Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 13

Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 13
Laugardagur 27. október 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 BOÐORÐIÐ 22 var reyndar andrúmsloft sem bar nokkurn keim af þvi sem hún hafði vanist i Kaupmannahöfn. Þetta var aö minnsta kosti skemmtilegt fólk sagöi hún, og þaö kunni að gera sér dagamun. Það kom iðulega fyrir, að hún kom ekki heim fyrr en um miðja nótt. En gat mér ekki staðið á sama, ég svaf hvort eð var. Ég gat bara ekki unnt henni þess að skemmta sér dálitið. — En hvað gerðir þú? spuröi Marianne. — Léstu þetta bara danka? Og varstu ekkert tor- trygginn? — Ég varð tortrygginn og ég lét það danka, sagði ég. — Þegar lið- ið var á nótt og hún kom ekki, datt mér iðulega i hug að fara til bæj- arins og ganga úr skugga um hvað hún væri eiginlega að aðhaf- ast. En ég hætti alltaf við það. Mér var ljóst, að ef ég birtist ó- boöinn innanum hóp af fullum apaköttum til að athuga, hvort verið væri að drekka eða kannski hórast lika, þá yrði hún kolvitlaus og heimtaði skilnað eins og hún var stundum að hóta. Ég var hræddur við það. — Þér hefur þá þótt vænt um hana þó sambúðin væri svona? — Hamingjan góða, vænt um! sagði ég og leit á Marianne. Mér þótti vænt um hana. — Þetta var ekki annað en... — Hvað áttu við, ekki annað en? Ég hlaut að hafa hugsað upp- hátt. — Að ég var ennþá skotinn i henni, þrátt fyrir allt — og ég hugsaði með mér að kannski myndi hún róast og þetta myndi lagast smám saman. Ég vildi að minnsta kosti ekki losna við hana og þvi siður vildi ég losna við fyrirtækið. Fjárhagurinn var ekki sérlega rúmur, og ef við skildum yrði að skipta minum hluta milli okkar, og ef ég ætti að borga hann út, gætum við eins pakkað saman, fyrirtækið og ég. — En hefði hún heimtað það? — Ég veit ekki hvað hún heföi heimtað, enda þótt... Jú, hún hefði gertþað! En það kom aldrei til þess, þótt hún talaði þannig kvöldiö áður, eins og allt væri á ystu nöf... — Kvöldið áður? — Já, sagði ég. —• Þegar hitt kom fyrir i staðinn. Þetta var undarlega til orða tekið, en Marianne lét það gott heita. Ég tók pipuna mina úr öskubakkanum og aðgætti hvort hún væri enn of heit. Hún var það, og ég lagði hana i bakkann aftur og hugsaði meö mér að ég hefði ekki troðið i hana hvort sem var. — Já, það kvöld, sagði ég og endurtók það eins og ég þyrfti lengra tilhlaup: — Það kvöld, eða öllu heldur nótt, kom hún drukkin heim og við rifumst ofsalega. Það var þetta vanalega: pex um pen- inga, hvers vegna i fjandanum hún gæti aldrei verið heima og hvar hún hefði verið og hún taldi sig ekki þurfa að standa mér skil á þvi, svona niskunös eins og mér en nú ætlaði hún heldur ekki aö láta bjóða sér meira og það var aivara... — Hvað er alvara? sagði ég við hana. — Þykistu i alvöru vera að hugsa um að sjá fyrir þér sjálf? En það er ekki nema sjálfsagt að ég hjálpi þér að ná i skrifstofu- vinnu. Þá sagði hún eða öllu heldur Brúðkaup Þann 6/10 voru gefin saman i Laugardaginn 6/10 voru gefin hjónaband i Þjóðkirkjunni i saman i hjónaband i Háteigs- Hafnarfirði af séra Garðari kirkju af sr. Jóni Þorvarðarsyni, Þorsteinssyni, Sigrún G.S. Arndal Guðný Hrönn Þórðardóttir og Óli og Sveinn Pálsson. Heimili þeirra Jóhann Kristinn Magnússon. er að Bröttuhlið 5, Hveragerði Heimili þeirra verður að Iðufelli Ljósmyndastofa Kristjáns, Sker-18, Reykjavik. (Ljósm.st. Gunnars eyrarvegi 7, Hafnarfirði. Simi i Ingimars). 