Þjóðviljinn - 27.10.1973, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 27.10.1973, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. október 1973 Saumanámskeið Grunnnámskeið i verksmiðjusaumi hefjast við Iðnskólann i Reykjavik 12. nóvember næstkomandi. Kennt verður hálfan daginn i tveimur námshópum og geta væntanlegir þátttakendur valið um tima fyrir eða eftir hádegi. Námstiman- um er skipt i 2 x 3 vikur og lýkur fyrri hluta námskeiðanna 30. nóv. Siðari hluti námskeiðanna fer fram eftir áramót, 14. jan. til 1. febrúar. Námskeiðin eru eingöngu ætluð byrjend- um. Kennd verða undirstöðuatriði verk- smiðjusaums, meðferð hraðsaumavéla og vörufræði. Auk þess verða fyrirlestrar m.a. um atvinnuheilsufræði, öryggismál, vinnuhagræðingu og fleiri efni. Aðeins 8 þátttakendur komast i hvorn námshóp. Þátttökugjald er kr. 1.500,00. Innritun fer fram til 8. nóvember á skrifstofu skólans, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Skólastjóri KARATE KARATE Innritun verður 2. og 5. nóvember kl. 18-22 i anddyri íþróttavallarins i Laugardal. Nánari upplýsingar i sima 23927 eftir kl. 8 á kvöldin. Karatefélag Reykjavikur. ARISTO léttir námið 'r.r 7 | « 2 f ? ■1 So" 'io'1 i'ó 46''' >6' ■ »ó ' to' io'o' ‘ i "'■t3'".r''• "Á"^.r"'";t'T"«V''TjVTT ' i,' V” ' , ' *"T T"r""i T"rTTn ran ' ' ' '»»'•'■ n» ' ' ' tV ' '«'.» .' (•wikU | • 1 * »»'i "*•'» ' »'» '•»'» »'» ••» •»» Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi kröfum nútíma tækniþjóðfélags er sérhverjum námsmanni nauðsynlegt að vera búinn full- komnum hjálpargögnum við námið. Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms- fólk með kröfur skólanna í huga. Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla- tösku. PENNAVIÐGERÐIN Ingólfsstræti 2. Sími 13271. Œ u LJ C7 CJ o 0 o D Abebe Bikala er látinn Einn mesti langhlaupari siðari tima eöa jafvel allra tima, Eþiópiumaöurinn Abebe Bikala er látinn. Hann lést sl. miövikudag i Addis Abeba aöeins 41 árs aö aldri. Bikala er sá eini sem unniö hefur það mikla afrek að sigra i erfiöustu iþróttagrein sem til er, maraþonhlaupi á tvennum Ólympiuleikum i röð, en það gerði hann í Róm 1960 og Tokió 1964. Engum öðrum hefur tekist aö ná sér i tvö Ól-gull i maraþonhlaupi. Fyrir fjórum árum lenti hann i slysi sem olli þvi aö hann lamaöist og hefur hann orðið að vera i hjólastól alla liö siöan. Bikala var foringi í her Eþiópu og var dáöasti iþrótta- maöur lands sins fyrr og siðar. Pegar hann lamaöist var allt gert sem i mannlegu valdi stendur til að lækna hann og kostaði rikisstjórn landsins hann til allra frægustu sjúkra- húsa i heimi, en ekkert dugði. Abele Bikila Fást úrslit í körf- unni annað kvöld? Annað kvöld mætast KR og ÍR i stigum, KR, ÍR, og Valur. upp og leikið mjög vel. Þetta Reykjavíkurmótinu i körfuknatt- KR-liðið hefur sýnt mjög mis- sama má raunar segja um 1R og leik og getur þá svo farið að úrslit jafna leiki að undanförnum eða Val en þessi þrjú lið virðast fáist í mótinu. Vinni KR leikinn er öllu heldur misjafna leikkafla. 1 nokkuð svipuð að styrkleika. Það liðið orðið Reykjavíkurmeistari sumum leikjanna hefur liðið er þvi alls ekki vist að KR gangi en sigri ÍR, eru þrjú lið jöfn að dottið langt niður en siðan náð sér með sigur af hólmi i viðureigninni við 1R og þvi gæti svo farið að þrjú lið verði að leika til úrslita um Reykjavikurmeistaratitilinn. Annað kvöld leika einnig Valur og Armann og er búist við auð- veldum sigri Vals, en Armanns- liðinu hefur gengið illa i þessu móti. En auðvitað er langt frá þvi að Valsmenn séu öryggir um sigur og gætu þvi misst af lestinni, þótt KR tapaði. Badminton Opna mótiö er á morgun eins og við sögðum frá i fyrradag verður fyrsta bad- mintonmót vetrarins háð á morgun og hefst það kl. 14 I Laugardalshöllinni. Búist er við mjög harðri keppni i einliðaleik karla, en keppt verður I einliðaleik karla og kvenna. Það eru þeir Sigurður llaraldsson og llaraldur Kornelíusson sem búist er við að berjist um sigurinn eins og I fyrra en þá sigraði Sigurður eins og menn ef til vill muna. Við munum skýra frá úr- slitum mótsins i Þjóðviljanum á þriðjudaginn Reykjanesmótiö Reykjanesmótinu i handknatt- leik verður haldið áfram á morgun, sunnudag og hefst það kl. 14 með keppni i 2. fl. Annars munu eftirtaldir leikir fara fram. kl. 14:00 2. f 1., A-riðill kl. 14:40 2. f 1., A-riðill kl. 15:20 2. fl„ B-riðill kl. 16:00 1. fl. kl. 16:40 1. fl. 17:20 M.fl., A-riðill kl. 18:35 Mfl., A-riðill kl. 19:50 Mfl., B-riðill kl. 21:05 M.fl.. B-riðill F.H. — Stjarnan ÍBK - HK Grótta — Afturelding FH — Grótta Haukar — Breiðablik Haukar — Stjarnan Breiðablik — tBK Afturelding — Grótta FH — Viðir Haraldur Kornellusson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.