Þjóðviljinn - 06.02.1974, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 6. febrúar 1974. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 15
15.
SÍÐAN
UMSJÓN: SJ
Er hægt aö beygja
lykil meö
hugsanakrafti?
Hann er Bandaríkjamaður og
heitir Uri Geller. Ilann kom til
Kaupmannahafnar á dögunum
og ræddi þar við fréttamenn.
Uri sagðist hafa svo tnikinn
hugsanakraft, að hann gæti
beygt venjulegan húsiykil með
hugsanakraftinum einum sam-
an. Þetta lék liann fyrir framan
danska blaðamenn. Það var
lcktor við Kaupmannahafnar-
háskóla sein kom með lyklana.
Uri setti sig i stellingar, snerti
ritvél með annarri hendinni en
incð liinni strauk hann lykilinn
léttum strokum. Hann sagðist
alltaf prufa að snerta einhvern
málm með annarri hendinni. Og
viti menn, lykillinn bognaði.
Uri neitaði að hafa nokkui
brögð i tafli og bauð hverjum
sem var að rannsaka sig hátt og
lágt. ,,Ég hef gcrt þetta nærri
nakinn i Þýskalandi eftir að ein-
hvcr fullyrti að ég væri með las-
ergeisla i beltinu”
Uri sagðist nokkrum sinnum
hafa gert álíka hluti I viðurvis
vísindamanna i Bandarikjun
um, þar á meðal Werner Von
Braun, geimvisindamannsins
kunna.
En hann viöurkenndi að þetta
tækist ekki alltaf, og sérstak-
lega ætti hann erfitt með að at
hafna sig undir pressu, t.d.
sjónvarpssal.
Stórmeistarini
FORINTOS
Forintos frá Ungverjalandi,
sá sem sigraði Guðmund i
fyrstu umferðinni, varð al-
þjóðlegur meistari 1963, þá 28
ára gamall. Hann varð skák-
meistari Ungverjalands 1968
og vann þá liklega sinn
stærsta sigur til þessa. Mótið
var óvenju vel skipað. t þvi
tefldu 6 stórmeistarar og 10 al-
þjóðlegir meistarar. Forintos
hlaut þá 16,5 v. af 21 möguleg-
um. Þessi árangur veitti rétt-
indi á 3. svæðamótið i Aþenu
1969 og þar lenti Forintos i 9.
sæti, með 8,5 v., einum vinn-
ingi á eftir Friðrik ólafssyni.
Árið 1970 tefldi Forintos i mjög
sterku móti i Skopje og varð i
6. sæti með 8 vinninga af 15
mögulegum. Tajmanof og
Vasjúkof skipuðu 1. og 2.
sætið með 11 vinninga, en
Forintos skaut aftur fyrir sig
þekktum stórmeisturum, svo
sem Gligoric, Matulovic og
Reshevsky.
t Evrópusveitarkeppninni 1970
urðu Ungverjar i 2.sæti, á eftir
Sovétrikjunum, og Forintos
átti sinn þátt i þeirri vel-
gengni. Hann fékk bestu út-
komu sveitarinnar, vann sex
skákir, tapaði eínni. Árið 1971
sigraði Forintos á minningar-
móti Asztalos með 11 v. af 15
mögulegum. Næstur varð
sovéski keppandinn Bagirof
með 9.5 v. og þá Ciocaltea,
Rúmeniu, með 9 v.
Forintos tefldi á 1. svæðamóti
Evrópu 1972. Tvö efstu sætin
veittu réttindi á millisvæða-
mótinu og þau hlutu
Júgóslavarnir Ivkof og
Ljubojevic, 12 vinninga, en
Forintos kom næstur með 10,5
v.
Sl. sumar tefldi Forintos i
Evrópusveitarkeppninni og
fékk 4 vinninga af 6 möguleg-
um og vann þá m.a. Kusmin
frá Sovétrikjunum. (Heimild:
mótsskrá St.)
Þessi jvíhöfða slanga fannst við Kaspíahafið fyrir
skömmu. Að sögn sérfræðinga er mjög sjaldgæft að
rekast á tvíhöfða slöngur, en ein slík fannst fyrir 10
árum í Azerbadjan í Sovétríkjunum. Slangan ferðað-
ist og hreyfði sig eðlilega, en þar sem hún var ekki
lengur í sínu eðlilega umhverf i dó hún 40 dögum eftir
að hún fannst, þrátt fyrir góða umönnun. (APN)
Bókhaldsaðstoð
með tékkafærslum
KJ'BÚN AÐARHANKIN N
\fj/ REYKJAVÍK
Bifreið
Til sölu Jalta, árg. 1970.
UpplýsingargefurólafurÞ. Jónsson, simi
17500 milli kl. 1 og 4 á daginn.
Frá 1. febrúar er simanúmer okkar
27755
Steinavör h/f,
Gamla Hamarshúsinu,
Norðurstig 7,
(Inngangur frá Tryggvagötu)
Verkamannafélagið Hlif
Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trún-
aðarmannaráðs Verkamannafélagsins
Hlifar um stjórn og aðra trúnaðarmenn
félagsins fyrir árið 1974 liggja frammi á
skrifstofu félagsins Strandgötu 11 frá og
með 6. feb. 1974.
öðrum tillögum ber að skila til skrifstofu
félagsins fyrir kl. 18 föstudaginn 8. feb.
1974, og er þá framboðsfrestur útrunninn
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlifar.
Atvinna
r
Verkamenn vantar
Okkur vantar verkamenn til starfa i
Afurðasölunni við Laugarnesveg. Hafið
samband við Njál Guðnason verkstjóra.
Samband isl. samvinnufélaga.
SAMBAND iSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Skrifstofustúlka
vön vélabókhaldi óskast nú þegar.
Upplýsingar á skrifstofu vorri, Borgartúni
7. Fyrirspurnum ekki svarað i sima.
ÁFENGIS- OG
TÓBAKSVERSLUN RÍKISINS
Verkamenn
Byggingaverkamenn vantar strax.
Upplýsingar i sima 84825.
Brún h/f
Suðurlandsbraut 10