Þjóðviljinn - 06.02.1974, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 06.02.1974, Blaðsíða 13
Miövikudagur 6. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 gætt þess að Celia fengi ekki að vita of mikið um fjármál hans; hann vildi umfram allt að hún héldi að hann afþakkaði tilboðið, svo að hann gæti haft til umráða fimmtiu pund sem hún vissi ekk- ert um. Þetta kom að minnsta kosti vel heim við viðhorf hans til kvenna yfirleitt. — Auðvitað borga ég þér þetta einhvern tima aftur, Ned, sagði hann glaðlega til að ljúka samtal- inu. En Ned var hins vegar ekki reiðubúinn að ljúka þvi. Ekki ennþá. Hann vildi hafa hlutina á sinum stað, svo að hann gæti horft á þá og glaðst yfir þvi að þeir voru á sinum stað. Allt skyldi gerast á snyrtilegan hátt. Hann reis á fæturog upphóf ræðu, sem virtist undirbúin. — Þú getur borgað mér aftur ef þú vilt það heldur, en það liggur að minnsta kosti ekkert á. Fyrir- tækið plumar sig nokkuð vel. Satt að segja gengur okkur betur i kreppunni en ýmsum fjársterkari fyrirtækjum. Róbert kinkaði kolli viðutan. Annaðhvort var honum farið að leiðast eða hann kærði sig ekkert um að heyra um velgengni fyrir- tækisins eftir að (eða vegna þess) að hann var farinn þaðan. — Gömlu fyrirtækin voru i föst- um skorðum og áttu vissa mark- aði. Þegar dró úr sölunni var erf- itt fyrir þau að mæta þvi áfalli. Þau voru ekki nógu sveigjanleg. Þess vegna er i rauninni ekki svo galið að byrja störf á erfiðum timum eins og ég. Við byrjum að minnsta kosti með tvær hendur tómar og getum einbeitt okkur að þvi að framleiða það sem selst. Nú var Róbert hættur að hlusta. Kannski var þaö þess vegna sem Ned sneri sér að næsta atriði, en liklega hafði hann ekki meira um þetta að segja. — Og fáein pund öðru hverju skipta ekki öllu máli, og það er eins gott að ég segi það strax, að þér er að sjálfsögðu velkomið að fá þinn hluta af þvi sem inn kemur. Róbert sneri sér að honum með hægð. Tékkurinn lá i veskinu hans, veskið var i vasa hans og hann var farinn að glóa. Ég sá á honum að hann brann af löngun eftir að segja að hann væri ekki til sölu fyrir peninga. — Af hverju er mér það vel- komið? sagði'hann. Rödd hans var gersamlega hljómlaus. Ned hikaði andartak og tók svo til máls með trúnaðarhreimnum, sem hann var sennilega vanur að beita við tvistigandi hluthafa. — Ef þú vilt að ég leysi frá skjóðunni án allrar tilfinninga- semi og útúrdúra, þá get ég verið stuttorður. Þér er það velkomið, vegna þess að þú ert listamaður. — Hænan sem verpir gulleggi einn góðan veðurdag? — Já, það er sjónarmið þjóð- félagsins i heild. En ef þú átt við mitt eigið persónulega viðhorf, þá er þetta ruddalegt og ómaklegt gamli vinur, og ef ég vissi ekki hvilikur þverhaus þú ert, þá myndi ég heimta að þú tækir þessi orð þin aftur. Róbert hafði ekki hreyft sig, siðan hann sneri sér að Ned. Nú sneri hann sér aftur með hægð þannig að hann vissi að mér. Hann starði á einhvern blett svo sem hálfum metra fyrir ofan höfuðið á mér, stóð þögull andar- tak og sagði siðan: — Ég tek þau aftur. — Viðhorf mitt til listamanna er þannig, hélt Ned áfram, — að þeir séu nauðsynlegir fyrir okkur hina. Við höfum þörf fyrir þá, enda þótt gjaldið sé hátt. Gjaldið getur verið peningar eða geð- vonska og rifrildi. Ég skildi. Þetta var ræðan sem hann hafði undirbúið heima, skýringin á þvi hvers vegna hann fyrirgaf Róbert