Þjóðviljinn - 15.07.1973, Síða 15
Sunnudagur 15. júlf 1973. ÞJÓÐVILJINN — StPA 15
í
Einn hæsti foss landsins
er nú nærri í alfaraleið. Gönguferð
að fossinum er á
flestra færi og veitir mönnum
innsýn í stórkostlega
sköpunarsögu landslagsins.
Háifoss i Þjórsárdal
er einn af hæstu og
tignarlegustu fossum
landsins. Þjórsárdalur
er nú kominn i alfara-
leið. Margir koma
þangað til að skoða
Búrfellsvirkjun og þeir
sem eru á leið i Land-
mannalaugar, til Veiði-
vatna eða ætla norður
Sprengisand, fara nú
flestir um Þjórsárdal
og yfir Þjórsá á brúnni
við inntaksvirki Búr-
fellsvirkjunar.
leitir liparitkambar, Rauðu-
kambar. A milli Rauðukamba
og Reykholts má enn greina
gamlar bæjarrústir, liklega frá
söguöld. Bærinn stöð skammt
frá hver, sem þarna er. Nú er
þar sundlaug. f áframhaldi af
Rauðukömbum ris hátt fjall,
Fossalda. Á milli Fossöldu og
Stangarfjalls er Fossárdalur,
þröngur dalur, sem endar i
hrikalegum gljúfraþröngum,
þar sem Fossá steypist niður 125
metra hátt fall i Háafossi.
Frá þjóðveginum sést eins og
hvitt strik i botni Fossárdals,
fljótt á litið gæti þar virzt fönn,
þetta strik er Háifoss.
Leiðir að Háafossi
Það er ekki unnt að aka I bil
alla leið að Háafossi. Verða
menn að ætla sér að minnsta
mörkinni, þvi að kringum sund-
laugina eru grasbalar og trjá-
gróður, en allt i kring er nær þvi
gróðurlaus auðnin. Við sund-
laugina er sauðfjárgirðing.
Handan hennar er Flóamanna-
afréttur. Rétt austan við
laugina er hlið á girðingunni, og
má þar greina vegarslóða inn
Fossardal. Eftir honum er unnt
að komast talsvert inn dalinn,
og er þá alltaf vérið austan
Fossár. Þó er fjarri þvi, að unnt
sé að aka alveg að Háafossi.
Hólaskógur
1 Hólaskógi er ekkert tré.
Nafnið Hólaskógur er eitt þeirra
örnefna, sem minna okkur
óþægilega á, hve miklum breyt-
ingum landið hefur tekið frá þvi
á landnamsöld, og hversu við-
kvæm náttúran er fyrir illri um-
HÁIFOSS
Þótt ferðum i Þjórs-
ardal hafi fjölgað,
hefur fjöldi þeirra, sem
leggja leið sina að Háa-
fossi, ekki vaxið að
sama skapi. Endur-
bætur á vegakerfinu
hafa ekki einvörðungu
valdið þvi, að fólk fer i
lengri ferðir en áður
tiðkaðist, þær hafa lika
haft það i för með sér,
að fólk virðist ragara
við að yfirgefa bifreið-
ina og leggja land undir
fót i bókstaflegum
skilningi.
Þjórsárdalur er umgirtur
fjöllum á alla vegu nema að
sunnan, en þar beljar Þjórsá
fram af miklum krafti. Mynni
dalsins er frá suðurenda
Búrfells, þar sem Þjórsá
steypist niður Þjófafoss, að
Bringu eða Gaukshöfða, en þar
rennur áin fram i breiðum far-
vegi á sandeyrum.
Efkomið er i dalinn eftir þjóð-
veginum frá Reykjavik, er fyrst
komið að þeim tveim bæjum,
sem um. langa hrið hafa verið
einu býlin i dalnum, Asólfs-
stöðum og Skriðufelli. Siðan
liggur leiðin i landnorður með-
fram Skriðufellsfjalli og Dimon.
1 þessum hluta dalsins er
mestur gróður, hliðarnar
vaxnar þéttu birkikjarri. Dimon
er nokkurn veginn um miðjan
dal, og á móts við hann fer
vegurinn að sveigjast til
austurs. Hér ber meir á lágum
hólum og hæðum en fremst I
dalnum. Allt er hulið svörtum
vikri úr siðasta Heklugosi, en
undir honum glittir i hvitan
vikurúr fyrri gosum. Hóiarnir i
innri hluta dalsins eru gervi-
gigar, sem mynduöust I fyrnd-
inni, er hraun flæddi hér um á
leið til sjávar. Skömmu áður en
komið er að brúnni yfir Fossá,
liggur vegurinn upp á lága öldu,
og er tilvalið að stanza þar og
svipast um.
1 norðri er lágt fell, Reykholt,
mjög nærri og inn af þvi ljós-
kosti tvo til þrjá tima, ef þeir
ætla að komast að
'fossinum. Bezt er þó að hafa
rýmri tima, þvi að margt er að
skoða á leiðinni. Þeir, sem
áhuga hafa á myndun og mótun
landsins, ættu ekki að hraða för
sinni um Fossárdal.
