Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 14

Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. október 1973 Eldfj allastöðin tekur til starfa •starfar í nánum tengslum við Háskóla Islands Málverkasýningin 7 UNGIR DANIR verður opnuð i Norræna húsinu i dag, 27. október 1973, kl. 17. Opin daglega kl. 14—22 til 7. nóvember n.k. NORRÆNA HÚSIÐ Auglýsing um umferð i Hafnarhreppi í Gullbringusýslu Hér meö er ákveöið, aö frá og meö 1. nóv. 1973 nýtur um- ferö um Hafnaveg aö nýju forgangsréttar fyrir umferö um Stapafellsveg, þar sem vegir þessir skerast i Hafna- hreppi. Meö auglýsingu þessari eru úr gildi felld ákvæöi auglýs- ingar um umferö i Hafnahreppi frá 8. júni, 1972. Þetta tilkynnist hér meö öllum, sem hlut eiga aö máli. Sýslumaðurinn i GuIIbringu- og Kjósarsýslu 17. okt. 1973. Einar Ingimundarson. Atvinna Skrifstofustarf Óskað er eftir að ráða til starfa hjá stofn- un i Reykjavik stúlku til alhliða skrifstofu- starfa. Verzlunarmenntun æskileg. Umsóknir sendist dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu, Arnarhvoli fyrir 6. nóvem- ber n.k. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 25. október 1973. Þjóðviljinn óskar eftir umboðsmönnum til að sjá um dreifingu og innheimtu á eftirfarandi stöðum: AKUREYRI ÍSAFIRÐI GRINDAVÍK PATREKSFIRÐI Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins eða hjá framkvæmdastjóra. Þjóðviljinn, simi 17500. Norræna eldfjallastöðin veröur til húsa I Atvinnudeildarbygging- unni viö Hringbraut I Reykjavik I sambýli við jarövlsindastofu Raunvfsindastofnunar Háskól- ans. Er langt komiö breytingum og lagfæringum á húsnæöinu, og unniö er aö öflun tækjabúnaöar. Starfsemi eldfjallastövarinnar hefst nú þegar meö undirbúningi rannsóknarverkefna, en fimm styrkþegar eru væntanlegir næsta vor. Þessar upplýsingar koma fram i frétt frá menntamálaráðuneyt- inu. Þar segir einnig að stofnun- inni sé ætlað að starfa i nánum tengslum við Háskóla Islands bæði að þvi er varöar kennslu og rannsóknir, svo og nýtingu hús- næðis og tækja. Húsnæði stofn- unarinnar er látið i té af islenskri hálfu, en kostnaður vegna tækja- búnaðar og rekstrar skiptist að jöfnu milli Norðurlandarikjanna samkvæmt almennum reglum um greiðslu kostnaðar við sam- norrænar stofnanir. Stjórn Norrænu eldfjalla- stöðvarinnar á tslandi hélt fyrsta fund sinn dagana 25.-26. þ.m. i Reykjavik. A fundinum var Arne Noe-Nygaard, prófessor, frá Danmörku, kjörinn formaöur stjórnarinnar, og dr. Sigurður Þórarinsson, prófessor, varafor- maður. Skipunartimabil stjórn- arinnar er þrjú ár frá 1. júli 1973 að telja. Framkvæmdastjóri Eld- f jallastöðvarinnar er dr. Guðmundur E. Sigvaldason, jarð- efnafræðingur, og er hann ráðinn til starfans um fjögurra ára skeið frá 1. júli 1973. Norðurlandaráð samþykkti á þingi sinu i Ösló i febrúar 1968 á- lyktun, þar sem þvi var beint til rikisstjórna Noröurlanda að láta kanna skilyrði til þess að koma á fót norrænni eldfjallafræðistofn- un á Islandi. Skipuð var samnor- ræn nefnd til að fjalla um málið skilaði hún álitsgerð i mars 1971, þar sem mælt var eindregið með þvi, að slikri stofnun yrði komið á laggirnar. Akvörðun um, að svo skyldi gert, var tekin á fundi menntamálaráðherra Norður- landa i febrúar 1972 i Helsingfors, og skömmu siðar var samþykkt fyrsta fjárveiting til stofnunar- innar. Vorið 1972 var skipuð bráðabirgðastjórnarnefnd, sem m .a. var falið að semja tillögur að reglum fyrir stofnunina og undir- búa starfsemi hennar. Reglurnar voru samþykktar á menntamála- ráðherrafundi i Stokkhólmi i des- ember 1972 og tóku gildi frá 1. janúar 1973 að telja. í mai 1973 var fyrsta stjórn stofnunarinnar skipuð og framkvæmdastjóri ráð- inn. I stjórninni eiga sæti 8 menn, einn frá hverju landanna Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Svi- þjóð og fjórir frá Islandi. Eru tveir þeirra tilnefndir af verk- fræði- og raunvisindadeild Há- skóla tslands og einn af Orku- stofnun. Stjórnina skipa þessir menn: Frá Danmörku Arne Noe-Ny- gaard, prófessor, frá Finnlandi Matti Lahdeoja, visindamálafulltrúi, frá Noregi Christoffer G. Ofte- dahl, prófessor, frá Sviþjóð Gunnar