að hafa farið leiðar sinnar án þess að tala við hann fyrst. Mér fannst óþægilegt að hlusta á hana en mér var fylli- lega ljóst, að Ned lét ekki hunsa sig. Ned gat hvorki verið stutt- orður né látið sem ekkert væri. Ef hann var búinn að gera upp við sig hvernig hann ætlaði að bregðast við einu eða öðru, þá til- kynnti hann hinum aðilanum ákvörðun sina. Það var vegna þess að Ned leit á sjálfan sig sem stofnun en ekki einstakling. Hann var Ned Roper h.f., fyrirtæki i vexti, á leið upp i hæðirnar. Það minnsta sem hann gat gert var að senda frá sér yfirlýsingu þegar hann dró nýjan fána að hún. Hann sagði Róbert ekki frá örlæti sinu i þeim tilgangi að fá hann til að sýna þakklæti. Hann var aðeins að upplýsa hann. Ned Roper h.f. mun eftirleiðis fylgja þessari stefnu. Róbert skildi ekki haus né sporð i þessu. Honum fannst Ned vera að prédika til að hreinsa sam- visku sina sem atvinnurekandi og græða meiri peninga. Hann hafði rétt honum þessi fimmtiu pund til að fá hann til að hlusta. Þetta er ekki ágiskun min, þvi að hann sagði mér þetta sjálfur eftir á. — Hann kaupir sér athygli fyrir fimmtiu pund, sagði hann. Ég reyndi að fá hann til að lita á málið frá hinni hliðinni, en það tókst ekki. Þeir voru ekki þannig gerðir að þeir gætu skilið hvor annan. — Þannig lit ég á málið, sagði Ned. — Verksvið mitt — það sem ég ber skynbragð á — aflar fjár handa mér. Oðru máli gegnir um þig. En ef við viðurkennum að við séum báðir jafnómissandi, ætti að vera hægt að viðhafa eins konar jöfnun. Róbert gekk stundarkorn um gólf meðan hann melti þetta. Svo Þann 5.1. voru gefin saman i hjónaband i Langholtskirkju af séra Sváfni Sveinbjörnssyni Stef- ania V. Sigurjónsdóttir hjúkrunark. og Axel Eiriksson úrsm. Heimili þeirra er að Tangagötu 6, fsafirði. (Nýja myndastofan) • Brúðkaup Þann 29.12. voru gefin saman i hjónaband i Dómkirkjunni af séra Þóri Stephensen Erla Sigurgeirs- dóttir og Höskuldur Dungal. Heimili þeirra er að Grettisgötu 31. Brúðarmeyjar voru Gerður og Kristrún Einarsdætur (systur brúðarinnar). (Nýja myndastof- an) stansaði hann með bakið að Ned. Hann sneri höfðinu um niutiu gráður og talaði yfir öxlina. — Að vissu leyti er það rétt sem þú segir, en að öðru leyti ekki. Ég skil vel hvert framlag þitt er, en hvað á ég eiginlega að láta i té? — List þina, sagði Ned blátt áfram. — Já, mér datt það i hug. Láta list mina i té? Hvernig á ég að fara að þvi? Koma með koppa og kyrnur sem þú getur stungið i ofninn? Ned hallaði sér upp að veggnum og slakaði á. Nú var Róbert kominn i rétt hugar- ástand. — Gallinn á þér, Róbert, er sá að þú hengir þig um of i orðin. Þú gripur með kjafti og klóm i eitthvert orð og þér verður ekki þokað úr stað, fremur en hvumpnu hrossi. Þegar ég segi að við höfum hvor um sig ákvéðnu hlutverki að gegna, þá á ég aðeins við það, að þú eigir að skapa góða list. Sú staðreynd nægir að þú ert skapandi listamaður. Ef þú grunar mig um að fá þig til að láta eitthvað i té fyrir þá hjálp sem þú þiggur, þá skjátlast þér. Þú heldur kannski að ég búi yfir leynilegum áætlunum um að narra út úr þér teikningar og muni, en eins og landið liggur þessa stundina hef ég enga þörf fyrir teikningarnar þinar. — Hundómerkilegar stælingar. — Þú getur kallað það þvi nafni, en þessar hundómerkilegu stælingar seljast og halda fyrir- tækinu uppi, svo að starfsfólkið mitt getur haldið vinnunni og