Þjóðviljinn - 24.02.1974, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.02.1974, Síða 1
r Ovíst hvort um helgina Áburðarverksmiðja ríkisins og Sementsverksmiðja ríkisins sömdu og halda áfram framleiðslu Þegar Þjóðviljinn fór i prentun um hádegi á laugardag, var enn með öllu óvist hvort tækist að leysa hin viðtæku verkföll nú um helgina, en þau hófust klukkan 12 á miðnætti i fyrrinótt. Það eru nær 100 verkalýðsfélög vitt um landið sem nú hafa hafið verkfall en helstu undantekning- arnar eru Vestmannaeyjar, Grindavík og nokkrir staðir á Austurlandi. Er þetta ein viðtæk- asta vinnustöðvun, sem um getur hér. Fundur samninganefnda verkalýðsfélaganna og atvinnu- rekenda, sem hófst klukkan 13 á fimmtudag stóð til klukkan hálf þrjú aðfaranótt laugardags, og nýr samningafundur hófst klukk- an 2 i gær. Enn er deilt um ýmsar mikilvægar sérkröfur fyrir utan sjálfa almennu kauphækkunina. Samninganefnd ASl hefur ekki hugsað sér að mæla með neinum undanþágum, en vald til að veita undanþágur er i höndum hvers einstaks félags á þess svæði. Verslunarmenn hafa veitt und- anþágu til flugs, svo að Islenska landsliðið i handbolta kæmist til þátttöku i heimsmeistarakeppni I \ Nœsti leikur? Það eru margir sem skilja ekkert i þvi hvernig fóik getur setið margar klukkustundir og horft á framvindu skákar. Eins og þessar myndir sýna þá gleyma menn sér alveg og biða i angist og spenningi eftir næsta leik. Siðasta umferð Reykjavikurskák- mótsins hefst kl. 13.30 i dag og þá teflir Friðrik, sem öðrum fremur hefur dregið að áhorfendur, viðForintos, sem hefur stað- iðsig meðágætum i þessu móti (Ljósm. SJ) verkföllin leysast Austur-Þýskalandi, en hún er i þann veginn að hefjast. Sérstakar viðræður hófust á föstudagskvöld milli Verkalýðs- félaga á Suðurnesjum annars vegar og Oliufélagsins h.f. og flugfélaganna hins vegar, vegna starfsmanna við afgreiðslu flug- véla á Keflavikurflugvelli. — Ekki var vitað um niðurstöðu i þeim, þegar Þjóðviljinn fór i prentun. Samningar tókust aðfaranótt laugard. milli Vinnumálanefnd- ar rikisins fyrir hönd Aburðar- verksmiðju rikisins og Sements- verksmiðju rikisins annars veg- ar, og nokkurra verkalýðsfélaga hins vegar, og heldur framleiðsla áfram i þessum verksmiðjum af fullum krafti. Það eru Dagsbrún, Verkalýðsfélagið á Akranesi, járniðnaðarmenn og fleiri, sem að þessu samkomulagi standa, og hefur verkfalli verið aflýst hjá umræddum verksmiðjum. Herinn brýtur verkf all 1 fyrrakvöld gerðist það að Kristján Pétursson tollvörður og Valtýr nokkur Sigurðsson tóku sér far til Bandaríkjanna. Nú væri þetta ekki i frásögur færandi ef ekki væri verkfall verslunar- manna. Farkostur manna þess- ara var flugvél bandariska flug- hersins en hvorugur mannanna hafði sótt um undanþágu til þess að mega fljúga af landi brott. Flugu þeir þvi i algerri óþurft verkfallsvarða. Það virðist vera margt hlut- verkið sem þetta blessaða ,,varn- arlið” gegnir á Keflavikurvelli. Nú hefur ný starfsemi bæst á af- rekaskrá þess; verkfallsbrot. Þessi starfsemi hlýtur að hafa hlotið samþykki varnarmála- nefndar utanrikisráðuneytisins og þá er bara spurningin: Hvenær fær „varnarliðið” aðild að samn- inganefnd verkalýðsfélaganna