Þjóðviljinn - 06.02.1974, Qupperneq 3
Miðvikudagur 6. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
„Páfinn veislu góða
gerði gildum móti...”
Nýtt leikrit eftir
Odd Björnsson i l>jóðleikhúsinu
Sunnudaginn 10. febr. nk.
frumsýnir Þjóðleikhúsið nýtt
leikrit eftir Odd Björnsson, og
verða þá sex sýningar i gangi
samtimis á fjölum hússins.
Þetta nýja leikrit Odds heitir
Dansleikur. Leikstjóri er Sveinn
Einarsson, leikmyndir og bún-
ingateikningar eru gerðar af
Ivar Török, tónlistin er eftir
Atla Jleimi Sveinsson, og dans-
ana í leiknum hefur æft og sam-
ið Alan Carter, ballettmeistari
Þjóðleikhússins.
Leikurinn fjallar um Borgia-
fjölskylduna, sem uppi var á
ttaliu á renissans-timanum og
er eitthvert frægasta fólk þessa
timabils. Þetta er þó ekki sögu-
legt leikrit i venjulegum skiln-
ingi orbsins, þótt að visu komi
fyrir i verkinu helstu atburðirn-
ir i lifi fjölskyldu þessarar.
Abalhlutverkið, Alexander páfa
sjötta, fer Róbert Arnfinnsson
meb, synir páfa, Sesar og Jó-
hann, eru leiknir af Guðmundi
Magnússyni og Sigmundi Erni
Arngrimssyni, Lúkresia páfa-
dóttir er leikin af Helgu Jóns-
dóttur, Salóme huggun Alex-
anders, leikur Sigriður Þor-
valdsdóttir, beljufurstann
Attendolo af Fernara Bessi
Bjarnason, furstana Mirandolo
og Delesta Árni Tryggvason og
Klemenz Jónsson. Ungfrú Di
Pasario er leikin af Bryndisi
Pétursdóttur, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir leikur hefðarfrú,
Jón Gunnarsson söngvara,
Randver Þorláksson skáld og
Þórhallur Sigurðsson og
Margrét Brandsdóttir trúða.
Auk þeirra fara margir auka-
leikarar með þýðingarmikil
hlutverk.
Oddur Björnsson er sem
kunnugt er einn af okkar þekkt-
ustu leikritahöfundum. Hann
stundaði nám i leikhúsfræðum
við háskólann i Vin, og átta leik-
rit eftir hann munu hafa verið
sýnd á leiksviði, þar af fjögur á
vegum Grimu, Framhaldssaga,
Parti, Kóngólóin og Amalia.
Þjóðleikhúsið hefur sýnt þrjú
leikrit eftir Odd, Hornakóralinn,
Jóðlif og Tiu tilbrigði. Útvarpið
hefurflutt fimm leikriteftir Odd
og i sjónvarpi hafa verið flutt
þrjú leikrit hans, Amalia, Jóðlif
og Postulin, en það siðastnefnda
var einnig flutt i sjónvarpi á
Noröurlöndum. Leikfélag
Reykjavikur hefur flutt eitt
leikrit eftir Odd, en það er
barnaleikurinn Snjókarlinn
okkar. — Tvö af leikritum Odds
komu fyrir nokkru út á ensku i
bókaflokknum „Modern Nordic
Plays”.
Oddur Björnsson komst svo
ab orði i viðtali vib blaðamenn
að hann hefði valið þetta við-
fangsefni sökum þess, að sér
virtust furðumikil likindi með
Frá vinstri: lvar Török, Sveinn Einarsson, Oddur Björnsson, Atli Heimir Sveinsson og Alan Carter.
okkar timum og hinu dýna-
miska ástandi italska renis-
sanstimans, þegar hann var i
uppgangi. Og þar að auki væri
Borgia-fjölskyldan sem slik
mjög áhugaverð. „Það mætti
lika segja að meginviðfangsefni
leiksins væri græðgi, pólitisk
græðgi, peningagræðgi, græðgi i
að fullnægja eigin hvötum”,
sagði Oddur. Um tónlistina
sagði Atli Heimir að hún færi
svo nálægt tónlist renissansins,
að hún gæti að niu tiundu hlut-
um verið frá þeim tima. Lika
hefur verið reynt að hafa dans-
ana sem likasta þvi, sem var á
renissans- eða endurreisnar-
timanum, en dansarnir gegna
mjög miklu hlutverki i leiknum ,
sem gerist raunar allur á einni
nóttu á einu heljarmiklu dansi-
balli, sem Alexander páfi slær
upp i einhverri höll sinni, þá
væntanlega Vatikaninu.
Eitt af einkennum Borgia-
fólksins var hve gersamlega
laust það var við hverskonar
smámunasemi i sambandi við
kynferbis- og feimnismál, og
veislur þess voru hvað frægast-
ar fyrir vissar frumlegar uppá-
komur af þvi tagi. Aðspurður
hvort einhvers sliks mætti
vænta i Dansleik, svaraði leik-
stjórinn, Sveinn Einarsson:
„Segja má að leikurinn sé mór-
ölsk dæmisaga, og það væri
hann varla ef of mikil tæpitunga
væri viðhöfð”.
