Þjóðviljinn - 15.07.1973, Side 17
Sunnudagur 15. júlí 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Ferðir um öræfi og eyðisveitir
eða um nágrenni Reykjavíkur
Mikil örtröð öefur oft verið af fólki I Þórsmörk. Ferðafélagið hefur reist salerni og snyrti-
klefa við skála sinn i Langadal. Þessi niynd er af byggingarframkvæmdunum í vor, en nú
er allt fullfrágengið.
Þegar félagar f Ferðafélagi tslands fóru um sfðustu hvitasunnu inn i Þórsmörk til að dytta
að og lagfæra ýmislegt við skálann i Langadai, bjuggust þeir eins og fleiri við góðu veðri.
Reyndin varð sú, að þeir lentu i snjókomu. Gamlir félagar segja, að ekki hafi snjóað svona
seint i Þórsmörk um áratugi.
Inngangur:
Ferðafélag tslands hefur lengi
unnið ötullega að ferðamálum. t
sumar verða eins og endranær
farnar margar lengri og skemmri
ferðir á vegum þess. Fargjald i
ferðalögum Ferðafélagsins er til-
tölulega lágt. Hver ferðalangur
hefur með sér skrinukost, og get-
ur þá hver matazt, þegar honum
hentar, og etið, hvað sem hann
vill.
Félagar Ferðafélagsins eru nú
um 7000, og borga þeir heldur
lægri fargjöld en utanfélags-
menn.
Árbækur Ferðafélagsins hafa
um langa hrið verið eftirsóttar. t
þeim má finna mikinn fróðleik
um bygggðir og óbyggðir lands-
ins. Bækur þessar ættu að vera til
á hverju heimili, einkum þar sem
börn eru. Um skeið hefur verið
allerfitt að eignast elztu árbæk-
urnar, en Ferðafélagsmenn hafa
látið Ijósprenta þær, og er nú unnt
að fá alla árganga árbókarinnar
nema fjóra.
Vert er að vekja athygli á stutt-
um ferðalögum á vegum Ferðafé-
lagsins, helgarferðum, eftirmið-
dagsferðum og kvöldferðum.
Félagið heldur uppi föstum
ferðum i Þórsmörk og Land-
Mikil umsvif
Ferðafélagsins
Búrfellsgjá, 25. júli i Seljadal og
1. ágúst út i Viðey.
Fargjald.
mannalaugar. A báðum þessum
stöðum á félagið skála, og er unnt
að dvelja þar milli ferða.
Þátttaka i ferðum félagsins
hefur verið mjög góð það sem af
er þessu sumri. Þátttakendur eru
á öllum aldri og ýmsu þjóðerni,
islendingar eru þó i miklum meiri
hluta. Að jafnaði hafa um 85%
þátttakenda verið íslendingar.
Langar ferðir.
I júlimánuði gengst Ferðafé-
lagið fyrir eftirtöldum löngum
ferðum:
Gistihúsið Djúpavogi
er eina gisti- og veitingahúsið á öllu svæðinu milli Beru-
fjarðar og Hornafjarðar.
Gistihúsið starfar allt árið og leggur áherzlu á góða þjón-
ustu.
Ferðafólki skal bent á, að Berufjörður og nágrenni býr yf-
ir margbreytilegri náttúrufegurð, sem vert er að njóta og
veita athygli.
Papey og fjöldi smáeyja i nánd viö hana búa yfir afar f jöl-
skrúðugu fuglalifi og sérstæðri náttúrufegurð. — Þangað
er aðeins 40 min. sigling frá Djúpavogi.
Minna má á að óviða hefur steinasöfnurum orðið eins vel
til fanga og i fjöllunum i nágrenni þorpsins^ enda sum
þeirra viðfræg fyrir sjaldgæfa og fallega náttúrusteina.
Gistihúsið Djúpavogi
BERUFIRÐI.
Kerlingarfjöll. 13. júli verður
íagt af stað til Kerlingarf jalla og
höíð þar tiu daga dvöl.
