Þjóðviljinn - 08.07.1973, Qupperneq 8
8 StÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. júlf 1973.
Kristinn Ástgeirsson, nær átt-
ræður Eyjabúi, segir frá nokkrum
atriðum i ævi sinni, en hann heldur
um þessar mundir sina fyrstu mál-
verkasýningu að Hallveigarstöð-
um.
l>cUa var liiisiA hans Kristins. ÞaA stóA rétt viA Skansinn,en fór undir
liraun.
Hannes LóAs á heimsiglingu.
Kristinn Ástgeirsson
heitir hann, 78 ára gamall
Eyjamaður, föðurbróðir
Ása í Bæ. Þetta er snai;
unglegur karl, iðandi af
lífsf jöri. Hann opnaði í gær
málverkasýningu á Hall-
veigarstöðum, sína fyrstu
sjálfstæðu sýningu, en áður
tók hann þátt í samsýningu
alþýðumálara, sem haldin
varáveguri ListasafnsASÍ
Myndirhans eru sannar
og einlægar, og hand-
bragðið gott. Hann gerði
sína fyrstu stóru mynd árið
1952 en það var ekki fyrr en
hann hætti vinnu á 75.
aldursári að hann tók að
gefa sig óskiptan að því að
gera myndir. Hans mótív
eru Eyjarnar fyrr og nú.
Stíllinn í dag er sá sami og
hann gerði sína fyrstu stóru
mynd.
Ási í Bæ ók með mig til
Kristins og við settumst
niður hjá honum á heimili
sonar hans og tengda-
dóttur, það er að segja
skátaheimilinu í Hafnar-
firði, en þar er f jölskyldan
nú stödd eftir hörm-
ungarnar í Eyjum.
í spjallinu við Kristin
kemur fram sama ein-
lægnin og í myndum hans.
Ég spyr fyrst um ætt og
uppruna:
Kristinn: Kllin ergóA ef maAur hefur eitthvaA aA starfa og ef skemmti-
legt fólk er i kringum mann.
Og svo
kom
hann
Eyjólfur
Eyfells...
Viðtal og myndir: Sigurjón Jóhannsson
— Eg er fæddur i Vestmanna-
eyjum 6. ágúst 1894. Foreldrar
minir voru Kristin Magnúsdóttir
frá Berjanesi i Landeyjum og
Astgeir Guðmundsson skipa-
smiður frá Auraseli i Rangár-
vallasýslu. Þau fluttust til Eyja
1885 og fengu þar litiö býli, sem
var kallað Litli-Bær. Svo byggði
faðir minn annað hús rétt upp úr
aldamótum og það hélt sama
nafni og heldur þvi enn . Þaö er
uppistandandi, en á þvi hafa verið
gerðar breytingarog endurbætur.
Þaö er kaupmaður heima sem á
húsið núna.
— Hvað voruð þið mörg syst-
kinin?
— Við vorum átta; fimm
bræður og þrjár systur. Núna
erum við bara tveir bræöur og
ein systir á lifi. Ég var sjötti i
röðinni og viö þrjú yngstu erum á
á lifi.
— Þú sagðir áðan að þú hefðir
verið þrjá vetur i barnaskóla og
það hafi verið öll skólagangan...
— Já, mikil ósköp, eftir það var
það bara vinna og aftur vinna,
mest við sjávarstörf. 15 ára
gamall byrjaði ég að róa að
sumarlagi. 18 ára gamall byrjaði
ég á vetrarvertið — var sein-
þroska, en 19 ára gamall var ég
oröinn formaður á árabát, að
sumarlagi þó. Ég var nokkrar
vetrarvertiðir á árabátum, en svo
breyttist þetta, ég var nokkurn
tima á vélbátum, eignaðist svo
litinn vélbát og var með hann
nokkuð lengi. Það gekk ljómandi
vel. Enda upplifði ég almesta
fiskiri sem Vestmannaeyingar
muna — á árunum 1929 til 1935.
Þá lá við að það væri meiri vandi
að fiska ekki en að fiska.
Þetta var mest þorskur, þá
vildi enginn sjá ýsunaj hún
borgaði rétt saltið.
— Var alltaf hægt að taka á
móti afla hjá ykkur?
— Já, aldrei urðum við nú
stopp fyrir það, en það söfnuðust
kasir fyrir hjá þeim sem verkuöu
fiskinn. Svo komu nú frátök i
þetta annað kastið, þvi að þetta
voru litlir bátar.