Úr Þjórsardal er einkum um
tvær leiðir að velja. 1 fyrsta lagi
að aka upp i mynni Fossárdals
og ganga siðan inn dalinn, I öðru
lagi að aka norður með
Stangarfjalli I Hólaskóg, ganga
svo vestur yfir fjallsöxlina og
koma að fossinum ofanverðum.
Heppilegast er að sameina
þessar leiðir; fara t.d. frá Stöng
upp i Gjá, siðan norður með
Stangarfjalli i Hólaskóg og
þaðan að Háafossi; ganga siðan
fram Fossárdal og koma aftur
að Stöng. Þá hefur verið gengið
rangsælis hring um Stangar-
fjall. Þetta er tilvalin gönguferð
fyrir þá, sem vilja tjalda ein-
hvers staðar við Rauðá.
Gengið inn Fossárdal
Um tvær leiðir er að velja inn
Fossárdalinn Frá Stöng liggur
slóði vestur með Stangarfjalli,
og er hann fær öllum bilum. Um
það bil sem sér inn i dalinn er
komið að Fossá. Þarna er hún
yfirleitt ekki fær öðrum farar-
tækjum en torfærubilum. Það er
alls ekki vert að leggja út i neina
tvisýnu, þvi að ekki er unnt að
komast á bil miklu lengra inn
dalinn, menn spara sér i hæsta
lagi hálftima gang meö þvi að
fara yfir ána. Og þótt vel gangi
yfir á þessu vaði, er ekki öll
sagan sögð, þvi að vegarslóðinn
er mestan part á áreyrunum, og
er ýmist vestan eða austan
árinnar.
Miklu neðar við ána móts við
Reykholt, er vaðið á gömlu
Sprengisandsleiðinni. Botn er
þar góður, og ef litið er i ánni
má dröslast þar yfir á hvaða bil
sem er. Margur bilstjórinn
hefur þó mátt yfirgefa bil sinn
út i miðri á. Þeim, sem eru á
litlum bilum, er ráðlegt að fara
ekki yfir Fossa annars staðar en
á brúnni á þjóðveginum.
Austan Fossár er greið leið
inn Þjórsárdal. Vegurinn liggur
milli árinnar og Reykholts. Inn
við Rauðukamba er komið að
sundlaug. Þarna hefur verið
gerð sannkölluð vin i eyði-
gengni. Fyrr á öldum var þarna
allmikill rauðablástur, og má
enn sjá menjar hans. En til
rauðblásturs þurfti óhemju
magn kola, enda hefur skógur-
inn verið óspart höggvinn til
kolagerðar.
A milli Stangar og Steina-
staða rennur Rauðá, og hefur sá
forni kappi Gaukur Trandilsson
þurft að vaða ána er hann fór að
finna húsfreyjuna á Steinastöð-
um, eins og segir i hinum gamla
dansi:
Önnur var þá öldin
er Gaukur bjó að Stöng,
þá var ei til Steinastaða
leiðin löng.
Enn er skammur spölur frá
Stöng til Steinastaða, þó að báð-
ir þessir bæir séu löngu komnir i
eyði.
Rétt fyrir sunnan vaðið á
Rauðá má sjá vegarslóða, sem
greinist frá veginum til Stangar
til austurs. Þetta er leiðin inn i
Hólaskóg. Er ekið norður með
Stangarfjalli allt þartilkomið er
aö gangnamannakofa þeirra
Gnúpverja. Reyndar er þetta
reisulegra hús en svo, að rétt sé
að nefna það kofa.
Þarna verða menn að stiga t
úr bifreiðinni. Nú er komið að
afréttargirðingu Gnúpverja.
Nær Gnúpverjaafréttur allt inn
til jökla á milli Fossár og
Þjórsár. Ágætt er að ganga
meðfram girðingunni þar sem
hún teygir sig vestur og norð-
vestur upp Stangarfjall. Þarna
er hvergi bratt, og sauðkindin
unir sér vel á grasbölum og i
lágvöxnu víðikjarri. Þegar upp
er komið tekur við mýrlendi, og
þar er fuglalifið einstaklega
fjörugt.
Er gengið hefur verið i u.þ.b.
tvo tima má greina drunurnar I
Háafossi, og koma menn nú að
honum ofanverðum. Það er
tignarlegt að horfa niður i
gljúfrið og fram Fossárdalinn.
Sjálfsagt er að fara yfir ána
ofan við fossinn og skyggnast
niður af vestri brún gljúfursins.
Og nú er um tvennt að velja,
að fara sömu leið til baka eða aö
fara niður i gljúfrið og ganga
fram Fossárdal. Mun þá vera
öllu hentugra að fara niður
austan árinnar.
Háifoss i Þjórsárdal. I botni Fossárdals steypist Fossá niður I hrikaleg
gljúfraþröng. Fossinn er röskir 120 m á hæð.
Vfða er fagurt i Þjórsárdal og óviða er unnt aö „lesa" landmótunar-
sögu jafn auöveldlega og þar. Þessi mynd er tekin i Gjánni, undurfögr-
um stað við Rauðá, skammt fyrir ofan Stöng. Þeir, sem leggja leið sina
að Háafossi, ættu einnig að koma viö i Gjánni.