Þjóðviljinn - 17.07.1973, Síða 1
r
Arás Breta
hrundið
Ægir kom i veg fyrir að brezkir
togarar sigldu á islenzk fiskiskip
innan 12 milna
i gær reyndu brezkir togara-
skipstjórar enn að ráðast á
isienzk fiskiskip við Hvalbak.
Virðist þetta hafa verið gert i
hefndarskyni vegna
togviraklippinga varðskipsins
Ægis. Er brezku togararnir voru
komnir inn fyrir 12 milur, sigldi
Ægir i veg fyrir þá, og snéru þcir
til baka.
A sunnudaginn átti Ægir i höggi
við vestur-þýzka verksmiðjutog-
ara. Þjóðverjar báðu brezka
freigátu um aðstoð, en Bretinn
sinnti ekki þvi neyðarkalli.
Árás á íslenzk fiski-
skip hrundið
I frétta tilkynningu Land-
helgisgæzlunnar er atburðunum
við Hvalbak svo lýst:
Un klukkan tiu á mánudags-
morgunin skar varðskipið Ægir á
báða togvira brezka togarans
BOSTON BLEMHEIM FD 137,
sem var að ólöglegum veiðum
innan fiskveiðitakmarkanna út af
Hvalbak, að viðstöddum brezku
freigátunni Bairwick F 115 og
brezku dráttarbátunum
Irishman og Englishman.
Eftir þennan atburð ákváðu
brezku togararnir að sigla á
islenzku fiskiskipin við Hvalbak,
en skipstjórinn á Englishman til-
kynnti þeim þá, að þeir nytu ekki
verndar aðstoðarskipanna, ef
þeir færu inn fyrir 12 sjómilur.
Fimm brezkir togarar sigldu i
I DAG
Starri i Garði
skrifar um þjóðhátið 1974
og setur fram nýjar hug-
myndir.
átt að islenzku fiskiskipunum, en
varðskipið Ægir sigldi á milli
brezku og islenzku skipanna, og
snéru brezku togararnir við, er
þeir voru komnir i 11 sjómilna
fjarlægð frá Hvalbak.
Þjóðverjar biðja
Breta um aðstoð
Landhelgisgæzlan lýsir atburð-
um sunnudagsins svo:
Varðskipið Ægir stuggaði við
brezkum og vestur-þýzkum
togurum úti fyrir Austur og
Suð-austurlandi á sunnudaginn.
Komið var að 10 vestur-þýzkum
togurum á öræfagrunni og
Mýrargrunni. Voru þetta allt
verksmiðjutogarar og hifðu þeir
allir, er varðskipið nálgaðist.
Framhald á bls. 15.
Að undanförnu hefur hópur af ungu fólki fengizt við að sá i öskulagið f hliðum Helgafells og Eldfells fyr-
ir ofan bæinn til þess að gera umhverfið vistiegra og hefta öskuna svo að Vestmannaeyingar þurfi ekki
að eiga von á stófelldu öskufoki f hvert sinn sem vindátt er óhagstæð.
Snúa Vestmannaeying-
ar heim í haust?
A vegum bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja fer nú fram athugun á
þvi, hversu margir vilja leigja
eðasélja hús sfn í Eyjum. Einnig
hefst væntanlega siðar i þessari
viku könnun á þvi, hversu margir
Vestmannaeyingar vilja snúa
heim strax i haust.
Vestmannaeyjabær hefur
skipulagt 600 húsa íbúðarhverfi
og hefur mælzt til þess við
Viðiagasjóð, að hann reisi
eitthvað af fyrirhuguðum húsum
sinum I Vestmannaeyjum.
Þjóðviljinn sneri sér til
Magnúsar Magnússonar, bæjar-
stjóra i Vestmannaeyjum, og baö
hann að segja frá fyrirhuguðum
framkvæmdum.