Dansleikur verður aðeins
sýndur sjö-átta sinnum að þessu
sinni, þar eð Róbert Arnfinns-
son fer i mars til Þýskalands, en
hann er ráðinn I aðalhlutverkið i
Fiðlaranum á þakinu i Lúbeck.
Aðsókn hefur verið mjög góð að
sýningum Þjóðleikhússins það
sem af er leikárinu. til dæmis
hafa ellefu sýningar verið viku-
lega tvær undanfarnar vikur.
sem er algert met.
Enn ein ný frétt frá Þjóðleik-
húsinu er að i Kristalssalnum
hafa nú verið opnaðir tveir nýir
barir, sinn i hvoru horni. Verða
þeir opnir I hléiinu milli sýninga
og ef til vill einnig stundum eftir
sýningar. Er þetta gert sökum
þess, að nú er leikhúskjallarinn
upptekinn sum kvöld vegna sýn-
inga og æfinga.
dþ
Guðjón B. Ólafsson, framkvæmdastjóri:
Rangt að fjölga
út f ly t j endum
sjávarafurða
SH stofnar fyrirtæki i Japan
— Nýr aðili i loðnuútflutningi
— Við höldum þvi fram, að það
sc okkar sölumálum til góðs, að
fjölga þeim aðilum sem standa að
loönuútflutningi eins og nú hcfur
vcrið gcrt, sagði Guðjón B. Ólafs-
son framkvæmdastjóri sjávaraf-
urðadeildar StS, er við inntum
hann eftir þvi hvernig StS gengi
loðnusalan eftir að samstarfinu
við SH lauk.
Eins og menn eflaust vita, hafa
SfS og Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna starfað saman að sölu á
frystri loðnu til Japan allt frá þvi
að tslendingar byrjuðu að selja
þangað frysta loðnu. Nú hefur það
hinsvegar gerst, að SH hefur
stofnað nýtt fyrirtæki með jap-
anska fyrirtækinu sem áður
keypti loðnu af SH og SIS. Þar of-
an ábætist, að Bjarni Magnússon
áður starfsmaður SfS, hefur feng-
ið leyfi til loðnuútflutnings og hef-
ur náð til sin 4 frystihúsum sem
áður skiptu við StS. Þannig að nú
eru söluaðilar allt i einu orðnir 3 i
stað eins áður.
Guðjón B. Ólafsson sagði, að
þeim hjá SIS hefði gengið mjög
vel að selja sina loðnu nú. Búið er
að gera sölusamninga við 4 fyrir-
tæki i Japan á allri þeirri loðnu,
sem við getum framleitt, sagði
Guðjón en það verða væntanlega
um 8 þúsund tonn.
— Hver er ástæðan fyrir þvi að
fjögur frystihús fara frá ykkur til
nýs aðila, sem er að byrja á þessu
sviði?
— Ja, þeir sögðu okkur að þeir
hefðu fengið ákveðna fjárhags-
fyrirgreiðslu, sem þeir ekki
fengju hjá okkur, og við þessu var
ekkert að gera. Hitt er annað mál,
að öll þessi frystihús eru heldur
litil, svo þetta hefur ekki svo
mikið að segja, en eins og ég
sagði áðan, þá höfum við alltaf
talið og teljum enn rangt að f jölga
þeim aðilum sem standa að þess-
um útflutningi og við álitum að
það eigi eftir að sýna sig að við
höfum rétt fyrir okkur i þessu
máli, sagði Guðjón að lokum.
Þá höfðum við samband við
Eyjólf I. Eyjólfsson hjá SH og
spurðum hann hvort SH teldi sér
betur borgið eftir samvinnuslitin
1/2 miljón
til Siglufjarðar
I gær var dregið I 2. flokki hjá
SiBS, og kom hæsti vinningur-
inn, 500 þúsund krónur, á niiða
nr. 51618 og var sá seldur á
Siglufirði. 200 þús. kr. vinning-
ur kom á miða nr. 340!) (Aðal-
umboðið Suðurgötu 10) og 100
þúsundá 44803 (Suðurgala 10)
Guðjón B. Olafsson
við SIS og hversvegna þau hefðu
átt sér stað.
— Ætli við segjum ekki að
skoðanaágreiningur hafi valdið
þvi, að við vinnum nú sitt i hvoru
lagi. Annars vil ég ekkert um
þetta mál fjalla á þessu stigi
málsins.
— Er það rétt, að þetta nýja
fyrirtæki SH i Japan kaupi loðnu
af Rússum?
— Ég vil ekkert vera að blanda
mér i þetta tal sem verið er að
dreifa út um þetta.
— Er þetta þá kannski rangt?
