Þjóðviljinn - 18.12.1973, Page 4

Þjóðviljinn - 18.12.1973, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. desember 1978. Yar ,reynt að stilla gæslunni í hóf’? þingsjá Á fundi neðri deildar al þingis í gær var enn til um ræðu tillaga Hannibals Valdimarssonar og Kar- vels Pálmasonar um skip- un rannsóknarnefndar vegna landhelgisgæslu fyrir Vestfjörðum á á- kveðnu tímabili í haust. Auk flutninfísmanna töluöu Sverrir Hermannsson, sem kvaöst styöja tillöguna og sagðist ekki lita á hana sem vantraust á forsætisráðherra, Bjarni Guðna- son, sem kvaðst ekki geta fallist á tillöguna, þar sem húm væri ,,af þannig toga”, Vilhjálmur Hjálmarsson, sem kvað tilefni ekki nægilegt til að samþykkja svo alvarlega tillögu, og Björn Pálsson. Til ýmsra orðahnippinga kom milli Bjarna Guðnasonar og Hannibaís Valdimarssonar, og m.a. kvaðst Hannibal vilja spyrja ,,þetta háttvirta furðufyrirbæri þingsins”, hvað máliö hefði að gera lengra, ef það hefði verið upplýst i þingnefnd. Björn Pálsson sagði, að það hefði ekki verið viturlegt eða leyfilegt fyrir Olaf Jóhannesson að tilkynna, að landhelgin yrði ekki varin. kallað úr salnum og Björn sagði: ,,Það gefur auga leið, að ekki var klippt á þessum tima. Heynt var að stilla gæslunni i hóf, svo að Bretar kæmu ekki inn með herskipin aftur og ekki yrði hægt að semja. Forsætisráðherra hal'ði mikinn hug á að samningar tækjust. Þetta ættu allir að skilja. Hitt er annað mál, að menn eru misgreindir og bjáni getur aldrei orðið að speking.”. Svo mælti Björn Pálsson, og kynni einhverjum að þykja ihug- unarefni. Þingsályktunartillögunni var siðan visað til allsherjarnefndar. Frá fundi neðri deildar í gœr \ fundi neöri deildar alþingis i gær var mælt fyrir nokkrum mál- um, sem áöur höföu hlotið afgrciðslu i efri deild. Björn Jónsson, félagsmála- og samgönguráðherra, mælti fyrir stjórnarfrumvarpi um samein- ingu flugfélaganna. Hann mælti einnig fyrir frumvarpinu um tekjustofna sveitarfélaga, en það felur i sér, að sveitarfélögunum verði heimilað, að innheimta 60% fyrra árs útsvars sem fyrirfram- greiðslu i stað 50% áður, einnig að öll sveitarfélög hafi jafnan rétt til innheimtu aðstöðugjalda, og að fjármálaráðherra verði heimilað, að ákveða breytingu á hinu nýja fasteignamati til samræmis við verðlag 1. nóv. s.l. Björn Jónsson ráðherra mælti einnig fyrir frumvarpi um lög- heimili.sem afgreitt hefur verið i el'ri deild, en það felur i sér, aö \'estmannaeyingar,sem áttu lög- heimili i Eyjum er jarðeldarnir hófust, eigi þar lögheimili áfram til 1. okt. 1974, nema þeir tilkynni um annað, og hafi þeir þvi kosn- ingarétt þar i bæjarstjórnarkosn- ingunum i vor^ og Vestmanna- eyjakaupstaður fær útsvör þeirra, þó að þeir dvelji annars staðar. I.úðvik Jósepsson, sjávarút- vegsráðherra, mælti fyrir frum- varpi um löndun loðnu til bræöslu.en það hefur áður verið samþykkt i efri deild, og er meg- inbreytingin frá þvi i fyrra sú, að fella á niður ákvæði, sem segir að eigi sé heimilt að stöðva löndun i verksmiðju meðan móttökuskil- yrði eru fyrir hendi. Frumvarpið hafði verið samþykkt einróma i efri deild. öllum þessum frumvörpum var visað til 2. umræðu og nefnda. Fundur hófst á ný kl. háll sex i neðri deild og segir siðar frá þvi sem þar fór fram. 7% engin kvöð ,,7% arðsemisskilyrði er þvi engin kvöð af hálfu erlendrar lánastofnunar, heldur virðist (!) það falla mjög vel saman við hagsmuni Hitaveitunnar, þegar slikar stórframkvæmdir standa fyrirdyrum eins og raun ber vitni um.” Þetta kemur fram i bréfi borgarstjóra til iðnaðarráðuneyt- isins um arðsemi Hita- veitu Reykjavikur og er nú fokið i flest skjól fyrir borgar- stjóranum þegar hann bregður á það ráð að staðhæfa að 7% arð- gjöf séhið ágætasta fyrirkomulag og ..virðist" falla mjög vei saman við hagsmuni Hitaveitunnar! Nánar á morgun. Það kemur hvergi fram i bréfi borgarstjóra að 7% arðsemi hafi verið beint skilvrði fyrir lánveit- ingunni af hálfu Alþjóðabankans. ,,Var hún ekki varin”? var þá Æ6IF0GUB BÓK Eldar í Heimaey Vestmannaeyingarnir,Árni Johnsen, blaðamaður, og Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari, taka höndum saman og lýsa baráttu Eyjamanna við náttúruöflin á ógleymanlegan hátt. Eldar í Heimaey er einstæð lýsing Árna Johnsen á baráttu mannsins við elda og ösku, hraun og hita, og þeirri óbif- anlegu bjartsýni, sem Eyja- menn sýndu, þótt óvíst væri um örlög heimabyggðar þeirra. Árni rekur einnig höf- uðþætti hins mikla endur- reisnarstarfs í Eyjum á þann hátt, sem þeim einum er lagið, sem þekkt hefur Eyjar og íbúa 'þeirra allt sitt líf. 300 myndir Meginþorri þeirra 300 mynda, sem prýða bókina, er tekinn af hinum kunna ljósmyndara Sigurgeir Jónassyni, sem dvaldist í Eyjum allan gostím- ann. Frábærar atburðamynd- ir Sigurgeirs og 15 annarra ljósmyndara draga upp raun- sanna 'lýsingu á hinum stór- brotnu og hörmulegu atburð- um, sem gerðust, þegar eldar komu upp í Heimaey. VESTMANNAEYJABOK AB

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.