að þá eru
þetta 3 til 4 menn á bátnum. Minni
bátarnir, þar sem eru þetta 2 eða
3 menn á, hafa komizt upp i 5
tonn i róðri bezt. Þetta er mun
minni afli en i fyrra,en þá voru
gæftir lengst af mjög góðar.
Þrátt fyrir þetta hefur verið
mikil vinna i frystihúsunum og
þar eru það togararnir sem
bjarga málunum. Þeir landa það
oft að vinna nær alveg saman og
svo bætist alltaf eitthvað við frá
litlu bátunum.
Isafjarðartogararnir hafa aflað
heldur vel undanfarið, hafa
komið með þetta 100 tonn úr viku-
ferð af sæmilegum fiski. Sdór
Sauðárkrókur:
Sœmilegur
afli í vor
Hreinn Sigurðsson, fréttaritari
Þjóðviljans á Sauðárkróki, sagði
að afli handfærabáta sem róa frá
Króknum hefði verið allsæmileg-
ur i vor. Það eru þó ekki nema 3.
bátar sem gera út á handfæri frá ,
Sauðárkróki i vor og sumar og
þeir hafa veriðmeð þetta 2.og upp
i 6 tonn úr róöri.
Gæftir hafa verið sæmilegar en
ekkert umfram það. Þessir bátar
og raunar fleiri voru gerðir út til
grásleppuveiða i vor og gekk sú
vertið alveg sérstaklega vel, svo
vart hefur gengið betur áður.
Frá Sauðárkróki eru gerðir út
tveir skuttogarar og hafa þeir
einnig aflað vel að undanförnu.
Það hefur þvi verið mikil vinna i
frystihúsunum á Króknum i vor
og sumar. Alls munu um 140
manns vinna i frystihúsunum
tveimur, en þau eru bæði með-
eigendur i útgerðarfélagi tog-
aranna.
Nú er fyrirhuguð lagfæring og
viðbygging við frystihús
kaupfélagsins og eru fram-
kvæmdir þegar hafnar. Þá á
einnig að steypa eða malbika allt
i kringum frystihúsin, en þau
standa hlið við hlið út á svo
kölluðum Tanga. Munu þau
standa sameiginlega að þessu
verki. Þá mun og fyrirhugað að
lagfæra allt hafnarsvæðið
nokkuð. Mjög mikil atvinna hefur
veriðá Sauðárkróki i vetur og vor
og nú er skortur á vinnuafli.
S.dór