eða hvorum megin við borðið sem þaö nú á eftir að sitja? —ÞH Margir urðu til að ná sér f bensinlögg á tankinn áður en verkfall skail á og sést hér ös við bensinstöðina við Miklubraut á föstudagskvöld. Mikil harðindi í vetur Rœtt við Unnar Þór Böðvarsson skólastjóra á Birkimel Unnar Þór Böðvarsson skóla- stjóri á Birkimel á Barðaströnd tjáði blaðinu að mikil harðindi hefðu verið þar i sveit i vetur. Hafa mikil frost verið og klaki bæði i og á jörð. Hins vegar sluppu Barðstrendingar nokkuð vel út úr óveðrinu sem gerði á dögunum. Engir skaðar urðu á mannvirkjum og rafmagn fengu þeir nóg frá Patreksfirði. Samgöngumálin kvað Unnar vera i mesta ólestri og nefndi sem dæmi að áætlun flóabátsins væri ekkert samræmd áætlun rútunn- ar frá Stykkishólmi til Reykja- vikur þannig að litil not verða af honum, vilji menn bregða sér til höfuðborgarinnar. Er þá helst til ráða að fara með mjólkurbllnum til Patreksfjarðar en þaðan er flogið til Reykjavikur. Þá kvarta þeir Barðstrending- ar yfir lélegum sjónvarpsskilyrð- um. Eru miklar truflanir á út- sendingunni af erlendum stöðv- um. Nú eru Barðstrendingar að búa sig undir grásleppuvertið sem hefst um miðjan april. Að sögn Unnars munu 15^20 bátar stunda vertiðina sem stendur fram i júni og lengur hjá sumum. Hafa menn gert það gott á fyrri vertiðum og i fyrra fengu þeir allt upp i 100 tunnur af hrognum á bát. Verðið á tunnunni er um 10 þúsund krónur þannig að þetta er drjúgur skild- ingur fyrir 2 menn i 2—3 mánaða úthaldi. Útvegsbændur á Barðaströnd eru hagleiksmenn og eru nokkrir þeirra núna að smiða sér báta sjálfir fyrir vertiðina. Nú er verið að undirbúa bygg- ingu barna- og unglingaskóla á Barðaströnd en smiði hans á að hefjast með vorinu. Hefur verið veitt tveimur miljónum til bygg- ingar hans. Skólinn mun rúma 50- —60 nemendur en það er svipaður fjöldi og börn á skólaskyldualdri i hreppnum. Nú búa um 200 manns i Barða- strandarhreppi og fer heldur fjölgandi. Hreppurinn hefur stað- ið af sér alla flutninga i þéttbýlið og kvað Unnar helstu skýringuna á þvi vera grásleppuna. Þónokk- uð er um ungt fólk i hreppnum og sagði Unnar að það settist að i sveitinni eftir þvi sem land og að- stæður leyfa. — ÞH Svartolía i stað gasoliu — sparnaður: 3 skuttogarar á ári Ef tekinn væri upp sá háttur að brenna svart- oliu i stað gasoliu á öll- um nýju skuttogurunum okkar, gætum við keypt okkur 3 nýja togara á ári fyrir sparnaðinn. Þetta kom fram hjá Ólafi Eirikssyni tæknifræðingi á fundi hjá Alþýðubandalaginu i Reykja- vik á fimmtudagskvöldið. Miðað við nýjustu upplýsingar sem fyrir liggja um verð á oliu má ætla að nýi togaraflotinn eyði gasoliu fyrir 740 miljónir króna á ári. Auðvelt er að koma við þeim útbúnaði sem geri það kleií't að brenna svartoliu. en hún er miklu ódýrari en gasolian. Árseyðsla togaraflotans af svartoliu mundi kosta á að giska 275 miljónir króna. Þaö mundu þvi sparast 465 miljónir sam- kvæmt þessum reikningi. Væri nú ekki ráð, spurði Ólaf- ur, að hyggja að þessum sparn- aðarmöguleika? Eru menn ekki oft að tala um hagræðingu og endurskipulagningu þar sem minni verðmæti eru i húfi en þarna?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.