Eignaðist 10 drengi
— Efnaðistu sæmilega á
þessum árum?
— Ég hafði þungt heimili,
eignaðist nú 9 drengi, og reyndar
10, þvi að ég eignaðist son áður en
ég giftist. Heimilið var þvi fljót-
lega nokkuð þungt, en eftir aö ég
eignaðist trillubátinn var ég
aldrei i vandræöum að hafa til
hnifs og skeiöar. Það var aldrei
hugsað hátt, og það var ekki fyrr
en’42,aðég kaupi hús. En ég var
alveg skuldlaus um leiö og ég
flutti inn i húsið.
Konan min var færeysk, hét
Jensina Nilsen, frá Kvivik i Fær-
eyjum. Ég missti hana 1947. Núna
eru fjórir synir minir á lifi, tveir
fórust af slysförum, en hinir dóu á
sóttarsæng.
— Hvað ertu garnall þegar þú
hættir á sjónum?
— Ég fór i land vegna heilsu-
bilunar árið 1949. Ég fékk svo oft
brjósthimnubólgu og vinstra
lungað var orðið fast vegna sam-
gróninga. Fram að þessum tima
hafði ég alltaf stundað sjó á
vetrarvertiðum, utan tvær
vertiðir. Þá vann ég annan
veturinn i skipasmiðastöð, en
hinn veturinn i ýmsu snatti. Að
sumarlagi var ég oft við fugla-
veiðar. Lengi vel var eina afla-
björgin hér i Vestmannaeyjum aö
ná i fisk og fugl. Ég var upplagður
i þetta, eins og menn voru á þeim
árum. Við byrjuöum á þessu
strax strákar,aö fara i fjöllin og
síga.bæði eftir eggjum og fugli.
Það var góöur stuðningur hjá mér
með þetta stórt heimili að ég var
lögskipaður vigtarmaður frá 1918
fram til 1968, er ég hætti alveg að
geta unniö. Ég sat oft fyrir með
vinnu þegar skip voru að koma
með kol og salt. Ég taldi lika i
þeim oliutunnur, fiskpakka og allt
svona.
Ekki eins og
aðrir krakkar...
Hvenær fannstu fyrir þeirri
löngun að mála myndir?
— Ég fann strax fyrir þeirri
löngun drengur á barnaskóla-
aldri. Ég sat hjá Arna Finnboga-
syni og við höfðum báðir gaman
af aö teikna — frihendis — ekki
eins og aðrir krakkar, sem teikn-
uðu gegnum kalkipappir. Viö
vildum það ekki. Hann Árni á nú
Sunnudagur 8. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
heima hér i Reykjavik og hann
teiknar ljómandi fallegar
blýantsmyndir og hefur haft
sýningar á þeim. Það er hann
sem útvegaði mér plássið á Hall-
veigarstöðum. Hann Árni var
fjöldamörg ár formaður á mótor-
bátum, en þegar heilsan bilaði
hjá honum fór hann i land. Hann
sagöi mér á sunnudaginn, að
hann hefði ekki þráð annað frekar
en vera áfram á sjónum. Já, já.
— Þú málar þessa stóru mynd
1952. Hvernig stóð á þvi að þú
geröist svo djarfur að ráðast i að
gera svona stóra mynd?
Svo kom Eyjólfur Eyfells
— Ég get sagt þér tildrögin að
þvi. Svoleiðis var, að meðan ég
var vigtarmaður teiknaði ég og
málaði oft litlar myndir af bátum
handa strákum, sem komu til min
þegar ég var að vigta. Fyrst
teiknaði ég með blýanti, en svo
bað ég einu sinni son minn að
koma með úr Reykjavik öskju af
vel góðum vatnslitum og góða
pensla. Það væri ekki sama
hvernig þeir væru og ég benti
honum á að kaupa þá í Mál-
aranum. Jú, þetta kemur hvort-
tveggja, alveg það bezta sem
hægteraðfá, og ég held áfram að
mála litlar bátamyndir handa
strákunum. Svo kemur þarna
þekktur málari, hann Eyjólfur
Eyfells. Hann var að mála sama
mótiv og er á minni fyrstu mynd.