— Eins og ég segi, ég blanda
mér ekki i þetta tal. Ef maður
ætti að blanda sér i allt þetta tal,
þá kostar það heila opnu. Það
þýðir ekkert að vera að gripa
svona eitt og eitt atriði af þessu.
Þetta kemur smám saman i ljós,
skulum við segja.
— S.dór
Leiðrétting
i frétt um endurhæfingarráð i
sunnudagsblaði Þjóðviljans var
rangt farið með nafn félaga fatl-
aðra á Akureyri og það sagt heita
Björg. Ilið rétta er að félagið heit-
ir Sjálfsbjörg — félag fatlaðra á
Akureyri. Það sent hefur ruglað
blaðamann er að félagið rekur
fyrirtæki sent nefnist Flastiðjan
Björg. Eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessu.
Kvöldskemmtun með
stúdentum
1 mörg undanfarin ár hefur
Hafnarháskóli opnað dyr skólans
fyrir stúdentum i norrænum
fræðum við háskóla viðsvegar i
Bandarikjunum og boðið þeim að
sækja alhliða námskeið i þessum
greinum á danskri grund.
Kennslan fer að mestu leyti fram
i háskólanum, en auk þess búa
stúdentarnir um hrið á dönskum
heimilum viðsvegar um landið.
Námskeiðin eru skipulögð af al-
þjóðanefnd stúdenta i Danmörku.
Ðanmarks Internationale
Studenterkomite, og standa þau
yfir i tæpt ár.
Fyrir átta árum var Islandi
ooðin þátttaka i þessu norræna
kynningarnámskeiði og hafa
bandarisku stúdentarnir siðan
haft viðdvöl hér i einn og,hin sið-
ari ár, tvo daga á leið sinni austur
yfir haf til Kaupmannahafnar.
Kynnisför þeirra hér hefur verið
þannig háttað, að Háskóli Islands
og Kennaraháskólinn hafa boðið
stúdentunum að sækja skólana
heim og hlýða á fyrirlestra um Is-
land og skiptast siðan á skoðun-
um við nemendur skólanna. Að
auki eru skipulagðar fyrir þá
kynnisferðir um Reykjavik og ná-
grenni og I Hveragerði.
I ár verða bandarisku stúdent-
arnir allt að 200 og skiptast þeir i
tvo hópa. Sá fyrri kom hingað að
morgni þriðjudags 5. febrúar og
frá USA
sótti Háskóla tslands heim. Hinn
siðari er væntanlegur hingað til
lands föstudagsmorgun hinn 8.
þ.m. og sér Kennaraháskóli Is-
lands um Islandskynningu fyrir
þá.
Báðir hópar bandarisku stúd-
entanna búa að Hótel Loftleiðum,
og verða þar kvöldskemmtanir,
sem þeir standa að ásamt nem-
endum áðurnefndra skóla. Kvöld-
skemmtanirnar eru opnar öllum
islenskum námsmönnum, og
verður hin fyrri haldin i Vikinga-
sal Hótels Loftleiða i kvöld 6.
febrúar og hefst kl. 20.00, en hin
siðari fer fram i Blómasal hótels-
ins laugardaginn 9. febrúar og
hefst á sama tima.
Fyrirliði bandarisku stúdent-
anna er Dr. Knud Helm-Erichsen.
forstjóri alþjóðanefndar stúdenta
i Danmörku.
Mannfórn
Jóbannesarborg — Nokkur
hundruð manns munu týna lifi við
gullnám i Suður-Afriku á þessu
ári, segir i Reuterfrétt
Á undanfarinni hálfri öld hafa
27 þúsund manns týnt lifi við gull-
nám. Og árið 1972, sem er það sið-
asta sem skýrslur ná til, létu 485
þeldökkir menn lifið i námunum
og 26 hvitir — eða 1,23 af þúsundi
allra starfsmanna.
Ekkert samband milli
ísl. og norska stofnsins
Fréttir frá Noregi hcrma, að
loðnuveiði þar við land liafi alger-
lega brugðist það sem af er þess-
ari vertið, aðeins komin á land 12
þúsund tonn. 1 þessum fréttum
sagði að bæði væri loðnumagnið
ininna en undanfarin ár og það
sem er til staðar svo drcift, að ill-
mögulegt væri að veiða loðnuna.
Við snérum okkur til Jóns Jóns-
sonar fiskifræðings og spurðum
liann livort samband væri á milli
islenska og norska loðnustofns-
ins. Jón kvað það almennt skoöun
sérfræðinga að svo væri ekki. Að
visu hefðu loðnumerkingar ekki
mikið verið stundaðar, en samt
hefði ekkert komið fram sem
benti til þess að um sama stofn
væri að ræða.
Sú loðna, sem gengur til Noregs
kemur úr Beringshafi, en álit
manna er að islenski loðnustofn-
inn haldi sig norður af tslandi,
þar til gangan hefst umhverfis
landið i byrjun hvers árs.-S.dór