Þjóðviljinn - 27.10.1973, Síða 16
DWÐVIUINN
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsími biaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld- , nætur- , og helgar-
þjónusta lyfjabúðanna i Reykja-
vík vikuna 26. október til 1.
nóvember verður i Holts apóteki
og Laugavegs apóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Laugardagur 27. október 1973
Egyptíir segjast
virða vopnahléð
Segja hjálp Bandaríkjanna við ísrael stríðsþátttöku
TEL AVIV, KAIRÓ og viðar 26/10. — Hið hálfopin-
bera egypska blað A1 Ahram hélt þvi fram i dag að
hjálp Bandarikjanna við ísrael væri nú orðin slík að
kalla mætti fulla striðsþátttöku. Egypska stjórnin
lét i gærkvöld i ljós ánægju með þá ákvörðun
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að senda
öryggislið til að fylgjast með þvi að vopnahlénu
væri framfylgt.
E1 Arisj er á Sinai, sem sagt
svæði sem ísraelsmenn hertóku i
sexdagastriðinu.
Framámenn israelska Verka-
mannaflokksins ákváðu i gær-
kvöld að styðja ekki þá kröfu
Jakobs Shapirós, dómsmálaráð-
herra, að Mosje Dajan varnar-
málaráöherra segði af sér, þar eð
hann hefði ekki búið landið nógu
vel undir strfðið.
Kissinger og Hrezhnev i Moskvu.
Mesta hœtta á
heimsstyrjöld
síðan 1961
WASHINGTON 26/10. — Segja má að sem snöggvast hafi stefnt
að heimsstyrjöld í samskiptum risaveldanna f gær, en málunum
var bjargað er Kandarlkin og Sovétrfkin komust aö samkomu-
lagi, þar sem gengið er út frá þvf að tryggt sé að hermenn
þessara tveggja risavelda taki ekki þátt í bardögum í Austur-
löndum nær.
Þetta var i fyrsta sinn siðan i Kúbudeilunni 1961, að Banda-
rikjaher um allan heim var skipað að gera sig kláran. Hinsvegar
gera bæði stórveldi sér ljóst, að málin fyrir Miðjarðarhafsbotni
eru jafn óleyst og fyrr, þótt vopnin séu svo að segja þögnuð og
gæslulið frá Sameinuðu þjóðunum sé á leiðinni. Þáð eru her-
flokkar frá Sviþjóð Finnlandi og Austurriki, sem fyrstir koma á
vettvang til að gæta þess að vopnahlénu sé framfylgt.
Skipunin um að vera viðbúnir öllu er enn i gildi fyrir suma heri
Bandarikjanna, til dæmis árasarflugflotann.
Talsmenn egypska hersins hafa
neitað þeirri ásökun Isra-
elsmanna, að Egyptar hafi ráðist
á fsraelskt oliuskip á Súesflóa.
Sögðu talsmennirnir skipið hafa
siglt á tundurdufl. Þeir neituðu
lika þeim fullyrðingum Israels-
manna að hersveitir Egypta, sem
umkringdir eru f borginni Súes,
hefðu reynt að brjótast út úr her-
kvinni i morgun. Segjast Egyptar
virða vopnahléð i hvivetna.
Þá hafa Egyptar nú tilkynnt að
israelsku hermennirnir,sem fóru
yfir Súes-skurð sextánda október
og náðu fótfestu vestan hans, hafi
verið klæddir egypskum ein-
kennisbúningum og talað arab-
isku, og hafi varömenn Egypta
þvi ekki varast þá. Þessi yfirferð
Israelsmanna breytti hernaðar-
aöstööunni sem kunnugt er mjög
þeim i hag. Um hjálp Banda-
rikjanna við tsrael hefur
Múhameð Heykal, ritstjóri og
náinn vinur Sadats, sagt, að
bandariskar flutningavélar með
vopn lendi á flugvelli við E1 Arisj.
Þetta er alvarleg ásökun, þvi að
Nœsti fundur 30 manna nefndar 5. nóv
Tvær starfsnefndir
starfa þangað til
Næsti viðræðufundur 30 manna nefndar ASl og
Vinnuveitendasambandsins verður 5. nóvember, en
fundur þessara aðila, sem haldinn var á fimmtu-
dag, ák-að að tvær nefndir skuli starfa til þess tima.
Fjallar önnur um tryggingamál og greiðslur i veik-
indatilfellum og hin um kauptryggingu timavinnu-
fólks.