Hann. bað mig um aö geyma
myndina fyrir sig i útihúsi, en ég
hélt nú að hann gæti komið með
myndina inn, og ég fór með hana i
ágætt herbergi uppi á lofti. Þegar
hann var búinn aö drekka hjá mér
kaffi og farinn, fór ég að virða
myndina fyrir mér. Og ég
hugsaði; ári væri nú gaman að
vita hvort ég geti ekki rissað upp
eitthvað i likingu við þetta. Ég
hafði lika klettinn fyrir augunum
út um gluggann og þetta urðu til-
drögin að minni fyrstu stóru
mynd.
Eftir þetta kom Eyjólfur aldrei
svo til Eyja að hann kæmi ekki
heim að skoða hjá mér og mála
fyrir utan hjá mér, en hans
uppáhaldsmótiv voru austur-
eyjarnar og Eyjafjallajökullinn.
— Sagöi hann þér eitthvað til?
— Nei, en hann bauð mér að
koma til sin eitt haust og vera hjá
sér. En ég hafði ekki ástæður til
þess... það var ekki hægt.
Þegar ég hætti vinnu á 75,ári,
fer mér að leiðast svo mikið að
hafa ekkert fyrir stafni og þá gaf
ég mig meira að þessu.
— Fannstu ekki vaxandi
ánægjukennd?
— Ég! Vissi varla hvað
timanum leið þegar ég var i þessu
stundum. Það segi ég alveg satt.
Enda sagöi einn listmálari við
mig: Þú hefur auðsjáanlega
gaman af að mála.
Af hverju merkiröu það, spyr
ég.
— Ég sé bara handbragðiö,
sagði hann.
Mér leið illa
á nýársnótt
— Fannstu nokkuö á þér að gos
væri i nánd?
— Nei. Ekki fann ég það. Alls
ekki að mér dytti svona lagaö
nokkuð i hug. En ég get ekki
neitað þvi að mér leið svo illa
siöastliðna nýársnótt, að ég ætla
ekki að lýsa þvi fyrir neinum, og
ég bjóst við að mér yrði eitthvað
mótdrægt á þessu ári ... ekki fyrir
fjandann, eða eitthvað þannig.
Nei, mig hefur aldrei dreymt
fyrir neinu, sizt að ég muni það.
— Hvernig finnst þér ellin?
— Hún er góð, ef maöur hefði
bara eitthvað að starfa. Ef fólk er
skemmtilegt i kringum mann þá
er hægt að taka ellinni eins og
öðri.
— Lestu mikið?
— Já, ég hef lesið óhemju
mikið i vetur. Það er eina sem ég
hef gert siöan ég fór að heiman að
lesa — ég hef ekki dregið blýants-
strik.
— Er ekki hugurinn heima i
Eyjum?
— Eg læt þaö allt vera... já,
ekkert mikið. En auövitað óska
ég eftir þvi að allt væri eins og
Framhald á bls. 15.
Bráðskemmtileg mynd frá gömlum tima I Evium.
Sumarsýning opnuö
í myndlistarhúsinu
Þar er til sýnis einkasafn
dr. Gunnlaugs Þórðarsonar á verkum
Gunnlaugs Schevings, alls 32 verk
I dag kl. 4 verður opnuð i
myndlistarhúsinu á Miklatúni
sumarsýning á verkum málar-
anna Finns Jónssonar (5 verk,ný
og gömul), Steinþórs Sigurðsson-
ar (5 verk er hann kallar öll
málverk), Guðmundu
Andrésdóttur (fjögur verk sem
hún kallar málverk), Braga
Ásgeirssonar (6 verk, mjög mis-
munandi útfærð), Hjörleifs
Sigurðssonar (4 verk sérkennileg
hvað snertir litameðferð), örlygs
Sigurðssonar (10 verk, þar á
meðal framúrskarandi teikning-
ar af Árna Pálssyni og Steini
Steinarr), Þorvalds Skúlasonar
(5 verk, öll nýleg), Ragnheiðar
Jónsdóttur Ream (5 verk, sem
skera sig nokkuð úr hvað snertir
form og liti) og Hrólfs Sigurðs-
sonar (3 verk, sem öl) eru i einka-
eign).
Stærsti hluti sýningarinnar eru
verk eftir Gunnlaug Ó. Schewing
sem öll eru úr einkasafni dr.
Gunnlaugs Þórðarsonar og konu
hans Herdisar Þorvaldsdóttur.
Þær myndir eru alls 32, málverk,
vatnslitamyndir og kliþpmyndir.