Hoppe, pró- fessor, en islensku fulltrúarnir eru dr. Sigurður Þórarinsson, prófessor, og Þorbjörn Sigurgeirsson, prófessor tilnefndir af verkfræði- og raunvisindadeild Háskóla ts- lands, dr. Guðmundur Pálmason, tilnefndur af Orkustofnun, og Sveinn Jakobsson, deildarstjóri jarð- og landfræðideildar Náttúrufræðistofnunar tslands. Samkvæmt reglum Norrænu eldfjallastöðvarinnar er það hlut- verk hennar að sinna visinda- rannsóknum á sviði jarðelda- fræða og veita visindamönnum og námsmönnum frá Norðurlanda- rikjunum öllum og annars staðar að aðstöðu til að leggja stund á þau fræði. Nú fœrist skörin upp í bekkinn: Evrópsku NATO-ríkin gagnrýna nú stríðshótun Nixons BRÚSSEL 26/10 — Bandamenn Bandarikjanna f Evrópu gagn- rýndu I dag þá ákvöröun Nixons Bandarikjaforseta að skipa her sinum að vera viðbúnum strfði. Var gagnrýnin lögð fram á sér- fundi i fastaráöi Nató. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum I Briissel létu fulltrúar margra rikja i Ijós þá skoöun, að ekki hafi verið sá voði á feröum að ástæða hafi verið til að taka jafn hættulegt skref. Hin Nató-rlkin fengu að vita um þetta tiltæki Nixons i gær, er full- trúar þeirra voru kallaðir saman á skyndifund. Segir I fréttinni að þetta háskalega taugastriö Lúðvík Framhald af bls. 4 nokkrum tilslökunum frá fyrri til- lögum íslendinga, þá gæti sam- komulag byggt á þeim,með sann- gjörnum viðaukum og brcyting- um og lögskýringu forsætisráð- herra á greininni um lög- söguvaldiö, skilaö okkur drjúgan spöl áleiðis i landhelgismálinu. Slikt samkomulag ætti að tryggja okkur lögsöguvaldið, minnkandi sókn Breta á okkar mið og verulega aukna friðun á þýöingarmiklum bátamiðum. Stjórnarandstaðan hefir enn á ný sýnt það að á henni er ekki hægt að byggja i landhelgismál- inu. Hún er alltaf veikust allra i átökum við hina erlendu aðila, en gumar þó i tima og ótima af þvi, að hún vilji ganga lengra en aðrir i úrfærslu landhelginnnar. Stefna núverandi rikisstjórnar i landhelgismálinu hefir reynst rétt. Hún hefir þegar fært okkur stóra og mikla sigra i málinu. Það skiptir þvi höfuðmáli, aö frá þeirri stefnu verði ekki vikið i grundvallaratriöum, þvi hún mun færa okkur fullnaðarsigur, en fullnaðarsigur höfum við ekki unnið fyrr en öll bresk og vestur- þýsk fiskiskip og öll fiskiskip ann- arra þjóða hafa vikið af okkar fiskimiðum, eða lúta i einu og öllu okkar lögum og reglum um veiðarnar. Sendiherra Egyptalands Nýskipaður sendiherra Arabalýðveldisins Egyptalands, Gamal Naguib, afhenti I dag forseta tslands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Einari Agústssyni utanrikisráðherra. Siðdegis þáði sendiherrann boð forsetahjónanna aö Bessastööum ásamt nokkrum fleiri gestum. ( Frá skrifstofu forseta tslands). Bandarlkjanna hafi gert marga bandamenn þeirra hrædda og ruglaða í riminu. Bandarlkin voru búin að segja bandamönnum sinum að auknir vopnaflutningar Sovétmanna til Araba væru að stefna vopnahlénu I voöa, en varla hafði þeim orðum verið sleppt er Kissinger flaug til Moskvu og komist var að nýju samkomulagi. Að sögn látast margir forustumanna Vestur-Evrópurikjanna nú varla vita, haðan á þá stendur vestan- veðrið. Friðar- gœslu- menn á leiðinni NEW YORK 26/10 — AUs er ráðgert að eftirlitslið Samein- uðu þjóðanna I Austurlöndum nær verði sjö þúsund manns og kostnaðurinn við gæsluna verður fimmtán miljónir doll- ara fyrstu þjá mánuöina aö- eins, segir I skýrslu frá Kurt Waldheim, aöalritara Sam- einuöu þjóðanna, sem hann lagöi fyrir öryggisráðiö i kvöld. Fyrstu hermennirnir i gæsluliðinu eru þegar á leiö á vettvang. Tuttugu og fimm Svium, þrjátiu og niu Finnum og þrjátiu og sjö Austurrikis- mönnum var i dag flogið með breskum flugvélum frá Nikó- siu á Kýpur til Kairó. Eru þá sex hundruð hermenn Sam- einuðu þjóðanna komnir til Austurlanda nær. I gærkvöld útnefndi Kurt Waldheim finnskan general- majór, Ensie Siilasvuo, yfir- mann gæsluliðsins til bráða- birgða. Stórveldin sjálf munu ekki leggja gæsluliðinu til her- menn, en enginn bannar þeim hinsvegar að leggja til flutn- ingabila, fjarskiptaútbúnað og annað, sem til þarf.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.