50443. öskraði, að ég hefði engar mann- legar tilfinningar og siðan fór hún að háorga yfir þvi að hann hefði brugðist henni vegna konunnar sinnar — þessi forstjóri i vefnaðarvörufyrirtækinu þar sem hún hafði unnið bæði sitjandi og útafliggjandi... — Johs, sagði Marianne. — Já, ég veit, sagði ég. — Nú skal ég hætta. — Mérfinnst það. Þú getur ekki haldið svona áfram. En það gat ég svo sem. — En það var sem sé eingöngu þess vegna að hún hafði lent i þessum bölvuðum útkjálka með hundleiðinlegum og lummulegum durgi, sem gat ekki unnt henni neins, nei, hann skaffaði henni ekki einu sinni bil, og nú vildi hún skilnað. Hvað á ég eiginlega að gera hérna, hvernig á ég að af- bera þetta? kjökraði hún og mér datt ekki annað i hug en aö segja, að hún hefði þó mig. — Þig! sagði hún og hætti að gráta til þess að hlæja, nema hún hafi gert hvort tveggja i senn. — En að hugsa sér allt þetta, sagði Marianne, sem hafði rétt áður sagt að ég ætti að hætta. — Hvernig endaði þetta rifrildi? — Ég keypti bilinn handa henni, sagði ég. — Það var litill Morrris, notaður. Ég haföi séð i blaöinu að hann var til sölu i Sorö. Ég fór þangað og keypti hann daginn eft- ir. Þegar ég kem til baka og legg honum við húsið, sé ég að dyrnar standa opnar... Ég var allt i einu farinn aö tala i nútið og ég tók mig á. Ég var kominn á kaf i þetta eins og svo oft áður, ég endurlifði það allt upp á nýtt og komst aldrei lengra. — Johs, þú þarft ekki... þú skelfur, sagði Marianne. — Jú, ég má til. En ég vildi ekki komast á kaf i þaö. Það hlaut að vera hægt að standa álengdar og lita á það sem eitthvað löngu lið- ið. Nú ert þú hér og það er langt siðan. Marianne sat og horfði á mig með áhyggjusvip. Ég sagði: — Gefðu mér meira kaffi. — Þetta kaffi er orðið kalt, á ég ekki að fara fram og... — Nei vertu kyrr. — Já, sagði hún, og ég saup gúl- sopa af köldu kaffi og hætti að titra. 14 — Dyrnar stóðu opnar, sagði ég, — og ég kalla... ég kallaði til hennar inn i húsið. Hún hlaut að vera heima, fyrst það var opið, og ég vildi að hún kæmi út til þess að ég gæti sýnt henni bilinn. En hún svaraði ekki og kom ekki út. Og ég hugsaði sem svo að hún væri kannski i sólbaði i garðinum bak- viðhúsið. Það var hlýr ágústdag- ur. Ég fór þangað og á grasflöt- inni stóð tómur sólstóllinn henn- ar. t grasinu hjá honum lágu sól- gleraugun hennar ofaná hlaða af vikublöðum. Ég skildi ekki hvar hún gat verið. Hún gat ekkert far- ið, eins og hún hafði svo þráfald- lega stagast á. En hliðið við end- ann á garðinum stóð opið inn að skóginum og það gat verið að hún hefði gengið ein niður að tjörn- inni, þótt hún nennti aldrei að fara þangað með mér. Það var að minnsta kosti eini staðurinn sem mér datt i hug. Ég gekk niður skógarstiginn og leitaði að henni hjá bekknum sem ég hafði sett á tjarnarbakkann. Til sölu ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501 REYKJAVÍK, Laugardagur 7.00. Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (úr forustugr. dagbl), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45: Séra Helgi Tryggvason flyt- ur. Morgunleikfimi kl. 7.50: Valdimar Ornólfsson leik- fimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Asdis Skúladóttir byrj- ar að lesa söguna um „Astu litlu lipurtá” eftir Stefán Júliusson. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunkaffiökl. 10.25: Páll Heiðar Jónsson og gestir hans ræða um útvarpsdag- skrána. Borgþór H. Jónsson veðurfræðingur talar um veðrið og vegaverkstjóri um færöina. