Þjóðviljinn - 17.07.1973, Síða 10
Ágúst Ásgeirsson, tR, sigraöi I 800 metra hlaupinu, einu sekúndubroti á undan Júliusi Hjörleifssyni,
einnig úr ÍR. Myndin er tekin I byrjun hlaupsins.
Meistaramót Islands í frjálsum íþróttum
hófst síðast liðinn sunnudag
Ekkert íslandsmet
á fyrsta deginum
Árangur fyrsta dags
meistaramótsins ver
fremur slakur, ekkert
Islandsmet sá dagsins Ijós
og eini Ijósi punkturinn var
íslandsmetsjöfnun Ing-
unnar Einarsdóttur í 100
metra grindahlaupi. Tími
hennar varð 15,2 sek.
Þó var keppni skemmtileg i
mörgum greinum og mótið þvi
alls ekki leiðinlegt aö horfa á.
Keppni i 5000 metra hlaupinu
var t.d. afar skemmtileg. Þar
skáru þeir Sigfús Jónsson og
Halldór Guðbjörnsson sig strax
úr, þeir skiptust á um að leiða
hlaupið og tóku afgerandi forystu,
sem jókst er á leið. Halldór
reyndist siðan sterkari á enda-
sprettinum og sigraði, aðeins
einni sekúndu á undan Sigfúsi.
Fyrsta metiö var sett i 800
metra hlaupinu, og var það
telpnamet, sem Anna Haralds-
dóttir úr FH setti. Keppni i þessu
hlaupi var skemmtileg, Ragn-
hildur Pálsdóttir hafði forystuna
framan af, en Annette Brönds-
holm, sem var danskur gestur á
mótinu ásamt fleiri félögum
sinum, átti góðan endasprett sem
færði henni sigurinn. Anna varð I
5. sæti á nýju telpnameti, 2,24,1
min.
Það var siðan i 100 metra
grindahlaupi sem Islandsmets-
jöfnunin kom. Ingunn Einars-
dóttir náði þá góðum hraða strax i
upphafi og kom langfyrst i mark
á timanum 15,2 sek. önnur varö
Björg Kristjánsdóttir á 18,0 sek.
Eitt héraðsmet var sett,
Guðrún Agústsdóttir, HSK , stökk
1,48 metra i hástökki og varö i 7.
sæti.
Crrslit á fyrsta degi meistara-
mótsins uröu annars þessi:
Friðrik Þór stekkur hér sigurstökkiöi langstökkinu, 6,88 m.
Úr 5000 metra hlaupinu. Þar sigraði Halldór Guöbjörnsson, KR, eftir
geysiskemmtilega keppni við Sigfús Jónsson úr 1R.
Úr hástökki kvenna. Takiö eftir hinum sérkennilegu fingrastellingum stúlkunnar.
400 m grindahlaup: sek :
Stefán Hallgrimsson KR 54,2
Bjarne Ibsen Aag 55,7
Vilmundur Vilhj. KR 56,9
Hafsteinn Jóh.UMSK 60,0
200 m hlaup konur: sek:
Ingunn Einarsd. IR 26.5
Nanna Nyholm Aag 27,3
Asta B. Gunnlaugsd. ÍR 28.0
Sigurlina Gislad. UMSS 28,9
800 m hlaup konur: min.
Anette Bröndsholm Aag 2 :17,1
RagnhildurPálsd. UMSK 2:18,5,
Lilja Guðmundsd. 1R 2:20,4
Svandis Sigurðard. KR 2:24.0
Anna Haraldsd. FH
Telpnamet 2:24,1
Kúluvarp karlar: m:
Hreinn Halldórsson HSS 17,80
Erlendur Valdim. 1R 15,76
Guðni Halldórss. HSÞ 14,45
Páll Dagbjartss. HSÞ 14,28
Óskar Jakobsson 1R 13,28
800 m lilaup karlar: min :
Ágúst Asgeirss. 1R 1:57,1
Július Hjörleifss. IR 1:57,2
JónDiðrikss.UMSB 1:58,6
Gunnar P. Jóakimss. IR 2:00,3
Markús Einarsson UMSK 2:03,6
SigurðurP.Sigm.FH 2:05,5
Mads Thomsen Aag 2:0-,5
Erlingur Þorsteinss. UMSK 2:07,1
Spjótkast konur: m:
Lone Jörgensen Aag 43,84
Inge Lis Kanstrup Jensen
Aag 41,74
Karen L. Petersen Aag 36,32
Vibeke Mehlsen Aag 34,36
Hafdis Ingimarsd. UMSK 29,36
Lilja Guðmundsd. IR 23,10
100 m grindahlaup konur: sek :
Ingunn Einarsd. 1R J.lsl.
meti 15,2
Björg Kristjansd. UMSK 18,0
Björg Eiriksd. IR 18,6
Sigurlina Gislad. UMSS 18,9