Þjóðviljinn - 05.09.1973, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJIN' Miövikudagur 5. september 1973
ÖKUKENNARAPRÓF
Fyrirhugað er að halda ökukennarapróf i
Reykjavik og á Akureyri i þessum mán-
uði. Þeir, sem hugsa sér að þreyta prófið,
hafi samband við bifreiðaeftirlitið i
Reykjavik, eða á Akureyri fyrir 15. þ.m.
PRÓF í AKSTRI FÓLKSBIFREIÐA
FYRIR FLEIRI EN 16 FARÞEGA
fer fram i Reykjavik og á Akureyri i þess-
um mánuði. Þeir sem hugsa sér að þreyta
þetta próf, hafi samband við bifreiðaeftir-
litið i Reykjavik, eða á Akureyri fyrir 15.
þ.m. í Reykjavik verður tekið á móti um-
sóknum i prófherbergi bifreiðaeftirlitsins,
Borgartúni 7, milli kl. 17 og 18. á virkum
dögum, en á Akureyri á skrifstofu bif-
reiðaeftirlitsins.
MEIRAPRÓF
Fyrirhugað er að halda tvö meiraprófs-
námskeið i Reykjavik, sem hefst i þessum
mánuði og annað sem hefst i október. Tek-
ið verður á móti umsóknum milli kl. 17 og
18 á virkum dögum i prófherbergi bif-
reiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, til 15 þ.m.
Þeir, sem hugsa sér að sækja meiraprófs-
námskeið annars staðar á landinu hafi
samband við viðkomandi bifreiðaeftirlits-
mann sem fyrst
GÖGN MEÐ UMSÓKNUM
ÖKUKENNARAPRÓF.
1. ökuskirteini.
2. Meiraprófsskirteini.
3. Sakavottorð.
4. Læknisvottorð.
PRÓF í AKSTRI FÓLKSBIFREIÐA
FYRIR FLEIRI EN 16 FARÞEGA.
1. ökuskirteini.
2. Meiraprófsskirteini.
3. Læknisvottorð.
4. Sakavottorð
MEIRAPRÓF.
1. ökuskirteini.
2. Sakavottorð.
3. Læknisvottorð.
Reykjavik, 4. september 1973.
Bifreiðaeftirlit rikisins.
Islandia
73W
31.VIII-9.IX
Frímerkjasýningin
Kjarvalsstöðum
Kvikmyndasýningar daglega kl. 18.
Pósthús, frímerkjasala, sérstimplarv
Veitingar.
Aðgangur ókeypis.
Sjáið 100 ára sögu íslenzka
frímerkisins.
Islandia73
Vióburóur sem vert er aö sjá
opió kl. 14-22 daglega
Póst-og simamálastjórnin
Betri nýting
sjúkrahúsa
Nýlega birtist i Læknablaðinu
athyglisvert bréf frá islenzkum
læknum í Bretlandi um gcingu-
deildir sjúkrahúsanna. Benda
‘þeir á, að göngudeildir gegni
mjög mikilsveröu hlutverki i
starfsemi sjúkrahúsa viðast hvar
erlendis. Heimilislæknar geta
sent sjúklinga sina beint til þess-
ara deilda, þegar þeir álita, að
sjúklingarnir þarfnist frekari
sérfræðiþjönustu, og eru þeir sið-
an rannsakaðir og meöhöndlaðir
á þessum göngudeildum af lækn-
um sjúkrahússins. Aðeins i fáum
tilvikum er ástæða til að leggja
sjúklingana inn á legudeildir
sjúkrahússins. Þessar göngu-
deildir koma þessvegna i veg fyr-
ir ónauðsynlegar innlagnir á
sjúkrahúsin, og stuöla þvi að mun
betri nýtingu þeirra, minnka
stórlega sjúkrarúmaþörf og
spara vinnutap i mörgum tilvik-
um fyrir sjúklingana. Þetta fyrir-
komulag er þvi hagkvæmt bæði
fyrir sjúkrahúsin og almenning.
Læknarnir benda hinsvegar á,
að göngudeildir séu nú starfrækt-
ar aðeins við sum sjúkrahúsin i
Reykjavik, og sinni flestar hverj-
ar eingöngu eftirmeðferð sjúkl-
inga, sem þegar hafi legið inni á
legudeildum sjúkrahússins, en
taki ekki á móti sjúklingum beint
frá heimilislæknum. Þessar
deildir eru þvi aðeins nýttar til
hálfs miðað við það, sem taliö er
nauðsynlegt erlendis, og koma
ekki i veg fyrir ónauðsynlegar
innlagnir á sjúklingum, sem ella
hefði mátt rannsaka og með-
höndla á göngudeildinni. Biðlistar
sjúkrahúsanna i Reykjavik væru
þvi I mörgum tilvikum óraun-
verulegir og óþarfir, ef sjúkra-
húsin væru nýtt sem skyldi með
eflingu göngudeilda. Þessar
deildir krefjast lítils húsnæðis, og
eru þessvegna heppilegri lausn á
sjúkrarúmaskortinum, en bygg-
ing nýrra og kostnaðarsamra
legudeilda. Könnun á sjúkra-
rúmaþörf verður þvi alltaf vill-
andi, unz starfsemi sú, sem fram
eigi að fara á göngudeildum i
framtiðinni verði mörkuð hiö
fyrsta.
Jafnframt er bent á, að sér-
fræðiþjónusta verði bezt veitt á
sjúkrahúsum, bæði á göngudeild-
um og legudeildum, þar sem
nauösynleg rannsóknaraðstaða
sé fyrir hendi. Það er þvi skýlaus
krafa sjúklinga sem og heimilis-
lækna að eiga sem greiðastan að-
gang að þessari þjónustu, sem
bezt verður veitt með þvi að auka
starfsemi göngudeildanna til
muna.
Þjóöviljinn vill taka undir
þessa þörfu ábendingu, sem leitt
gæti til bættrar og auðveldari sér-
fræðiþjónustu fyrir almenning, og
komið gæti i veg fyrir hlaup sjúkl-
inga um endilangan bæ eftir
rannsóknum, þar sem með stofn-
un göngudeilda yrðu allar nauð-
synlegar rannsóknir veittar á ein-
um stað. Jafnframt yrði hér aug-
ljóslega um mikinn fjárhagslegan
sparnað að ræða i byggingu og
rekstri sjúkrahúsanna. Þiróun i
þessa átt er reyndar þegar hafin
hér á landi. Úti á landi eru heilsu-
gæzlustöðvar skipulagðar i
sjúkrahúsbyggingum, og i fyrir-
hugaðri geðdeildarbyggingu er
gert ráð fyrir opinni göngudeild.
Þeim á réttingaverkstæðinu fannst
vera kominn tími til að rétta úr sér.
Þess vegna fluttu þeir.
Nú er réttingaverkstæði Veltis h.f.
í nýju og rúmgóðu húsnæði, sem gefur
þeim möguleika til betri þjónustu
og jafnvel aukinna afkasta!
Réttingaverkstæði Veltis h.f. er nú
til húsa að HYRJARHÖFÐA 4.
Það mó ef til vill þekkja þó
ó dnægjusvipnum.
Suðurlandsbraut 16 • Reykjavik • Simnefni: Volver • Simi 35200