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 óskalög sjúklinga Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.30 A iþróttavellinum. Jón Asgeirsson segir frá. 15.00 islenskt mál. Dr. Jakob Benediktsson flytur þáttinn. 15.20 Hvað verður i barnatim- um útvarpsins? Nokkrar upplýsingar um barnaefni i upphafi vetrar. 15.30 titvarpsleikrit barn- anna: „Siskó og Pedró”, saga eftir Estrid Ott, I leik- gerð Péturs Sumarliðason- ar. Fyrsti þáttur. Leik- stjóri: Klemenz Jón on. Persónur og leikendur: Siskó: Borgar Garöarsson. Pedró: Þórhallur Sigurðs- son Pepita: Valgerður Dan. Maður: Jón Aðils. Carlo: Siguröur Skúlason. Juana: Þóra Lovisa Friðleifsdóttir. Sögumaður: Pétur Sumar- liðason. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir. Tiu á toppnum. Orn Petersen sér um dægurlagaþátt. 17.20 1 umferðinni. Þáttur i umsjá Jóns B. Gunnlaugs- sonar. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. Vetrarvaka. a. llugieiðing um missira- skiptinSéra Björn Jónsson i Keflavik flytur. b. Tómas Guðmundsson — ljóð og söngvar. Vilmundur Gylfa- son sér um þáttinn. Kórsöngur: Karlakór Reykjavikur syngurlög eft- ir Arna Thorsteinsson, Sig- valda Kaldalóns og Bjarna Thorsteinsson. Söngstjóri: Páll P Pálsson Kl. 20.30: • Nýtt framhaldsleikrit hefst: „Snæbjörn galti” eftir Gunnar Benediktsson.Leik- stjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leikendur: Snæbjörn galti: Þorsteinn Gunnarsson. Þorbjörn Þjóðreksson: Baldvin Halldórsson. Hólmsteinn: Rúrik Haraldsson. Svipdag- ur: Karl Guömundsson. Kjalvör: Helga Bachmann. Hallur: Arni Tryggvason. Sögumaður: Gisli Halldórs- son. 21.15 Illjómplöturabb. Þor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veöurfregnir. 22.30 Dansskemmtun útvarps- ins i vetrarbyrjun, auk danslagaflutnings af plötum leikur hljómsveit Asgeirs Sverrissonar. Söngvari: Sigga Maggý. 23.55 Fréttir i stuttu máli. 01.00 Veðurfregnir. 02.00 Dagskrárlok. 16.30 Þingvikan, Þáttur um störf Alþingis. Umsjónar- menn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 17.00 tþróttir. Meðal annars mynd úr ensku knattspyrn- unni kl. 18.00. Umsjónar- maður ómar Ragnarsson. Hlé. 20.00 Fréttir. 20.20 Veður ogauglýsingar. 20.25 Brellin biaðakona. Breskur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Heba Júliusdóttir 20.50 Ugla sat á kvisti, Skemmtiþáttur i sjónvarps- sal með söng og gleði. Gestir þáttarins eru Svan- hildur Jakobsdóttir og hljómsveitin Logar. Umsjónarmaður Jónas R. Jónsson. Stjórnandi upp- töku Egill Eðvarösson. 21.20 Gefiö þeim frið.Bresk fræðslumynd um fuglalif á Seychell'seyjum i Indlands- hafi. Þýðandi og þulur Ell- ert Sigurbjörnsson. 21.50 Orrusta á Atlantshafi (Action in the North Atlantic). Bandarisk striðs- mynd frá árinu 1943. Aðal- hlutverk Humprey Bogart, Raymond Massey, Alan Hale og Dane Clark. Þýð- andi Ellert Sigurbjörnsson. Myndin gerist á Atlantshafi i heimsstyrjöldinni siðari og greinir frá viðureign skip- verja á bandarisku oliu- flutningaskipi viö þýskar sprengjuflugvélar og kaf- báta. 23.45 Dagskrárlok. SÓLÓ- eldavélar Framleiði SoLó-eldavélar af mörgum stærðum og gerð- um. —einkuin hagkvæmar fyrir sveitabæi, sumarbústaði og báta. — Varahlutaþjónusta — Viljum sérstaklega benda á nýja gerð einhóifa eldavéla lyrir smærri báta og litla sumarbústaði. lldavklaverkstæði ÍÓIIA.VNS FIl. KRISTJANSSONAR II. KLEPPSVEGI 62. — SÍMI33069. Auglýsingasíminn er 17500 F.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.