Þjóðviljinn - 05.09.1973, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 05.09.1973, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikndagur 5. september 1973 uomumN MALGAGN SÓSIALISMA VERKALYOSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverð kr. 300.00 á mánuði Lausasöluverð kr. 18.00 Prentun: Blaðaprent h.f. KAÞÓLSKARI EN PÁFINN Ef einhverjum hefur dottið í hug að trúa þeim lygum Morgunblaðsins að Þjóð- viljinn hafi verið andvigur þeirri stefnu, sem fylgt hefur verið i landhelgismálinu og beinist að þvi að þjóðin eigi að taka sér sem stærsta auðlindalögsögu, er rétt að biðja hinn sama að kynna sér sannleikann i málinu. Þjóðviljinn gagnrýndi og gagn- rýnir enn, að ákveðnu undirskriftarplaggi var breytt án þess að hafa áður samband við alla þá sem undir plaggið skrifuðu. Þessa málsmeðferð varði Morgunblaðið. Þjóðviljinn hefur allt frá þvi að land- helgismálið bar fyrst á góma með þessari þjóð verið það dagblað sem einarðlegast og ótviræðast hefur haldið á málstað ís- lendinga. Þar hefur blaðið stuðzt við stefnu Lúðviks Jósepssonar sjávarútvegs- ráðherra, en sú stefna kemur til dæmis vel fram i bæklingi þeim er Lúðvik skrifaði og gefinn var út i mai 1971. En látum þrætumál liggja á milli hluta. Þjóðviljinn vill minna á hitt sem er mikil- vægast, að i dag eru 50 milurnar verkefni okkar. Ekkert tal um það, sem gert kann að verða siðar leysir okkur undan þeim vanda sem verkefni dagsins setja okkur. Þetta er kjarni málsins. Svo mega menn auðvitað velta þvi fyrir sér hvers vegna Moggaklikan reynir lát- laust að gera litið úr þeim árangri sem við höfum náð með útfærslunni i 50 milur. Hún hefur jafnvel gengið svo langt að halda þvi fram að Bretar hafi nú fiskað meira en áð- urhér á íslandsmiðum. Moggaklikan hef- ur ævinlega reynt að gera sem allra mest úr afla Breta og hefur gengið svo langt að brezkir togaraeigendur hafa sjálfir orðið að reka lygina ofan i Morgunblaðið aftur. Þannig fer Morgunblaðinu enn; það gerist kaþólskara en páfinn. En af hverju hagar Moggaklikan sér svona? Svarið gæti ef til vill fundizt með sálfræðilegri athugun — eða er svarið ein- faldlega það að Morgunblaðið sé andvígt 50 milna landhelginni vegna þess að ihald- ið hreinlega iðrist afglapa sinna er það beitti sér gegn landhelgisútfærslu á al- þingi 1971? KONSÚLL ISLANDS HJÁ NATO Viðbrögð landsmanna við ofbeldisverk- um Breta eru nú óðum að skýrast. Alþýðu- bandalagið hefur krafizt beinna og ákveð- inna aðgerða gegn Bretum. Meðal annars er þess krafizt, að sendiherra Islands hjá NATO verði kallaður heim,þar sem þessi þokkasamtök sjá ekki sóma sinn i þvi að stöðva herskipainnrás Breta. Atlanzhafs- bandalagið hefur verið til beinnar óþurft- ar i landhelgismálinu og herstöðin hefur gerzt herstöð Breta i landhelgisdeilunni. Við þvi var alltaf að búast. Geir Hall- grimsson, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, hefur þó haldið þvi fram i barnaskap sinum og ofurtrú á NATO að bandalagið styðji okkur i landhelgismál- inu eða a.m.k. flestar þjóðir þess — 13 af 15. Þetta hefur enginn heyrt nema Geir Hallgrimsson, sem bendir til þess að hann hafi þar sérstök sambönd. Má raunar vera að eðlilegt sé að gera þá tillögu til vara að Geir Hallgrimsson verði gerður konsúll Islands hjá NATO. Þá ynnist tvennt: Hon- um gæfist kostur á að sanna kenningu sina um stuðning NATO, og Sjálfstæðisflokkur- inn losnaði undan forustu hans i bili. Nýr forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins Þörf er á uppgjöri um ferðamála- stefnu og stöðu ríkisskrifstofunnar Þau hótel sem til eru geta senn ekki tekið við fleiri útlendingum. Á laugardag tók Sigurður Magnússon, áður blaðafull- trúi Loftleiða, við starfi forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins af Þorleifi Þórðar- syni sem veitt hafði stofn- uninni forstöðu frá 1945. Á blaðamannafundi á mánu- dag gat Sigurður þess m.a. að aukning erlends ferða- mannastraums væri sýnu minni í ár en að undan- förnuog mundi ná hámarki 1976 ef ekki yrði lagt í sér- stakar framkvæmdir. Um leið bar hann það af