Á sýningunni eru 14 höggmynd-
ir eftir Sigurjón Ólafsson,
Guðmund Benediktsson, Jón
Benediktsson, Hallstein Sigurðs-
son og Sigrúnu Guömundsdóttur,
sem hefur verið við nám lengstaf
i Noregi.
Margar myndanna eru til sölu.
Sýningin verður opin daglega
frá 4 — 10, fram til
mánaðamóta, en lokað verður á
mánudögum. SJ
llerdis og Gunnlaugur við fyrstu myndina sem Gunnlaugur keypti af
nal'na sinum Gunnlaugi Scheving áriö 1942. Myndin kostaði 300
krónur. Gunnlaugur hélt siðan áfram að safna verkum eftir Gunnlaug
Scheving, keypti stundum tvær til þrjár myndir á ári. A þessum árum
seldi Gunnlaugur Scheving litið, en nú eru myndir hans mjög eftirsótt-
ar að vonum.
Nokkrir lislamannanna sem eiga verk á sýningunni
■■■■
Mánudagsmyndin í Háskólabíói er japönsk
LÍFVÖRÐURINN
YOJIMBO
(IJfvörAurinn)
Leikstjóri: Akira Kurosawa
Aðalhlutverk: Toskiro Mifume —
Seizaburo Kawa/.u
lsuzu Yamda —
Eijiro Tono
Um miðja átjándu öld ríkti öng-
þveiti i Japan. Silkiræktin stóð að
visu i blóma og hún gaf mikið fé i
aðra hönd, eu i kjölfar gróðans
jókst injög fjárhættuspil i laiul-
inu. Þessi ófögnuður æddi yfir
eins og farsótt. Spilafiknin heltók
fjöldann, bæði i stórborgunum og
sveitaþorpunum. Bændur scldu
jarðir sinar til þess að gela velt
sér i alls konar lystiseindum og
cyðslu i borgunum, þó að gjálifið
stæði sjaldnast lengi. Morð voru
daglcgir viðburðir og inannslifið
yfirleitt ekki metið hátt.
Dag nokkurn gerðist sá atburð-
ur, að til borgar einnar kemur
gestur, sem á eftir að vekja mikla
athygli. Maður þessi heitir
Sanjuro, kallaður hinn sterki,
enda rammur að afli. Kraftar
hans eru lika það eina sem hann
á, að viðbættri mikilli kænsku og
,,sumarai”-sverði hans, sem
hann skilur aldrei við sig. Sanjuro
er i atvinnuleit, og ekki liður á
löngu að hann fái tilboð um að
gerast lifvörður eða Yojibo, eins
og það nefnist á japönsku, það er
að segja verndari hinna nýriku.
Spurning, sem Sanjuro þarf að
ráða fram úr er aðeins sú, hverj-
um hinna nýriku hann eigi að láta
þjónustu sina i té.
I smáborg þeirri, sem Sanjuro
er komin til, i þvi augnamiði að fá
atvinnu, eru tveir andstæðinga-
flokkar, hvor með sinn fyrirliða,
sem herja hvor á annan i sifellu.
Eftir lævisleg svik og pretti af
hálfu Sanjuros fer allt i bál og
brand milli flokkanna og skulu nú
sakirnar gerðar upp til fulls. En
brátt vitnast, að það hafi verið
Sanjuro hinn sterki, sem
uppnáminu olli með þvi, einn og
óstuddur, að drepa lifvörðinn og
alla hans aðstoðarmenn, bjarga
siðan konunni úr fangelsinu og
koma henni undan.
Fyrir þetta er Sanjuro tekinn
höndum og honum misþyrmt
hroðalega. Hann sleppur þó úr
höndum böðlanna og heldur lifi.
Með hjálp þeirra fáu vina sem
hann hefur eignast i borginui,
leynist hann i húsi einu og þar
hressist hann, safnar kröftum á
ný og öðlast sinn fyrri þrótt.
Þegar Sanjuro hefur náð sér
aftur, ákveður hann að hreinsa
duglega til i borginni og nú hefst
úrslitaorrustan. Hann leggur að
velli með sinu þunga „sumaraj”-
sverði, alla sem eru honum i vegi
og vilja hefta för hans. Friður er
aftur kominn á i borginni og
Sanjuro hin sterki leggur af stað
með ,,sumaraj"-sverð sitt i leit að
nýjum ævintýrum.