ég hef sjálfur það mikið aflögu að — — Að þú getur verið örlátur við soltna málara. —• Og hjálpað þeim sem gera eitthvað annað en hundómerki- legu stælingarnar hans Baxters. Skilurðu ekki að allir heimsins Baxterar gera gagn á þann hátt. A einni svipstund gerbreyttist Róbert. Hann rétti virðulega úr sér, gekk stirðlega að borðinu, settist á eldhússtólinn og togaði i buxnabrotin eins og hann vildi ógjarnan eyðileggja egghvöss brotin. Hann studdi saman fingurgómunum og hallaði sér aftur á bak með lokuð augu. — Viljið þér hraðrita dálitið, ungfrú Bolsterworthy, sagði hann rólega og virðulega. — Herra Edward Baxter, Esq. Kæri herra Edward Baxter. 1 dýpstu auð- mýkt sendir Listastofnunin Lamb yður kærar þakkir fyrir þá hjálp sem þér leggið fram til trygg- ingar áframhaldandi tilveru vorrar, með þvi að framleiða viðurkennda og ósvikna kúa- mykju. — Æ, hættu nú, sagði Ned hlæj- andi. Hlátur hans virtist ekki alveg ekta, en sennilega veitti hann gremju hans útrás. Honum likaði ekki siðasta tiltæki Róberts. Mér likaði það reyndar ekki heldur, en ég gat þó séð að Róbert var það mikils virði að halda stolti sinu einmitt núna. Ef sattskalsegja, varég ekki heldur sérlega hrifinn af þessari sýndar- mennsku Neds. Ef list Róbert skipti hann i rauninni svona miklu máli, hefði hann alveg eins getað sent honum þessi fimmtiu pund með undirskriftinni ,,Frá vini” og sleppt öllum ræðu- höldum. En ég hafði þekkt þá báða nógu lengi til að skilja hvað á spýtunni hékk. Efnislegar þarfir Róberts voru ekki meiri en andlegar þarfir Neds. Ef Róbert vildi álita að kaupsýslumenn væru aðeins gervikarlar sem réttlættu tilveru sina með þvi einu að hjálpa listamönnum. þá vildi Ned ekki siður leiðretta þann misskilning og tryggja sér i leið- inni sólskinsblett meðal hinna skapandi. Hann var ekki fyrsti maðurinn sem gerði þá angur- væru uppgötvun, að næst þvi að vera skapandi var að gera sig ómissandi fyrir þann sem eitthvað skapaði. Aður en ég gat sagt eitthvað til að beina talinu i aðra átt, hafði Róbert snúið sér að þvi sama. Allt Miðvikudagur 6. febrúar 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl), og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Vilborg Dagbjarts- dóttir heldur áfram lestri sögunnar „Börn eru bezta fólk” eftir Stefán Jónsson (2). Morgunleikfimikl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30 Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög á milli liða. Or játningum Agústinusar kirkjuföður kl. 10.25: Séra Bolli Gústafsson I Laufási les þýðingu Sigur- björns Einarssonar biskups (11). Kirkjutóniist kl. 10.40. itöisk tónlist kl. 11.00: Félagar i Filadelfiu- blásarakvintettinum leika Konsert i g-moll fyrir flautu, óbó og fagott eftir Vivaldi/Blásarakvintettinn i Filadelfiu leikur Kvintett nr. 3 I F-dúr eftir Cam- bini/Flutt atriði úr óperunni „Rakaranum frá Sevilla” eftir Rossini. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: „Dyr standa opnar” eftir Jökul JakobssonHöfundur les (5). 15.00 Miðdegistónleikar: is- lenzk tónlista. Lög eftir Ey- þór Stefánsson, Pál Isólfs- son, Fjölni Stefánsson og Emil Thoroddsen. Frið- björn G. Jónsson syngur, Ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó, b. Svita fyrir pianó eftir Herbert H. Agústsson. Ragnar Björns- son leikur. c. Lög eftir Björn Franzson. Guðrún Tómas- dóttir syngur, Guðrún Kristinsdóttir leikur á pianó. d. Norræn svita um islenzk þjóðlög eftir Hall- grim Helgason. Strokhljóm- sveit Rikisútvarpsins leik- ur, höfundur stj. 16.00 Fréttir. