Þjóðviljinn - 02.12.1973, Síða 13

Þjóðviljinn - 02.12.1973, Síða 13
Sunnudagur 2. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA X3 — Hefðirðu orðið bóndi, værirðu fyrir löngu orðinn dauðleiður á smjörblómum, sagði konan hans rólega. — Það verða allir bændur. Hún hafði bersýnilega ekki látið ræðuna hans hafa áhrif á sig, enda þótt „aðrar skyldur” sem eyðilögðu drauminn hans, hefðu trúlega veriðhún sjálf og synirnir tveir sem hún hafði alið honum. — Heyrðu, er ekki farið að kólna dálitið hérna úti? hélt hún áfram og yppti berum öxlunum. — Eigum við ekki að koma inn? — Auðvitað, góða min. Allt i einu var Dawson ekkert nema umhyggjan. Hann hjálpaði kon- unni sinni upp úr stólnum og varð henni samferða i áttina að upp- lýstri stofunni, og þá fyrst tók Rósamunda eftir þvi að Lindy hafði verið að virða þau fyrir sér úr opnum dyrunum. Ef til vill hafði hún litið út til að athuga hvort gestirnir i garðinum skemmtu sér vel og hefðu nóg af mat og drykk. En Rósamunda gat ekki að sér gert að túlka augna- ráð hennar á annan hátt. Kemur hún enn, sagði hún við sjálfa sig, að njósna um okkur öll til að vita hvort hún getur ekki staðið eina af giftu konunum að þvi að rifast viö manninn sinn eða sýna honum yfirgang eöa eitthvað i þá átt. Sennilega heldur hún að frú Dawson sé ekki vitund kalt, heldur sé hún að drösla honum inn i stofu til að fjarlægja hann frá þessari leiðinlegu glókollu, sem getur ekki sagt orð af viti um hauka. A morgun kemur hún og segir okkur frá þvi, það veit ég með vissu, og þá verð ég að fóðra hana á kaffi og kökum meðan hún lætur móðan mása yfir þvi. Og svo talar hún um, hve hræðilegt það sé að hún skuli hafa komið i veg fyrir að hann yrði bóndi, og ef ég segi að hann sé i rauninni dauðfeginn að hún skuli hafa gert það, þvi að undir niðri vilji hann heldur rólegt og þægilegt lif, þá segir Lindy... þá segir hún.... Rósamunda gat gert sér i hugarlund ismeygilega og mark- vissa athugasemd Lindyar, sem þaggaði gersamlega niður i Rósa- mundu i þessu imyndaða samtali. Já, eiginlega var Rósamunda næstum búin að gleyma að sam- taliö varimyndað. Og henni datt það ekki i hug heldur að það væri ósköp ótrúlegt að Lindy hefði heyrt orð af þvi sem Dawson- hjónin höfðu sagt hvort við annað úti á grasflötinni. Þvi að eftir ökuferðina til frú CELIA FREMLIN KÖLD ERU KVENNA- RÁÐ Fielding þennan dag, hafði Lindy i Imyndun Rósamundu vaxið upp I óendanlega stærð og hafði til að bera yfirnáttúrlegt þrek og klók- indi. Og enginn og ekkert gat varist þvi að festast i neti hennar. Já, jafnvel nú veitti hún þvi áreiðanlega athygli — og geymdi vitneskju sina til betri tima — að Rósamunda og Geoffrey höfðu ekki sagt orð hvort við annað eftir aö þau komu. Og á hinn bóginn, ef Rósamunda hefði leitað að honum og talað við hann, þá hefði það lika verið lagt á minnið — og túlkað sem ágengni. Og ef Rósa- munda færi snemma heim úr veislunni, sem hana langaði mest af öllu, yrði kennt um smámuna- semi og afbrýði. En ef hún yrði kyrr allt til loka, þá gerði hún það til að geta fylgst með eiginmanni sinum og ganga úr skugga um að hann skemmti sér ekki of vel i návist hinna kvennanna. Allt