sér, að hann væri einn þeirra sem umfram allt vildu „fylla Island af túristum". I athugasemdum Sigurðar um Ferðaskrifstofuna kom það m.a. í Ijós, að opinber framlög til hennar hafa minnkað um leið og einka- aðilar hafa saxað og vilja enn saxa á tekjumöguleika hennar. Siguröur sagði, að af upphaf- legum verkefnum Ferðaskrif- stofu rikisins væri nú tvennt eftir I reynd — að annast landkynningu og almennan ferðaskrifstofu- reksturfyrirútlendinga, einkum i sambandi við nýtingu skólahús- næöis til gistihalds (Eddu- hótelin). Af yfirlitihans um þróun stofnunarinnar má vera ljóst, að margir aðilar hafa lagzt á eitt um að gera veg hennar sem minnstan. Einkaferðaskrifstofum hefur verið látið þaö eftir að flytja Islendinga til útlanda. Hinn opin- beri styrkur til landkynningar- starfsemi hefur verið lagður niður og er nú enginn. Fráfarandi forstjóri kom i veg fyrir fjárhags- lega tortimingu Ferðaskrifstofu rikisins með þvi aö efna til arð- vænlegrar minjagripasölu i Reykjavik og á Keflavikurflug- velli og með þvi aö reka sumar- hótel i heimavistarskólum. Arið 1970 var Ferðaskrifstofunni gert að hætta minjagripasölu i Kefla- vik — var hún afhent Islenzkum Markaði. I stað þess tekjumissis átti skrifstofan að fá visst gjald frá tslenzkum Markaði af hverjum flugfarþega sem um Keflavik færi. Þótt deilt hafi verið um það hvern skilning bæri að leggja i þann samning (Islenzkur Markaöur hefur ekki viljað greiða gjald af öllum farþegum sem á völlinn koma) hafa þessir peningar nú um hrið veriö einu föstu tekjurnar, sem stofnunin hefur getað reitt sig á. Að taka hlekk úr keðju Rekstur Edduhótelanna var á- batasamurumtima, en hefur ekki verið það aö undanförnu. Það kom fram hjá Sigurði, að ásókn hefur veriö i þaö af hálfu einkaað- ila, að fá að reka þau Edduhótel, sem arðbær eru — en hann benti á, að aröbærni sumra — t.d. á Akureyri — væri tengd þvi, að hægt væri að gista i Edduhótelum annarsstaðar á landinu; þarna væri um samfellda keðju að ræða. I Edduhótelum eru um 800 rúm, eða fimmtungur af gistirúmum á landinu að sumarlagi, og Sigurður kvaðst aldrei hafa heyrt um neinn þann aðila sem gæti tekið að sér þann rekstur annan en Feröaskrifstofuna. En höfuö- vanda Edduhótela taldi Sigurður vera þann, að á þeim væri mjög mismunandi aðbúnaður — þvi væri nauðsynlegt aö reisa nýtt heimavistarhúsnæði með það fyrir augum að þau mætti vand- kvæðalaust nýta sem sumarhótel i samræmi við kröfur ferða- manna. Sigurður kvaðst ekki vilja kveöa upp dóm um það, hvort rikiö ætti aö fara með almennan ferðaskrifstofurekstur eöa ekki. ,,En"sagði hann,„sé sá kostur valinn, að rikið haldi uppi sam- keppni við einkarekstur, þá veröur að búa svo um hnúta, að rikisskrifstofan fái fullt frelsi til harðar samkeppni i þeim greinum sem arðvænlegastar eru, i stað þess aö takmarka starfsemina viö þá þætti, sem varla eru vænlegir til mikillar fjáröflunar.” Enginn styrkur A árunum 1947-68 var framlag rikisins til útgjalda Ferðaskrif- stofunnar vegna landkynningar 36,8%, en eigið aflafé hennar 63,2% af þeim kostnaði. En nú er skrifstofunni ekki ætlaður eyrir af opinberu fé til þessara hluta, en samt á hún að greiða á sjöttu miljón króna vegna samstarfs viö önnur Norðurlönd um landkynn- ingu erlendis. Kvaö Sigurður af þessu ljóst, að meö slikum fjár- hagsgrundvelli, sem væri eins- dæmi, væri að sjálfsögðu ekki hægt aö móta neina landkynn- ingarstefnu — sem ætti N.B. ekki aðeins að auka ferðamanna- straum.heldur og efla önnur góö kynni. Sigurður lagöi á það áherzlu, aö ferðamál væru sýnu veigameiri atvinnugrein en kæmi fram á skýrslum um gjaldeyristekjur af erlendum feröamönnum (7,9% af heildarútflutningsverömætum i fyrra). Mundi það koma betur fram, ef að unnt væri að slá þvi föstu hve margir hafa atvinnu af ferðamálum, sem eru i eöli sinu mannfrek þjónustugrein. í fram- haldi af þessu ræddi hann um nauösyn þess aö tengja þróun ferðamála viö menningarlega afstöðu til náttúruverndar. Hann vildi bera það af sjálfum sér og öðrum ferðamálamönnum að þeir Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.