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Popphornið 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Smyglararnir i skerja- garðinum” eftir Jón Björns- son. Margrét Helga Jó- hannsdóttir les (5). 17.35 Framburðarkennsla i spænsku 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veður- fregnir. 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá. BeinlinaUm- sjónarmenn Árni Gunnars- son og Einar Karl Haralds- son. 19.45 Til umhugsunar Þáttur um áfengismál i umsjá Sveins H. Skúlasonar. 20.00 Kvöldvaka a. Einsöngur Maria Markan syngur lög eftir islenzka höfunda. b. Stefánsbylur . Þórarinn Helgáson frá Þykkvabæ flytur stutta frásögu. c. ■ Svipast um á Suðurlandi Jón R. Hjálmarsson skóla- stjóri talar við Þórð Stefánsson i Vik i Mýrdal um bókasafn staðarins og sitthvað fleira. f. Tvær ljós- móðursögur af Ströndum Laufey Sigurðardóttir frá Torfufelli les frásagnir Heigu Soffiu Bjarnadóttur fyrrum ljósmóður af erfið- um vetrarferðum. g. Biómsturvallarimur Svein- björn Beinteinsson kveður rimur eftir Þorstein Jóns- son á Dvergasteini. h. Um islenzka þjóðhætti Árni Björnsson cand.mag. talar. i. Kórsöngur Blandaður kór og strengjasveit flytja lög eftir Þórarin Guðmundsson. 21.30 Utvarpssagan: „Tristan og Isól” eftir Joseph Bédier Einar ól. Sveinsson prófessor islenzkaði og flyt- ur formálsorð. Kristin Anna Þórarinsdóttir leikkona byrjar lesturinn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veður- fregnir. Morðbréf Margeirs K. Laxdals, — fimmti hluti Saga eftir Hrafn Gunn- laugsson i útvarpsgerð höfundar. Flytjendur með honum: Rúrik Haraldsson leikari, örn Þorláksson og Lárus Óskarsson. 22.55 tslandsmótið i hand- knattleik Jón Ásgeirsson lýsir. 23.20 Nútimatónlist Halldór Haraldsson kynnir. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 18.00 M a g g i nærsýn i. Teiknimynd. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. 18.05 Skippi. Ástralskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.30 Svona eru börnin — i Alsir. Norskur fræðslu- myndaflokkur um börn i ýmsum heimshlutum. Þýð- andi og þulur Ellert Sigur- björnsson. 18.45 Gitarskólinn. Gitar- kennsla fyrir byrjendur. 1. þáttur. Kennari er Eyþór Þor'láksson, og styðjast þættirnir við samnefnda git- arkennslubók eftir hann. sem nýkomin er út og fæst i bókaverslunum um land allt. 19.25 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 l.if og fjör i læknadeild. Breskur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.55 Krunkað á skjáinn. Þáttur með blönduðu efni varðandi fjölskyldu og heimili. Meðal efnis i þætt- inum er viðtal við krafta- manninn Reyni örn Leós- son. Umsjónarmaður Magnús Bjarnfreðsson. 21.35 Spekingar spjalla. Hringborðsumræður Nóbelsverðlaunahafa i raunvisindum árið 1973 um vandamál samtiðar og framtiðar. Þátttakendur eru Lea Esaki og Ivar Gia- ever, sem hlutu verðlaun i eðlisfræði, Konrad Lorenz og Nikolaas Tinbergen. sem hlutu læknisfræðiverðlaun- in. og Geoffrey Wilkinson og Ernst Otto Fischer. sem hlutu efnafræðiverðlaunin. Umræðunum stýrir Bengt Feldreich. Þýðandi öskar Ingimarsson. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 22.30 Ilagskrárlok.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.