Mývatnsöræfi — ódáðahraun.
14. júli er lagt upp i 9 daga ferð
um Mývatnsöræfi. Verður viða
komið við og margt skoðað.
Skaftafell — öræfajökull. Atta
daga ferð, farin af stað 17. júli.
Strandir. 14. júli verður lagt af
stað I 6 daga ferð um Strandir, og
er meiningin að fara norður að
Dröngum.
Kjölur og Sprengisandur. Lagt
af stað 14. júli. Ferðin tekur sex
daga.
Hornstrandir. Ferðafélagið
ráðgerir tvær Hornstrandaferðir.
Þá fyrri 17. júli, og tekur hún niu
daga, þá siðari 23. júli, og verður
það 10 daga ferð. Verður farið fót-
gangandi um Hornstrandir.
Landmannaleið — Fjallabaks-
vegur.Sex daga ferð, lagt af stað
21. júli.
Snæfjallaströnd — lsafjörður —
Göltur.Lagt verður af stað i átta
daga gönguferð um þetta svæði
24. júli.
Hagavatn.24. júli verður einnig
lagt af stað I átta daga gönguför
frá Hlöðum á Hlöðuvelli og inn að
Hagavatni.
Vatnajökuli. 28. júli er ráðgert
að fara á Vatnajökul. Mun ferðin
taka fjóra daga, og verður farið
með snjóketti.
Lakagigar — Eldvatn — Laug-
ar. 28. júli verður einnig farið i
ferð að Lakagigum á vegum
Ferðafélagsins.
Fastar ferðir i Þórs-
mörk og Landmanna-
laugar.
1 Þórsmörk er farið á hverjum
laugardagsmorgni og hverjum
miðvikudagsmorgni. Mikið er
um, að fólk dvelji þar á milli
ferða, i hálfa eða heila viku eða
jafnvel lengur. Má þá hvort held-
ur sem er dvelja i skála Ferðafé-
lagsins eða eigin tjaldi.
A föstudagskvöldum eru svo
fastar ferðir i Landmannalaugar,
en þar á félagiö einnig skála.
jHelgar og dagsferðir.
Um hverja helgi efnir Ferðafé-
lagið til stuttra ferða. Um ýmsar
leiðir er að velja, Hnappadalur,.
Kerlingarfjöll og margt fleira.;
Á sunnudagseftirmiðdögum
verður farið i stuttar ferðir um
nágrenni Reykjavikur, og klukk-
an átta á miðvikudagskvöldum er
einnig farið i stuttar gönguferðir.
Er þá venjulega komið heim fyrir
miðnætti. Að kvöldi 11. júli verður
farið um Geldinganes, 18. júli að
Verð farmiða er nokkuð breyti-
legt, og fer það eftir þvi. á hvaða
hátt er ferðazt og hversu löng
ferðin er. 1 sumum ferðunum er
hluti leiðarinnar farinn i flugvél,
og hleypir það náttúrulega verð-
inu upp.
Venjuleg helgarferð kostar
1.300 krónur fyrir utanfélags-
menn. Ef um þriggja daga ferð er
að ræða er fargjaldið 1.800 krón-
ur.
Verð farmiða i langar ferðir er
breytilegt eins og áður segir. Ó-
dýrasta ferðin kostar 3.300 krónur
en sú dýrasta 10.400 krónur.
Verð farmiða i stuttum göngu-
ferðum, er frá 300krónum og upp
i 500 krónur, og fer verðið eftir
þvi, hversu langt er ekið áður en
menn hefja gönguna.
Fundir f
aÓ Hótel
Loftleidum^^
£ Fundarsalir IHótels Loftleiða eru hinir
’fullkomnustu hér á landi, og í grannlöndum
eru fáir betri. Þar geta 200 manns þingað í
einum sal, meðan 100 ráða ráðum sínum í
þeim næsta. Leitið ekki langt yfir skammt.
Lítið á salarkynni Hótels Loftleiða - einhver
þeirra munu fullnægja kröfum yðar.
HOTEL
LOFTL0ÐIR
«