i einu rifjaðist upp fyrir Rósamundu samtalið við eigin- mann Elieenar og nú leit hún á það i nýju ljósi. Þegar Basil hafði kvartað yfir þvi, að fólk hefði njósnað um hjónaband hans i von um að finna merki þess að það væri að fara út um þúfur, hafði ,,fólk” þá verið umritun á Lindy? Eða hafði illgirni og hnýsni mág- konunnar eitrað svo mjög and- rúmsloftið kringum hann að honum fannst að lokum sem ,,allir” væru að njósna um hann? Rósamunda sá i anda Lindy sitja i litilli ibúð nýgiftu hjónanna og horfa og hlusta og taka eftir þvi, hvort Basil kyssti konuna sina um leið og hann kom inn úr dyrunum eða hvort hann tók fyrst póstinn sinn á borðinu... hvort Eileen kæmi þjótandi framanúr eldhúsi til að taka á móti honum.... Hún er hreinasta blóðsuga, hugsaði Rósamunda og réð ekki við andúð sina. Hún lifir góðu lifi á göllunum i hjónaböndum annarra. Hún sýgur úr þeim blóð, uns ekkert er eftir nema eitthvað visiö og blóðlaust i stað þess sem áður var.og svo kærir hún sig ekki einu sinni um karlmanninn. Eða gerir hún það kannski? Það má guð vita. Er hún á hött- unum eftir Basil...eða er það Geoffrey sem hún vill? Hið eina sem nú komst að i huga Rósamundu var að komast óséð úr þessu skelfilega samkvæmi. Hún ruddist eins og i ! blindni gegnum stofuna og and- dyriö og þegar hún þaut framhjá stiganum, þóttist hún heyra Eileen gráta uppi á lofti. En það var fráleitt. Það hefði hún með engu móti getað heyrt. Jafnvel þótt Eileen hefði i raun og veru verið að gráta, þá hefði hún alls ekki getað heyrt það; til þess var alltof rnikill hávaði alls staðar. Samt sem áður tók hún hið imyndaða hljóð með sér út úr húsinu eins og aukafang af brenni til að kasta á hatursloga sjálfrar sfn um leið og hún var komin inn fyrir sina eigin húsveggi. RÍSPAPPÍRSLAMPINN FRÁ JAPAN Japanski rispappirslampinn fæst nú einnig á fsiandi i 4 stæröum. Hentar hvar sem er, skapar góöa birtu og er til skrauts bæði einn og einn og i samsetningum eins og á myndinni. Athyglisverð og eiguleg nýjung. HÚSGAGNAVERZLUN AXELS EYJÓLFSSONAR SKIPHOLTt 7 — Reykjavtk. Simar 10117 og 18742. Afhending nhitabréfa Hlutafjárútboði Samvinnubankans er nú Iokið og hlutabréfin tilbúin til afhendingar. Þeir hluthafar, sem gert hafa full skil á hlutafjárloforðum sín- um, geta fengið hlutabréf sín afhent hjá aðalbankanum og útibúum hans víðsvegar um land, eða fengið þau send í ábyrgðarpósti. SAMVINNUBANKINN BANKASTRÆTI 7. REYKJAVÍK, SÍMI: 20700 verzlið á 5 hæðurní Skoðið hina nýju ATON DEILD á annarri hæð ATON- HÚSGÖGNIN eru sérstæð glæsileg og AL-ÍSLENSK | Skoðið renndu I vegghúsgögnin skápana og skattholin Engir víxlar — heldur mánaðargreiðsiur með póstgíróseðlum — sem greiða má í næsta banka, pósthúsi eða sparisjóði. jOpið til kl. 10 á föstudögum |— og til kl. 12 á hádegi laugardögum. Næg bílastæði. Jll JÓN LOFTSSONHF. Hringbraut 121 . Simi 10-600 Hraðkaup Fatnaður i fjölbreyttu úrvali á alla fjölskylduna á lægsta fáanlegu verði. Opiö: þriðjud.,. fimmtud. og föstud. til kl. 10, mánud., miövikud. og laugardaga til kl. 6 Hraðkaup Silfurtúni, Garðahreppi v/Hafnarfjaröarveg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.