Húsnæðiskönnun
i Eyjum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
hefur látið fara fram könnun á
þvi, hvort þeir Vestmannaey-
ingar, sem eiga hús uppistand-
andi i Eyjum, vilja leigja eða
selja þau. Magnús Magnússon,
bæjarstjóri sagði, aö enn heföu
tiltölulega fáir eöa um 20 til 30
manns t jáö sig reiðubúna til þess.
Fleiri vildu kaupa hús, en þetta
gæfi þó ekki nema visbendingu,
þvi aö enn væri að vænta svara
frá mörgum aðilum.
Hugmyndin er aö auðvelda
þeim Vestmannaeyingum, sem
vilja annars vegar selja eöa
leigja út ibúöir og hins vegar
þeim er vilja kaupa eöa leigja
húsnæði, aö ganga frá kaupunum.
Lögfræöingur bæjarins mun sjá
um þessi mál og þannig spara
mönnum lögfræðikostnað.
Til Eyja í haust
Magnús sagöi, aö nú væri að
hefjast könnun á þvi hvort og
hvenær fólk hugsaöi sér aö
flytjast til Eyja. Þessar
uppíýsingar er nauðsynlegt aö fá,
þvi að ýmsar þjónustustofnanir,
svo sem skólar, dagvistunar-
stofnanir og verzlanir, verða aö
vera tilbúnar til starfa, þegar
fólkiö kemur.
Þessi könnun er unnin meö
sðstoð Skýrsluvéla, og fer liklega
ekki af stað fyrr en undir næstu
helgi. í þessu sambandi er einnig
náuðsynlegt að vita, hvort menn
vilja kaupa eða leigja húsnæöi, fá
Viölagasjóðshús eða vera meö i
að byggja raðhús eða fjölbýlis-
hús, ef öflugu byggingarfélagi
yröi komið á fót.
Byggingaióðir
Magnús sagöi, að bæjarstjórn
Vestmannaeyja heföi reynt aö fá
stjórn Viölagasjóðs til að endur-
skoöa áætlanir sinar um, hvar
Framhald á bls. 15.
Þannig var umhorfs á slysstaðnum. Flugvélin var af gerðinni Mooney og bar einkennisstafina TF-REA.
Hörmulegt flugslys á Holtavörðuheiði
Tvenn hjón fórust
Það hörmulega slys varð á
sunnudag að flugvél fórst I Snjó-
fjöllum á Holtavörðuheiði. t vél-
innivoru tvenn hjón og munu þau
að öllum likindum hafa látizt
samstundis. Þau sem fórust með
vélinni voru Ingimar Davfðsson,
gullsmiður og kona hans Sigriður
Guðmundsdóttir og Sigurður
Daviðsson, sölumaður, og kona
hans Jórunn Rannveig Elfasdótt-
ir. Ingimar fiaug vélinni, en hann
var með atvinnuflugmannspróf
og hafði m.a. fiogið hjá Vængjum
eitt sumar. Ingimar og Sigurður
voru bræður.
Ferðinni var heitið til
Þórshafnar á Langa-
nesi.
Flugvélin var af gerðinni
Mooney 21, einshreyfils, með sæti
fyrir fjóra. Eigendur voru Bárður
Danielsson, Ulfar Þórðarson og
fleiri.
Kona Ingimars, Sigriður Guö-
mundsdóttir, var flugfreyja hjá
Loftleiðum og var í vél þeirri sem
hlekktist á i lendingu fyrir nokkru
á Kennedyflugvelli.
Samkvæmt upplýsingum
Arnórs Hjálmarssonar, flugum-
ferðarstjóra, lagöi flugvélin af
stað kl. 16.09 á sunnudag áleiöis
Krossinn sýnir nokkurn veginn
hvar flugvélin fórst — eina 7-8
kilómetra norðan við Forna-
hvamm.
til Þórshafnar. Flugmaðurinn
kallaði að hann væri kominn út úr
Framhald á bls. 15.