— Atvinnurekendur vildu ekki
halda áfram alvarlegum
samningaviðræðum, — sagði
Eðvarð Sigurðsson þegar við
ræddum við hann i gær um
fimmtudagsfundinn, — milli
stóru nefndanna fyrr en þeir
hefðu fengið „yfirsýn yfir allt
máliö”, eins og þeir sögðu. Þetta
þýöir að þeir vilja að allar sér-
kröfur aðildarfélaga ASI séu
fram komnar, en þær eru það
ekki nú,—
Nefndin sem fjallar um trygg^
ingamál og greiðslur i veikinda-
tilfellum var skipuð á fundinum á
fimmtudag, en ákveðið að i hina
skipi Verkamannasambandið, en
það heldur þing sitt i dag. — úþ
3000 FULLTRÚAR FRÁ 144
ÞJÓÐUM Á MOSKVUÞINGI
25. okt. Iiófst I Moskvu þing 3000
manna frá 144 löndum. Þing þctta
er haldiö til þess ,,aö sameina
krafta allra raunverulegra
friðarsinna I þvi skyni að hafa enn
meiri áhrif á þá þróun. sem miðar
ALÞÝÐUB AN DALAGIÐ
Mannlif og samfélagshættir
Umræðuhópurinn kemur saman á Grettisgötu 3 á mánudaginn, 29.
október, kl. 20.30.'Alþýðubandalagið Reykjavlk —Borgarmálaráð.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Fundur verður haldinn i Alþýðubandalagihu i Kópavogi mánudaginn
29. október i Þinghóli við Alfhólsveg. kl. 20.30.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst hér i blaðinu á morgun.
Stjórnin
að slökun spennu á alþjóöavett-
vangi og bættu samstarfi milli
rlkja sem búa við mismunandi
þjóðskipulag”, segir I frétt sem
Þjóðviljanum liefur borist frá
APN.
Þingið fjallar meðal annars um
alþjóðlegt öryggi, um ástandið i
Indókina og Miðausturlöndum,
nýlendustefnu og kynþáttaof-
sóknir, ástandið i Chile, þróunar-
vandamál, efnahagslegt sjálf-
stæði, samstarf i skólamálum og
menningarmálum og umhverfis-
vernd, segir ennfremur i fréttatil-
kynningunni.
Þinginu hafa borist kveðju-
skeyti frá ýmsum þekktum
stjórnmálamönnum. eins og Kurt
Waldheim.
Varnarmálanefnd
sœnska þingsins
fjallar um IB-málið
STOKKHÓLMI 26/10. — Sænska öryggislögreglan gerði i gær
upptækan elektróniskan hlerunarútbúnaö i sambandi við
IB-málið. I rikisþinginu ræðir varnarmálanefndin tillögu frá
sósíaldemókrötum, þess efnis að einhver borgaraleg stofnun fái
að fylgjast með upplýsingaþjónustu herforingjaráðsins.
Nýtt og nýtt
kemur í ljós
WASHINGTON 26/10—1
gærkvöldi kraföist for-
maöur rannsóknadeildar
dómsmálaráðuneytisins
bandariska/ Henry Peter-
sen, ásamt rannsókna-
nefndinni sem Archibal
Cox stóö fyrir, þess aö
tryggt væri af hálfu dóms-
valdsins að „enginn óviö-
komandi" fengi aðgang aö
skjölunum, sem Cox og
samstarfsmenn hans hafa
safnað vegna Watergate
málsins. Þessi krafa er
túlkuð þannig, að lið Hvíta
hússins sé enn á stúfunum
til að koma í veg fyrir hlut-
lausa rannsókn.
Bandarisku blöðin flytja nú
daglega fréttir af skuggalegu
háttalagi ýmissa náinna vina
Nixons i fjármálum. Ekki hafa
þau enn borið neitt af sliku beint á
Nixon sjálfan, en greinilegt er að
þau ætla ekki að láta af eftir-
grennslunum sinum. Það voru
sem kunnugt er blöð eins og New
York Times og Washington Post,
sem á sinum tima afhjúpuðu
Watergate-hneykslið, og segja
má lika að þau hafi haft forustu
um sóknina gegn Agnew.
Nixon hefur hvað eftir annað
frestað blaðamannafundum og
sjónvarpsræðum, sem boðað
hefur verið að hann flytti, og er
það túlkað svo að hann sé hrædd-
ur við að horfa framan i þjóðina.
Bresnéf um baráttu Araba:
Þeir berjast
fyrir friði
MOSKVU 26/10 — Leónid
Bresjnéf, formaður kommúnista-
flokks Sovetrikjanna, upplýsti i
dag að Sovétrikin hefðr þegar
sent til Austurlanda nær fulltrúa,
sem ættu að fylgjast með þvi
hvort vopnahléssamþykkt
Oryggisráðsins væri framfylgt.
Hann sagðist vona að Bandarikin
gerðu slikt hið sama.
Bresjnéf gat þess ekki hve
margir eftirlitsmenn þessir væru
og hvernig þeir ætluðu að fram-
kvæma eftirlit sitt. En samkvæmt
opinberum heimildum er þarna
um að ræða hermenn, að visu
ekki endilega einkennisklædda,
og liklega um hundrað talsins.
Bresjnéf talaði i nærri tvo og
hálfan klukkutima yfir rúmlega
þrjú þúsund fulltrúum á alþjóð-
legu friðarráðstefnunni, sem nú
fer fram i ráðsstefnuhöllinni i
Kreml. Hann var ákaft hylltur,
ekki sist er hann lagði áherslu á
að barátta Araba fyrir að þurrka
út afleiðingar ágengi Israels-
manna væri jafnframt barátta
fyrir varanlegum og réttlátum
friði i Austurlöndum nær.